Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2000, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000
I>V
58______
-?Tilvera
Being John Malkovich
*★** Þvllík aíbragösskemmtun!
Það er auövelt að láta dæluna
•^jjanga meö háttstemmdum lýsing-
arorðum en ég skal reyna að stilla
mig. Og þó. í þessari súrrealisku
kómedíu um sjálfsmyndarkrísu,
reíilstigu frægðarinnar og leitina
að eilífðinni rekur hver kostulega
uppákoman aðra og eins og góðum
myndum sæmir vekur hún miklu
fleiri spumingar en hún svarar.
-HK
American Beauty
*★* Til allrar hamingju fer Amer-
ican Beauty vel með þetta marg-
þvælda efni, gráa fiðringinn, ótt-
-pm við að eldast og lifsins allsherj-
mr tilgangsleysi. Styrk og hljóðlát
leikstjórn ásamt einbeittum leik-
arahópi lyftir þessari mynd yfir
meðalmennskuna og gerir hana að
eftirminnilegu verki. -ÁS
Man on the Moon
*** Það er kvikmyndinni Man on
the Moon til mikils lofs að hún
fylgir hinni einstrengingslegu sýn
grínistans Andys Kaufmans á tU-
veruna allt til enda. Jim Carrey
sýnir fantagóðan leik í aðalhlut-
verkinu. Við gleymum því tiltölu-
lega fljótt að Carrey er ein mesta
stjama kvikmyndanna um þessar
mundir og sogumst inn í þennan
karakter sem um leið er aldrei ráð-
inn eða útskýrður með sálfræðileg-
®um visunum. -ÁS
Fiaskó
*★* Aðall Fíaskó er hvernig á galsa-
fullan en um leið vitrænan hátt
þrjár sögnir um ólík viðhorf til lífs-
ins tengjast. Myndin er fyndin og
um leið mannleg. í fyrstu kvikmynd
sinni i fullri lengd fer Ragnar Braga-
son vel af stað. Það er viss ferskleiki
í kvikmynd hans og enginn byrj-
endabragur á leikstjóminni sem er
örugg og útsjónarsöm. Honum tekst
að láta smáatriðin vera mikilvæg
fyrir framvindu sögunnar og hefur
* góð tök á leikurum sem upp til hópa
em i sínu besta formi. -HK
Græna mílan
*** Vel gerð og spennandi kvik-
mynd með áhugaverðum söguþræði
á mörkum raunsæis og þess sem
enginn kann skýringu á. Leikstjór-
inn, Frank Daramont, sem einnig
skrifar handritið, fylgir sögunni vel
eftir og er lítið um breytingar hjá
honum. Þar af leiðandi er myndin
mjög löng, nánast engu er sleppt, og
hefði að ósekju mátt stytta hana að-
eins. Hún hefði þá sjálfsagt orðið
skarpari og með sterkari áherslum
á hið góða og illa. -HK
^Oogma
*'*★* Þetta er ein af hinum óborgan-
legu vangaveltum hins ófor-
skammaða Kevins Smiths (Clerks,
Chasing Amy) um lífið, tilveruna,
trúna og Guð. Hér gerir hann
stólpagrín að tilraunum mannanna
til að skilja Drottin og ganga á
hans vegum en um leið er ljóst að
Kevin er trúmaður mikill og um-
hugað um Hann/Hana/Það. Vegna
þessarar djúpu sannfæringar hans
er auðvelt að hlæja hjartanlega að
þessari ósvífnu hugleiðingu um
hinstu rök tilverunnar. -ÁS
The Hnd of the Affair
*** Skáldsaga Grahams Greens er
vel skrifuð gamaldags ástarsaga
sem gerist i stríði. Það sem gerir
■^hana forvitnilega í augum nútíma-
mannsins er að hún er sjálfsævi-
söguleg og lýsir vel þeim tilfinning-
um sem kraumuðu í brjósti ungs
rithöfundar á róstutímum. Neil Jor-
dan aðlagar söguna nútímakröfum
með því að færa atburðarásina fram
og aftur í tíma og leyfir sér að sýna
sömu atburðina frá tveimur sjónar-
homum. Þetta tekst honum fullkom-
lega þótt ekki takist honum að
losna undan ofhlaðinni dramatík og
geri litla tilraun til þess. -HK
The Hurricane
*** Hinn margreyndi leikstjóri,
pJorman Jewison, hefur gert áhrifa-
mikla og góða kvikmynd þar sem
réttlæti og óréttlæti er í deiglunni.
Myndin er byggð á reynslu hnefa-
leikakappans Rubins „Hurricane"
Carters sem sat átján ár í fangelsi.
Leikur Denzels Washingtons i hlut-
verki Carters er stórbrotinn og vel
verðugur tilnefningarinnar til ósk-
arsverölauna. -HK
Mission to Mars:
Til bjargar
Marsleiðangri
I dag verður frumsýnd í kvik-
myndahúsum á höfuðborgarsvæðinu
Mission to Mars sem er nýjasta kvik-
mynd hins þekkta leikstjóra, Brians
Flaggaö á Mars
Geimfarar í fyrri leiöangrinum til Mars flagga bandaríska fánanum.
