Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2000, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000
Fréttir DV
Vilhjálmur Ingi Árnason, stjórnarmaöur í Neytendasamtökunum:
Jóhannes segi af sér
„Ástandið innan Neytendasam-
takanna er svipað nú og það var
þegar uppgötvað-
ist i sumar að
samtökin notuðu
stolinn hugbún-
að. Fólki finnast
mistökin við
gerð matvöru-
könnunarinnar
skammarleg og
framkvæmda-
stjómin reynir
að þegja málið i
hel, rétt eins og
kristilegir
demókratar
í Þýskalandi," segir Vil-
stjórnar-
Vilhjálmur Ingi
Arnason:
Ófremdarástand
innan Neytenda-
samtakanna.
gerðu
hjálmur Ingi Árnason,
Ákall til heimilislæknis
Guömundur Jónsson óperusöngvari
ritaöi opiö bréf í Vetvakanda þar
sem hann ávarpaði lækni sinn.
Hann hefur nú náö sambandi.
Bréfið
svínvirkaði
„Læknirinn hafði samband við
mig og þetta er allt í lagi,“ sagði
Guðmundur Jónsson óperusöngvari
sem fór þá óvenjulegu leið að skrifa
sérfræðilækni sínum opið bréf í
Morgunblaðinu sl. laugardag til að
spyrja hann um niðurstöður rann-
sóknar sem hann sendi Guömund í
síðastliðiö haust. Læknirinn haíði
samband við Guðmund strax eftir
helgina og fór Guðmundur i tíma til
hans i fyrradag.
Kæri læknir |
„Bréf geta hrifið stöku sinnum,
einkum ef maður er ekki að skamm-
ast, þá er allt í lagi,“ sagði Guð-
mundur við DV. Spurður um fóta-
mein sitt sagði Guðmundur að það
væri gömul sykursýki sem væri að
hrjá sig. Hún hefði eytt taugaboðum
þannig að fætumir létu ekki al-
mennilega að stjóm. „Ég er stirður
þegar ég stend upp en svo er allt í
lagi þegar ég er kominn á ról, það
tekur bara tíma,“ sagði þessi ást-
sæli óperusöngvari íslensku þjóðar-
innar. -JSS
- jámenn koma í veg fyrir mótmæli
maður Neytendasamtakanna.
„Ekki er við starfsfólk að sakast,
það vann starf sitt undir mikilli
pressu. Kurr er í mönnum en ég sé
ekki að gerð verði krafa um að Jó-
hannes eða aðrir í framkvæmda-
stjórninni segi af sér. Ástæðan er
sú að Jóhannes hefur á 20 ára ferli
sinum í samtökunum safnað í
kringum sig flokki jámanna í
framkvæmdastjórnina þar sem
ákvarðanir eru teknar og þeir kaf-
færa lýðræðislega ákvarðana-
töku.“
Vilhjálmur segir að ófremdará-
stand hafi ríkt vegna þessa innan
Neytendasamtakanna síðastliðin 6
ár og tími sé kominn til að Jó-
hannes segi af sér. „Það er nú eða
aldrei sem eitthvað gerist í þess-
um málum. Þegar hugbúnaðarsvik
samtakanna komu upp í ágúst sið-
astliðnum áttu samtökin á hættu
að fá allt að 10 milljóna króna sekt
en með því að gera dómsátt við
lögmann Microsoft hérlendis var
sektin lækkuð niður í nokkur þús-
und dollara. Ég get staðfest það en
fékk aldrei að vita nákvæma tölu
þar sem mér var bolað út úr fram-
kvæmdastjórninni í sumar.“
Vilhjálmur Ingi segir að hann
hafi aðeins haldið stöðu sinni í
stjórn Neytendasamtakanna vegna
þess að hann njóti stuðnings fé-
lagsmanna á Akureyri. -HG
Einungis um að ræða minni
háttar innsláttarvillu
„Ég hef ekki haft afskipti af verð-
könnunum Neytendasamtakanna
þannig að ég get ekki tjáð mig mikið
um könnunina sem hefur verið í fjöl-
miðlum síðustu daga,“ segir Jón
Magnússon, varaformaður Neytenda-
samtakanna. Hann segist þó telja að
of mikið sé gert úr matvörukönnun-
um í fjölmiðlum miðað við þann
ávinning sem neytendur hafa af því.
