Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2000, Page 14
14
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2000
Fréttir
x>v
Reykjavíkurlistinn glímir við mesta vanda sinn frá stofnun:
Lík í lestinni
yfirlýsingar Össurar um hreinsanir hleypa illu blóði í Vinstri-græna
R-listinn glímir nú við mesta vanda
frá því hreyfingin náði völdum árið
1994. Nýr formaður Samfylkingar, Öss-
ur Skarpéðinsson, setti allt á annan
endann með yfirlýsingu sinni í DV-yf-
irheyrslu þess eðlis að „það hefði átt
sér stað ákveðin hreinsun“ með brott-
hvarfi sumra þeirra sem gengu í lið
með Vinstri hreyfingunni - grænu
framboði. Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstri-grænna, brást illa
við þessum ummælum Össurar og
sagði í DV að þau væru ekki samboð-
in formanni flokks sem talið væri að
vildi vera umburðarlyndur. I sama
streng tók Kristín Halldórsdóttir, sam-
flokksmaður Steingríms J„ sem sagði
stefna í að Samfylking yrði skoðana-
laust flikki sem hún væri fegin að
standa utan við. Það er því ljóst að
strax á fyrstu dögum hins nýja flokks
hefur Össur hleypt iilu blóði í stuðn-
ingsmenn VG og dregið skýra linu á
milli flokkanna tveggja. Afleiðingin er
að margra mati sú að samstarf innan
Reykjavíkurlistans er i meira upp-
námi nú en nokkru sinni fyrr og líkur
aukast á því að Vinstri-grænir bjóði
fram sérstaklega fremur en að vera
undir regnhlífinni með hinum. Það er
einkum tvennt sem stefnir framtíð R-
Sigrún María
Kristínsdóttir
blaöamaöur
listans i hættu. Annars vegar væring-
ar á milli Samfylkingar og vinstri-
grænna sem smita úr landsmálunum
og inn í sveitarstjórnarmálin og hins
vegar miklir fyrirvarar sem vinstri-
grænir hafa við stefnu Reykjavíkur-
listans í stórum málum, svo sem
einkavæöingu SVR. Bæði innan VG og
Samfylkingar eru sterkar raddir uppi
um að flokkamir eigi að bjóða sérstak-
lega fram til borgarstjómar og ná
þannig fram raunhæfri mælingu.
Munaðarlausir
Allar götur frá því hið sameinaða
afl náði völdum undir öruggri hand-
leiðslu Ingibjargar Sólrúnar Gísladótt-
ur árið 1994 hefur aðild Framsóknar-
flokksins verið viðkvæmt mál. Fram-
sóknarflokkurinn hefur auðvitað þurft
að glíma við þann vanda innbyrðis að
vinna til vinstri í borgarmálum en til
hægri í landsmálum. Þessi vandi kem-
ur gjarnan upp á yfirborðið þar sem R-
listinn fagnar á tyllistundum og
flokksformenn mæta til að samfagna
borgarfulltrúum. Þá vantar oftar en
ekki forystumenn Framsóknarflokks-
ins og borgarfulltrúar eru hálfmunað-
arlausir í fagnaðarlátunum á meðan
fulltrúar hinna flokkanna era umvafð-
ir kærleika og ást sinna flokksfor-
manna og annarra flokkssystkina. Sá
styrkur Ingibjargar Sólrúnar að halda
Reykjavíkurlistanum saman með
munaðarleysingjana innanborðs hefur
vakið mikla og óskipta aðdáun margra
og raunar em ófáir sem halda því
fram að þetta sé ekki á færi neins ann-
ars stjómmálamanns. Samstarfið inn-
an regnhlífarsamtakanna hefur verið
með ágætum og borgarfulltrúarnir Al-
freð Þorsteinsson og Sigrún Magnús-
dóttir hafa fallið vel inn í hópinn. Það
þykir ekki síst merkilegt að Sigrún
skuli þrífast þarna ef litið er til þess
að eiginmaður hennar, Páll Pétursson,
er ráðherra í ríkisstjóm Davíðs Odds-
sonar. Vinstra megin í hjónarúminu
er því andi Ingibjargar Sólrúnar en
hægra megin svífur Davíð og allt er í
besta gengi. Páll læðist á fagnaðarhá-
tíðir Reykjavíkurlistans en Sigrún
mætir íbyggin ásamt maka sínum á
hátíðarstundir þar sem ríkisstjómin
þarf að vera sýnileg. Þrátt fyrir að á
yfirborðinu sé allt slétt og fellt þá er
ástandið ofurviðkvæmt og lítið þarf til
að samstarfið bresti og Alfreð og Sig-
rún hrökklist yfir á hægri vænginn.
