Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2000, Síða 28
60
-^Tilvera
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000
DV
lí f iö
E F T I R V I N N U
Fyrsti íslenski bankinn erlendis:
Jóhannesar-
gpassian
Mótettukór Hallgrimskirkju
flytur ásamt einsöngvurum og
Kammersveit Hallgrímskirkju
Jóhannesarpassíuna eftir Johan
Sebastian Bach undir stjórn Harð-
ar Áskelssonar í Hallgrímskirkju
klukkan 20. Einsöngvarar eru
Gunnar Guðbjörnsson (tenór -
guðspjallamaður), Marta G. Hall-
dórsdóttir (sópran), Davíð Ólafs-
son (bassi - Jesús), Sigríður Aðal-
steinsdóttir (alt), Loftur Erlings-
son (bassi) og Benedikt Ingólfs-
son(bassi - Pílatus).
POPP
I PLASTIKMAN A GAtlKNUM Það
er ofurrafheilinn Richie Hawthin
•sem er Atóm nr. 4 á Gauki á Stöng.
Richie er kannski betur þekktur und-
ir nafninu Plasticman. En hvaö sem
nafngiftum líöur þá mun hann stíga
á stokk umkringdur alls konar græj-
um, eins og plötuspilurum og rafdóti
ýmiss konar, í þeim tilgangi einum
aö láta okkur líöa eins og í draumi
annars staöar, einhvern veginn. Þaö
er engin leið að láta þetta fram hjá
sér fara. Það bara gerir sig ekki.
Klúbbar
■ SALSAVEISLA A KLAUSTRINU
Salsaö veröur á sínum staö viö
Garöinn á Klaustrinu.Chillið í Kjallar-
anum og Svali & Big Foot sjóðheitir
*við dansgólfið meö réttu blönduna
af R'N’B, dans & Salsa. San Miquel
er á tilboði og einnig mun Tequila
fljúga meö ööru hvoru. Opið frá kl.
21.
Krár
■ BALKANSTEMNING A NÆSTA
BAR Maöur nokkur er Lucky vill
nefna sig mun sjá um Balkantónlist
á miövikumótum Næsta bars. Alltaf
frítt inn og hefst skemmtunin kl. 22.
■ FÖTIN FYRIR FULLORPNA
FÓLKIÐ Gildran mætir órafmögnuö
á Alafoss föt bezt, Mosfellsbæ, til
þess aö fagna sumri en skemmst er
aö minnast aö sveitin gerði allt vit-
laust ásamt Eika Hauks fyrir stuttu
á staðnum.
Sveitin
’Sá CAFE MENNING DALVIK Hljóm
sveitin Hálft í hvoru kveður veturinn
á Café Menningu Dalvík ásamt
Eyjólfi Kristjánssyni Byrjar kl. 23.
Opnanir
■ HAFNARHUSIÐ VH) TRYGGVA-
GOTU Listasafn Reykjavíkur í Hafn-
arhúsinu opnaö. í tilefni þess verður
sett upp yfirlitssýning á úrvali úr
þeirri listaverkaeign sem er í Lista-
safninu. Þessi sýning verður til fram-
tíðar. Einnig veröur opnuö sýningin
Islensk myndlist á 20. öld og einka-
sýning Fabrice Hybert sem heitir Á
eigin ábyrgð.
Síöustu forvöö
■ FINNSKT GULL OG LEÐUR Finn
inn Harri Syrjánen lýkur sýningu á
verkum sínum í Listhúsi Ofeigs aö
~ Skólavöröustíg 5. Harri er gull- og
^eðursmlður o| hefur rekið listhús
og vinnustofu T miðbæ Helsinki í 29
ár. Á sýningunni eru skartgripir úr
ýmsum efniviöi svo og töskur og
bakpokar úr leðri. Listamaðurinn
veröur viöstaddur opnunina.
Sport
■ MEISTARADEILDIN A SPORT-
KAFFI Tveir leikir veröa í Meistara-
deild Evrópu. Báöir eru þeir sýndir á
ísafold Sportkaffi og byrjar sá fyrri,
Man. U-Real Madrid, kl. 18.40, en
sá seinni, Porto-Bayern M., kl. 21.
Kaldur á krana.
Feröir
SKIÐAFERÐ UTIVISTAR Dagana
T.9.-23. apríl fer Utivist í skíðaferð.
Afangastaöir: Langjökull - Hveravell-
ir - Kjölur. í þessa ferö sem aðrar-
lengri ferðir þarf aö panta og taka
farmiöa á skrifstofunni aö Hallveig-
arstíg 1. Sími Útivistar er 561
4330.