„1 þetta sinn var einungis um að
ræða minni háttar innsláttarvillu.
Það þarf þó ekki að þýöa að kannan-
irnar séu óalandi og óferjandi. Auð-
vitað þykir okkur
miður að villa
hafi komið fyrir
en ég tel að hér
hafi verið gerður
úlfaldi úr mýflugu
enda er einfalt að
lesa út úr könnun-
inni raunveruleg-
an verðmun milli
verslana."
- Nú má ætla að
trúverðugleiki Neytendasamtakanna
hafi beðið hnekki vegna þessa máls.
Hvernig telur þú best að endur-
heimta það traust?
„Mér flnnst nú fljótfærnislegt að
telja að samtökin hafi beðið varan-
legan skaða af málinu. Allir skilja
að mannleg mistök geta orðið og
hver hefur sína skoðun á því hvern-
ig er best að bæta úr stöðunni. Við
störfum í lýðræðislegum samtökum.
Við munum haga okkur i samræmi
viö það og taka lýðræðislega
ákvörðun um rnálið," segir Jón
Magnússon.
-HG
Jón Magnússon:
Innsláttarvilla.
DV-MYND GK
~ T1
ífw & fW*
|L.
\ ■ tfA
Ford-stúlkur á Akureyri
Stúlkurnar sem taka þátt í úrslitum Ford-fyrirsætukeppninnar hér á landi heimsóttu Akureyri i gær. Þar skoöuöu þær
m.a. Mjólkursamlag KEA og aö því loknu smökkuöu þær á hinu eina sanna KEA-skyri og virtist líka þaö vel.
Lögreglan telur sig hafa nægar sannanir gegn Rúnari Ríkharðssyni frá Keflavík:
Myndband í nauðgun-
armáli lagt fyrir dóm
Samkvæmt heimUdum DV mun
myndbandsupptaka af meintri
nauðgun verða eitt af gögnum í
máli ákæruvaldsins gegn Rúnari
Bjarka Ríkharðssyni - manninum
sem um helgina, og mánuði eftir
meinta nauðgun, banaði Áslaugu
Óladóttur, 19 ára vinkonu kærand-
ans í nauðgunarmálinu. Þeir sem
komið hafa að þessu máli telja það
afar sérstakt.
Heimildir DV í Keflavík herma
að þegar Rúnar var yfirheyröur
hafi hann þrætt fyrir að hafa gerst
brotlegur gagnvart stúlkunni sem
kærði hann fyrir nauðgunina. Lög-
reglan í Keflavík vill ekkert stað-
festa um myndbandsupptökuna.
Hins vegar er DV kunnugt um að
lögreglan telur sig hafa það sterkar
sannanir að máliö veröur fljótlega
sent fullrannsakað til ákæruvalds-
ins.
30-35 ára maður sem lögreglan
hefur lýst eftir í tengslum við
manndrápið að Skólavegi 2 í Kefla-
vík hefur ekki gefið sig fram. Hann
sást á tali við Rúnar Bjarka á veit-
ingahúsi skömmu áður en voðaat-
burðurinn átti sér stað á Skólavegi
aðfaranótt laugardagsins. Ástæða
þess að lýst er eftir þessum til-
tekna manni er sú að lögreglan vill
einfaldlega vita hvað honum og
Rúnari fór á milli, svo stuttu fyrir
manndrápið.
Oröið eins og í New York
„Þetta er orðiö eins og í New
York,“ sagði hárgreiðslustúlka
sem starfar í næsta húsi við Skóla-
veg 2 í Keflavík. „Auðvitað bregð-
ur manni rosalega en mér flnnst
hræðflegt að þetta skuli gerast hér
í húsinu við hliðina," sagði konan.
