Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2000, Page 6
6
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000
I>V
Fréttir
Hrefnuveiðar út af borðinu - ráðherra rólegur:
Hrefnukjöt myndi slá
á offitu Ameríkana
- segir Konráð Eggertsson hrefnuveiðimaður sem borðaði hrefnusteik
„Þessi niðurstaða var okkur von-
brigði en er ekkert áfall fyrir það
sem við erum að gera. Við vinnum
eftir þingsályktunartillögunni sem
gengur út á að við munum hefja
hvalveiðar á ný. Þær veiðar eru
ótímasettar enn þá. Við þurfum að
kynna okkar málstað og munum
gera það áfram,“ sagði Árni M.
Mathiesen sjávarútvegsráðherra í
samtali við DV vegna áframhald-
andi banns á sölu afurða úr hvölum.
Hann sagði að íslendingar hefðu
stutt við bakið á Norðmönnum sem
komu fram með tillögu um hrefnu-
veiðar. Hefði tillagan náð fram að
ganga hefði það vissulega breytt
landslaginu.
Ráðherrann segir að niðurstaða
fundar Cites, sáttmála Sameinuðu
þjóðanna um viðskipti með afurðir
dýra í útrýmingarhættu sem hald-
inn var í Kenýa, muni hafa meiri af-
leiðingar fyrir Norðmenn en okkur
en líklega minni fyrir Japani. Árni
segir að ekkert vandamál sé að
hefja veiðar á hrefnum hér við land
stofnsins vegna. Norðmenn veiða en
ílytja afurðirnar ekki út.
Sat og snæddi hrefnukjöt
Konráð Eggertsson, veiðimaður á
ísafirði, sat að snæðingi þegar DV
hringdi i hann.
„Þetta er kostulegt, ég var að enda
við að borða piparsteik úr hrefnu-
kjöti með góðu rauðvíni. Ótrúlegt
hvað þetta getur geymst, þetta dýr
var veitt 1985 og hefur geymst vel
síðan,“ sagði Konráð og hló.
„Við erum með feitustu böm í
Evrópu og ættum að hugsa okkur
alvarlega um. í Ameríku dregur
fólk rassinn á eftir sér af hormóna-
son hrefnu-
veiðimaður.
Sat og borðaöi
15 ára hrefnu
sem hann skol-
aöi niöur meö
rauövíni.
Mathiesen
sjávarútvegs-
ráðherra.
Ekkert áfall
fyrir
íslenska hags-
muni.
áti. Ef þau borðuðu þetta dýrlega
hvalkjöt yrði góð breyting á þessu,“
sagði Konráð.
„Það kostulega við þetta er að það
skuli vera heilbrigðir menn sem
taka þátt í þessu banni við veiðum.
Vísindanefnd Alþjóöa hvalveiði-
ráðsins segir að þessi dýr séu ekki í
útrýmingarhættu.
Formaður nefndarinnar sagði af
sér af því að ekki var tekið mark á
honum. Þetta er ekki spurning um
vísindi lengur, heldur spurning um
að ákveðnir menn ráði vissum hlut-
um. Engin rök komast þar að. Þessi
niðurstaða er því kjaftæði og Japan-
ir og Norðmenn hljóta að segja skil-
ið við svona fólk. Þingið okkar hef-
ur sagt að við hefjum hvalveiðar
ekki síðar en árið 2000 en því hefur
verið frestað fram yfir kristnitöku
og landafundahátíðir. Þetta hlýtur
því að hefjast árið 2001 - ef ekki, þá
sé ég ekki hvað við höfum við þjóð-
þing að gera,“ sagði Konráð Egg-
ertsson. -JBP
DV-MYND GVA
Barist við salmonellu
Búiö er aö skipta stóöinu á Ármóti í
afmarkaöa hópa. Sýni veröa tekin
reglulega til að reyna að komast
fyrir salmonelluna, segir
eigandi hrossanna.
