Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2000, Page 32
Trooper
159 hestöfl
Sjálfskiptur
Bflholmar ehf
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá I síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000
Jóhann Ársælsson:
Ekki nafn-
breyting núna
„Ég er nú ekki upptekinn af því
hvaö flokkurinn á að heita og hef
ekki reiknað með að menn gerðu
breytingu á því
núna, á stofn-
fundinum. En það
er ekki útilokað
að menn breyti
frá Samfylkingar-
nafninu einhvem
tíma og þá kann
vel að vera að
þessi tvö nöfn
verði fyrir val-
inu,“ segir Jó-
hann Ársælsson,
þingmaður Sam-
fylkingarinnar og
áður alþingis-
maður fyrir Al-
þýðubandalagið,
j*um hugsanlega nafnbreytingu fylk-
ingarinnar í Jafnaðarflokkinn eða
Jafnaðarmannaflokkinn.
„Ég held reyndar að ef menn
hefðu dottið niður á eitthvert nafn
sem passaði vel væru menn orðnir
sammála um það. Það geti verið að
umræðan um nafnbreytinguna hafi
verið of stutt í gangi. Það er með
nöfn á flokkum eins og nöfn á börn-
um að það þarf að venjast þeim,“
segir Jóhann Ársælsson
-GAR
, Johann
Ársælsson:
„Ef menn heföu
dottiö niöur á
eitthvert nafn
sem passaöi vel
væru menn orðn-
ir sammála. “
DV-MYND HILMAR ÞÓR
Forseti í flughermi
Forseti ísiands, Ólafur Ragnar Grímsson, fór í heimsókn til Cargolux í fyrradag. Forsetinn kom viö í flughermi sem Cargolux hefur fyrir flugmenn sína og fékk
aö fljúga um Lúxemborg. Hann stóð sig aö sögn prýöitega þótt lendingin væri nokkuö harkaleg. Meö á myndinni er Eyjólfur Hauksson, yfirmaöur flugdeildar
Cargolux. Nánar um heimsókn forsetans á bls. 60.
Laddi
í DV á morgun er ítarlegt viðtal við
manninn sem ætlaði að verða hús-
gagnasmiður en varð vinsælasti
skemmtikraftur þjóðarinnar. Þórhall-
ur Sigurðsson, Laddi, leikari og grín-
fugl sem skemmt hefur þjóðinni í 30
ár, fagnar tímamótum með sérstakri
hátíðadagskrá. í blaðinu er einnig við-
tal við Jón Tynes, félagsmálastjóra í
Ammassalik á Grænlandi, sem starfar
þar við erfiðar aðstæður.
Einnig er fjallað um Þjóðmenning-
arhúsið, sagt frá stemningunni hjá
Stoke á Wembley og rætt við einu
■'•fconuna á íslandi sem heitir Heiðlóa.
Nýgerður kjarasamningur flugvirkja hjá Flugleiðum:
Kolfelldur
eldheit atriði“ réðu úrslitum
n
Flugvirkjar felldu í gærkvöld
nýjan kjarasamning sem náðst
hafði milli samninganefndar Flug-
virkjafélags íslands og Flugleiða á
miðvikudag í siðustu viku. At-
kvæði voru talin í gærkvöld. Af 156
á kjörskrá greiddu 53 atkvæði með
samningnum en 79 á móti. Flug-
virkjaverkfall hafði verið boðað kl.
11 á fimmtudagsmorgunmn sl. Þeg-
ar samkomulag í kjaradeilunni lá
fyrir var því frestað til 3. maí nk.,
kl. 11 árdegis.
„Menn eru óánægðir með hag-
ræðingaratriði í samkomulaginu,
svo sem vinnutímabreytingar,“
sagði Emil Eyjólfsson, formaður
samninganefndar Flugvirkjafélags
íslands, við DV í morgun. „Menn
gerðu engar athugasemdir við
launaliðinn sem var sá sami og hjá
Flóabandalaginu en þeir gátu ekki
sætt sig við ýmis önnur atriði, m.a.
sem snúa beint hér að vinnustaðn-
um.“
Emil sagði að nú lægi fyrir að
menn yrðu að setjast niður og
skoða framhaldið. Aðspurður
hvort búast mætti við að viðræður
hæfust fljótlega aftur sagði hann
það vera alfarið í höndum ríkis-
sáttasemjara.
