Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2000, Blaðsíða 12
12
Útlönd
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000
DV
131 lét lífið f flug-
slysi á Filippseyjum
124 farþegar og sjö flugliðar létu í
morgun lífið þegar Boeing 737
flugvél frá flugfélaginu Air
Philiphines hrapaði á Filippseyjum.
Farþegavélin var á leið frá
höfuðborginni Manila til
borgarinnar Davao á eynni
Mindanao í suðurhluta landsins.
Vélin var að lenda á flugvellinum
í Davao þegar henni var af
óþekktum ástæðum flogið yfir
lendingarbrautina og áfram í suður.
Því næst hvarf vélin af ratsjám.
Samkvæmt frétt bandarísku
sjónvarpsstöðvarinnar CNN mun
flugstjórinn hafa tilkynnt
flugumferðarstjórum um einhvern
vanda. Lágskýjað var á þessum
slóðum þegar slysið varð og er þess
vegna talið hugsanlegt að um
mistök flugstjórans hafi veriö að
ræða.
Flak vélarinnar fannst síðar á
óbyggðu svæði á eynni Samal.
Rugslys
Flak filippseysku farþegavélarinnar fannst á eynni Samal.
Myndin er tekin af sjónvarpsskjá.
Björgunarmenn sem komu á
vettvang greindu frá því að enginn
hefði komist lífs af.
Samkvæmt óstaðfestum fréttum í
morgun hafði einn farþega
flugvélarinnar hringt úr farsíma
sínum til kunningja síns meðan á
fluginu stóð og tilkynnt honum að
hann hefði heyrt sprengingu í
flugstjómarklefanum. Ekki var í
morgun vitað um þjóðerni
farþeganna.
Forseti Filippseyja, Joseph
Estrada, hefur fyrirskipað
nákvæma rannsókn á flugslysinu
sem er það versta í sögu landsins.
Fjöldi alvarlegra flugslysa hefur
orðið á Filippseyjum. Sautján
manns létu lífið þegar tveggja
hreyfla vél var flogið á klett í
norðurhluta Filippseyja í desember
í fyrra. Árið áður hrapaði
farþegaþota í fjalllendi og létust
allir um borð, 104 talsins.
Stuttar fréttir______
Biðst lausnar
Massimo D’Al-
ema, forsætisráð-
herra Ítalíu, tók
þá ákvörðun í
gær að segja af
sér í dag. Þar
með verður engin
atkvæðagreiðsla um stuðningsyfir-
lýsingu við forsætisráðherrann.
Forseti Ítalíu, Carlo Azeglio Ciampi,
hafnaöi í gær lausnarbeiðni D’Al-
emas í kjölfar ósigurs vinstri flokk-
anna og miðflokkanna í sveitar-
stjómarkosningunum á sunnudag-
inn.
Skotárás í Detroit
Maður, sem kallaður var á fund
stjórnar fjölbýlishúss í Detroit í
Bandaríkjunum vegna kvartana ná-
granna mannsins um ósæmilega
hegðun hans, sneri aftur til skrif-
stofunnar með riffil og skaut tvær
konur til bana.
Dalai Lama
Hittir Poul Nyrup á Kastrup.
Poul Nyrup
hittir
Dalai Lama
Deilur blossuðu upp í dönskum
stjórnmálum í gær vegna fréttar um
að Kína hefði veriö með í ráðum um
væntanlegan fund Dalai Lama, and-
legs leiðtoga Tíbet, og Poul Nyrup
Rasmussens, forsætisráðherra Dan-
merkur, 21. maí næstkomandi. Leið-
togarnir tveir hittast á Kastrupflug-
velli en ekki á skrifstofu Rasmus-
sens þar sem vanalega er tekið á
móti erlendum erindrekum. Haft er
eftir heimildum Ritzau-fréttastof-
unnar að Kínverjar hafi samþykkt
fundinn á ofangreindum forsendum.
Stjórnarandstaðan hefur gagnrýnt
málið harðlega og segir Kínveija
engu ráða um slíkt.
írar vilja loka
Sellafield
írar ítrekuðu kröfur sínar í gær
um að Sellafield endurvinnslustöð-
inni verði lokað eins fljótt og auðið
er. Segja þeir að stjómarskipti leysi
ekki vandann. „Við viljum loka
henni. Það er svo einfalt og engin
kynningarherferð mun draga úr
óskum írsku rikisstjómarinnar um
að Sellafield verði lokað," Joe Jacob,
ráðherra innan írsku ríkisstjómar-
innar í yfirlýsingu um málið.
írar hafa barist lengi fyrir lokun
Sellafield sem liggur rétt handan
viö sundið á Norðvestur-Englandi.