Rúnar Bjarki er 21 árs og starf-
aði á Keflavíkurflugvelli. Hann var
fluttur í gæsluvarðhald frá Kefla-
vík austur á Litla-Hraun á mánu-
dagskvöldið. Hann er grunaður um
að hafa sent hinni látnu SMS-skOa-
boð á síma hennar eftir að hún bar
vitni í nauðgunarmálinu. í byrjun
aprfl var hann handtekinn vegna
meints áreitis en var slepppt aftur.
Áslaug heitin hafði þá lagt fram
kæru á hendur Rúnari fyrir að
hafa sent sér ósæmOeg SMS-skOa-
boð.
-Ótt/-SMK
Kanna bótarétt
Jón Steinar Gunnlaugsson hæsta-
réttarlögmaður og Gunnar G.
Schram lagapró-
fessor hafa tekið að
sér mOligöngu um
að koma hópi ís-
lendinga, sem hafa
orðið fyrir
heOsutjóni í kjölfar
reykinga, í sam-
band við banda-
rískt lögfræðifirma í því skyni að
kanna hugsanlegan bótarétt þeirra
á hendur bandarískum tóbaksfram-
leiðendum. Mbl. greindi frá.
Fleiri vilja afsökun
Neytendasamtökin hafa notað
sömu aðferð í könnun á matvöruverði
verslana í mörg ár. í kjölfar kvörtun-
ar Baugs á vöruverði í verslunum sin-
um leiðréttu samtökin viOu í aðferð
sinni. Nú hafa fleiri fyrirtæki íhugað
að kreíja samtökin um opinbera af-
sökun því miklir hagsmunir séu í
húfi. RÚV greindi frá.
Nýtt nafn í maí
Líkur eru taldar á að Samfylking-
in fái nýtt nafn á formlegum stofn-
fundi flokksins í byrjun maí. Sam-
kvæmt fréttum RÚV eru tvö nöfn
talin líklegust, Jafnaðarflokkurinn
og Jafnaðarmannaflokkurinn.
Kjafturinn í lagi
„Ég er allur gifsaður núna og þarf
að staulast við
hækjur næstu tvær
vikurnar. ... Áfram
er ég með kjaftinn
og hausinn í lagi,“
sagði Steingrímur
J. Sigfússon við
Dag, en hann hann
sleit hásin í vinstra
fæti á vikulegri knattspymuæfmgu
þingmanna sl. fóstudag.
Ræktaðu garðinn þinn
Á Akranesi er verkefnið „Ræktaðu
garðinn þinn“ að hefjast en það er
átak í heimajarðgerð. Verkefnið mið-
ar að því árið 2005 muni 500 heimOi á
Akranesi jarðgera lífrænt sorp.
Sinubruni við Rafveituveg
SlökkvOiðið í Reykjavík var kall-
að að sinueldi við Rafveituveg i El-
liðaárdalnum rétt fyrir klukkan 2 í
nótt. Það tók slökkviliöið um hálf-
tíma að slökkva eldinn og engar
skemmdir urðu á mannvirkjum.
Íslandssími lækkar
Islandssími mun á næstu dögum
lækka miOOandagjaldskrá sína enn
frekar. Fyrirtækið mun bjóða þeim
sem tekið hafa tOboðinu Frímínútur
upp á að hringja til helstu viðskipta-
landa íslands fyrir kr. 11,90 á mínútu.
Sigurður ráðinn
Sigurður Þór Salvarsson var í dag
ráðinn deOdarstjóri Ríkisútvarpsins
á Akureyri og tekur viö af Amari
Páli Haukssyni. Sigurður fékk öU
atkvæði útvarpsráðsmanna en aUs
sóttu fimm um stöðuna.
Sjúkraflug norður
|~| Ingibjörg
Pálmadóttir, heO-
k brigðis- og trygg-
B ingaráðherra,
í hefur ákveðið að
M fela Ríkiskaupum
að bjóða út
sjúkraflug í land-
/ inu í samvinnu
W við samgöngu-
ráðuneytið. Þá hefur ráðherra
einnig ákveðið að miðstöö sjúkra-
flugsins verði á Akureyri og styðst
ákvörðunin viö sérstaka úttekt sem
ráðuneytið lét gera á sjúkraflugi í
landinu. Mbl. greindi frá.
-hdm