Ólgan vegna Vinstri-grænna náði
inn í raðir borgarstjórnar þegar Ámi
Þór Sigurðsson, varaborgarfulltrúi Al-
þýðubandalags og formaður skipulags-
nefndar, sagði skilið við sinn gamla
flokk og ákvað að snú abaki við Sam-
fylkingu og ganga til liðs við Vinstri-
græna. Ingibjörg Sólrún varði Árna
Þór og neitaði að setja hann út úr
nefndum og ráðum þrátt fyrir að hann
hefði sagt sig úr þeim flokki sem veitti
honum brautargengið. Helgi Hjörvar,
forseti borgarstjórnar, og efsti maður
Reykjavíkurlistans var á allt öðru
máli og vildi Áma Þór út í kuldann.
Afstaöa borgarstjórans var auðvitað
skiljanleg í ljósi þess að hún veit að líf
Reykjavíkurlistans við stjórn borgar-
innar hangir á því að öll öfl á vinstri
vængnum standi saman að framboð-
inu. Fari fleiri flokkar fram þykir ein-
sýnt að borgin falli í hendur Sjálfstæð-
ismanna eftir næstu kosningar. Þar er
bent á að Sjálfstæðismönnum nægi
minnihluti atkvæða til að ná meiri-
hluta af tvístraðum vinstri flokkum.
Eldur og ís
Hvað varðar afstöðu forystumanna
Vinstri-grænna þá er talið að vilji
Steingríms J Sigfússonar standi til
þess að halda Reykjavikurlistanum
saman en þá aðeins á forsendum mál-
efna en ekki eingöngu vegna samstöðu
við aðra flokka. Jafnframt eru kenn-
ingar uppi um að Ögmundur Jónas-
son, leiðtogi VG í Reykjavík, sé hallur
undir það að flokkurinn bjóði fram sér
og þannig fáist mæling á styrk hans í
Reykjavík. Á það er bent að Ingibjörg
Sólrún og Ögmundur eigi litla
pólítíska samleið og eins og einn heim-
ildarmanna DV orðaði það: „Þau em
sem eldur og ís“. Sjálfur hefur Ög-
mundur alvarlegar athugasemdir við
stefnu R-listans i einkavæðingarmál-
um og því er svo að sjá að Ingibjörg
Sólrún verði að söðla um í stefnu-
málum eigi sameiginlegt framboð
að verða veraleiki. VG er nýtt
stjómmálaafl og í meðbyr
væri klókt aö sýna fram á
mikinn styrk í Reykjavík
með sérframboði. Þá
yrði ekki síður spenn-
andi að vera í oddaað-
stöðu með ferska
stefnu í farteskinu og
geta valið á milli
Sjálfstæðisflokks og
Reykjavíkurlista í
samstarfi. Slikt er
þó ekki talið líklegt
þar sem flest teikn
eru á lofti um að
Sjálfstæðisflokkur í
keppni við tvö önnur
framboð fengi hreinan
meirihluta borgarfull-
trúa út á minna en helm-
ing atkvæða. Meðal heim-
ildarmanna DV innan
Reykjavíkurlistans er talað
um að framtíðin velti á því
hvort áherslur Steingríms J
eða Ögmundar verði ofan á
en báðir leggja þeir áherslu
á að málefnin ráði en ekki
form á framboðum. Hvað
Samfylkinguna varðar er
hið sama uppi á teningn-
um. Hið sameinaða afl sem
er fætt skilgreinir sig sem
mótvægi við Sjálfstæðis-
flokkinn og margir eru á
því máli að eðlilegt væri að
höfuðpólamir mættust i borginni án
þess að Samfylkingin verði undir
regnhlíf R-listans. Hvort þau sjónar-
mið verða ofan á veltur þó á gengi
hins nýja flokks í skoðanakönnunum
og víst er að enginn Samfylkingarmað-
ur vill horfa upp á afhroð í borgar-
stjómarkosningum. Það em þvi sterk
öfl innan beggja flokka sem daðra við
þá hugmynd að sýna styrk sin með
sjálfstæðu framboði og á meðan ríkir
fullkominn óvissa um framtíð Reykja-
víkurlistans.
