Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2000, Síða 6
6
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2000
DV
Fréttir
Framkvæmdastjóri Sjónvarpsins er bjartsýnn á 4. sæti Eurovision:
Kvíðir ekki sigri
- kostar 500 milljónir að halda keppnina en tekjumöguleikar eru góðir
„Ég er bjartsýnn fyrir fram og spái
lagi okkar velgengni og að það lendi
í íjórða sæti,“ segir Bjarni Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri Sjón-
varpsins, sem hefur ekki áhyggjur af
hugsanlegum sigri Einars Ágústs
Viðissonar og Telmu Ágústsdóttur í
Söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöða.
Keppnin fer fram í kvöld og íslandi
hefur verið spáð eitt af efstu sætun-
um. Sigri Einar og Telma stendur
ríkissjónvarpið frammi fyrir því
risaverkefni að halda keppnina á
næsta ári.
„Þá yrði framkvæmdahliðin skoð-
uð og reynt að leggja mat á kostnað
og hugsanlegar tekjur af keppnis-
haldinu. Það má gera ráð fyrir að
kostnaður við að halda keppnina
nemi um 500 milljónum króna en
tekjutækifærin hjá keppnishöldurun-
um hafa verið að aukast. Við mynd-
um ræða við stjórnvöld og hagsmun-
aðila í ferðaþjónustu og útflutningi
td að kanna áhuga á þátttöku þeirra.
Þess má geta að í ár er gert ráð fyrir
að yflr 100 milljónir manna um alla
Evrópu, Ástraliu og hluta af Asíu
horfi á keppnina þannig að tækifæri
til þess að ná til þessa markhóps er
mjög mikið,“ segir Bjami.
Bjarni segir aö greiðendur aftnota-
gjalda yrðu ekki látnir líða vegna
Spennið sætisólarnar!
Einar Ágúst Víöisson og Telma
Ágústsdóttir á æfingu í Globen í
gær.
keppninnar þannig að fé til innlendr-
ar dagskrárgerðar, sem nemur 280
milljónum á þessu ári, yrði ekki
skert.
Sigurland söngvakeppninnar
hverju sinni á að halda keppnina
árið eftir en ef um allt þrýtur hefur
viðkomand land neyðarútgang og
getur gefið keppnina frá sér. „Það er
ventillinn og þess vegna höldum við
ró okkar," segir Bjami, sem þó bætir
við að alls ekki sé ætlun ríkissjón-
varpsins að gefast upp fyrirfram. „Að
sjálfsögðu viljum við takast á við
þetta verkefni, bæði sjónvarpið og, ég
leyfl mér að segja, öU íslenska þjóð-
in,“ segir Bjami Guðmundsson.
-GAR
Ekkert bendir til
ágreinings
„Það skiptir höfuðmáli að halda
Sjálfstæðisflokknum frá stjórn
Reykjavíkur. Besta
leiðin er sú að halda
Reykjavíkurlistanum
við völd. Staða list-
ans er afburðasterk
enda er Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir fimasterkur leiðtogi.
Það er ekkert sem bendir til þess að
ágreiningur sé um leiðir eða stefnu
þeirra sem að listanum standa," segir
össur Skarphéöinsson, formaður
Samfylkingar, um stöðu Reykjavíkur-
listans i ljósi nýs landslags í íslensk-
um stjómmálum með tilkomu Sam-
fylkingar og Vinstri-grænna.
„Þeim sem ætluðu að skjótast und-
an merkjum og leiða íhaldið til valda
yrði væntanlega refsað grimmilega af
kjósendum. En ég sé engar vísbend-
ingar um að það sé í uppsiglingu,"
segir Össur. -rt
R-listi eitt - Sam-
fylking annað
„Reykjavíkurlistinn er eitt og
landsmálapólítíkin og Samfylkingin
annað,“ segir Ingi-
björg Sólrún Gísla-
dóttir borgarstjóri
um þá ólgu sem er á
vinstri vængnum og
talin er geta stefnt í
hættu samstarfinu
innan Reykjavíkurlistans.
