Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2000, Page 57
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2000
DV
_______65
Tilvera
Afmælisbörn
Julian Lennon 37 ára
Það er ekki aíltaf tekið út með
sældinni að eiga foður sem talinn er
meðal mestu spámanna síðustu aldar
í tónlistinni. Julian Lennon, sem
verður þrjátiu og sjö ára í dag, hefur
lifað allt sitt líf í skugga fóður síns,
Johns Lennons. Honum tókst á tíma-
bili að skapa sér nafn sem sjálfstæður
tónlistarmaður, kom lögum inn á vin-
sældalista en hefur lítið haft sig í
frammi síðari ár. Hann starfar enn að
tónsmíðum og þykir góður fréttamat-
ur en einkalífið hefur verið brösótt
hjá honum ekki síður en hjá föður
hans.
Dennis Quaid 46 ára
Hinn ágæti leikari, Dennis Quaid,
verður 46 ára á morgun. Ef hann er
ekki bundinn við kvikmyndatöku
mun hann sjálfsagt eyða deginum
með eiginkonu sinni, Meg Ryan, á
býli þeirra ef hún er ekki að sinna
starfi sínu einhvers staðar fjarri
heimOi þeirra. Quaid er einnig góður
tónlistarmaður, spilar og semur lög
og komu tónlistarhæfUeikar hans
best í ljós þegar hann lék rokkarann
Jerry Lee Lewis í Great Balls of Fire.
Hann og Ryan eiga einn son, Jack
Henry. Bróðir Dennis Quaid, Randy
Quaid, er einnig þekktur leikari.
Stjörnuspá
Gildir fyrir sunnudaginn 9. apríl og mánudaginn 10. apríl
Vatnsberinn (20. ian.-lfi. febr.):
Spá sunnudagsins
Þú ert vinnusamur í
dag og kemur frá þér
verkeftium sem þú hef-
ur verið að trassa lengi. Einbeittu
þér að skipulagningu næstu daga.
Vinir þínir koma þér á óvart á
einhvem hátt og þú hefur í nógu
að snúast í sambandi við félagslif-
ið í kvöld.
Hrúturinn (21. mars-19. apríh:
Þessi dagur verður eft-
irminnilegur vegna
^ óvæntra atburða. Við-
skiptin ganga vonum framar og
fjármálin ættu að fara batnandi.
Þú ættir að sýna aðgát í samskipt-
um þínum við aðra. Það er mikif
viðkvæmni og tilfinningasemi í
kringum þig.
Tvíburarnir 121. maí-21. iúníl:
Þú verður að vera þol-
inmóður en þó ákveð-
inn við fólk sem þú ert
að bíða efdr. Þú lendir í sérstakri
aðstöðu í vinnunnni.
Vinur þinn kemur í heimsókn til
þín í dag og þið eigið saman gott
og þarft spjall. Heimilislifið verð-
ur að einhveiju leyti.
Uónið (23. iúlí- 22. áeúst):
Samskipti þín við aðra
verða ánægjuleg í dag.
Þér gengur vel að fá
fólk til að hlusta á þig og skoðan-
ir þínar.
Þér gengur vel að vinna úr þvi
sem þú hefúr og ert fljótur að
vinna verkefhi sem þú tekur þér
fyrir hendur.
Vogln (23. sept.-23. okt.)
Spa sunnudagsins
Þú finnur fyrir nei-
kvæðu andrúmsfofti í
' f kringum þig og fólk er
ekki tilbúið að bjóða fram aðstoð
sina.
Spá mánudagsins:
Dagurinn verður fremur viðburða-
snauður og þú eyðir honum í ró og
næði. Fjölskyldan kemur mikið við
sögu seinni hfuta dagsins.
Bogamaður (22. nóv,-2l. des.):
rDagurinn verðm- held-
ur viðburðalitill og þú
ættir að einbeita þér að
vinnunni fyrri hluta dagsins. Hittu
vini eða ættingja þína í kvöld.
Vinur þinn hefúr áhrif á skoðanir
þínar i dag. Þú ættir að hlusta á
hugmyndir hans en varast að taka
orð hans of bókstaflega.
Flskarnlr(19. febr.-20. mars):
Spá sunnudagsins
• Dagurinn ætti að vera
rólegur og einstaklega
þægilegur. Þú átt
skemmtileg samtöl við fólk sem
þú umgengst mikið.
Spá mánudagsins
Heppnin verður með þér fyrri
hluta dagsins og þú færð tækifæri
sem þú hefur beðið eftir lengi.
Reyndu að eiga rólegt kvöld.
Nautlð (20. april-20. maí.i:
Spa sunnudagsms
in
Það verður mikið um
að vera í dag og þú
mátt búast við að eitt-
hvað sem þú ert að gera taki
lengri tfrna en þú ætlaðir.
Þú verður að sýna tillitssemi og
nærgætni ef einhver leitar til þín
með vandamál. Kvöldið verður
skemmtilegt í góðra vina hópi.
Krabblnn (22. iúní-22. iúin:
Spá sunnudagsins
| Eitthvað óvænt kemur
upp á og þú gætir
þurft að breyta áætl-
unum þínum á síðustu stundu.
Haltu ró þinni.
Það verður ekki auðvelt að fá fólk
tíl að taka þátt í ákveðnu verkefni
en þú skalt vera þolinmóður. Gerðu
eitthvað skemmtilegt í kvöld.
Mevian (23. áaúst-22. sept.):
Spa sunnudagsins
Þú verður að gæta
^^V^iotungu þinnar í sam-
' skiptum við fólk, sér-
staklega þá sem þú telur að séu
viðkvæmir fyxir gagnrýni.
