Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2000, Síða 8
8
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2000
Utlönd
Páfi veitir áheyrn
Páfi tók á móti ítölskum hjólreiöa-
mönnum í Páfagarði í gær.
Tilræðismaðurinn
biður Jóhannes
páfa um hjálp
Tyrkinn Mehmet Ali Agca, sem
skaut og nærri drap Jóhannes Pál
páfa fyrir nítján árum, hefur skrifað
bréf þar sem hann biður páfa um að
hjálpa sér að komast aftur heim til
fjölskyldu sinnar.
Handskrifaö bréfið var barst
ítölsku fréttastofunni ANSA sama
dag og páfl fór til Portúgals til að
heimsækja gröf meyjarinnar frá
Fatima sem páfi telur að bjargaö lífi
sínu.
Agca var var dæmdur í lífstíðar-
fangelsi fyrir tilræðið.
Danir óttast að
Grænlendingar
vilji sjálfstæði
Danska ríkisstjórnin er óróleg yf-
ir að víðtækur samningur um sjálf-
stæði Færeyja kunni að hafa smit-
andi áhrif á Grænlendinga.
Þetta segir Hogni Hoydal, ráð-
herra sjálfstæðismála í Færeyjum, í
viðtali við danska blaöið Berlingske
Tidende.
Hogni segir að ótti Grænlendinga
við að andstaða Dana við sjálfstæð-
iskröfum Færeyinga geti skaðað
starf grænlensku sjálfstjórnamefnd-
arinnar sé óþarfur.
„Danir vita vel að ekki er hægt að
líkja saman sjálfstæðisbaráttu Fær-
eyinga og Grænlendinga. Danska
stjómin er óróleg yfir því að góður
samningur fyrir Færeyjar geti haft
fordæmisgildi á Grænlandi. Danir
vita að það er vel hægt að þola að
Færeyingar gangi úr ríkjasamband-
inu en verra væri ef Grænlendingar
ákvæöu að gera þaö líka,“ segir
Hogni.
Sjálfstjómamefnd Grænlands,
sem vill að Grænland verði áfram i
danska ríkjasambandinu, kemur til
fundar í Danmörku 15. júní, sama
dag og Færeyingar ræða þriðja
sinni við Poul Nyrup Rasmussen
forsætisráðherra um sjálfstæði.
Aukinn herstyrkur til Sierra Leone:
Lokauppgjör við upp-
reisnarmenn í augsyn
Hersveitir Sameinuðu þjóðanna
og bandamenn þeirra í Sierra Leone
eru sem óðast að búa sig undir loka-
uppgjör við uppreisnarmenn sem
tóku hundmð friðargæsluliða SÞ
höndum í fyrri viku og hótuðu að
flá einhverja þeirra lifandi.
Sókn uppreisnarmanna að höfuð-
borginni Freetown hefur nú verið
stöðvuð. Yfirmaður fylkingar í her
Sierra Leone sagði fréttamanni
Reuters í gær að uppreisnarmenn-
irnir hefðu verið hraktir í meira en
sextíu kílómetra fjarlægð frá
Freetown.
„Á morgun komast hersveitir
mínar örugglega til Masiaka,“ sagði
Francis Sowa major og vísaði þar til
bæjar sem stendur við hemaðarlega
mikilvæg vegamót inni í landi. Á
sama tíma hafa hersveitir SÞ og
breskar sveitir verið að efla vopna-
búnað sinn.
Breska flugmóðurskipið Illustri-
ous er á leið til Freetown með sex
hundruð landgönguliða. Sjö hund-
ruð breskir fallhlífarhermenn eru
þegar komnir til landsins og stjórna
mikilvægum stöðum í og í nágrenni
höfuðborgarinnar.
Um borð í Illustrious eru einnig
þrettán Harrier orrustuþotur.
