Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2000, Page 14
14
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000
Skoðun r>v
Spurning dagsins
Hvað verður í páskamatinn
hjá þér?
Anna Sigrún Ólafsdóttir nemi:
Ég verö í mat hjá mömmu og þaö
veröur eitthvaö gott.
Anna Stína Þórarinsdóttir
gangavörður:
Ég er aö hugsa um aö hafa ham-
borgarhrygg.
Karen Þorkelsdóttir, 6 ára:
Þaö veröur einhver góöur matur hjá
mömmu og svo auövitaö páskaegg.
Sigrún Ólafsdóttir nemi:
Þaö veröur lambahryggur.
Dóra Guörún Ólafsdóttir nemi:
Þaö veröur lambahryggur meö
tilheyrandi.
Allt tll reiöu
Flugvél Flugfélags íslands að gera klárt fyrir flugið suöur. Greinarhöfundur er óánægöur meö
þjónustu Flugfélagsins og vill sjá íslandsflug veita samkeppni.
íslandsflug, hvar
Guömundur Sigurösson
skrifar:___________________________
Það er með ólíkindum við hvers
slags bákn er að eiga þar sem Flugfé-
lag íslands er annars vegar. Ég lenti
í þeim hremmingum að þurfa að
ferðast með félaginu um síðustu
helgi. Ég hafði pantað far frá ísafirði
á fóstudagskvöldið en þar sem ekki
viðraði til flugs var því frestað fram
á laugardag og allt í lagi með það,
ekki stjórna menn veðurguðunum
enn sem komið er.
Á laugardagsmorgninum byrjaði
ég að hringja tO að athuga hvort gæfl
til flugs. Eftir að hafa ítrekað reynt
um tveggja klukkustunda skeið að
nú sambandi við lifandi manneskju
hjá félaginu reyndi ég við símsvara
sem gaf einungis úreltar upplýsing-
ar. Þá var það textavarpið, þar var
sömuleiðis um að ræða úreltar og
gamlar upplýsingar. Loksins kom að
„Að vísu fylgir frítt djús-
glas með hjá Flugfélaginu í
þessu flugi og vil ég nota
tækifœrið til að óska
ísfirðingum til hamingju
með sex þúsund króna
djúsglasið sitt. “
því að mér tókst að ná símasam-
bandi við starfsmann Flugfélagsins á
Akureyri og þrátt fyrir að fyrirætlun
mín gerði ráð fyrir flugi frá ísafirði
til Reykjavíkur spurðist ég fyrir um
flugið þar enda stórum áfanga náð
að ná símasambandi við lifandi veru
hjá fyrirtækinu.
Mér var tjáð að ég ætti að mæta á
ísafjarðarflugvelli kl. 10.30. Þar sem
ég var staddur í öðru byggðarlagi
dreif ég mig af stað tO að ná vélinni.
ert þú?
Þegar á flugvöOinn á ísafirði var
komið reyndist hér um síðbúið apr-
Ogapp að ræða því ég varð að bíða í
nokkrar klukkustundir eftir því að
vélin mín kæmi. Heldur fór að
stirðna skapið við þetta og þegar
gengið var á starfsmenn Flugfélags
íslands á ísafirði um hverju það
sætti að ekki væri hægt að fá að vita
símleiðis, nú á öld tækninnar,
hvenær maður ætti aö mæta í flug,
sögðu þeir einungis að þeim kæmi
símsvörunin ekki viö!
Það er sorglegt að íslandsflug
skuli vera hætt innanlandsflugi.
Bæði er að þjónusta Flugfélags ís-
lands ber aOan keim af Flugleiðum,
svo og hitt að fargjöld hafa tvöfaldast
í verði. Að vísu fylgir frítt djúsglas
með hjá Flugfélaginu í þessu flugi og
vil ég nota tækifærið tO að óska ís-
firðingum tO hamingju með sex þús-
und króna djúsglasið sitt.
Hver fær RÚV að gjöf?
Siguröur Lárusson
skrifar:___________________________
Á undanfornum árum hafa mörg
ríkisfyrirtæki veriö seld - eöa eig-
um við heldur að segja eins og er -
gefin stóreignamönnum. Helst af
öOu hafa þetta verið fyrirtæki sem
hafa skilað ríkissjóði verulegum
hagnaði. SOdarverksmiðjur ríkisins
eru gott dæmi um þetta. Mig minn-
ir að verksmiðjumar hafi skilað
nýju eigendunum um tveim mOlj-
örðum á fyrsta ári. Þetta kaOa ég
fyrirhyggjulausa sóun á fjármunum
ríkisins. Mörg önnur fyrirtæki hafa
verið seld síðustu árin og ráðgert er
að selja fleiri á næstu árum. Hvar
endar þessi vitleysa?
