Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2000, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2000, Qupperneq 26
26 Helgarblað LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2000 I>V Veitingamaðurinn sem lét drauminn rætast: Forstjóri Þjóðhagsstofnunar beindi á útmánuðum þeim tilmælum til rík- isstjórnarinnar að hún gripi til að- gerða sem drægju úr eyðslu almenn- ings. Ríkisstjórnin brást við snarlega og lækkaði tolla á dýrum bílum - einkum jeppum - og hvatti með því alla til að kaupa sér nýjan bíl, því enn eru hér einungis þrír bílar á fjöl- skyldu og betur má ef duga skal, enda þurfa allir að geta keypt sér vandaðan bíl. Réttlætismál að háir sem lágir geti liðiö um götur á stássjeppum. Seðlabankinn beindi þeim varnað- arorðum til ríkisstjórnarinnar á dög- unum að ef ekki yrði gripið til að- gerða til að draga úr þenslu horfði illa í íslenskum þjóðarbúskap. Ríkis- stjórnin beið ekki boðanna heldur setti sinn helsta sérfræðing í meðferð opinberra fjármuna í málið - Árna Johnsen sem sigri hrósandi tilkynnti í vikunni lausn málsins: níu milljarða viðbótarframlag til vegamála. Kannski maður ætti að fara að óska þess að helstu efnahagsspekingar þjóðarinnar héldu sér saman. Kannski að þetta sé mesta efnahags- vandamál þjóðarinnar: blaðrið í hag- fræöingunum. Rikisstjómin gerir nefnilega alltaf allt öfugt við það sem þeir segja. Þetta er þjóöleg stjóm. Hún starfar eftir reglunni sem Jón Loftsson í Odda gerði ódauðlega: Heyra má ég erkibiskups boðskap en ráðinn er ég í aö hafa hann að engu. Kannski að lausnin væri sú að Seðlabankamenn gengju fram fyrir skjöldu og hvettu tU þenslu. *** Þessi aðferð við stjórn efnahags- mála ætti reyndar að vera kunnugleg öllum þeim sem muna borgarstjóra- tíð Davíðs Oddssonar. Þá var vel- sældin i borginni tryggð með þrot- lausum framkvæmdum og fyndust ekki nógu karlmannleg verkefni handa verktökunum voru þau bara búin tU. Þannig þótti lítU fremd að standa í leikskólaframkvæmdum en þeim mun meira kapp lagt á að byggja Perluna sem enginn virðist al- mennUega vita hvað á að gera við, nema Davíð Oddsson sem heldur aU- ar sínar veislur þar og útlendingar sem halda að þetta sé moska bæjar- ins. Sem það kannski er. Svona hafa þeir þetta í Kópavogi líka, skuldugasta smábæ í Evrópu. Það er nefnUega þjóðlygi að Sjálf- stæðismenn séu gætnir í fjármálum. Þeir eru umfram aUt eyðsluklær, um- fram allt flokkur sem gengur erinda verktaka. Allt þeirra starf miðast við þá kennisetningu að hagsmunir verktaka fari saman við hagsmuni al- mennings. Það er líka útbreiddur misskilningur að Sjálfstæðismenn séu andvígir of miklum umsvifum hins opinbera - þegar þeir eru við stjórnvölinn hvort heldur í sveitarfé- lögum eða á landsvísu þenjast opin- berar framkvæmdir allar út. Það eina sem þeim er iUa við er að þjóö- þrifafyrirtæki séu í almannaeigu og þurfi að svara fyrir gjörðir sínar eig- endum sínum, almenningi. *** Af hverju þarf að eyða þessum firn- um af fjármunum í samgöngur? Hvaða endalausa dúfi er þetta við vegi „Það er nefnilega þjóðlygi að Sjálfstœðismenn séu gœtnir í fjármálum. Þeir eru umfram allt