Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2000, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2000, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2000 Helgarblað_________________________x>v Bréfið varð mér að falli - séra Gunnar Björnsson yfirgefur Holt í Önundarfirði sáttur við Guð og menn Þaö hefur oröiö hlutskipti séra Gunnars Björnssonar aö vera umdeildur í starfi sínu sem sóknarprestur. Hann hefur starfaö sem sóknarprestur á þremur stööum á landinu og tvisvar sinnum látiö af starfi nauö- ugur viljugur. Fyrst var hann prestur á Hóli í Bol- ungarvík frá 1972-1982, síö- an viö Fríkirkjuna í Reykja- vík til 1989 og í Holti í Ön- undarfirði frá 1989 til þessa dags er hann tekur viö starfi sérþjónustuprests eftir aö biskup íslands haföi úr- skuröaö aö hann hyrfi frá Holti. Undanfari þess voru umkvartanir Holtssafnaöar um samstarfsörðugleika og fleiri umkvörtunarefni sem fjallað var um aö til þess bœrum stofnunum kirkjunn- ar. Starfssystkini séra Gunn- ars á Vestfjöröum komu nokkuö viö máliö og sérstak- lega hverföist fréttaflutning- ur af því í kringum bréf eöa skýrslu sem séra Gunnar sendi fyrst biskupi íslands og síöar prófasti sem lagöi tilskrifiö fyrir prestafund vestra. í kjölfarið komst efni bréfsins í há- mæli og varð ýmislegt sem þar stóð helsta ástæða þess að biskup færði Gunnar til í embætti og gerði honum að biðja sóknarbörn sín afsökunar, sem og nokkra aðra einstaklinga. Þar lauk ferli Gunnars í Holti að mörgu leyti með líkum hætti og þeg- ar hann yfirgaf Fríkirkjusöfnuðinn haustið 1989 eftir langvinnar deilur sem of langt mál er að rekja hér um hvað snerust. Séra Gunnar hefur lítt eða ekki tjáð sig um efni þessa máls í fjölmiðl- um þó margt hafi verið skrifað um það. í nýlegri skoðanakönnun DV á vinsældum presta kom í ljós að séra Gunnar var talinn óvinsælastur en lenti jafnframt í sjötta sæti á lista þeirra vinsælustu. Það er stilltur vetrardagur þegar starfsmenn DV renna í hlað í Holti í þeim erindum að taka viðtal við hinn umdeilda klerk. Gunnar gerir vel við gesti og það er drukkið kaffi, hlýtt á sellóleik og margar sögur af prestum sem lifa í munnlegri geymd rifjaðar upp. Gunnar er líflegur sögumaður og í meðförum hans bregður mörgum kollegum hans fyrir í stofunni í Holti þessa stund sem við æjum þar. Um hvað var deilt? En hver voru tildrög þess að hann kom í Holt og hvað var það sem olli deilunum við söfnuðinn þar? „Haustið 1989 hlaut ég köllun frá sóknarnefndum Holtsprestakalls. Það gladdi mig að vonum eftir það sem upp hafði komið í Fríkirkjunni. En ég hafði raunar einnig fengið óskir frá fleiri prestaköllum um að gerast þar sóknarprestur, m.a. eina af Suður- landi og aðra frá einum stærsta kaup- stað á Vestfjörðum.“ Ég hefi alltaf sagt, og stend fast á því, að mér hefur ekki virst um nein- ar deilur að ræða hér í Holtspresta- kalli. Mér er það ráðgáta hvernig þessi mál náðu að þróast. Auðvitað er enginn maður fullkominn og ég geri mér fyllilega ljóst að ég get verið bæði ör og geðríkur en það er undireins úr mér og ég held að ég sé sáttfús mað- ur. Með aldrinum hefur mér líka lærst æ betur að taka hlutunum með ró og stillingu. Þegar ég fór vestur í Önundarfjörð, var mér efst í huga að gæta þess vandlega og reyna af alefli og með öll- um ráðum að komast hjá nokkrum þeim aðstæðum er kynnu að verða til þess að sundurlyndi milli prests og sóknarbarna kæmi upp. Einsetti ég mér að standa við þetta eins og frekast væri kostur. Mér var afskap- lega umhugað um að öff samskipti gætu verið hrein og árekstralaus." Fyrstu gárurnar rísa Það má segja að farið hafi að rísa úfar með söfnuði og presti fyrir rúm- um tveimur árum. Fram til þess tíma segist séra Gunnar ekki hafa orðið var við neitt. „Hinn 4. maí 1998 var haldinn aðal- safnaðarfundur í Holtssókn. Þar kom fram sú gagnrýni að kirkjustarfið Ég hefi velt þvífyrir mér hver sá litli snjóbolti