Forsetinn í Lúxemborg
Forseti Islands, herra Ólafur
Ragnar Grímsson, var í heimsókn í
Lúxemborg í gær og í fyrradag.
Fyrri daginn þáöi hann heimboð ís-
lendingafélagsins í landinu en
félaginu eru nú um 400 manns.
Einnig heimsótti Ólafur Ragnar
Cargolux en hjá fyrirtækinu vinna
um 100 íslendingar og þótti því við
hæfi að forsetinn heimsækti fyrir-
tækið í ferð sinni til Lúxemborgar.
Þá var forsetinn viðstaddur þegar
Kaupþing opnaði þar fyrsta íslenska
bankann á erlendri grund, Kaup-
thing Bank Luxemburg.
Með opnun hins nýja banka
Kaupþings var þannig brotið blað í
íslenskri bankasögu og var vel fagn-
að þegar forseti Islands opnaði
bankann formlega. Kaupthing Bank
Luxemburg er með um 30 milljarða
króna i vörslu sinni og er búist við
að sú upphæð tvöfaldist á þessu ári.
Ólafur Ragnar sagði í ræðu sinni
við þetta tilefni að hann fagnaði
Forsetinn kemur
Ólafur Ragnar kemur til móttöku vegna opnunar Kaupthing Bank Lux-
emburg. Forsetinn heilsar Magnúsi Guömundssyni, bankastjóra nýja
bankans. Meö þeim á myndinni er eiginkona Magnúsar, Lovísa María
Gunnarsdóttir, og við hliö hennar Johnie Brögger en viö hlið Magnúsar er
Guömundur Hauksson sparisjóösstjóri. Aö baki forsetanum stendur
Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra í Brussel.
ÖC CUiLLCgL au
land velji Lúx-
emborg sem
samstarfsaðila
á fjármála-
markaðnum
Eftir móttök-
Feögarnir Óttar^SF^Su
sem búiö hefur, LúxembofgVo ^ JÓhann*
Kaffileikhúsið í kvöld:
Sigurður Flosason með
Stórsveit Reykjavíkur
- einstakur viðburður í íslenskum djassi
Sjá ná 'r: Líflð eftir vinnu á Vísi.is
Stórsveit Reykjavíkur heldur tón-
leika í Kaffileikhúsinu í kvöld,
klukkan 20.30. Flutt verður tónlist
eftir Sigurð Flosason saxófónleikara
í nýjum útsetningum sænska stór-
sveitarstjórans og útsetjarans Dani-
els Nolgárds. Nolgárd, sem þykir
með færustu mönnum á sínu sviði í
heimalandi sínu, hefur unnið að út-
setningum verkanna í tvö ár. Hann
er yfirmaður djassdeOdar Tónlistar-
háskólans í Ingesund í Svíþjóð en
Sigurður gegnir sambærilegri stöðu
við djassdeild FÍH. Skólarnir hafa
veriö í nánu sambandi á undaníom-
um árum, meðal annars meö gagn-
kvæmum nemenda- og kennara-
skiptum, og sagði Sigurður að sam-
starf þeirra Nolgárds hefði sprottið
upp af því.
Á tónleikunum verða leikin ellefu
verk sem Sigurður samdi á árunum
1987-1996. Þau hafa öll verið flutt
DV-MVND HARI
Frá æfingu Stórsveitar Reykjavíkur
Sveitin hyggst fiytja nokkur verk Siguröar Flosasonar í nýjum útsetningum
Svíans Daniels Nolgárds í Kaffileikhúsinu í kvöld.
áður opinberlega en ekki nema
fimm í hinum nýju útsetningum
Daniels Nolgárds. Voru þær frum-
fluttar á Djasshátíð Reykjavíkur i
september 1998 og hélt Nolgárd sjálf-
ur um tónsprotann þá eins og nú.
Ekki verða haldnir nema einir
tónleikar í Reykjavík og gerir Sig-
urður því ráð fyrir að fylla Kaffi-
leikhúsið. Næsta vetur er áformað
að fara utan og flytja sömu efnis-
skrá með fimm helstu stórsveitum
Svíþjóðar og einni norskri. I fram-
haldinu sagði Sigurður að stefnt
væri að því að gefa verkin út bæði
á nótum og á diski og verða annað-
hvort notaðar upptökur með Stór-
sveit Reykjavíkur eða einhverjum
hinna norrænu sveita. Verður sá
diskur væntanlega einhver sárabót
fyrir þá sem ekki komast í Kaffileik-
húsið í kvöld.
-EÖJ