eyðslu- klœr, umfram allt flokk- ur sem gengur erinda verktaka. Allt þeirra starf miðast við þá kennisetningu að hags- munir verktaka fari sam- an við hagsmuni al- mennings. “ út um aUt? Og það virðist algerlega óumdeUt að því fé sé vel varið, einu deUurnar sem heyrðust af þingi voru af því ömurlega tagi sem þingmaður Norðurlandskjördæmis eystra, Stein- grímur J. Sigfússon, stóð fyrir við af- greiðslu málsins og snerist um að hans kjördæmi fengi minna en önnur og þetta dirfðist maður úr kjördæmi HaUdórs Blöndal fyrrum samgöngu- ráðherra að láta út úr sér. Eru þessi endalausu fjárútiát í vegi yfir aUan vafa hafnar? Þar er veriö að binda fé í slitiag. Þar liggur það og gagnast eng- um öðrum en bíldekkjum. *** Ein afleiðing þess að þingræði ríkir ekki í landinu nema i orði kveðnu - vegna hins stórkostlega misvægis atkvæða - er sú að ekki virðist mega lagfæra svo gatnamót í Reykjavík að samsvarandi fram- kvæmdir þurfi ekki að ráðast í ein- hvers staðar „á landsbyggöinni". Sjálfstæðismenn í rikisstjóm hafa reynt með öUum ráðum að skapa sem mest umferðaröngþveiti í Reykjavík svo að kenna megi Ingi- björgu Sólrúnu um en nú þegar það er ekki lengur hægt og ráðast þarf í löngu tímabærar umbætur þarf sem sé að verja sama fé tU framkvæmda úti á landi - bara einhvers staðar. *** Hvernig stendur á þessari óskammfeilnu óhlýðni ráðamanna við ráð hagspekinganna? Þeir ausa fé úr ríkisstjóði í verktaka út um aUar þorpagrundir þegar mest ríður á því að draga úr útgjöldum. Á því er bara ein skýring og kom fram á síðustu dögum þingsins. Dorrit er víst svo rík. Og þeir eru þegar farn- ir að eyða peningunum hennar" Meistari illskunnar Heyrst hefur að þeim mæta leikara Gary Oldman hafi verið boðið að leika andstæðing Hannibals Lecters í framhaldinu af The Silence of the Lambs. Samningar munu þó hafa strandað á því að Gary vill að nafn hans verði jafn áberandi og annarra í kynningarherferð myndarinnar. Þar sem sviðsljós- ið er einlægur aðdáandi hans finnst þvf sjálfsagt að gengið verið að kröfum hans. Oldman er konungur illmennanna og nægir að nefna Drakúlu í Dracula (1992), Drexl Spivey í True Romance (1993), Norman Stansfield í Léon (1994), Jean- Baptiste Emmanuel Zorg í The Fifth Element (1997) og Egor Korshunov í Air Force One (1997). Erfitt er að gera upp á milli persóna hans en frammi- staða hans í Léon var alveg með eindæmum mögnuð. Það verður þó að segjast eins og er að hann hefur viljað festast eilítið í hlut- verki illmennisins. Sviðsljósið hefur þó traustar heimildir fyrir því að hann sé hvers manns hug- ljúfi og einkar bamgóður mað- ur. Áhorfendum er því ráðlagt að tengja ekki á milli persóna hans og hans raunverulegu per- sónu. Reyndar er það gullin regla sem hafa ætti í fyrirrúmi er menn mynda sér skoðanir á leikurum. Ekki er allt sem sýn- ist í sviðsljósinu. Heygarðshornið Eignaðist fyrsta mótorhiólið 49 ára „Það má segja að þetta sé draumur sem er að rætast þótt hann sé ekki mjög gamall,“ sagði Ámi Bjömsson, veitinga- maður íKópavogi, í samtali við DV. Umrœðuefnið var Harley Davidsson Heritage Softail Classic mótorhjól sem hann hefur nýlega eignast og þykir