Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2000, Page 16
Útgáfufélag: Frjáls fjðlmiölun hf.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aðstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf.
Filmu' og plótugerð: ísafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverð á mánuði 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblaö 250 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Samkeppni íflugi
Go, dótturfélag British Airways, hefur boöað samkeppni
í flugi milli íslands og Bretlands. Frá og með 26. maí næst-
komandi hyggst flugfélagið bjóða flug til London fjórum
sinnum í viku á kjörum sem ekki hafa þekkst hér á landi
áður. Með þeim fargjöldum sem í boði eru mun Go ekki að-
eins keppa við Flugleiðir um farþega í millilandaflugi held-
ur ekki síður við Flugfélag íslands og íslandsflug um hylli
farþega sem ferðast innanlands sér til skemmtunar. Far-
gjald milli Reykjavíkur og Akureyrar eða ísafjarðar er
svipað eða jafnvel hærra en það sem Go býður milli ís-
lands og Bretlands.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Flugleiðir hafa staðið
frammi fyrir samkeppni erlendra flugfélaga milli íslands
og annarra landa, en fram að þessu hefur félaginu tekist að
standast þá samkeppni. Og sú samkeppni var ekki alltaf á
jafnréttisgrunni, enda keppt við ríkisrekin flugfélög sem
gátu og geta sum enn í dag teygt sig í djúpa vasa skatt-
greiðenda. Hvort Go verður betur ágengt en öðrum flugfé-
lögum á tíminn eftir að leiða í ljós.
Lágfargjaldafélög eins og Go hafa rutt sér leið víða um
heim undanfarin ár og mörg hver átt góðu gengi að fagna
þó enn sé of snemmt að segja til um rekstrarlegan árang-
ur sem er forsenda fyrir langlífi.
Áætlunarflug Go milli íslands og Bretlands mim örugg-
lega koma íslenskum ferðaiðnaði vel enda líklegt að far-
þegum frá Bretlandi muni fjölga. Að því leyti munu Flug-
leiðir hagnast óbeint á aukinni samkeppni þar sem við-
skiptavinum hótela í eigu félagsins mun fjölga. En fyrst og
fremst er samkeppnin heilbrigð fyrir alla. Hún laðar fram
það besta í rekstri fyrirtækja.
Samkeppnin við Go er ekki ógnun við Flugleiðir heldur
kærkomin áminning um að enginn getur kastað eign sinni
á neytendur, að minnsta kosti ekki án stuðning ríkisvalds-
ins, en vonandi er tími opinberra afskipta á sviði flug-
rekstrar að mestu að baki.
Þörf áminning
Gífurleg lækkun á hlutabréfum viða um heim í síðustu
viku og í kjölfarið lækkun á verði hlutabréfa hér á landi
mirmir á þá einföldu staðreynd að þrátt fyrir allt eru hluta-
bréf áhættusöm fjárfesting.
Á síðustu misserum hafa margir einstaklingar og stærri
fjárfestar hagnast verulega, að minnsta kosti reiknings-
lega, á spákaupmennsku með hlutabréf. Margir hafa stofn-
að til mikilla skulda til að taka þátt í gleðiveislu sem stað-
ið hefur á hlutabréfamörkuðum undanfarið. Aðrir hafa
nagað sig í handarbökin fyrir að hafa ekki tekið þátt í
veisluhöldunum og grátið yfir lánleysi sínu.
Þó ekkert bendi til annars en að lækkun hlutabréfa sé
ekki annað en eðlileg leiðrétting á of háu verði og þá ekki
síst á bréfum hátæknifyrirtækja, er nauðsynlegt að réttir
lærdómar séu dregnir af reynslunni. Þegar gömlum og góð-
um gildum er kastað fyrir borð er ekki von að vel fari. Þeg-
ar fjárfestar eru hættir að líta á rekstrarárangur eða mögu-
leika á framtíðarhagnaði sem mælikvarða í hlutabréfavið-
skiptum eiga þeir skilið að tapa peningum. Þegar það
skiptir meira máli að viðkomandi fyrirtæki sé í „tisku“ en
að fjárhagsleg staða þess sé þokkaleg og arðsemin í takt
við verð hlutabréfanna eiga spákaupmenn ekki annað skil-
ið en tapa peningum. Þeir sem haft hafa gömlu gildin á há-
vegum geta tekið lífinu rólega meðan spákaupmennirnir
vinna sig út úr skuldafeninu sem þeir hafa komið sér í.
