Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2000, Page 24
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000
DV
56_______
*Ættfræði
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
100 ára
Tryggvi Helgason,
Austurbrún 2, Reykjavík.
^SOára________________
Bára Stefánsdóttir,
Vetrarbraut 15, Siglufiröi.
Björgvin Halldórsson,
Grandavegi 47, Reykjavík.
75 ára
Aslaug V. Jónsdóttir,
Njálsgötu 47, Reykjavlk.
Jarþrúður Guömundsdóttir,
Fannborg 3, Kópavogi.
70 ára_________________________________
Jens
Sumarliðason,
Hörðalandi 10,
Reykjavík.
Hann veröur
að heiman
á afmælisdaginn.
Ketill Axelsson,
Ægisíöu 70, Reykjavík,
verður sjötugur á skírdag.
Eiginkona hans er Margrét
Gunnlaugsdóttir.
Þau munu taka á móti
ættingjum og vinum í Odd-
fellowhúsinu, Vonarstræti, milli kl. 17
og 19 á afmælisdaginn. Ketill afþakkar
afmælisgjafir en þeim sem vilja gleöja
hann er bent á Barnaspítalasjóö Hrings-
ins, reikningsnr: 101-26-450, í Lands-
banka íslands.
Stefán B. Einarsson,
Keilusíðu 12c, Akureyri.
Þorfinnur Jóhannsson,
k Hrauntungu 20, Hafnarfiröi.
50 ára
Björg Valgeirsdóttir,
Hrísholti 10, Selfossi.
Guðrún Antonsdóttir,
Skipasundi 56, Reykjavík.
Margrét Guðjónsdóttir,
Brekkugðtu 46, Þingeyri.
Tryggvi Jakobsson,
Víðimel 37, Reykjavík.
40 ára
Bessi Gunnarsson,
Einholti 4c, Akureyri.
t_ Curtis Pendelton Snook,
Huldulandi 26, Reykjavík.
Eyrún Ósk Jensdóttir,
Suöurgötu 100, Hafnarfiröi.
Hafþór Hermannsson,
Bakkasíðu 7, Akureyri.
Heigi Einarsson,
Leirubakka 24, Reykjavík.
Hilmar Þórarinsson,
Huldubraut 6, Kópavogi.
Ketill Hallgrímsson,
Ásgeröi 5, Reyðarfirði.
Kristín Þórdís Ragnarsdóttir,
Svarthömrum 32, Reykjavík.
Sigurður Hafliði Árnason,
Álfhólsvegi 59, Kópavogi.
Sævar Steingrímsson,
Birkihlíö 4, Sauöárkróki.
Vilberg Viggósson,
Brekkustíg 35c, Njarövík.
Askrifendur
fá
aukaafslátt af
smáauglýsingum
DV
a\\f mil// hirr,/no
—
Smáauglýsingar
ir»rai
560 6000
Andlát
Nína Björk Árnadóttir skáld, Flyðru-
granda 6, dó í Reykjavík sunnudaginn
16.4.
Steinunn Hall, Vesturgötu 52, Reykja-
vík, andaðist á Landspítalanum Foss-
vogi, mánudaginn 17.4.
Marvin Minske, Waseca, Minnesota,
lést fimmtudaginn 13.4.
Ólöf Sigurðardóttir, frá Teygingalæk,
slðast til heimilis I Engihjalla 3, Kópa-
^vogi, lést sunnudaginn 16.4. sl. á
Sunnuhllö I Kópavogi.
Haraldur Sigurgeirsson, Spltalavegi 15,
Akureyri, andaöist á dvalarheimilinu Hlíð
laugardaginn 15.4.
Systir María Hildegard, fyrrv. príorinna
á St. Jósefsspítala Landakots, andaðist
á hjúkrunarheimili reglunnar I Kaup-
mannahöfn mánudaginn 17.4.
Folk i frcttum
Hannes Hlífar Stefánsson
Hannes Hlífar Stefánsson, stórmeistari í skák
Hannes hefur fyrir löngu sannaö sig sem efnilegasti skákmaöur þjóöarinnar.
Hann hækkaöi umtalsvert í ELO-stigum við aö sigra Reykjavíkurskákmótið.
stórmeistari í skák
Hannes Hlífar Stefánsson, stór-
meistari í skák, Miðstræti 10,
Reykjavík, varð einn í efsta sæti á
Reykjavíkurskákmótinu sem lauk á
fimmtudaginn var.