Rómantíkin liggur í lofttnu. Þú
verður vitni að einhverju
skemmttlegu sem mun hafa já-
kvæð áhrif á framtíð þína.
Sporðdiekl (24. okt.-21. nóv.i:
Fjölskyidan upplifir
gleðilegan dag. í vinn-
nnni er einnig afar já-
kvætt andrúmsloft og þér gengur vel
við þín störf. Kvöldið lofar góðu.
Vinir þínir koma þér á óvart á ein-
hvem hátt og þú hefur í nógu að
snúast í sambandi við félagslífið í
kvöid. Rómantíkin liggur í loftinu.
Stelngeitin (22. des.-19. ian.i:
Spá sunnudagsíns
Þú kynnist einhverju
nýju sem vekur áhuga
þinn. Hugsaðu þig vel
um áður en þú tekur mikilvægar
ákvarðanir.
Dagurinn verður fremur viðburða-
snauður og þú eyðir honum í ró og
næði. Fjölskyldan kemur mikið við
sögu seinni hluta dagsins.
Áfram veginn
Ingþór Bjarnason er kominn heim en er ekki afbaki dottinn og styöur félaga sinn af krafti.
DV-MYND E.ÓL.
Einfaranum á leið á pólinn berast stöðugt kveðjur og fyrirspurnir:
Guðdómlega sárt?
Við höldum áfram að skyggnast í
gestabók pólfaranna á Netinu. Nú er
Ingþór Bjamason kominn heim til
íslands en Haraldi Emi Ólafssyni
berast stöðugt nýjar hvatningar-
kveðjur.
Mér hlýnar við að fá þig heim,
„Skeggi frændi", hárrétt ákvörðun!
Halli, vertu sterkur, kallinn, megi
guð gefa þér æðruleysi að pólnum.
Erfiðleikar eru eldiviður framfara.
Dagur Óskarsson.
Kæri Haraldur. Er ekki mjög
óþægilegt að vera í svona miklu
frosti? Sendi þér bcu-áttukveðju og
vona að þú náir markmiðinu!
Vésteinn Kári,
6-S í Grandaskóla
Kæri Haraldur, er ekki himneskt
að vera á norðurpólnum? Og er ekki
guðdómlega sárt að vera með frosið
skegg? Vonandi kemst þú á leiðar-
enda og verður þar með fyrsti ís-
lendingurinn til að ganga yfir norð-
urpólinn. Baráttukveðja.
Magnús Öm
Kæri Haraldur! Gangi þér vel að
ganga á pólinn og við vonum að þú
komist heill heim. Við erum tvær
stelpur úr Grandaskóla og erum að
læra um þig, Grænland og dýrin þar
(það eru þemadagar í skólanum hjá
okkur). Við vonum að þú heyrir
þessa kveðju ffá okkur! Það var
gaman að skrifa þér þetta bréfl
PS. Er ekki vont að vera með fros-
ið skegg?
Tinna og Karólína
í Grandaskóla
Hvemig komist þið í nærbuxum-
ar þama og hvemig gerið þið þarfir
ykkar? Við erum í Grandaskóla og
erum að gera þema um Grænland ^
og norðurpólinn.
Óli, Einar og Jónsi
í 6-S í Grandaskóla
Gangi þér vel. Mundu að augu og
eyru íslendinga fylgja þér þakklát-
um huga ásamt vænum skammti af
aðdáun.
Karl Steinar Guðnason
Sá einn veit
er víða ratar
og hefur fjöld offarid,
hverju geði
stýrir gumna hver
sá er vitandi er vits.
Hávamál
Hafþór og Þórhanna
Vill vingast
við Miu á ný
Woody Allen og eiginkona
hans, Soon-Yi Previn, óska eft-
ir því að taka upp samband á
ný við Miu Farrow. Allen seg-
ir í viötali við bandariska dag-
blaðið New York Post að kon-
an sin sakni móður sinnar og
að hún vilji vingast við hana.
Mia og Soon-Yi hafa ekkert
samband haft hvor við aðra
síðan sú síðamefnda flutti inn
til stjúpföður síns árið 1992.
„Ef Mia segir já þá styð ég
þær báðar,“ segir Woody Allen
í viðtalinu. Leikstjórinn frægi
er þó ekki viss um að það tak-
ist aö koma á hamingjusömum
endurfundum. „En ég er viss
um aö Soon-Yi elskar enn móð-
ur sína,“ segir hann.
Þaö vakti á sínum tíma
heimsathygli þegar Soon-Yi
gerðist ástkona stjúpfóður
síns. Soon-Yi er eitt fjöl-
margra kjörbama leikkonunnar
Miu Farrow.
Woody Allen
Kvikmyndaleikstjórinn styöur
endurfundi Miu og Soon-Yi.
Kryddpíurnar
slæm fyrirmynd
Niðurstaða rannsóknar
danskra félagsfræðinga og kenn-
ara er sú að Kryddpíumar séu
slæm fyrirmynd. Danskar stelpur
á aldrinum 8 til 12 ára bæði klæða
sig og hegða sér eins og þær séu
miklu eldri en þær eru. Helsta
fyrirmynd þeirra er Kryddpíum-
ar en stelpumar herma einnig eft-
ir Aqua-Lene. „Það er ekki eðli-
legt að 11 ára stúlkubörn klæðist
gegnsæjum toppum og niðþröng-
um buxum til að líkjast fyrh-
myndum sinurn," segja sérfræð-
ingamh. Þeh segja foreldra
verða að stöðva þetta. '*