Óli Björn Kárason
“1“
____________________________________________MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000_MIDVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000
DV
_______49v.
Skoðun
Ríkissjónvarpið og skákin
Það hafa verið skáká-
hugamönnum gríðarleg
vonbrigði að fylgjast með
áhugaleysi Ríkissjónvarps-
ins á skáksviðinu. Hér var
haldið heimsmót í skák, at-
skákmót i Kópavogi. Kepp-
endur voru allra sterkustu
skákmeistarar veraldarinn-
ar. Þar má telja Kasparov
heimsmeistara og Indverj-
ann Anand auk Kortsjnoj
sem hefur teflt um heims-
meistaratignina og bestu
skákmeistara íslendinga.
Kasparov og Anand eru tveir stiga-
hæstu skákmeistarar veraldarinnar í
dag. Alls staðar þar sem þessir menn
tefla er það talinn viðburður. En Rík-
issjónvarpið sá sér ekki fært að sýna
frá mótinu. Skjár 1 gerði það. Atskák
er gott sjónvarpsefni. Atskákin er
hæfilega hröð til þess að vera áhuga-
verð í sjónvarpi.
Mér fmnst þessi frammistaða Rik-
issjónvarpsins ótrúlega slök. Það fær
upp í hendumar á siihirfati svona
sjónvarpsefni og treysl r sér ekki til
að gera neitt. Fyrir nokkrum tóku
Skáksambandið og VISA sig saman
Guðmundur G.
Þórarinsson
verkfræöingur
og gáfu Ríkissjónvarpinu
rafstýrð skákborð sem gera
kleift að sýna skákir beint
og jafnóöum. Skilyrðiö var
að þau yrðu notuð. Allt
svikið. Ríkissjónvarpiö
treystir sér ekki til að sýna
íslandsmeistaramótið í at-
skák, úrslitaskák, klukku-
tíma prógram, einu sinni á
ári, þó gefin hafi verið tæk-
in til sýninga. Þetta er óvið-
unandi. Hæglætismenn eins
og ég spyrja sig hvort ekki
sé unnt að segja þessu sjón-
varpi upp, hætta áskrift. Er nú til of
mikils mælst að Ríkissjónvarpið
sýni klukkutíma íslandsmót í atskák
einu sinni á ári eða eins og eina skák
frá heimsmóti þegar tveir sterkustu
skákmenn heimsins teíla hér á
landi?
Hvað er að?
Getur verið að þetta ráðist ein-
göngu af því að það séu ekki skáká-
hugamenn á Ríkissjónvarpinu?
Skáksambandið getur lagt til að
kostnaðarlausu menn til þess að
stjórna svona útsendingu. íslending-
„Við hljótum að minnsta kosti að geta sagt upp áskrift
af svona fyrirtæki. Það er kominn tími til að skáká-
hugamenn, Skáksambandið og taflfélög víða um land,
ég tala nú ekki um skákklúbbana sem starfrœktir eru í
hundraðatali, láti í sér heyra, geri harða atrennu að
þessu áhugalausa Rikissjónvarpi. “
Harðstjórn og hörmungar
Alkirkjuráðið í Genf sem er sam-
tök á fjórða hundrað kirkjudeilda í
yfir 100 löndum með um 400 milljón-
ir meölima hefur sent frá sér áskor-
un til Sameinuðu þjóðanna um að
aflétta viðskiptabanninu á írak.
Skortur á kærleika Vesturlandabúa
birtist m.a. í þessu ómannúðlega við-
„Skortur á kœrleika Vesturlandabúa birtist m.a. í
þessu ómannúðlega viðskiptabanni sem beitt er gegn
þjóðinni í írak. Þar erum við íslendingar beinir þátt-
takendur, beinir gjörendur þjáningar þegar við eigum
að vinna kærleiksverk. “
skiptabanni sem beitt er
gegn þjóðinni í írak. Þar
erum við íslendingar beinir
þátttakendur, beinir gjör-
endur þjáninga þegar við
eigum að vinna kærleiks-
verk.
Um þetta bann hafa
margir mætir menn ritað
greinar í blöð á liðnum
árum en talað fyrir daufum
eyrum. Það virðist enginn
hafa áhuga. Nú hefur Al-
kirkjuráðið vakið athygli á
þessum hræðilega glæp
Vesturlanda gegn þjóð sem má sín
einskis gagnvart hryllilegum harð-
stjóra og hefur hinn svokallaða sið-
menntaða heim að óvini að auki.