Ármót:
Enginn ævin-
týrabúskapur
- segir nýr eigandi
„Þetta er allt á vinnslustigi hjá
okkur. Til dæmis er ekki útrætt við
núverandi eiganda jarðarinnar
hversu lengi hrossin geta verið
þar,“ sagði Jónas Ingi Ketilsson, nýr
eigandi 300 hrossa stóðs á Ármóti á
Rangárvöllum. Salmonella hefur
greinst í stóðinu, eins og DV hefur
greint frá. Skepnuhald að Ármóti
var sett undir eftirlit í vetur þegar
uppvíst varð um vanfóðrun. Þá
voru um 40 hross felld. Síðar voru
um 100 nautgripir á búinu felldir
vegna salmonellusýkingar. Farbann
hefur verið á Ármóti frá því að
salmonellan greindist þar fyrst. Eig-
andaskipti hafa orðið bæði á jörð-
inni og stóðinu síðan þessir atburð-
ir áttu sér stað.
Jónas kvaðst hafa látið dýralækni
taka sýni nýlega til að finna leiðir
til að vinna á salmonellunni. í
meirihluta hrossanna hefði ekki
fundist nein jákvæð sýni en sýktir
einstaklingar hefðu þó fundist.
Aðalstóðinu hefði nú verið skipt í
tvo hópa sem hefðu engan samgang.
Annar hópurinn hefði reynst vera
alveg hreinn en nokkur sýni hefðu
verið jákvæð í folöldum og hluta
stóðs. Öll hross sem hafi verið á
húsi og í þjálfum hafi reynst ósýkt.
Sama máli gegndi um hóp graðhesta
sem hefði verið haldið sér.
„Ég er nokkuð bjartsýnn eftir
þessar niðurstöður að hægt verði að
vinna á salmonelluvandanum. Þá
stefni ég að því að fækka hrossun-
um með sölu og á annan hátt,“ sagði
Jónas. „Ef við finnum smitbera með
þeirri einangrunarleið sem við not-
um nú þá getur endað með því að
þeir verði felldir. Sýni verða tekin
reglulega til að sjá hvemig málin
þróast. Svo gefum við hrossunum
vel, höfum þau í fersku vatni og för-
um eftir ráðgjöf dýralæknis," sagði
Jónas, sem kvaðst m.a. myndu láta
gelda eina þrjátíu graðhesta sem
hann fékk með hrossastóðinu á Ár-
móti. -JSS
Ríkislögreglustjóraembættið í annað kjördæmi!
Um 50 starfsmenn Ríkislögreglustjóraembættisins hafa flutt sig um set frá gömlu „RLR-byggingunni“ í Auöbrekku
í Kópavogi yfir í nýbyggingu aö Skúlagötu 21 - örstutt frá embætti lögreglunnar í Reykjavík viö Hverfisgötu eins og
sést á myndinni. í starfsmannahópi Ríkislögreglustjóra eru lögfræöingar, lögreglumenn og skrifstofufólk. Ríkislög-
reglustjóraembættiö hefuryfirstjórn með lögregluembættum landsins og rannsakar hluta af sakamálum, s.s. um-
fangsmikil efnahagsbrotamál. Byggingin veröur formlega tekin í notkun á næstunni. Meö flutningunum er
gert ráö fyrir aö embættiö muni hafa meiri samskipti viö Hverfisgötulögregluna. Embættin tvö
munu t.a.m. veröa meö sameiginlegt mötuneyti.
Forstjóri Tryggingastofnunar þungorður:
Sjúklingar í gíslingu
vegna hagsmunapots
- ef læknar hafa stöðvað krossbandaaðgerðir
Karl Steinar
Sjúklingar notaö-
ir í sérhönnuöu
hagsmunapoti.
„Hafi læknar
stöðvað þessar að-
gerðir þá sýnist mér
að verið sé að nota
sjúklinga í sérhönn-
uðu hagsmunapoti,"
segir Karl Steinar
Guðnason, forstjóri
Tryggingastofnunar,
um þau ummæli
bæklunarlæknis að
engar krossbandaað-
gerðir á hné hafi
verið gerðar frá áramótum, þar sem
Tryggingastofnun greiði ekki fyrir
þær. Bæklunarlæknar hyggist senda
sjúkrlinga til útlanda greiði stofhunin
ekki fyrir umræddar aðgerðir.
Karl Steinar telur illa vegið að stofn-
uninni. Þetta sé henni gjörsamlega
óviðkomandi, enda um að ræða að-
gerðir sem gerðar séu á sjúkrahúsum.