Það er út í hött að væringar í þing-
inu milli Vinstri-grænna og Samfylk-
ingar eigi að hafa áhrif á okkar sam-
starf,“ segir Ingibjörg Sólrún og varar
eindregið við því sem hún segir gerast
ef samstarfið bresti.
„Menn verða að mætast á skynsam-
legum nótum. Annars afhenda þeir
andstæðingnum borgina," segir hún.
-rt
Mikið stendur til á Þingvöllum:
Brýr, tröppur og pallar
byggð við Öxarárfoss
Miklar trétröppur með hvíldar-
pöflum eru í byggingu við Öxarár-
foss og til stendur á næstu vikum að
reisa tvær brýr fyrir neðan fossinn
og göngupalla inn að Furulundi.
Þetta verður gönguleiðin til og frá
bílastæðum fyrir ofan fossinn, á
túnunum við Brúsastaði, niður að
völlunum þegar kristnitökuhátíðin
fer fram á Þingvöllum laugardaginn
og sunnudaginn 2. og 3. júlí. Smiðir
og aðrir verkmenn keppast við að
ljúka verkinu sem fyrst og er óneit-
anlega afar óvenjulegt að leggja leið
sína upp að vatnsmiklum fossinum
þessa dagana.
„Þetta mun síðan allt hverfa eftir
hátíðina,“ sagði Sigurður Oddsson,
framkvæmdastjóri Þingvallanefnd-
Löng brú með grænu neti
Brúin veröur tenging milli þingpallsins viö Lögberg og hátíöarsvæðisins.
þingpall fyrir neðan Lögberg þar
sem þingmenn og tignir gestir
munu sitja þegar kristnitökuhátíð-
in fer fram í sumar. „Græna brúin"
verður gönguleið mifli þingpallsins
og hátíðarsvæðisins að norðan-
verðu. -Ótt
Þingpallur viö Lögberg
Smiöir reisa þingpall fyrir neöan Lögberg þar sem tignir gestir munu veröa.
ar, í samtali við DV. Ekki er ljóst
hve margir gestir verða á hátíöinni
en þó er ljóst að þar verða tugir þús-
unda landsmanna auk erlendra
gesta.
Þingpallur og „græn brúu
Þegar ekið er áleiðis að Þing-
vallakirkju blasir við myndarleg
göngubrú yfir Öxará fyrir neðan
Drekkingarhyl. Brúin er með tals-
vert áberandi grænu neti beggja
vegna. Þessi brú er einnig reist
gagngert fyrir hátíðina og hverfur
að henni lokinni. Smiðir eru einnig
í óðaönn við að reisa svokallaðan
&
fý7)þfiu/'f/i/i í /iii'S/j(hj/iu/)i l/ (/{/(/
,—7Z PlVÍl
^^tumartilbod
N X/T
| rymum viö til fyrir nýjum sumarvörum |
10-40%
afslúttur
aföllum vörum í versluninni
húsgögn
Bæjarhrauni 12 Hf. • Sími 565 1234
Opið virka daga 10-18, laug. 10-16
R-listinn:
nær
þá borginni
„Verði fleiri en tvö framboð til
borgarstjórnar Reykjavíkur þá er
ljóst að íhaldið nær borginni," seg-
ir Helgi Hjörvar, forseti borgar-
stjómar og efsti maður R-listans,
um hugsanlegt
sérframboð
Vinstri-grænna
til borgarstjórn-
ar Reykjavíkur.
„Það er skylda
okkar að tryggja
áframhaldandi
tilvist R-listans
og standa ekki í
neinum hreins-
unum,“ segir
Helgi.
Hrannar B.
Amarsson borg-
arfulltrúi tekur í
sama streng og
Helgi en segir þó
að þó Vinstri-
grænir bjóði sér-
staklega fram
ætti slíkt ekki að
verða banabiti
Reykjavíkurlist-
ans.
annað en aðrir
saman þrátt
á að við
Helgi Hjörvar.
