Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2000, Page 51
59
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2000
DV Tilvera
Cannes 2000:
Myndbandagagnifffi
Dans
Zellweger leikur ástsjúka hjúkku á
hlaupum eftir uppáhaldssjónvarps-
goöi sínu, auk þess að vera meö
drápara á hælunum; James Gray
með glæpadramað The Yards sem
skartar hinum ungu og glæsilegu
Mark Wahlberg, Charlize Theron
og Joaquin Phoenix og Darren Ar-
onovsky (Pi) með Requiem for a
Dream.
Þrjár myndir standa þó upp úr
hvað athygli og eftirvæntingu
varðar. Skal þar fyrsta telja mynd
eilífðarróttæklingsins Kens Loach
sem lætur ekki deigan síga í Bread
and Roses. Hér filmar Loach í Am-
eríku fyrsta sinni og viðfangsefni
hans er hin hliðin á draumaborg-
inni Los Angeles, verkalýðsbarátta
mexikóskra innflytjenda á áttunda
áratugnum. Loach er í miklu upp-
áhaldi í Cannes sem og annars
staðar í Frakklandi og því til alls
líklegur.
Þá skal nefna mynd hinna háal-
varlegu Coen-spébræðra en hún
kallast O Brother Where Art Thou?
Hinn tOgerðarlegi titill er fenginn
úr hinni dásamlegu mynd Prestons
Sturges, Sullivan’s Travels frá
1941, þar sem samnefndur
Hollywood leikstjóri fær þá flugu í
höfuðið aö búa til „göfuga“ mynd
með þessu nafni í stað froðunnar
sem hann sendir frá sér alla jafna.
Hann sá þó að sér en svo virðist
sem Coen-bræður hafi ákveðið að
láta slag standa. Hins vegar fara
þeir sinar eigin leiðir og þessi
mynd mun byggð á Ódysseifs-stef-
inu en hún gerist reyndar á
funmta áratugnum og fjallar um
tvo fanga sem sleppa úr hlekkjum
og leita gulls og grænna skóga. Að-
alhlutverk eru í höndum George
Clooneys og Johns Turturros.
Síðast en ekki sist er um að
ræða nýjustu mynd Lars Von Tri-
ers, Dancer in the Dark, með Björk
og Catherine Deneuve í aðalhlut-
verkum. Þetta mun vera dans- og
söngvamynd (Björk semur einnig
músíkina) um tékkneska konu
(Björk) sem flytur til Bandaríkj-
anna í von um betra líf. Fregnir
hafa borist af samstarfsörðugleik-
um Bjarkar og Von Triers en bæði
halda ró sinni og segjast ánægð
með afraksturinn. Von Trier upp-
sker yflrleitt einhvers konar viður-
kenningu þegar hann birtist þama
suður frá og ljóst er að nærvem
hans (hann ætlar að mæta en það
er alls ekki sjálfgefið þar sem
manninnum er meinilla við hvers
kyns ferðalög) og ekki síður Bjark-
ar er beðið með mikilli eftirvænt-
ingu. Það skyldi þó aldrei vera að
þau stæðu með pálmann í höndun-
um að hátíð lokinni?
Ásgrimur Sverrisson
a rosum
iAg?
The Last
Yellow:
★★
Drápsferð til Lundúna
Ásgrímur
Sverrisson
skrifar um
kvikmyndir.
53. kvikmyndahátíðin í Cannes
hófst á miðvikudaginn og stendur
til 21. maí. Að venju er reynt að
gefa einhvers konar þverskurð af
veraldarbíói samtímans og að
þessu sinni er áberandi áhersla á
myndir frá Austurlöndum nær og
fiær. Framlag írana í aðalkeppn-
inni er frumraun hins tvítuga leik-
stjóra, Samira Makhmalbaf, Black-
boards, um hóp kennara sem flýja
hin striðshrjáðu héruð íranska
Kúrdistan í leit að einhverjum til
að kenna. íranir hafa verið framar-
lega í hinni alþjóðlegu kvikmynda-
gerð hin síðari ár (Abbas Ki-
arostami vann Gullpálmann fyrir
tveimur árum með Keim af kirsu-
beri) og búist er viö allnokkru af
þessari mynd. Góðkunningjar
Cannes, þeir Wong Kar-Wai og Ed-
ward Yang, eru einnig þarna með
myndir sínar, Untitled (um fjöl-
þreiflnn blaðamann í Hong Kong á
sjöunda áratugnum), og Yi Yi (fjöl-
skyldusaga frá Shanghai). Annar
gamalkunnur gestur er hinn jap-
anski Nagisa Oshima (Veldi til-
flnninganna, Merry Christmas Mr.