Starfsferill
Hannes Hlifar fæddist í Reykja-
vík 8.7. 1972 og lærði að tefla fimm
ára. Hann gekk kornungur í Tafl-
félag Reykjavíkur, varð skákmeist-
ari þess 1986, unglingameistari 1981
og 1987, vann einstaklingskeppni í
norrænni skólaskák 1983-87 og 1990,
varð skólaskákmeistari Reykjavík-
ur í yngri flokki 1984 og skólaskák-
meistari íslands í Bolungarvík 1984,
varð drengjameistari Islands í
flokki fjórtán ára og yngri 1984-86
og í þessum aldursflokki á skák-
þingi Reykjavíkur 1985 og haust-
móti TR 1985, varð skólaskákmeist-
ari Reykjavíkur í eldri flokki 1986
og 1987 og skólaskákmeistari
íslands sömu ár.
Hannes varð heimsmeistari ung-
linga í skák, sextán ára og yngri, í
Innsbruch í Austurríki 1987, varð
alþjóölegur skákmeistari á íslands-
mótinu í Hafnarfirði 1988, var sigur-
vegari á IBM-skákmótinu í Reykja-
vík 1988, sigraði á alþjóðlegu skák-
móti á Gausdal í Noregi 1990 og náði
þar fyrsta áfanga sem stórmeistari í
skák, náði öðrum áfanga í Reykja-
víkurskákmótinu 1992 og varð stór-
meistari á Ólympíuskákmótinu í
Manilla 1993.
Hannes sigraði á cdþjóðlegu skák-
móti í Kaupmannahöfn 1998, á afar
sterku móti í Andtwerpen í Belgíu
1998 og ávann sér rétt til að keppa á
heimsmeistaramótinu í Las Vegas
1999, varð íslandsmeistari í skák á
Skákmóti íslands 1998 og sigraði nú
á Revkjavíkurskákmótinu.
Fjolskylda
Hannes Hlífar á tvo hálfbræður:
Friðrik Öm Egilsson, f. 17.4. 1965,
rafvirkja í Reykjavík, en kona hans
er Helga Bragadóttir; Þráin Vigfús-
son, f. 25.10. 1967, viðskiptafræðing
og fjármálastjóra hjá Kynnisferð-
um, búsettur í Kópavogi, kvæntur
Svövu Líf Edgardsdóttur og eiga
þrjú börn.
Foreldrar Hannesar: Stefán Jens
Hannesson, f. 2.3.1944, d. 1974, kenn-
ari í Reykjavík, og Sesselja Friðriks-
dóttir, f. 18.3. 1939, matráðskona í
Reykjavík.
Ætt
Stefán var sonur Hannesar, póst-
fulltrúa í Reykjavík Árnasonar, b. í
Krossgerði á Berufjarðarströnd,
bróður Gísla, afa Gisla Gunnarsson-
ar prófessors. Móðir Árna var
Málmfríður, systir Sigríðar, ömmu
Vals Gíslasonar leikara, fóður Vals
bankastjóra. Málmfríður var dóttir
Gísla, b. í Krossgerði, Halldórsson-
ar, b. í Krossgerði, Gíslasonar, bróð-
ur Brynjólfs, langafa Ólafs Davíðs-
sonar ráðuneytisstjóra. Móðir
Hannesar var Hansína Bergsveins-
dóttir, b. í Urðarteigi, Skúlasonar.
Móðir Stefáns er Hlíf Bjamadótt-
ir, vinnumanns á Ósi í Breiðdal,
Snjólfssonar. Móðir Bjarna var
Hólmfríður, systir Jóhönnu,
langömmu Más Elíssonar. Móðir
Hlífar var Dagrún, systir Jónínu,
ömmu Atla Eövaldssonar, landsliðs-
þjálfara í knattspyrnu. Dagrún var
dóttir Siguröar, b. á Grjótáreyri í
Seyðisfirði, Sveinssonar, b. í Mjóa-
nesseli, Vigfússonar.
Sesselja er dóttir Friðriks, hrepp-
stjóra í Hvestu í Amarfirði, Jóns-
sonar, b. í Neðri-Hvestu, Jónssonar,
b. þar, Jónssonar, b. á Núpi, Magn-
ússonar. Móðir Jóns eldra í Hvestu
var Ástríður Gísladóttir af
Vigurætt, systir Odds, langafa Guð-
mundar G. Hagalín rithöfundar.
Móðir Friðriks var Sesselja Guð-
brandsdóttir, smiðs á Hvalskeri við
Patreksfjörð, Magnússonar og
Veróniku Árnadóttur.
