Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2000, Side 29
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000
I>V
------m>
Tilvera
Myndlistarsýningar:
Sólin, tunglið og stjörnurnar
- níu Finnar sýna í Nýlistasafninu
m.
Nýlistasafniö viö Vatnsstíg
22. apríl næstkomandi veröur opnuö sýning níu finnskra myndlistarmanna í Nýlistasafninu.
Á laugardaginn kemur klukkan
fjögur eftir hádegi veröur opnuö
sýningin Sólin, tunglið og stjömu-
mar í Nýlistasafninu. Að sýning-
unni stendur hópur níu finnskra
myndlistarmanna sem sýnt hefur
saman í fjölda finnskra safna frá
árinu 1995. Listamennimir koma
úr ýmsum áttum og em á öllum
aldri, sá elsti er fæddur árið 1936
en sá yngsti 1971. Allir eiga þeir
það þó sameiginlegt að fást einkum
við rýmis- og/eða hugmyndalist.
Verk sin vinna þeir út frá sömu
grundvallarhugmyndunum sem
tengjast meðal annars himintungl-
unum eins og nafn sýningarinnar
gefur til kynna. Einnig athuga þeir
hvemig náttúrleg fyrirbæri tengj-
ast umhverfi mannsins og bygging-
arlist.
Verkin sem hópurinn sýnir í Ný-
listasafninu era höggmyndir og
rýmisverk auk módela í húsagerð-
arlist. Einn útgangspunktur sýn-
ingarinnar er fjarlægðin á mUli
Helsinki og Reykjavíkur og velta
listamennirnir meðal annars fyrir
sér í verkum sínum hvað þessar
tvær borgir eigi sameiginlegt og
hvað skilji þær að. Meðal þess sem
þeir taka fyrir er lega borganna,
mismunandi menning þeirra, bygg-
ingarlist og tungumál íbúanna. Þó
að um sé að ræða tvær af mennirw>
arborgiun ársins 2000 tengist sým
ingin ekki beinlínis verkefninu
Reykjavík menningarborg 2000 og
er ekki styrkt af því.
í tengslum við sýninguna í Ný-
listasafninu mun einn listamann-
anna, prófessor Lauri Anttila,
halda fyrirlestur i húsnæði Lista-
háskóla íslands í Laugarnesi. í fyr-
irlestrinum sem nefnist Space-
Time-Art mun hann auk þess að
fjalla um sýningu hópsins segja frá
eigin verkum en Anttila er einkum
þekktur fyrir umhverfislistaverk
sin. Fyrirlesturinn verður fiuttur
föstudaginn 28. apríl og hefst
klukkan hálfeitt. -EÖJ
FREELANDER HEFUR LÆKKAÐ í 2.340.000
(VERÐ ÁÐUR 2.490.000, VERÐLÆKKUN KR. 150.000)
FREELANDER XEI HEFUR LÆKKAÐ í 2.590.000
Grjóthálsi 1 • Sími söludeildar 575 1210
www.bl.is
(VERÐ AÐUR 2.750.000, VERÐLÆKKUN KR. 160.000)
VERÐI ÞÉR AÐ GÚÐU!
FREELANDER