Páfinn hefur vakið athygli á þessu
máli og hjá Sameinuðu þjóðunum
hafa nokkrir yfirmenn sagt upp
störfum sínum vegna þess að sam-
viska þeirra þolir ekki aö viðskipta-
banninu sé framfylgt. Og við íslend-
ingar erum beinir gerendur þessara
hörmunga með þvi að vera i slagtogi
með þeim sem hafa hervald heims-
ins í hendi sér.
Svarið er í blænum
Milljónir manna um heim allan
hrópa á hjálp. í þekktum enskum
söngtexta segir: „Hve oft getur mað-
urinn litið undan og látið sem hann
sjái ekki? Hversu oft þarf maðurinn
að líta upp svo hann sjái himininn?
Hver mörg eyru þarf einn maður að
hafa svo hann heyri fólkið gráta?
Hve mörg dauðsfoll þarf til þess að
maðurinn viti að of margir hafa
dáið?“ Og svarið er í blænum, söng
Bob Dylan, The Answer My Friend
is Blowing in the Wind. Lausn þjóð-
lagasöngvarans má túlka á
þann veg að svarið sé á
leiðinni. Það er í blænum
sem í vændum er, í framtíð-
inni. Að vísa í blæinn á sér
hliðstæður í myndhvörfúm
Biblíunnar. í Gamla testa-
mentinu er sagt frá Elía
spámanni sem var í felum
eftir að hafa gagnrýnt vald-
hafa. Hann var hræddur og
hafðist við i helli. Þar
mætti Guð honum og talaöi
til hans. En hvernig mætti
Guð honum og í hverju?
Stormurinn æddi og jörðin skalf og
nötraði en Guð var ekki í þeim fyrir-
gangi. En svo kom blíður blær og þar
var Guð, þar heyrði Elía rödd hans.
Blærinn er mildur. Hann minnir á
kyrrð hugans.
Kirkjan íhugar þjáningu
Krists á föstunni
Og þar sem kyrrðin ríkir eru
meiri líkindi til þess að fólk heyri
hjartslátt heimsins og neyðaróp
þjáðra. Á fostunni íhugar kirkjan
þjáningu Krists og um leið þjáning-
una í heiminum. Tilvísun Dylans í
blæinn má skilja sem vísun til
heilags anda Guðs sem vekur okkur
til vitundar um neyð heimsins og
kallar okkur til að rétta hlut kúgaðra
og koma á réttlæti í heiminum.
Kyrrðin er forsenda þess að við heyr-
um rödd sannleikans, rödd Guðs.
Kyrrum hugann á fóstunni og hlust-
um á blæinn sem boðar þjáðum
lausn. En það er ekki nóg að hlusta.
Við þurfum líka að verða verkfæri
þeirrar lausnar sem boðuð er og þar
með gerendur friðar.
Öm Bárður Jónsson
Orn Bárður
Jcnsson
prestur
Með og á móti
heimasíðu á vefiium
Opnum okkar síðu í maí Skora á KSÍ að laga þetta
J Knattspymu-
JtLm. samband íslands
K mun opna heima-
síðu sína um
miöjan maí.
Knattspyrnusambandið
hefur gert samning við öfl-
ugt hugbúnaðarfyrirtæki
um hönnun síðunnar auk
þess sem fyrirtækið mun
smíða nýtt upplýsinga- og
mótakerfi fyrir sambandið.
Þetta nýja kerfi mun leysa
núverandi kerfi af hólmi
Geir
Þorsteinsson
framkvæmdastjóri
KSÍ.
um
næstu áramót.
Rétt er að benda á aö
KSl hefur um nokkurra
ára skeiö birt úrslit allra
leikja á vegum sambands-
ins á íslenska íþróttavefn-
um (toto.is).
Við höfum farið okkur
hægt á þessum vettvangi
en notað tímann til þess
að undirbúa ýmis gögn
fyrir KSÍ heimasíðuna.
agKta Það er ótrúlegt að
■H langstærsta sérsam-
bandið innan ÍSÍ skuli
r ekki vera komið með
eigin heimasíðu fyrir
löngu. Önnur minni sambönd
hafa skotið þeim KSÍ-mönnum ref
fyrir rass. Á sama tíma og ís-
lenska landsliðið náði góðum ár-
angri í undankeppni fyrir Evrópu-
mót landsliða í sumar er viðbúið
að margir erlendir knattspyrnuá-
hugamenn hafi viljað fræðast
meira um íslenska knattspyrnu.
