Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2000, Blaðsíða 2
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2000 Fréttir jjV Milljarðaviöskipti við sölu á verslunarkeðju Kaupáss: Nú fer ég til Astralíu - segir Jón Júlíusson eftir 40 ár í Nóatúni „Þaö er skemmtilegra að vinna en vera ríkur. Nú fer ég bara til Ástral- íu en það er eina heimsálfan sem ég á eftir að heimsækja,“ sagöi Jón Júlíusson sem í gær seldi hlut sinn í verslunarkeðjunni Kaupási og þar með Nóatúnsverslanir sínar eftir 40 ára uppbyggingarstarf. Jón, sem er rúmlega sjötugur, seldi aðeins rekstur verslana sinna, sem eru tíu Kísiliðjan verst: Ekki hengja okkur ffyrir náttúruspjöll „Þaö er mikið að þurfa að eyða 40 milljónum i rannsóknir til að rétt- læta áframhaldandi starfsemi Kísil- iðjunnar þegar haft er í huga að þetta er tiltölulega lítið fyrirtæki sem veltir 700 milljónum," sagði Gunnar Örn Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Kísiliðjunnar, en fyr- irtækiö hefur kynnt niðurstöður rann- sókna óháðra vís- indamanna sem sýna að engin hætta sé á náttúru- spjöllum við Mý- vatn vegna starf- semi fyrirtækisins. _ „Skipulagsstjóri ’ skikkaði okkur í frekara umhverfis- mat að kröfu þeirra sem vilja Kísiliðjuna burt frá Mý- vatni og niðurstaðan er einfaldlega sú að þaö er ekkert í lífríkinu sem bendir til að umhverfispjöll hafi orðið í og við Mývatni í þau 30 ár sem Kísiliðjan hefur starfaö," sagði Gunnar Öm. Kísiliðjan hefur síðastliðin 30 ár unnið kísilgúr í Ytriflóa en hefur nú sótt um að fá að vinna í Syðriflóa næstu 30 árin: „Nú er bara að sjá hvort enn verður reynt að bregða fæti fyrir Kísiliðjuna því þaö er staðreynd að ákveðinn hópur vís- indamanna vill verksmiöjuna burt. En við viljum ekki láta hengja okk- ur fyrir náttúruspjöll. Hvort reka eigi fyrirtæki eins og Kísiliðjuna við Mývatn eöa breyta svæðinu í þjóðgarð er allt önnur umræða sem kemur þessi máli ekki við. Við telj- um okkur nú hafa sýnt fram á að Kísiliöjan hefur engan skaða unnið á Mývatni," sagði Gunnar Öm Gunnarsson framkvæmdastjóri. -EIR DV-MYND HILMAR ÞÓR Kaupmaöur kveður eftlr 40 ár Jóni Júlíussyni finnst skemmtiiegra aö vinna en vera ríkur. að tölu, en heldur eftir þeim fast- eignum sem verslanimar voru reknar í. Þaö var Eignarhaldsfélag Alþýöubankans sem keypti Nóa- túnsverslanimar ásamt verslunum Kaupfélags Ámesinga og 11-11-búð- imar en þær höfðu áöur verið sam- einaðar undir nafni Kaupáss. Jón Júlíusson vildi ekki tjá sig um kaupverðið en neitaði því þó ekki réttara væri að tala um milljarða frekar en milljónir: „Það er hægt aö gera margt á 40 árum og það breytist ekkert þó ég hverfi á braut. Starfsmennimir verða eftir og þama er á ferðinni gott lið sem heldur þvi starfi áfram sem hingað til hefur einkennt Nóa- tún. Ég geng ekki um með tár í aug- um,“ sagði Jón Júlíusson. Eignarhaldsfélag Alþýðubankans stefnir að því að skrá verslanir Kaupáss á hlutabréfamarkað en um er að ræða 43 verslanir sem veltu um 10 milljörðum króna á síðasta ári. -EIR Gunnar Örn Gunnarsson. Ríkislögreglustjóri í nýju húsnæði Ríkislögreglustjóraembættinu var formlega afhent nýtt húsnæöi á 3. og 4. hæö á Skúlagötu 21 ígær en áöur var embættiö til húsa íAuöbrekku í Kópavogi. Dómsmálaráöherra, Sólveig Pétursdóttir, og rikislogreglustjori^ Haraldur Johannessen ávörpuöu gesti í ófullgeröu húsnæöi á 2. hæö hússins. Þau sjást hér^ ásamt Sigurjoni Sigurössyni, fyrrverandi lögreglustjóra í Reykjavík. Húsnæöiö er um 2000 fermetrar og er húsiö taliö á mun betri staö en fyrra húsnæöi embættisins. Vagnar SVR aka um 6 milljón km á ári: Litið um slys hjá SVR Litlar breytingar Samkvæmt niöurstöðum skoð- anakönnunar Gallups hafa litlar breytingar orðið á fylgi stjómmála- flokkanna frá síðustu könnun. Sam- fylkingin bætir dálitlu við en Fram- sókn mælist lægri en nokkm sinni DMYND Gangandl vegfarandi bjargaði hætt komnum strætlsvagnsfarþega Jóhanna Magnúsdóttir bjargaöi lífi konu i Árbæjarhverfi i Reykjavik á fimmtu- dag þegar henni tókst aö stööva strætisvagn sem konan dróst á eftir. Konan var mikiö slösuö en ekki í lífshættu eftir slysiö. „Strætisvagnar