meðal þeirra flottustu í bænum. í helgarblaði DV um síðustu helgi mátti lesa sér- staka grein um gripinn og út- tekt á þvi. Árni er 49 ára og er að eignast sitt fyrsta mótorhjól svo hann er ekki beinlínis dæmigerður mótorhjóla- töffari, hvorki í aldri né útiiti. „Ég átti aldrei skellinöðru þegar ég var unglingur og aldrei mótorhjól. Ég lét btiana duga en mér finnst mótor- hjólið algjör draumur og það er yndis- legt tilfmning aö aka því og finna frelsið." Árni verður ekki alltaf einn á ferð með vindinn hvínandi í fangið því eig- inkona hans, Rósa Thorsteinsson, er í þann veginn að eignast mótorhjól til að geta fylgt bónda sínum eftir. „Við fórum saman á námskeið og fengum réttindi tti að aka svona tækj- um. Hún ætlar að fá sér eitthvað minna hjól frá Harley enda er mitt hjól 316 ktió að þyngd og erfitt fyrir hana að aka því.“ Fyrrverandi sjóari Árni var um árabti stýrimaður hjá Eimskip og byrjaði til sjós 14 ára gamall. Hann söðlaði um fyrir tólf árum þegar hann tók pokann sinn, fór í land og gerðist veitingamaður. Hann stofnaði Rauða ljónið á'Seltjamamesi 1. mars árið 1989 þegar aftur var leyft að selja áfengan bjór á íslandi eftir mjög langt hlé. Árni og Rósa vom vakin og sofin í því að reka Rauða Arni Björnsson Hann keypti sér fyrsta mótorhjól ævinnar 49 ára gamall. Þaö er ekkert smávegis hjól því þaö er 300 kílóa Harley Davidsson Heritage Softtail Classic. ljónið þangað tti þau seldu KR rekst- urinn 1. maí 1999. „Við byrjuðum á þvi að fara í mjög langt frí í 4-5 mánuði og upphaflega hafði ég hugsað mér að hætta í veit- ingarekstri. En ég hef alltaf haft gam- an af þvi að vinna og gat ekki setið auðum höndum tti lengri tíma og við opnuðum fyrir þremur vikum nýjan veitingastað, Players, í Bæjarlind 4 í Kópavogi og viðtökurnar hafa verið skínandi góðar.“ Árni lýsir nýja veitingastaðnum svo að hann sé best útbúni „sport- pöbb“ landsins og nefnir fjölda sýn- ingartjalda, sjónvarpstækja og „pool“- borða máli sínu til stuðnings og segir að hann muni standa sjálfur innan við borðið á nýja staðnum eftir því sem hann lystir en ekki eins mikið og á Rauða ljóninu. Hann segist ekki hafa haft áhuga á að opna nýjan stað í miðbænum. „Þarna er góð aldursdreifing og mér finnst mjög gefandi i þessu starfi að kynnast viðskiptavinunum og það held ég að gerist miklu frekar á hverfiskrá en í miðbænum." Nautn að finna frelsið En hvað segja jafnaldrar Árna og kunningjar um þetta nýja áhugamál hans. Öfunda þeir mótorhjólatöffar- ann? „Ég veit ekki hvort það er nokkur öfund en þeir eru jákvæðir. Ég er ekki orðinn Snigill enn þá en finnst það áhugaverður og jákvæður félagsskap- ur.“ Nýja mótorhjólið er ekki meðal þeirra ódýrustu heldur kostar um 2 milljónir. Þegar eiginkonan verður búin að kaupa sitt hjól og þau bæði alla fylgihluti, verður þetta ekki óskaplega dýrt sport? „Þetta eru hlutir sem endast vel og við sjáum fram á að hafa af þessu gleði og ánægju og það er óskaplega verðmæt tilfinning að finna frelsið sem felst í þessum ferðamáta." -PÁÁ fmmmm Heyra má ég Guömundur Andri Thorsson skrifar í Helgarblaö DV.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.