Móðir Sesselju var Sigríður,
kennari Þóröardóttir, b. í Eystri-
Hóli í Landeyjum, Tómassonar,
bróður Ingibjargar, ömmu Guðrún-
ar Helgadóttur rithöfundar. Móöir
Þórðar var Jóhanna Jónsdóttir, pr. í
Kálfholti, Sigurðssonar, talinn laun-
sonur Jóns Þorlákssonar, pr. og
skálds á Bægisá. Móðir Jóhönnu
var Guðný Jónsdóttir, b. á Kirkju-
bæjarklaustri, Magnússonar, foður
Þórunnar, ömmu Jóhannesar Kjar-
val. Móðir Sigríðar var Guðrún,
systir Boga yfirkennara og Jóns,
bankastjóra. Guðrún var dóttir
Ólafs, b. í Sumarliðabæ í Holtum,
Þórðarsonar og Guðlaugar Þórðar-
dóttur. Móðir Ólafs var Helga Gunn-
arsdóttir, b. í Hvammi Einarssonar,
og Kristínar Jónsdóttur, b. á Vind-
ási, Bjarnasonar Halldórssonar, ætt-
fóður Víkingslækjarættar þeirra
Jóns Helgasonar, Davíðs Oddsson-
ar, Guðlaugs Tryggva og Benedikts
Sveinssonar.
É
Auður Alexandersdóttir
skrifstofumaður í Snæfellsbæ
Auöur Alexandersdóttir skrif-
stofumaður, Háarifi 33, Rifi, Snæ-
fellsbæ, er sextug í dag.
Starfsferill
Auður fæddist að Hjarðarfelli í
Miklaholtshreppi en ólst upp á
Stakkhamri. Hún var starfsmaður
við Landsbanka íslands 1980-90 en
hefur síðan starfað á skrifstofu Vél-
smiðju Áma Jóns á Rifi.
Fjölskylda
Auður giftist 11.7. 1959 Smára
Jónasi Lúðvíkssyni, f. 14.3. 1938,
húsasmíðameistara. Hann er sonur
Lúðvíks Albertssonar og Veróniku
Hermannsdóttur á Rifi.
Börn Auðar og Smára Jónasar
eru Alexander Kristinn, f. 18.7.1960,
læknir á Akureyri, en kona hans er
Rósa Kristjánsdóttir og em böm
þeirra Kristján Friðrik, Ásgeir,
Auður og Ásdís Rós; Lúðvík Ver, f.
29.8. 1961, kennari og skipstjóri á
Rifi, en kona hans er Anna Þóra
Böðvarsdóttir og er sonur þeirra
Smári Jónas; Örn, f. 5.10. 1967,
rekstrartæknifræðingur í Reykja-
vik en kona hans er Edda Gunnars-
dóttir og eru dætur þeirra Ásta Jón-
Ina og Auður
Alexandra;
Hildigunnur,
f. 7.2. 1969
nemi við
Listaháskóla
íslands en
maður henn-
ar er Árni
Hermanns-
son og er sonur þeirra Hermann.
Systkini Auðar: Guðbjartur, f.
16.8.1931, bóndi í Miklaholti; Bjami,
f. 20.11. 1932, bóndi á Stakkhamri;
Hrafnkell, f. 12.2. 1934, húsasmíða-
meistari í Stykkishólmi; Guðrún, f.
14.8. 1935, húsmóðir í Ólafsvík; Þor-
björg, f. 13.12. 1941, húsmóðir í Rifi;
Magndís, f. 24.3.1945, skrifstofumað-
ur í Stykkishólmi; Friðrik, f. 28.10.
1947, tæknifræðingur í Reykjavík;
Helga, f. 3.7. 1952, leikskólastjóri í
Reykjavík.
Foreldrar Auðar voru Alexander
Guðbjartsson, f. 5.3. 1906, d. 21.4.
1968, bóndi og kennari á Stakk-
hamri, og Kristjana Bjamadóttir, f.
10.11. 1908, d. 25.11. 1982, húsfreyja.
Auður tekur á móti gestum á
heimili þeirra hjóna laugardaginn
22.4. eftir kl. 19.00.
Árni Pálsson
rannsóknarlögreglumaður
á Sauðárkróki
Árni Pálsson, rannsóknarlög-
reglumaður á Sauðárkróki, Lauga-
túni 7, Sauðárkróki, varð fertugur í
gær.
Starfsferill
Árni fæddist í Reykjavík en ólst
upp við Hverfisgötuna í Hafnarfirði.
Hann lauk 3. stigs prófi frá
Stýrimannaskólanum í Reykjavík
1986, og prófum frá Lögregluskóla
ríkisins 1993.
Ámi var háseti, bátsmaður og
stýrimaður á skipum Eimskipa-
félags Islands 1977-91, en hóf störf
hjá Lögreglunni í Reykjavík 1990 og
hefur stundað löggæslustörf síðan.
Ámi hefur leyst af sem aðstoðar-
varðstjóri og varðstjóri á Austfjörð-
um og er nú starfandi rannsóknar-
lögreglumaður á Sauðárkróki.