Arnar
Björnsson
íþróttafréttamaöur
á StöO 2
Þá
smu.
hefði góð heimasíða komið að
gagni. Hér með er skorað á
KSÍ að laga þetta hið snarasta.
Fótboltinn er vinsælasta
iSj íþrótt heims og hægt er að
11 finna margar magnaðar vef-
siður bæði erlendra knatt-
spyrnusambanda svo og knatt-
spyrnufélaga. Greinilegt er
að í þetta er lagður mikill
metnaður. KSÍ-menn hafa
greinilega ekki mikinn áhuga
á þessum þætti í öflugu starfi
Það er miður.
Knattspyrnusamband Islands er stærsta einstaka sambandið innan ISI en hefur enn ekki sett upp heimasíöu á veraldarvefnum þar sem áhugafólk getur
nálgast upplýsingar og fróöleik um íslenska boltann. 13 önnur sambönd hafa þegar sett upp heimasíöu þar á meöal hin þrjú boltasamböndin.
f
ar hafa getið sér gott orð fyrir
frammistöðu á skáksviðinu í marga
áratugi. Frægt er þegar Karpov, þá-
verandi heimsmeistari hélt ræðu við
verðlaunaafhendingu á Ólympiumóti
og undraðist skákkunnáttu þessarar
litlu þjóðar á eyju úti í miðju Atl-
antshafi. Þá áttum við Ólympíu-
meistarana innan 16 ára, heims-
meistarann innan 20 ára og vorum í
5. sæti á sjálfu Ólympíumótinu.
Skákmennt stendur á sterkum
grunni hér á landi. Það er ekki bara
ergilegt hvernig Ríkissjónvarpið
kemur fram við skákunnendur. Það
er óviðunandi, það koma varla frétt-
ir af úrslitum stórmóts í Reykjavík,
það er ekki unnt að skjóta þeim inn
á milli frétta af ítalska eða spænska
boltanum.
Við hljótum að minnsta kosti að
geta sagt upp áskrift af svona fyrir-
tæki. Það er kominn tími til að skák-
áhugamenn, Skáksambandið og tafl-
félög víða um land, ég tala nú ekki
um skákklúbbana sem starfræktir
eru í hundraðatali, láti í sér heyra,
geri harða atrennu að þessu áhuga-
lausa Ríkissjónvarpi.
Guðmundur G. Þórarinsson
Ummæli
Karlmennskutákn
„Hér í landi liggur
hlaðin byssa við
hvers manns rúm. Er
eins konar karl-
mennskutákn Banda-
ríkjamanna. Þær eru
til sölu á hverju götu-
homi. Þarf ekki einu
sinni að skrá kaupin. Það væri skerð-
ing á persónufrelsi, segja Kanamir!
Það læra börnin sem fyrir þeim er
haft. Enginn er lengur óhultur. Og nú
er svo komið að í upphafi hvers dags
- að loknum morgunsöng og guðsorði
- er leitað á nemendum í efstu bekkj-
um bamaskóla og í gagnfræðaskólum.
Það er að visu ekki enn farið að leita
meðal yngstu nemendanna!"
Bryndís Schram skrifar bréf til Kollu
í Degi 10. aprll.
EFTA hentaöi betur
„Niðurstaða könn-
unarinnar var að
Efhahagsbandalagið,
EB, hentaði ekki okk-
ar hagsmunum en
Fríverslunarsamtök
Evrópu, EFTA, gerðu
það. Að bestu manna
yfirsýn gerðumst við því aðilar að
EFTA 1970 og höfum verið það síðan.
I dag er ekkert sem bendir til þess að
röng ákvöröun hafi verið tekin árið
1970. Þvert á móti. Tíminn og reynsl-
an hafa sannað að okkar bestu hags-
munum var þjónað með þvi að hafna
EB en velja EFTA.“
Hannes Jónsson, fyrrverandi
sendiherra, í Mbl. í gær.
Sagan endurtekur sig
„Það er ekki nokk-
ur munur á einokun-
arverzlun Dana fyrr
á öldum og einokun
kvótamanna á fisk-
veiðum við ísland í
dag. Báðir aðilar
komu á einokun sem
þeir notuðu siðan til að skapa sjálfúm
sér ofsagróða sem ekki hefði fengizt í
frjálsri samkeppni og með jafnræði á
milli allra þegna landsins. Er ekki
sagt að sagan endurtaki sig.“
Lúövík Gizurarson lögfræðingur í DV.