geti hafa verið er svo hlóð utan á sig að úr varð þessi skriða sem raunar hefur magnast verulega vegna umraeðu í fjölmiðlum. En ég er í raun engu nœr. þætti ekki nógu gott, of fáir syngju í kirkjukór og kirkjusóknin væri ónóg. Ég varð sem nærri má geta mjög hugsi, dapur og undrandi yfir þessu og velti því fyrir mér hvort starfið hér væri með einhverjum hætti öðru- vísi en hjá öðrum prestum á íslandi. Ég leitaði nokkru síðar til biskups. Þótti mér afar gott og uppörvandi að ræða við minn gamla skólabróður enda hughreysti hann mig og bað mig að halda ró minni. Síðan þetta var hefi ég grandskoð- að hug minn um það hver rót þessa meinta vanda kunni að hafa verið, en orðið litlu nær. Ég hefi velt því fyrir mér hver sá litli snjóbolti geti hafa verið er svo hlóð utan á sig að úr varð þessi skriða sem raunar hefur magnast verulega vegna umræðu í fjölmiðlum. En ég er i raun engu nær. En ég er svo lánsamur að eiga marga góða vini og stóran hóp stuðn- ingsmanna sem þekkja mig vel og kannast ekki við þá mynd sem stund- um er dregin upp af fjölmiðlum. Og margir Önfirðingar hafa líka stutt mig með ráðum og dáð.“ Bréfið örlagaríka verður til Eftir fundinn þar sem safnaðarstarf- ið var gagnrýnt ákvað Gunnar að skrifa niður ýmsa þanka um starfið og aðstæður í Holtsprestakalli og senda biskupi bréf til að varpa nánara ljósi á þessar deilur og ástandið. Þetta bréf átti eftir að reynast mikill örlagavald- ur. „Hinn 28. september 1998 kom bisk- upsritari vestur í Önundarfjörð og hélt fund með sóknamefndum prestakalls- ins. Ég fékk honum þá þessi skrif sem stíluð voru til biskups. Á bréfhaus stóð að þetta væri einkabréf og þess sér- staklega óskað að það yrði aldrei neins konar málsskjal. Eftir á að hyggja sé ég eftir því að hafa sent prófasti bréfið. Bréf mitt lá svo í þagnargildi þangað til 14 mánuðum síðar en allan þann tima hafði það verið fyrirliggjandi á biskupsstofú." Séra Gunnar segist vera haldinn þeirri áráttu að skrifa og haldi t.d. mjög nákvæma dagbók og hafi gaman af því í einkabréfum að draga upp skoplegar myndir af því sem fyrir augu ber. Bréfið til biskups hafi borið keim af þessu. En þjóðkirkjan rann- sakaði málið áfram. „Hinn 1. nóvember 1999 féll úrskurð- ur úrskurðamefndar þjóðkirkjunnar í máli málshefjenda í Önundarfirði og mín.Var ég þar sýknaður af öllum ásökunum er gátu hugsanlega fallið undir aga- eða siðferðisbrot." Kollegarnir vilja hann burt Nú mætti halda að á þessum punkti hefði málinu verið lokið en þá barst mótbyr úr óvæntri átt þegar starfs- systkini Gunnars á Vestfjörðum lögð- ust á sveif með andstæðingum hans í Holti. Hvað gerðist næst? „Fimmtudaginn 11. nóvember 1999 hafði prófastur ísafjarðarprófastsdæm- is, séra Agnes Sigurðardóttir, samband við mig og tjáði mér að hún hygðist halda fund með prestum prófastsdæm- isins íhöndfarandi helgi og yrði fund- arefnið úrskurður úrskurðameffidar þjóðkirkjunnar um málefni mín og Holtsprestakalls. Sagði hún mér og að öll starfssystkini mín I prófastsdæm- inu hefðu tekið afstöðu gegn mér en með málshefjendum i Önundarfirði. Ekki boðaði hún mig á fúndinn en kvaðst vilja segja mér frá því að fyrir- hugað væri að halda hann. Þetta kom mér á óvart þar eð engar lyktir lágu þá fyrir í málinu og hálfúr mánuður eftir af fresti okkar málsaðil- anna til þess að áfrýja til áfrýjunar- nefndar þjóðkirkjunnar. Mér var vissulega ljóst að málið snerti biskup og prófast en þótti ekki eins augljóst að það kæmi beinlínis við kollegum mín- um í prófastsdæminu." Místök í erfiöri stööu „í sama mund andaðist móðir mín í Reykjavík eftir stutta en erfiða sjúk- DV-MYNDIR: PJETUR Séra Gunnar situr viö skriftir Mér uröu á þau mistök að /áta bréfið frá mér í grandaleysi en jafnframt i fullkomnu trausti þess að þröfasturinn og prestar hennar myndu vilja skoöa efni þess og líta á mína hliö málsins. “
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.