Árni var varaformaður og síðan
formaður Nemendafélags Stýri-
mannaskólans í Reykjavík 1984-85.
Hann hefur verið stjórnarmaður í
IPA, íslenskri deild, frá 1995.
Fjölskylda
Ámi kvæntist 24.8. 1991 Þuríði
Ingvarsdóttur, f. 30.6. 1956, deildar-
stjóra mál-
efna fatlaðra
hjá sveitar-
félaginu Skag
Ingvars ívarssonar sem lést 1990, og
Gyðríðar Þorsteinsdóttur, fyrrv.
ræstingastjóra í Hafnarfirði.
Dætur Þuríðar eru Margrét Betty,
f. 8.8. 1975, nemi við KHÍ, gift Sigur-
þór Rúnari Jóhannessyni húsasmið;
Jóhanna Björk, f. 22.8. 1980, nemi,
gift Eiríki Unnari Kristbjömssyni
verkamanni.
Sonur Árna er Elías Ingi Áma-
son, f. 12.8. 1983, nemi við FNV.
Dóttir Árna og Þuríðar er Alma
Hrund Ámadóttir, f. 29.12. 1989.
Systir Áma er Ingibjörg Pálsdótt-
ir, f. 26.11. 1951, búsett í Keflavík.
Hálfsystur Árna, samfeðra, eru
íris og Kristín.
Foreldrar Áma: Páll Ingimars-
son, f. 25.11. 1928, d. 11.12. 1996, bif-
reiðaeftirlitsmaður, og Gróa Svan-
heiður Ámadóttir, f. 13.4. 1930,
fyrrv. verslunarmaður.
Árni og Þuríður taka á móti
ættingjum og vinum í bústað nr. 68
í Munaðamesi miðvikudaginn 19.4.
frá kl. 19.00.
Merkír íslendingar
Magnús Kjaran stórkaupmaður fæddist
19. apríl 1890 að Vælugerði í Flóa en
átti heima í Reykjavík frá átta ára aldri.
Magnús var íþróttamaður á yngri ár-
um, einn af forystumönnum Ungmenna-
félags Reykjavíkur, stundaði skauta-
hlaup, var í hópi íslenskra glímu-
manna sem fóru á Olympíuleikana
1912, og æfði golf á efri árum.
Hann stundaði nám við VÍ, stundaði
síðan verslunarstörf, varð meðeigandi
verslunarinnar Liverpool 1918, aðaleig-
andi 1925-30 og síöan einn umsvifamesti
stórkaupmaður landsins. Hann var bæj
arfulltrúi í Reykjavík, sat í stjóm Félags
íslenskra stórkaupmanna og í stjóm Rauða
kross íslands. Magnús lést 17. apríl 1962.
Magnús Kjaran
Magnús var framkvæmdastjóri Alþingis-
hátíðarinnar á Þingvöllum 1930. Honum er
öðrum fremur að þakka hve hátíðin tókst
vel. Magnús var glæsimenni á velli,
höfðingi í lund, vinamargur og vinsæll.
Hann var mikill áhugamaður um ís-
lenska ljóðlist og málaralist og átti
ómetanlegt safn sjaldgæfra bóka.
Tómas Guðmundsson hafði bókaáhuga
Magnúsar í huga þegar hann orti til
hans sjötugs þetta erindi af þremur:
Og oss er tjáó, að einnig síðast hafni
vor eigin saga í drottins bókasafni,
og þar kvað vera sitt afhvoru að sjá.
En hvort mun þar þann höfund skorta hylli,
sem hefur sína lífsbók skráó af snilli,
og hvorki tryggð vió bók né vini brá?
Jarðarfarir
Kveöjuathöfn um Sigríði Ásgeirsdóttur
frá Flateyri, ferfram frá Fossvogskirkju
miðvikud. 19.4. kl. 15.00. Jarðsett frá
ísafjarðarkirkju laugard. 22.4. kl. 14.00.
Grettir Jóhannesson, Gullsmára 9,
Kópavogi, áður á Skarði I Þykkvabæ,
verðurjarðsunginn frá Digraneskirkju
miövikud. 19.4. kl. 13.30.
Karl Kristinn Kristjánsson, Kirkjubraut
5, Akranesi, verður jarðsunginn frá Akra-
neskirkju miðvikud. 19.4. kl. 14.00.
Ásta Þóra Jónsdóttir, Tómasarhaga 36,
Reykjavík, verður jarðsungin frá Nes-
kirkju miðvikudaginn 19.4. kl. 10.30.
Elín Ólafsdóttir, Bræðraborgarstíg 37,
verður jarðsungin frá Neskirkju
miövikud. 19.4. kl. 15.00.
Leifur Þorbjarnarson bókbindari, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikud.
19.4. kl. 13.30.