Bændur gíslar hins
opinbera
„Auðvitað áttu bændur ekki ann-
arra kosta völ en að samþykkja nýjan
sauðfjársamning - þeir eru fyrir löngu
komnir upp aö vegg. En vitleysan
heldur áfram. Opinberum fjármunum
er sólundað. Bændur eru áfram gíslar
ríkisins - eiga allt sitt undir náð og
miskunn ofríkra stjórnmálamanna."
Óli Björn Kárason ritstjóri í leiðara
DV á mánudag.
Ávarp á degi bókarinnar á íslandi 23. apríl 2000:
Bækur, gler
og blóð
Fóik hefur skemmt sér við það víða
upp á síðkastið að kjósa mann eða
konu þúsaldarinnar sem nú er að
ljúka. Kanadamenn voru ekki í vafa.
Þeir kusu Johannes Gutenberg sem
fann upp prentlistina og gerði með
því bækur að almenningseign. Smám
saman varð það frumkrafa til hvers
manns að hann væri læs á bók.
Mörgum kann að þykja það skrýt-
ið að Kanadamenn skuli hafa staldr-
að við uppfinningu prentlistarinnar
frekar en til dæmis uppgötvun
þyngdarkraftsins eða þróunar lífs-
ins, eða þá tækniundur eins og
kjamorkuver, geimför eða tölvur.
Þeim þykir það trúlega skrýtið
vegna þess hvað bækur eru afspyrnu
hversdagslegir hlutir, og hafa verið
öldum saman. Bækur eru svo sjálf-
sagðar að við þurfum ekki að taka
eftir þeim í kringum okkur, hvað þá
að við hugleiðum þær sem eitt af
undrum veraldar. Við tökum yfír-
leitt ekki heldur eftir gleri í gluggum
eða blóðinu í æðum okkar, og eru þó
bæði gler og blóð undursamlegir
hlutir hvort á sína vísu.
Þær fylgja okkur alla ævi
Við skoðum bækur í bemsku
löngu áður en við getum
lesið þær, og nauðum svo í
öðrum um að lesa þær fyrir
okkur, og síðan fylgja þær
okkur alla ævina, í skóla,
við störf og í tómstundum.
Þá er ekki von að við hugs-
um út í það að án bóka
hefðu til dæmis engin siða-
skipti orðið í Evrópu, og án
bóka hefðu engin nútíma-
vísindi og tækni orðið til.
Á okkar dögum standa
margir á öndinni yfir nýj-
um aðferðum við að dreifa
efni bóka: þegar útvarp og sjónvarp
voru orðin nógu hversdagsleg fengu
menn tölvuna með veraldarvefnum
til að dást að. Menn standa meðal
annars á öndinni yfir öllum þeim
fróðleik sem hægt er að nálgast á
vefnum með litlum tilkostnaði og lít-
illi fyrirhöfn. En enginn lofsyngur
bókasöfn sem geyma þó margfalt
meiri aðgengilegan fróðleik.
Bók er best vina
Það er ekki til handhægari hlutur
en bók. Þaö má lesa hana í fjailaferö
eða í strætisvagni, og hafa hana með
sér í stólinn hjá tannlækni. Ef mað-
ur á hana sjálfur má skrifa
aðfinnslur og aðrar athuga-
semdir í spássíuna, og oft á
hún það til að svara manni
þegar lengra er lesið.
„Bók er bezt vina,“ segir
gamalt máltæki. Ég held að
bækur séu einar um það
meðal allra dauðra hluta að
bók má eiga að vini. Það
má til að mynda leita til
bókar í raunum sinum.
Bók er ekki bara gler sem
leyfir okkur að sjá um viða
veröld. Bók er líka blóð af
blóði bæði höfundar og lesenda.
Bókbindari sem ég þekki sagði
mér af orðaskiptum tveggja rosk- . j
inna manna sem báðir voru grónir
viðskiptavinir hans. Þeir söfnuðu
bókum, og létu stundum binda fyrir
sig, og nú hittust þeir á bókbands-
stofunni. Annéir þeirra var einhleyp-
ur og bamlaus. Hinn spuröi hvað
hann hefði hugsað sér að yrði um
bækumar hans þegar að því kæmi
að hann félli frá. „Æ ég veit það
ekki,“ var svarið. „En ég vona að
þær lendi hjá einhverjum bóka-
manni.“
Þorsteinn Gylfason
Kjallari
. t
-
:
Þorsteinn
Gylfason
prófessor
Bœkur eru svo sjálfsagðar að við þurfum ekki að taka eftir þeim í kringum okkur,
hvað þá að við hugleiðum þær sem eitt af undrum veraldar.