„Mér frnnst ástæða til að landlækn-
isembættið taki þetta mál fyrir,“ segir
hann. „Læknamir segjast senda sjúk-
lingana til útlanda. Þeir hafa ekkert
með það að gera. Enginn fær að fara til
útlanda í aðgerð nema ekki sé hægt að
gera þær hér heima. Þá var staðhæft,
að siglinganefnd, sem metur hverjir
fara utan til aðgerða, haldi ekki fundi
Vegið að Trygglngastofnun
Karl Steinar segir illa vegiö aö Tryggingastofnun. Máliö sé henni óviökomandi
enda umræddar aögeröir geröar á sjúkrahúsum.
nema einu sinni í mánuði. Hið rétta er
að nefndin kemur saman hvenær sem
er en er með fasta fundi einu sinni í
mánuði.
Okkur í Tryggingastofnun fmnst
skelfúegt hvernig verið er að taka sjúk-
linga sem gísla í einhverri tilbúinni
hagsmunastreitu.“ -JSS
Sandkorn
Höröur kristjánsson
netfang: sandkorn@ff.is
Fagnaðarerindi framsóknar
Ráðherrar
Framsóknar-
flokksins gera nú
víðreist um álfur,
væntanlega 1
þeim tilgangi að
; útbreiða fagnað-
j arerindi is-
lenskra fram-
sóknarmanna.
Fræg er camfílu-
fór Guðna Ágústssonar til Kína á
dögunum. Þá er Siv Friðleifsdótt-
ir í Ástralíu en gárungarnir velta
nú fyrir sér hvort þarlendir hafi
einhverja Eyjabakka í eyðimörk-
unum sem mögulegt er að sökkva.
Ef þeir eigi ekki vatn til þess þá
megi altént flytja það í brúsum frá
íslandi. HaUdór Ásgrímsson fór
ekki alveg eins langt, eða til Tyrk-
lands. Þykir liklegt að utanríkis-
ráðherrann muni miðla þarlend-
um af lambakjötsuppskriftum með
brúnuðum kartöflum, sósu og
salmonellum í stað hins óhrjálega,
niðurtálgaða kebab-réttar...
Forystupar
Bak við tjöld-1
in er bitist um
formannsstöðu
þingflokks Sam- j
fylkingar. I
Bryndísi
Hlöðversdóttir [
mun þar duga I
langt að Össur [
Skarphéðins-
son er sagður
henni hliðhollur. Yngsti þingmað-
urinn í hópnum, Þórunn Svein-
bjarnardóttir, er einnig sögð hafa
mikinn metnað til starfsins. Munu
þau Lúðvík Bergvinsson hafa
myndað sterkt tvíeyki í þing-
flokknum sem hefur haft frum-
kvæði að því að sveigja Samfylk-
inguna til aukins frjálslyndis.
Gamalreyndir refir úr hópi fyrr-
verandi þingmanna og sveitar-
stjórnarmanna Alþýðuflokksins
eru sagðir líta á þau sem forystu-
par framtíðarinnar...
Teflt við páfa
Árni Johnsen
alþingismaður
komst á blað í
síðustu viku er
hann greiddi at-
kvæði á móti til-
lögu um að vísa
máli til ráðherra.
Áður höfðu þing-
j menn samþykkt
tillöguna í öllum
efnisatriðum sem snerist um
gömlu vindstyrksheitin. Segir sag-
an að Árni hafi við fyrri atkvæða-
greiðsluna verið löglega afsakaður
í hörkutaflmennsku við páfann.
Þegar kom að seinni atkvæða-
greiðslunni var ljóst að minnst
einn þingmann vantaði í salinn til
að tillagan næði í gegn. Kom þá
Ámi svifandi og töldu menn víst
að þessi sæbarði Vestmannaeying-
ur vildi halda í gömlu veðurheitin.
öllum til undrunar ýtti hann þó á
rauða hnappinn og felldi tillöguna.
Segja gárungamir að Ámi hafi
alls ekki ætlað að gera þetta, hann
hafl bara enn verið með hugann
við taflmennskuna...
Klósettsmíði
Sólveig Pét-
ursdóttir var í
fréttum vegna
klósettsmíða á
dögunum og
Guðni Ágústs-
son vegna
campylosýking-
ar sem hann
fékk austur í
Kína. Um þessa
atburði orti Pétur Pétursson lækn-
ir á Akureyri:
Húsnœði Sólveigar hefur nú skúnað,
hún mun það nýta í þrifnaðarskyni.
Gott er aö klósettið getur hún lánað
Guðna ráðherra Ágústssyni.