Þessar kröfur jukust svo til muna
eftir að ljóst varð að starfsmenn
Sellafield hefðu falsað vinnuskýrsl-
ur. Talsmenn fyrirtækisins hafa
sagt að öryggi verði aukið til muna
í stöðinni á næstunni.
Hungursneyö
Ruqia Aroo, sem er áttræó, er meö fimm ára vannært barnabarn sitt, Khalif Sheikh Adan, í fanginu. í heimahéraöi
Ruqia, Afder, vofir hungursneyð yfir íbúunum sem misst hafa hjaröir sínar vegna þurrka.
Óttast að Mugabe setji
á neyðarástandslög
Stjórnarandstæðingar í Zim-
babwe kváðust í gærkvöld óttast að
Robert Mugabe forseti setti á neyð-
arástandslög til þess að geta frestaö
kosningunum sem fram eiga að fara
í næsta mánuði. Fyrrverandi her-
menn í Zimbabwe hafa nú myrt tvo
hvíta bændur á nokkrum dögum og
kveikt í búgörðum.
í gærmorgun komu um 100 menn
að búgarði Martins Olds. Þeir skutu
á húsiö og Olds svaraði skothríð-
inni. Hann særðist og hringdi í ná-
granna og bað hann að senda
sjúkrabíl. Þeldökkir árásarmenn-
imir hindruðu ferð sjúkrabílsins.
Lögregla kom ekki fyrr en nokkrum
klukkustundum síðar og hafðist þá
ekkert að. Olds lést af sárum sínum.
Stuðningsmenn stjómarinnar era
sagöir hafa aukið ofbeldi sitt gegn
stjórnarandstæðingum eftir að
Mugabe sagði í ræöu í gær að hvitu
Skotinn tll bana
Martin Olds var skotinn við búgarö
sinn. Lögregla haföist ekkert aö.
bændumir væru óvinir þjóðarinn-
ar. Ekkert kom fram í ræðunni sem
benti til að Mugabe ætlaði að koma
í veg fyrir ofbeldisverk
stuðningsmanna sinna.
í yfirlýsingu frá Hreyfingunni
fyrir lýðræðislegum breytingum
segir að fjöldi félaga flokksins hafi
verið handtekinn. Ráðist hefði verið
á aðra og fundir þeirra víðs vegar
um landið truflaðir. Talið er að
Mugabe þurfi að berjast hart fyrir
sigri sínum verði kosningar haldn-
ar í maí eins og ráðgert hefur verið.
Stjómmálaskýrendur telja að
Mugabe notfæri sér árásimar á bú-
garða hvítra til að beina athyglinni
frá alvarlegri efnahagskreppu í
landinu.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, ræddi við
Mugabe í síma í gær og hvatti hann
til að draga úr spennu í landinu.
Mótmæla gagnrýni
Um 100 þúsund Kúbumenn mót-
mæltu við sendiráð Tékklands á
Kúbu í gær. Sökuðu mótmælendur
Tékka um svik þar sem þeir höfðu
greitt atkvæði með ályktun Mann-
réttindaráðs Sameinuöu þjóðanna
um gagnrýni á stjórn Kúbuforseta.
Meira áfengi fyrir Svía
Ferðamenn sem koma til Svíþjóð-
ar geta í júlí tekið með sér meira
tollfrjálst áfengi til landsins en áður
vegna samkomulags Svía og Evr-
ópusambandsins.
Varaforsetaefni Bush
George Bush, for-
setaefni repúblik-
ana, sagði í gær að
hann liti á fyrrver-
andi keppinaut
sinn, John McCain,
sem varaforsetaefni
sitt þar til McCain
lýsti því sjálfur yflr
að hann myndi ekki bjóða sig fram.
„Ég veit að hann hefur sagt að hann
hafi ekki áhuga,“ sagði Bush en
bætti því við að hann ætlaði sjálfur
að komast að því hvort McCain
hefði áhuga.
Stefha lögreglunni
Foreldrar Amadous Diallo, sem
lögreglan í New York skaut 41 skoti,
ætla nú að heimta 41 milljón dollara
í bætur, eina milljón fyrir hverja
kúlu. Diallo var óvopnaður þegar
lögreglan skaut hann.
Ekki of bjartsýnn
Tony Blair, for-
sætisráðherra Bret-
lands, sem ræddi
viö málsaðila á N-
írlandi í gær, var-
aði i gær að loknum
viðræðunum við of
mikilli bjartsýni.
Möguleikar á sátt-
um væru þó enn.
Lest ók á steypustykki
Einn lést og 15 slösuðust er lest í
Belgíu ók á steypustykki sem komið
hafði verið fyrir á lestarsporinu.
Krefjast dauðadóms
Herstjómin í Pakistan áfrýjaði í
gær lífstíðarfangelsisdóminum yfir
Nawaz Sharif, fyrrverandi forsætis-
ráðherra. Krefst stjómin dauðarefs-
ingar.