Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2000, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000
I>V
Utlönd
13
Sjálfstæðisbarátta Færeyinga í baklás:
Færeyingar eru
hræddir við Dani
Færeyskir kjósendur eru undir
svo miklum áhrifum frá dönsku
ríkisstjórninni að þeir hafa í
auknum mæli snúið baki við
landstjóminni og baráttu hennar
fyrir sjálfstæði.
Kemur þetta fram í nýrri skoð-
anakönnun sem var lögð fyrir
færeyska kjósendur á mánudag-
inn og eru niðurstöður hennar
mikið reiðarslag fyrir stjórnar-
flokkana sem hafa unnið ötullega
að því síðustu misseri að öðlast
sjálfstæði frá Dönum.
Samkvæmt henni vill aðeins
fjórði hver Færeyingur að eyjarn-
ar verði sjálfstæðar ef árlegir
danskir ríkisstyrkir til Færeyja
hætta að fjórum árum liðnum.
Samkvæmt Poul Nyrup Rasmus-
sen, forsætisráðherra Danmerkur,
yrði þetta einmitt raunin ef Fær-
eyjar kysu að slíta sig frá Dönum
eins og hann greindi frá í viðræð-
um þjóðanna 17. mars síðastlið-
inn.
Annað sem veldur stjómar-
flokkunum áhyggjum er að ef efnt
yrði til þingkosninga nú myndi
stjómarandstaðan, Sósíaldemókrat-
ar og Sambandsflokkur, ná meiri-
hluta en samkvæmt skoðanakönn-
Hogni Hoydal
H0gni segir Poul Nyrup hafa skapaö
aðstæöur þar sem Færeyingar eru
hræddir við eigin efnahag.
unum myndu þeir fá 17 af 32 þing-
sætum. Stjórnarandstaðan hefur
hingað til sett sig upp á móti sjálf-
stæðisþreifingum landstjómarinnar
en hefur þess í stað sagst myndu
fara eigin leiðir og knýja fram sjálf-
stjóm.
Hogni Hoydal, sem fer með sjáif-
stjórnarmálin fyrir hönd stjórnar-
flokkana og gegnir formennsku í
Þjóðveldisflokknum, segir niður-
stöður skoðanakönnuninnar ekki
koma sér á óvart þar sem Færey-
ingum standi hreinlega beygur af
hótunum Dana. Segir Hoydal hót-
anir Pouis Nyrups hafa náð tilsettu
marki þar sem hann hafi lagt sig
fram um að draga dökka mynd af
efnahagsástandi Færeyinga ef þeir
hljóta sjáifstæði og líkir því við
neyðarástand. Segir Hoydal að
Poul Nyrup leggi þar með til við
Færeyinga að þeir séu mun betur
settir með að halda áfram að þiggja
gjafir frá frændum sínum Dönum.
„Hann hefur skapað aðstæður þar
sem Færeyingar eru hræddir við
eigin efnahag,“ segir Hoydal.
Það jákvæða við þessa sömu
skoðanakönnun er að 49 prósent
aðspurðra segja já við sjálfstæði á
móti 39 prósentum sem segja nei ef
sjálfstæðisferlið tekur lengri tíma en
fjögur ár. Þetta eru góðar fréttir fyr-
ir Hoydal sem mun hefja aftur
viðræður við Dani 2. maí næstkom-
andi.
Bless bursti
Nú á ég skilið að fá
uppþvottavél
50 U-W
Vinnur verk sín í hljóði
Þetta er sú heitasta á markaðnum, turbo þurrkun með heitum blæstri
og svo hljóðlát að þú hefur ekki hugmynd um að hún er gangi. Tekur
12 manna stell, býr yfir 6 þvottakerfum, er með 6 falt vatnsöryggi
og svona mætti lengi telja - þetta er alvöruvél.
Við vonumst til að geta óskað þér til hamingju með áfangann en
bendum þér samt á að kveðja gamla uppþvottaburstann og -
vettlingana með hæfilegri virðingu.
AEG Favorit 4231 U-W verð 49.900 stgr
BRÆÐURNIR
ORMSSON
Lágmúla 8
Sími 530 2800
www.ormsson.is
Geislagötu 14 • Sími 462 1300
Verðdæmi.
Lítil skreyting
í körfu, téte a téte
Skreyting í körfu,
chrysanthemum
°pnunartími
Skírdagur, kt. 10~2i
þPerj^
Paskadagur, lokaö
Annar í Páskui
™, kl. 10-21
GARÐHEIMAR
GRÆN VERSLUNARMIÐSTÖÐ
STEKKJARBAKKA 6 • REYKJAVÍK • SÍMI 540 3300