Bresk stjómvöld segja að her-
sveitir þeirra eigi ekki að taka þátt
í átökum en þær kynnu að dvelja í
Sierra Leone í allt að einn mánuð til
að aðstoða gæsluliða SÞ við að
koma friðarsamkomulaginu frá því
fyrra aftur á koppinn.
Yflrmaður bresku hersveitanna í
Sierra Leone, David Richards, sagði
í gær að hermenn hliðhollir Ahmed
Tejan Kabbah forseta yrðu að taka á
sig hitann og þungann af bardögun-
um. Aðspurður sagði hann þó að
umboð bresku hersveitanna væri
túlkað frjálslega.
Um tuttugu þúsund manns söfn-
uðust saman í Freetown í gær þegar
gerð var útför nítján manna sem
féllu í átökum fyrir utan heimili
Fodays Sankohs, leiðtoga uppreisn-
armanna, á þriðjudag. Lífverðir
Sankohs skutu á fólkið.
mmnEMt.
Blaðamaður
pyntaður í dý-
flissum Assads
Sýrlenski
blaðamaðurinn
Nizar Nayyouf er
nær dauða en lífi
í einangrunar-
vist í herfangelsi
í Damaskus, höf-
uðborg Sýrlands,
þar sem hann
fær ekki nauðsynlega læknisað-
stoð.
Nayyouf var dæmdur í tíu ára
fangelsi og þrælkunarvinnu árið
1992 fyrir að vera félagi í ólögleg-
um samtökum, í þessu tilviki
mannréttindasamtökum, og fyrir
að breiða út „rangar" upplýsing-
ar um ástand mannréttindamála í
Sýrlandi.
í fangelsinu hefur Nayyouf,
sem er að verða 38 ára, lifað af
þrjár morðtilraunir og hann hef-
ur mátt sæta miklum pyntingum,
meðal annars verið hengdur upp
á fótunum og verið kastað í raf-
magnsbað. Einnig hafa fangaverð-
ir kastað á hann þvagi fyrir að
neita að biðjast fyrir frammi fyr-
ir mynd af Assad forseta. Vegna
pyntinganna er Nayyouf að hluta
lamaður fyrir neðan mitti og þjá-
ist af fjölda sjúkdóma.
Sorgin fær útrás í Sierra Leone
Sorgin var allsráðandi á þjóðarleikvanginum í Freetown, höfuðborg Sierra Leone, í gær þegar um tuttugu þúsund
manns komu saman við útför nítján manna sem voru drepnir fyrir utan heimili uþpreisnarforingans Fodays Sankohs í
vikunni. Mótmælendur höföu safnast saman fyrir utan heimili Sankohs þegar lífverðir hans hófu skothríð.
Gott fyrir hjónabandið
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
lýsti því yfir í vikunni aö dvölin í
Hvíta húsinu hefði verið góö fyrir
hjónaband þeirra Hillary þrátt fyrir
klúðriö meö Monicu Lewinsky.
Boesak fékk þrjú ár
Hæstiréttur Suður-Afríku stað-
festi í gær sakfellingu klerksins Al-
ans Boesaks fyrir þjófnað og fjár-
svik og dæmdi hann í þriggja ára
fangelsi. Boesak stal meðal annars
peningum sem áttu að fara í þróun-
araðstoð.
Tjáningarfrelsi tryggt
Vladímír Pútín,
forseti Rússlands,
visaði í gær á bug
að hús lögreglunn-
ar hjá fjölmiðlafyr-
irtækinu Media-
Most í Moskvu á
fimmtudag væri til
merkis um að frelsi
fjölmiðla og tjáningarfrelsi væru í
hættu.
Ford dregur saman seglin
Ford-bílaverksmiðjurnar til-
kynntu i gær að þær myndu hætta
framleiðslu í stærstu bílasmiðju
sinni í Bretlandi snemma árs 2002
til að reyna að auka hagnaðinn af
starfseminni í Evrópu. Nítján hund-
ruð manns missa vinnuna.