De Palma. Myndin
gerist 2020. Enn eitt
risaskrefið hefur ver-
ið tekið í sögu mann-
kynsins. Lending
mannaðs geimfars
hefur tekist á Mars
og allir eru himinlif-
andi, sérstaklega í
höfuðstöðvum
NASA. Gleðin breyt-
ist samt fljótt í kvíða þegar leiðang-
ursforinginn tilkynnir að eitthvað
hroðalegt sé að gerast og síðan slitn-
ar sambandið. NASA bregst skjótt
við og allt er lagt í sölumar til að út-
búa björgunarleiðangur. í honum
eru reyndir geimfarar sem fá stuttan
æfmgartíma fyrir sex mánaða ferða-
lag og íjallar myndin um ferðalagið
og það sem þeir uppgötva sér til
undrunar þegar þeir loks komast til
Mars. I helstu hlutverkum eru Gary
Sinese, Tim Robbins, Don Cheadle,
Connie Nielsen og Jerry O’Connell.
Brian De Palma, sem er kannski
þekktur af allt öðm en ævintýra-
kvikmyndum, segir að það hafl ver-
Um borð í geimfarinu
Gary Sinese og Connie Nielsen láta sig fljóta í
þyngdarleysinu innan geimfarsins.
ið viss áskorun fyrir hann að gera
þessa kvikmynd: „Ég hef aldrei gert
vísindaskáldsögukvikmynd áður
svo mér þótti tími kominn til þegar
ég fékk handritið að Mission to
Mars í hendumar. Ég viðurkenni að
það er mjög erfitt að komast hjá
klisjum í slíkum myndum en ég
reyndi þó að forðast þær eftir því
sem ég gat og reyndi að halda mig
við raunveruleikann enda á myndin
að gerast í nánustu framtíð."
Ástæðan fyrir því að myndin er
látin gerast 2020 er einfaldlega sú að
þá gera vísindamenn ráð fyrir að
fyrsta mannaða geimfarið verið
sent til-Mars. -HK
Brian De Palma
Sem táningur hafði Brian De
Palma gaman af því að fylgjast með
fóður sínum sem var bæklunar-
skurðlæknir. Þegar hann vildi fá
eitthvað enn meira fyrir augað
átti hann það til að fá leyfi hjá
vinum foður hans í lækna-
stéttinni til að fá að fylgjast
með heila- og augnupp-
skurðum. Sjálfsagt hefur
þetta áhugamál siast inn í
hann þvi vísa má í þessa
reynslu hans í fyrstu
myndum hans sem eru
blóðugar, svo
ekki sé
kvik
sagt.
Þegar kom að háskólanámi lagði De
Palma fyrir sig heimspeki við Col-
umbia-háskólann í New York en
breygði af braut þegar hann
í kynni við starf-
ii leikhóp innan
skólans. Hann
varð sér úti um 16
mm kvikmyndatökuvél
og hóf að kvikmynda
leikritin sem vinir hans
voru að setja á svið. Út úr
þessari vinnu urðu til
nokkrar stuttmyndir sem
hjálpuðu honum að fá
styrki.
Snemma ákvað De
Palma að gera
leikna kvik-
mynd i fullri
lengd og
eyddi
hann
tveimur
Brian De Palma
Umdeildur leikstjóri sem styr hefur staðið um í mörg ár.
arum í
að
undir-
búa tvær kvikmyndir, Greetings og
The Wedding Party, og fékk til að
leika aðalhlutverkin tvo vini sem
voru að koma sér áfram i leiklist-
inni, Robert De Niro og Jill
Clayburgh. Myndimar fóru að vísu
aldrei í almennilega dreifmgu og
það var ekki fyrr en þau öll voru
orðin þekkt að áhugi á þeim jókst
til muna. í kjölfarið fylgdi svo Hi
Mom sem er framhald af Greetings.
Eftir þessa reynslu sína fór
DePalma að kynna sér kvikmyndir
Hitchcocks og í næstu myndum
hans má sjá áhrif frá þessum meist-
ara hrollvekjunnar. 1 dag hefur De
Palma styrkar stoðir í bandarískri
kvikmyndagerð en það er ekki þar
með sagt að allir séu sáttir við
myndir hans. Yfirleitt eru málsvar-
ar hans færri en þeir sem hafa yndi
af því að klekkja á honum. Hverju
sem umtali um gæði mynda hans
líður þá er Brian De Palma einn
þeirra stóru í bandarískri kvik-
myndagerð og það er ávallt viss
spenna sem fylgir þvi að sjá nýja
kvikmynd eftir hann. Hér á eftir fer
listi yfir þær kvikmyndir sem De
Palma hefur leikstýrt:
Greetings, 1968
The Wedding Party, 1969
Hi Mom, 1970
Sisters, 1973
Phantom of the Pardise, 1974
Obsession, 1976
Carrie, 1976
The Fury, 1978,
Home Movies, 1980
Dressed to Kill, 1980
Blow out, 1984
Scarface, 1983
Body Double, 1984
Wise Guys, 1986
The Untouchables, 1987
Casualities of War, 1989
The Bonefire of Vanities, 1990
Raising Cain, 1992
Carlito’s Way, 1993
Mission: Impossible, 1996
Snake Eyes, 1998
Mission To Mars, 2000
-HK
Biogagnryni
,/f V,'1 !