Lengi var því spáð að Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir gæfi kost á sér til for-
mennsku í Samfylkingunni. Hún var
sá samnefnari sem flestir töldu líkleg-
astan til að halda hinum nýja flokki
saman. í yfirheyrslu DV yfir Össuri
Skarphéðinssyni kom meðal annars
fram að þegar hann hætti sem ritstjóri
DV var hans skoðun sú að svilkona
hans, borgarstjórinn, myndi hella sér
út í landsmálin. Það vakti því undrun
kröppum dansi
Lífsmörk R-listans eru
nú í lágmarki og er taliö
aö Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir þurfi á öllu
sínu aö halda til að
límingin gefi sig ekki.
urinn gangi úr skaftinu að
óbreyttu. Flokkurinn hefur
óneitanlega völd út á það að
vera innan meirihluta borgar-
stjórnar og að óbreyttu er engin
ástæða til að kasta þeim á glæ.
Fari hinsvegar svo að Vinstri-
grænir stimpli sig ekki formlega
inn í samstarfið og boði sér-
framboð er eins vist „að
flandinn verður laus,“
eins og heimildar-
maður innan
borgarstjórnar
orðaði það.
Það sem sagt
velti allt á
því að
halda
friðinn
við
margra þegar Ingibjörg Sólrún gaf það
frá sér að leiða Samfylkingu en ákvað
að einbeita sér að borgarmálum. Skýr-
ingin liggur væntanlega í því að hún
hafl talið lífsspursmál að hún leiddi
Reykjavíkurlistann í heflu lagi inn I
næstu kosningar og ekki væri í sjón-
máli arftaki sem réði við það erfiða
verkefni. Engir kærleikar hafa verið
milli Helga Hjörvars, forseta borgar-
stjórnar, og Ingibjargar Sólrúnar og
því óhugsandi að hún afhenti honum
völdin tfl að fara í landsmálin. Nú er
borgarstjórinn í miðjum ólgusjó með
lík í lestinni og uppi em raddir um að
hvergi sjáist til lands. Ingibjörg Sólrún
leggur áherslu á það að Reykjavíkur-
listinn sé annað en Samfylking og vel
sé hægt að vinna í borgarmálum án
þess að flokkapólítík komi þar nærri.
Lífsmörk í lágmarki
Ekki er talið að Framsóknarflokk-
um
og
eiga þar
með von til
að halda
borginni.
Það var því engin hamingja innan
Reykjavíkurlistans þegar Össur talaði
um hreinsanir í DV og stuðaði þannig
þá sem nú þarf fyrst og fremst að
halda friðinn við. Lífsmörk R-listans
eru nú í lágmarki og talið að Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir þurfi á öllu sínu að
halda til að límingin gefi sig ekki. Það
sem gæti bjargað R-listanum er að
enginn vill verða gerður ábyrgur fyr-
ir því að hafa sprengt upp samstarfið
í Reykjavík. Raddir em uppi um að
Össur Skarhéðinsson hafi alls ekki
talað um „hreinsanir“ í neinu ógáti
eða sigurvímu hins nýkjöma leiðtoga.
Ummælin séu yfirveguð og hann sé
vísvitandi að láta reyna á þanþol
Vinstri-grænna vitandi það að ef þeir
hafni R-listanum verði þeim enda-
laust nuddað upp úr því að hafa af-
hent Sjálfstæðisflokknum borgina á
silfurfati í kosningunum árið 2002.
insco-'iúZDizoTj:
HEILSUDYNURNAR
Nýtt efni sem upphaflega var ]
NASA sem mótvægi á jieim þrýstingi s
geimfarar veráa fyrir við geimskot.
Aðlagast að likamshita
Vöfðabólga
Liðagikt
Kviðslit
Bakvcrkir
»» ✓ Amerísku heilsudýnumar
Kynmð ykkur Jrobœr ny verð a ^ y m
hmimdýnum og rojmagnsbotmtm
Verðdœmi:
VviCO-MedimU
90 cm m/botni
54.400.
Chiropractic eða
lisco MedicoU
Qneen 89.900.
King 119.900
Vuco-Medicott
90 cm m/Rajmagnsbotni
87.900.
HEILSUNNAR veG
Ein viðurkenndasta heilsudýna íhéimi
Ein mest selda heilsudýna á landinu
Chiropmctic eru einu heilsudýnumar sem
eru þróaðar og viðurkendar af amerísku
og kanadísku kírópraktorasamtökunum.
Yfir 32 þúsund kírópractorar mæla því
með Chiropmctic þar á meðal þeir íslensku.
Listhúsinu Laugardal, sími 581 2233 • Dalsbraut 1, Akureyri, sími 461 1150 • www.svefnogheilsa.is