„í fyrsta lagi verðum við að setj-
ast niður og meta stöðuna í okkar
hópi og sjálfsagt gera Flugleiðir
hið sama sín megin. Síðan verða
menn að takast á aftur. Takmarkið
er að ná kjarasamningi. En þegar
samningur er felldur þá er hann
felldur sem heildarsamningur. Nú
er þvi allt ttt skoðunar á nýjan
leik. Það var ljóst þegar við skrif-
uðum undir kjarasamninginn að
þar inni voru atriði sem voru eld-
heit. Við bentum þeim á að það
yrði erfitt mál að fá félagsmenn ttt
að samþykkja þau. Það reyndist
vera raunin." -JSS
Sjómenn á kaupskipaflotanum búast við verkfalli:
Klassísk
Allt stefnir nú í að verkfall skelli á
hjá sjómönnum á flutningaskipum á
sjálfan verkalýðsdaginn eða aðfara-
nótt 1. maí. Þungt hljóð er i sjómönn-
um og hvorki gengur né rekur í samn-
ingamálum.
„Það bendir allt til verkfalls," segir
Jónas Garðarsson, formaður Sjó-
mannafélags Reykjavíkur, og segir lít-
ið hafa þokast í samningamálum. „Ég
reikna frekar með því að það verði
stál í stál í dag. Menn fara í klassíska
fýlu þegar verið er að boða verkfall,
það er vaninn."
Samningafundur átti að hefjast með
dettuaðilum hjá ríkissáttasemjara
klukkan tíu í morgun. Ef til verkfalls
kemur munu áætlunarskipin strax
fara að stöðvast en Jónas áætlar að
það geti tekið upp undir hálfan mán-
uð þar til allur flotinn verði kominn í
höfn.
„Það er tekist á um launaliði, trygg-
Jónas Garöarsson:
Verkfall á verkalýösdaginn
ingamál, frídaga og ýmis sérmál. Við
krefjumst rétt tæpra 30 prósenta í
launahækkun." Jónas segir að málið
snúist einnig um að koma böndum á
samninga eriendra sjómanna á kaup-
skipaflotanum.
Enn tími til stefnu
Formaður samninganefndar kaup-
skipaútgerða er Jón H. Magnússon.
Hann segir lausn ekki í sjónmáli í
fýla
augnablikinu og menn séu ekki sér-
lega bjartsýnir.
- Hvað um samninga vegna er-
lendra skipverja á kaupskipum?
„Við höfum ekkert umboð ttt að
semja um áhafnir á erlendum skipum.
Þar eru aðrir vinnuveitendur. Þeir
eiga ekki aðild að þessu máli. Það eru
einfaldlega gerðir verksamningar við
eigendur þessara leiguskipa. Það er
ekki þannig að þeir sem taka skipin á
leigu hafi eitthvað með áhafnirnar að
gera. Við höfum þar ekkert samnings-
forræði.
- Stefnir í verkfall?
„Það er ekki enn búið að boða það
en fram hefur komið að það skelli á
aðfaranótt 1. maí. Það er þó tími þang-
að til ef menn hafa vilja. Menn þurfa
hugsanlega að mætast einhvern veg-
inn. Málið er nú hjá sáttasemjara og
fundahöldin eru undir hans forræði."
-HKr.
Borgarfjörður:
Börðust við
elda í þrjá tíma
Minnstu munaði að sinueldur
færi úr böndunum við Svignaskarð
siðdegis í gær og næði í skógarbelti
og sumarbústað.
Um tuttugu manns frá björgunar-
sveitum, lögreglu og slökkviliðinu
börðust við eldinn í þrjá tima.
Bóndi, sem hafði leyfi frá land-
búnaðarráðuneytinu til sinubruna í
landi sinu, haiði kveikt eldinn en
missti stjóm á honum.
Björgunarmönnum tókst að
slökkva eldinn án þess að skemmd-
ir yrðu á mannvirkjum. -SMK
, Áraessýsla:
Atökum afstýrt
Átökum var afstýrt á aðalfundi
Veiðfélags Ámessýslu á Hótel Selfossi
í gær. Stangaveiðfélag Selfoss gekk á
milli fylkinga og mun hafa milligöngu
um að netaveiðum verði hætt.
Hreggviður Hermannsson hafði far-
ið fyrir hópi manna sem vilja leggja
netaveiðar í Ölfusá og Hvítá niður.
Stefndi þvi í að kosiö yrði á milli hans
og Gauks Jömndssonar í formanns-
kjöri.
„Það varð því að ráði að láta þá
stjómarmenn í friði úr því þeir slök-
uðu þetta á,“ sagði Hreggviður í sam-
tali við DV í morgun. -HKr.
brother P-touch 1200
Miklu merkilegri merkivél - Nýtt útlit
5 leturstærðir
9 leturstilllngar
prentar í 2 llnur
borði 6, 9 og 12 mm
Rafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i