Eitt þeirra fyrirtækja sem ráðgert
Mörg önnur fyrirtœki hafa
verið seld síðustu árin og
ráðgert er að selja fleiri á
næstu árum. Hvar endar
þessi vitleysa?
hefur verið aö selja er RÚV, út-
varps- og sjónvarpsstarfsemi. Hver
á að fá RÚV að gjöf? Vonandi verð-
ur ekki af þvi. Ég skora á aOa lands-
menn að koma í veg fyrir að það
óheOlaspor verði stigið.
Þar er hins vegar margt sem bæta
mætti, einkum hjá Sjónvarpinu og
skal ég nefna dæmi því tO staðfest-
ingar. Aðalfréttatiminn var fluttur
frá klukkan 8 að kvöldi tO klukkan
7. Það kemur sér mjög Ola fyrir
marga, einkum þá sem vinna lang-
an vinnudag, tO dæmis bændur.
Þetta fólk missir sambandið við
fréttatíma Ríkissjónvarpsins. Þá
hefur fréttatíminn kl. 19 verið not-
aður jöfnum höndum fyrir fréttir og
auglýsingar. Ég vO að fréttatíminn
sé eingöngu notaður fyrir fréttir og
auglýsingatímar fyrir auglýsingar.
Það er móðgun að lesa auglýsingar
yfir fólki í fréttatímanum.
Þeim hjá RÚV væri hoOt að
hlusta grannt eftir ábendingum
fólks sem þeir hafa því miður ekki
gert og því er svo komið að þessi
stofnun riðar tO faOs og bíður þess
eins að verða gefin álitlegum vinum
kerfisins.
Dagfari
Vegagerð grínast með snjóblásara
Vegagerðin er á þönum með moksturstæki
sín um allt land alla daga nema jóladag.
Þjónustulund hins ástsæla fyrirtækis nær frá
hæstu fjöOum tO fjöru. Ekki er tO það snjó-
kom á þjóðvegum landsins sem Vegagerð-
inni er óviðkomandi. Þetta á þó aðeins við
um sjálft þjóðvegakerfið en nú hefur góð-
mennska ríkisfyrirtækisins orðiö tO þess að
fólk er farið að heimta meira en hóflegt er.
Þannig hringdi sveitarstjóri, sem reyndar er
löngu hættur störfum, og heimtaði að gamaO
afdalavegur á Vestfjörðum yrði opnaður.
Gamli sveitarstjórinn skOdi ekki að heiðin,
sem kennd er við fæðingarbæ Jóns Sigurðs-
sonar á Hrafnseyri, er ekki inni á plani
Vegagerðarinnar og mönnum þar óviðkom-
andi. Að vísu hafði snjóblásari sést þar tæpu
ári áður en það var fyrir misskilning og Vest-
firðingar eiga ekkert að þvælast um fjaOvegi á
meðan Vetur konungur ríkir. Sjálf Vegagerðin
stóð fyrir því á sínum tíma að bora göng fyrir
íbúana á sínum tima þó þau liggi ekki undir um-
rædda heiði. Göngin voru fokdýr og eðlilega er
umferð beint um þau í stað þess að opna Þing-
eyringum leið í hina áttina og minnka þannig
arðsemi ganganna. Samkvæmt þessari hagræð-
ingu hafa starfsmenn Vegageröarinnar nostrað
Það er dýrt spaug að grínast með
heilu snjóblásarana uppi
á óþörfum heiðum.
við að moka frá gangamunnunum til að sveitar-
stjórinn og sveitungar hans komist örugglega í
gegn. Ef þörfin tO aö komast til fjarðanna hinum
megin Þingeyrar er svo brennandi þá getur
sveitarstjórinn auðveldlega ekið suður um ísa-
fjarðardjúp og norður SnæfeOsnes og þaðan
til næstu fjarða. Það var því eðlilegt að Vega-
gerðinni sámaði frekja sveitarstjórans og í
stað þess að ausa hann skömmum sögðu for-
svarsmennirnir honum kurteislega en óbeint
að hann væri bara asni að halda að það
þyrfti að moka. Svo gerðu þeir góðládegt grín
að honum fyrir ruglið og enduðu með því að
segja hann lyginn. Ekkert stóð tO með óþarf-
an mokstur sem stuölaði að óhagræðingu.