Reykjavíkur bjóða bílstjórum, sem lenda í slys- um eða óhöppum, upp á áfallahjálp. Það er séð um að menn fái þá hjálp sem í boði er og það er reynt aö hlynna að fólki eftir því sem mögu- legt er,“ sagði Lilja Ólafsdóttir, for- stjóri Strætisvagna Reykjavíkur. Kona mn sjötugt dróst 80 metra meö strætisvagni á fimmtudags- morgun i Árbæjarhverfi í Reykja- vík. Hún var að fara úr strætisvagn- inum í Rofabæ þegar ökkli hennar festist í afturhurð vagnsins. Lilja sagði að vagnstjóri bílsins, sem konan var að koma úr, væri bæði reyndur og aðgætinn bílstjóri. „Bílstjórinn hefur þaö eftir atvik- um og fær þá aöhlynningu sem á þarf að halda,“ sagði Lilja og bætti því við að þegar svona óhöpp yrðu fylgdist SVR líka með því hvemig sá sem slasast hefði það. Samkvæmt upplýsingum læknis hinnar slösuðu hefur konan það gott eftir atvikum. Hún slasaðist al- varlega er hún dróst eftir strætis- vagninum og var meidd á ökkla, kvið, öxl og vinstri olnboga. Konan var flutt á bæklunardeild Landspít- alans við Hringbraut þar sem hún gekkst undir aðgerð á fimmtudag vegna ökklameiðsla hennar. Of snemmt er að segja til um það hvort hún muni ná sér fullkomlega. „Strætisvagnar Reykjavíkur aka um 6 milljón kílómetra á ári og það er um það bil 8,2 milljón sinnum á ári sem einhver stígur inn í strætis- vagn í Reykjavík. Þetta segir dálítið um það hvaða möguleikar eru á því að eitthvað komi fyrir og það er sem betur fer ekki í neinu hlutfalli við fjöldann sem um er að ræða,“ sagði Lilja. -SMK frá því í síöustu kosningum, er komin úr 18,5% í 13%. Ríkisstjórn- arflokkamir virðast hafa verið á hægri en jafnri niðurleið sam- kvæmt könnunum Gallups frá því í fyrrasumar. Sjálfstæðisflokkurinn mælist þó enn yfir kjörfylginu, er með 43% fylgi nú en var með 41% í kosningunum. RÚV greindi frá. Tilraun með áætlunarflug í gær var undir- ritaður samstarfs- samnngur milli Siglufjarðarkaup- staðar og íslands- flugs hf. um til- raunaverkefni í áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Siglufjarðar. Tilraunaverkefniö er hugsað af samningsaðilum til að kanna rekstrargrundvöll breytts forms áætlunarflugs frá því sem verið hefur með beinu flugi tvo daga í viku. Auka framlög til viðhalds Borgarráö hefur samþykkt að auka fjárframlög til endumýjunar slitlaga borgarinnar stórlega, með þeim fyrirvara að dregið verði úr framkvæmdum ef veruleg spenna myndast á verktakamarkaði á þessu sviði eöa ef verð hækkar umtals- vert. Með þessu á að bregðast við vegaskemmdum eftir erfiðan vetur. Bylgjan greindi frá. Samningurinn samþykktur Félagsmenn í Fé- lagi járniðnaðar- manna greiddu at- kvæði um kjara- samning Samtaka atvinnulifsins og Samiðnar með póst- atkvæðagreiðslu. Samningurinn var I samþykktur í dag með 65% atkvæða gegn 34%. Vísir.is greindi frá. Verðlauna framtakið Pósturinn fylgdist grannt með göngu nemenda í 10. bekk Vopna- fjarðarskóla þegar þeir gengu frá Vopnafirði til Egilsstaða á fimmtu- dag með bréf sem þannig barst fyrr en póstsent bréf. Pósturinn ákvað í dag aö veita krökkunum sérstaka viðurkenningu fyrir framtakið með 50.000 kr. framlagi í ferðasjóð þeirra. Vísir.is greindi frá. Gefa 830 þúsund Alls söfliuðust liðlega 830 þúsund krónur á Shellstöðvunum til styrkt- ar Eþíópíusöfnun Rauða kross ís- lands. Skeljungur lagði Rauða kross- inum lið i fjáröflunarátaki sem nú stendur til stuðnings sveltandi íbú- um Eþíópíu með því að gefa 3 krón- ur af hverjum lítra eldsneytis sem seldur var á Shellstöðvunum helg- ina 5. til 6. maí. Vísir.is greindi frá. Ósátt við tvískiptingu Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er ekki sátt við að Reykjavík- urkjördæmi verði skipt í tvennt. Frið- þægingarsjónarmið ráði þar ferðinni og I ekkert samráð hafi verið viö borgaryfirvöld um málið. Bylgjan greindi frá. Ógnaði með dúkahn'rf 18 ára piltur bar dúkahníf að hálsi starfsmanns á skemmtistaðnum Players í Lindahverfi í Kópavogi á fimmtudagskvöld. Gestur á staönum, sem kom til aðstoðar, hlaut skurð í lófa. Drengirnir tveir létu sig hverfa en fundust eftir nokkra leit. -AA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.