Háskólabíó - Snjór fellur á Cedrusvið:
Drama í litlu samfélagi
Snjór fellur á Sedrusvið (Snow
Falling on Cedars) er fyrsta kvik-
mynd Scott Hicks frá því hann gerði
The Shine fyrir fjórum árum. Cedars
er stórvirki og greinilegt er að Hicks
hefur lagt mikinn metnað í verkið.
Myndin er glæsileg útlits og í þessu
útliti á ekki lítinn þátt kvikmynda-
tökumaðurinn Robert Richardson,
sem þekktastur er fyrir störf sín með
Oliver Stone. Kvikmyndataka hans
er meistarlega vel af hendi leyst og
áhrifarik. Það er samt þessi mikli
metnaður Hicks sem verður honum
aö falli. Hann virðist stundum
gleyma sér í eigin hugmyndaheimi
um lausnir og hefur það áhrif á
vandmeðfarinn söguþráð þar sem
farið er fram og aftur í tíma. Það er
ekki fyrr en líður á myndina að
nægileg festa næst í söguna og
dramatíkin verður áþreifanleg.
Snjór fellur á Sedrusvið er gerð
eftir samnefridri skáldsögu sem farið
hefur sigurfor um heiminn og meðal
annars komið út á íslensku. Myndin
hefst og endar sem réttarhaldsdrama
þar sem verið er að rétta í morðmáli.
Atburðirnir gerist á eyju i norður-
héruðum Bandaríkjanna. Ungur
maður finnst látinn í neti skips síns
þokunótt eina árið 1950. Japanskur
fiskimaður, Kazuo Miyamoto (Rick
Yune), er grunaður um morðið og
handtekinn. Blaðamaðurinn Ishmael
Chambers (Ethan Hawke) fylgist
með réttarhaldinu og það kemur
fljótt í ljós að tilfinningar hans eru
blendnar. Hann á erfitt með að
vera óháður og ástæðan er sú
að eiginkona Kazuo, Hatsue
(Youki Kudoh), er æskuunn-
usta hans. Þau höfðu átt í
leynilegu ástarsambandi um
tima, ekki þorað að gera það
opinbert og hittust í laumi í
skóginum undir cedrusviði.
Þegar heimsstyrjöldin skellur
á verða utanaðkomandi
árekstrar kynflokkanna þeim
erfiðir og Hatsue sker á sam-
band þeirra. Þetta hefur Ishm-
ael aldrei fyrirgefið henni og
þegar hann kemst á snoðir um
vitneskju sem líklega hreinsar
Kazuo af morðinu þá er hann
á báðum áttum hvort hann eigi að
hjálpa eða ekki...
Þar sem Scott Hicks er svo upptek-
inn af möguleikum í úrvinnslu efnis-
ins þá hefur hann vanrækt leikarana
og það kemur helst niður á Ethan
Hawke. Þar sem Ishmael er einnig
sögumaður hefði átt að fást skýrari
mynd af honum. í staðinn er hann
meira eins og áhorfandi og er stund-
Hvað geröist þegar tveir sjómenn hittust úti á sjó?
Rick Yune og Eric Thal í hlutverkum bandaríska og
japanska sjómannanna sem réttarhöldin snúast um.
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir
um eins og Hawke viti ekki almenni-
lega hvemig hann á að túlka persón-
una. Þetta á við um fleiri persónur,
sérstaklega Kazuo sem nánast enga
afgreiðslu fær frá Hicks. Lögfræðing-
arnir, sem þeir Max Von Sydow og
James Rebhom leika, hafa aftur á
móti sterka útgeislun í myndinni.
Þótt margt megi frnna að að-
ferð Hicks við að koma efninu
frá sér og að maður hafi á til-
finningunni að hann sé dálítið
upptekinn af sjálfum sér þá
verður það ekki af honum tek-
ið að mynd hans er drama sem
lætur fáa ósnortna.
Leikstjóri: Scott Hicks. Handrit:
Ron Bass og Scott Hicks. Kvik-
myndtaka: Robert Richardson.
Tónlist: James Newton Howard.
Aöalhlutverk: Ethan Hawke, Youki
Kudoh, Max Von Sydow, James
Rebhorn, Sam Shepard, James
Cromwell og Rick Yune.
Hilmar Karlsson