Daginn eftir að þeir gerðu grín að sveitar-
stjóranum byrjuðu þeir síðan að moka. Það
var auðvitað i gríni gert og tO þess að hinir
ferðaglöðu og áttaviOtu Þingeyringar gætu
áttað sig á því um páskana að þeir eiga ekk-
ert erindi í hina áttina. Góðmennska Vega-
gerðarinnar á sér engin takmörk og nú mok-
ar hún meira að segja fyrir rugludaOa. Meira að
segja símaat verður tO þess að vegheflar, snjó-
blásarar og hjólaskóflm- taka af stað með rykk tO
að moka, jafnvel þó að aOs ekki þurfi að moka.
Nú er bara að vona að Þingeyringar nái áttum
svo ekki þurfi aö kaOa þá lygara og eyða stórfé í
að heOaþvo þá og eyða ranghugmyndunum. Það
er dýrt spaug að grínast með heOu snjóblásarana
uppi á óþörfum heiðum. ^ .
Þjónustuliprir og í
ódýrari kantinum
Ánægður viðskiptavinur skrifar:
í vikunni skoðaði ég verðkönnum á
umfelgun í blaðinu ykkar. í þessa
könnun fannst mér þó vanta dekkja-
verkstæðið sem ég hef verslað við, en
það er Smur- og dekkjaþjónusta Breið-
holts í Jafnaseli 2. Ég vO koma þessu
á framfæri vegna þess að hún er mjög
ódýr en svona dæmi (umfelgun og aO-
ur pakkinn) kostar 2970 krónur hjá
henni sem er samkvæmt könnun DV
næstódýrast og þar eru strákarnir
einstaklega þjónustuliprir og þægileg-
ir. Ég vOdi bara láta fólk vita af þess-
um kosti þar sem það kom ekki fram
í þessari verðkönnun.
Ódýrír og góöir
Lesendur benda á ýmsa góöa
kosti í umfelgun.
Verðið á umfelgun:
Ódýr og alúðleg
þjónusta Pit Stop
Sigurður Sigurðsson skrifar:
Nýleg könnun DV.á þjónustu
dekkjaverkstæða leiddi i ljós lægsta
verö á umfelgun hjá Pit stop hjól-
barðaverkstæðinu við Kleppsmýrar-
veg. Ég prófaði þjónustu þeirra í morg-
un og í stuttu máli þetta: Ef fólk viO
verulega ódýra og góða þjónustu og al-
úðlegt viömót ætti það að snúa sér
þangað. Verkstæðið sem ég hef verslað
við í mörg ár bauð mér þessa þjón-
ustu, þegar ég hringdi þangað, fyrir
6400 krónur, en í Pit stop greiddi ég
3500 krónur. Það munar rnn minna.
Fólki ofbýöur
Rusliö frá Atvinnuleysistryggingum
ofbauö flestum.
Vanvirða at-
vinnulausa fólkið
JMG skrifar:
Frétt DV um að skjöl frá Atvinnu-
leysistryggingasjóði hafi fundist í
ruslagámi sýnir vel vinnubrögðin þar
á bæ og virðingarleysi starfsfólksins
fyrir þeim sem eru atvinnulausir.
Þetta var því þörf frétt. Samtöl læknis
og sjúklings eiga að vera trúnaðarmál
en starfsmenn sumra stéttarfélaga
heimta nákvæmar sjúkraskýrslur.
Tölvuneind ætti að skoða þessi mál
og setja um þau reglur, þar er víða
pottur brotinn. Fólk sem ekki gengur
heilt tO skógar er krafið um ítarlegar
sjúkraskrár, annars er það tekið af
bótunum og á því ekki um nett að
velja. Það er engin furða þó mörgum
ftnnist starfsfólk Atvinnuleysistrygg-
inga setja sig á háan hest og ekki
vinna fyrir atvinnlausa, fremur
bregða fæti fyrir þá.
PVJ Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangiö:
gra@ff.is
Eöa sent bréf til: LesendasíAa DV,
Þverholti 11,105 ReykJavík.
Lesendur eru hvattir til að senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.