Hrannar B.
Arnarsson.
„Ég sé ekki
flokkar geti starfað
fyrir það. En líkumar
missum borgina myndu þó stór-
aukast. Ég vildi sjá framan í þann
vinstrimann sem bæri ábyrgð á
því að afhenda Sjálfstæðisflokkn-
um borgina," segir Hrannar. -rt
_______ Umsióri:
Hörður Kristjánsson
netfang: sandkom@ff.ls
Nýtt borgarstjóraefni?
Sú saga gengur
nú fiöllum hærra
I Reykjavík að
sjálfstæðismenn
séu búnir að
finna nýjan
kandidat sem
borgarstjóraefni
í næstu sveitar-
stjórnarkosning-
um. Sérfræðing-
ar Sandkoms selja söguna þó á
svipuðu verði og hún er keypt.
Eigi að síður segir hún að téð
borgarstjóraefni, sem mun vera
Kristján Þór Júlíusson, hafi
byrjað pólitískan frægðarferfl sinn
á Dalvík og frægðarsól hans hafi
ljómað einna skærast er hann lof-
söng sem bæjarstjóri sölu Guð-
bjargar ÍS frá ísafirði. Síðan hefur
leiðin verið greið og segja gárung-
ar að bæjarstjórastaða á Akureyri
sé aðeins eðlflegur undirbúningur
undir borgarstjóraembættið...
Ekki hægt
Þingmenn með
formann sam-
göngunefndar,
Áma Johnsen,
í fararbroddi
eru kampakátir
þessa dagana,
enda búið að
leggja drög að
flýtingu vega-
framkvæmda
víða um land með niu milljarða
viðbótarfé. Framkvæmdum við
Reykjanesbraut á að ljúka 2006 og
jarðgangagerð fyrir norðan og
austan árið 2007. Eitt virðist þing-
mönnum þó hafa yfirsést í fram-
kvæmdagleðinni, það var að tala
við Helga Hallgrímsson vega-
málastjóra. Hann hefur auðmjúk-
lega bent á að slíkar framkvæmdir
taka eðlilega sinn tíma ef fara á að
lögum sem þingmenn hafa sett. Sá
tími er bara því miður ekki til...
Lausnin fundin
Ríkisstjóm og
Alþingi hafa sætt
ámæli hagfræð-
inga að undan-
fömu fyrir að
gera ekki nauð-
: synlegar ráðstaf-
anir til að slá á
j þensluna í þjóð-
| félaginu. Þvert á
móti sé aukið á
vandann, t.d. með níu mifljarða
aukafiárveitingu til vegafram-
kvæmda. Þingmenn virðast þó
loks hafa áttað sig og hugðust
bjarga málinu á síðustu dögum
þingsins. Lausnin var fundin - af-
nema skyldi skattfrelsi Ólafs
Ragnars Grímssonar, forseta Is-
lands, og minnka þannig ríkisút-
gjöldin. - Nema þetta hafi bara átt
að vera fyrirbyggjandi aðgerð ef
Ástþór Magnússon næði kjöri...
Pólverji
Haraldur |
Örn Ólafsson, i
tveggja póla
fari, er nú far-1
inn að gera það I
að vana sínum I
að ganga á
norðurpólinn f
einu sinni á
dag. Þegar j
hann leggst til
hvílu í tjaldi sínu á kvöldin er
næsta víst að vegna ísreks sé
hann kominn talsvert í burtu frá
pólnum þegar hann vaknar að
morgni. Því verður hann að hefia
hvern dag á þvi að leita að póln-
um á nýjan leik til að geta verið
til staðar þegar eiginkonan, Ingþór
og fleiri sækja hann á flugvélinni.
Segja gárungar að pólárátta Har-
alds hafi nú heltekið huga hans og
telji hann þvi skyldu sína að
standa vaktina og verja norðurpól-
inn. Haraldur sé því sá eini i viðri
veröld sem geti með sanni kallað
sig „Pólverja"...