Lawrence) sem sýnir mynd sína
Taboo með „Beat“ Takeshi Kitano
sem samkynhneigðan samúraja á
nítjándu öld! Að auki birtist utan
keppni hinn fjölhæfi og sífellt betri
leikstjóri, Ang Lee, með Crouching
Tiger, Hidden Dragon, rómantíska
ævintýramynd með Chow Yun-Fat
og Michelle Yeoh. Einnig er að
flnna á hátíðinni slatta af myndum
frá löndum eins og Japan, Taívan
og Suður-Kóreu.
Dogme 95-hreyfIngin á sinn full-
trúa með The King is Alive eftir
Kristian Levring (Dogme 4). Þetta
er frjálsleg útgáfa af Lé konungi og
gerist í eyðimörkum Namibíu með
alþjóðlegum hópi leikara á borð
við Romane Bohringer, Janet McT-
eer og Jennifer Jason-Leigh. Ann-
að skandinavískt verk, sem beðið
er með nokkurri eftirvæntingu, er
mynd Liv Ullman Trölosa (Trú-
laus) eftir handriti meistara Berg-
mans.
Fulltrúar hins bandaríska jaðars
eru meðal annars John Waters
með HoUywood-satiruna Cecil B.
Demented; Neil La Bute (In The
Company of Men) með vegatryll-
inn Nurse Betty þar sem Reene
Mikið úrval
inqvar
Helgason hf.
Véladeild - Sœvarhöfða 2 - Sími 525 8000 - Beinn sími 525 8070
Fax: 587 9577 - www. ih. is - E-mail: veladeild@ih. is
Notaðar vinnuvélar
á kostakj örum
Mikil verðlækkun
Stjörnur í Cannes
Morgan Freeman og Gene Hackman eru mættir til Cannes til
aö kynna nýjustu kvikmynd sína, Under Suspection. Á milli
þeirra er ítalska leikkonan Monica Bellucci, sem leikur
einnig í myndinni.
Mark Addy sýndi í hlutverki
feitlagna stripparans í .The Full
Monty að hann getur túlkað und-
irmálsfólk vel. Hann var næmur
á viðkvæmnina, óöryggið og
minnimáttarkenndina sem einkenndi persónuna.
Hér leikur hann öllu lúðalegri týpu, atvinnulausan
slugsara sem í byrjun myndarinnar er hent út af heim-
ili móður sinnar. Hann leigir sér herbergi hjá gömlum
skarfi og sonum hans og vingast við annan þeirra.
Hann lýgur hann fullan um eigin hermennsku og hetju-
skap með þeim afleiðingum að stráksi býður honum 500
pund fyrir að drepa hrotta sem lamdi bróður hans í
klessu. Þeir félagarnir halda því í drápsferð til Lund-
úna og eru hvor öðrum bjálfalegri í tilburðum sínum.
Þetta er fremur meiningarlaus saga um meiningar-
laust fólk sem í sögulok stendur í sömu sporum og í
byrjun, en hefur þó allavega lært eitthvað um sjálft sig
í millitíðinni. Þetta er hefðbundið enskt gamandrama í
slöku meðallagi, en ljósi punkturinn er Mark Addy sem
tekst að gera persónu sina ljóslifandi og túlka hennar
innri mann. Þrátt fyrir það geri ég ekki ráð fyrir að
myndin verði langlíf í mínu minni.
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Julian Farino. Aóalhlutverk:
Mark Addy, Charlie Creed-Miles og Samantha Morton. Ensk,
1999. Lengd: 90 mín. Bönnuð innan 12 ára.
i
1
I •THÍ] i.; . -v< f1*11í gifij fa? j ijjjT*,