Ekki aftur snúið
Romano Prodi,
forseti fram-
kvæmdastjómar
Evrópusambands-
ins, sagði á fundi í
Kaupmannahöfn í
gær að ef Danir
ákvæðu að taka
upp sameiginlega
mynt ESB í þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni 28. september væri sú ákvörð-
un endanleg.
Veit ekki hver hún er
Kona sem var staðin aö
bankaráni í Kaupmannahöfn á
fimmtudag man ekki hver hún er.
Ofbeldisverkunum linni
Robert Mugabe, forseti Simb-
abves, sagði í gær að ofbeldisverk-
um gegn hvítum bændum landsins
yrði að linna og tilkynnti stofnun
nefndar sem á að skipta upp landi
bændanna og afhenda svörtum.
Beðið eftir Watson
Færeyska lög-
reglan gerir ekkert
veður út af yfirlýs-
ingum hvalfriðun-
arsinnans Pauls
Watsons um að
hann ætli til Fær-
eyja í sumar að
berjast gegn grinda-
drápi heimamanna. Jón Kleik Olsen
varalögreglustjóri segir að vel verði
fylgst með ferðum Watsons og því
tekið sem aö höndum ber, að því er
fram kemur í færeyska blaðinu
Sosialurin.
Danir ekki til Malmö
Ekkert er hæft í þeim sögum að
Danir hafi keypt hús í stórum stíl í
og við Malmö í Svíþjóð og ætli að
flytja þangað eftir að Eyrarsunds-
brúin verður opnuð í sumar, að
sögn Sydsvenska Dagbladet í gær.
Fasteignasalar segja að danskir hús-
næðiskaupendur séu ekki fleiri nú
en fyrir 20 árum.
Vinda lægir í Los Alamos:
Brúnin lyftist á
brunavörðunum
Brúnin lyftist heldur síðdegis í
gær á slökkviliðsmönnunum sem
berjast við skógareldana viö bæ-
inn Los Alamos í Nýja-Mexíkó.
Heldur dró úr vindi í gær og loft-
rakinn var meiri en áður. Eldur-
inn hefur þegar eyðilagt 280 heim-
ili og tuttugu og fimm þúsund
manns hafa orðið að flýja að heim-
an.
„Nú þegar hann hefur lægt von-
umst við til að geta beitt flugvél-
um við slökkvistörfm og slökkt
eldinn. Það hafa ekki kviknað
neinir nýir eldar, svo það er já-
kvætt," sagði ríkisstjórinn Gary
Johnson í sjónvarpsviðtali.
Sumir þeirra sem höfðu orðið
að flýja fylltust einnig von þegar
þeir fengu að fara aftur inn í Los
Alamos. Margrethe og Bill Feldm-
an komust að raun um að hús
þeirra var enn uppistandandi.
Skógareldar vlð Los Alamos
Gífurlegur reykur er af skógareldunum
við Los Alamos.
„Þetta var mikill léttir. Ég var
undir það búin að finna ekki
neitt,“ sagði frú Feldman.
Starfsmenn bandarísku þjóð-
garðastofnunarinnar kveiktu eld-
inn af ásettu ráði í síðustu viku til
að ryðja land en misstu fljótlega
tökin á honum. Yfirmaðurinn sem
bar ábyrgð á eldinum hefur verið
leystur frá störfum á launum.
„Þetta lítur út eins og stríðs-
átakasvæði," sagði Ed Pullian,
varðstjóri í slökkviliði Los Ala-
mos, í gær. Hann hafði þá aðeins
sofið sjö klukkustundir síðustu 3
daga.
Helsta kjamorkuvopnarann-
sóknarstofa Bandarikjanna er í
Los Alamos og vinna þar sjö þús-
und manns. Yfirvöld segja að
geislavirku efnin séu geymd í
traustum neðanjarðarbyrgjum og
að ekki stafi nein hætta af þeim.