Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2000, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000
Fréttir
JOV
Hugmyndir aö miklum breytingum á félagsstarfi góðtemplara:
Stórstúkan lögð niður
- í núverandi mynd - breytingar aö norskri og þýskri fyrirmynd
Hugmyndir þær sem uppi eru um
breytingu á starfsemi Stórstúku ís-
lands IOGT gera m.a. ráð fyrir að nú-
verandi siðakeríí hennar verði lagt
niður. Þá er gert ráð fyrir að þær ser-
emóníur sem eru viðhafðar við fund-
arsetningu og fundarslit hverfi, en
verði þó ekki bannaðar. Hugmyndin
er að hreyfingin verði byggð upp á
litlum hópum. Þeir myndi svæðahópa
og svæðin kjósi til landsþings annað
hvert ár. Stórstúkunafnið verði fellt
niður, svo og heitið góðtemplararegl-
an, en hreyfingin heiti IOGT á Is-
landi. Starfinu verði breytt úr reglu í
félagsskap. Hreyfingin deilist upp í
þrjár frjálsar deildir bama, unglinga
og fullorðinna. Hver deild verði með
sina stjóm og sérþing.
Nefnd vinnur nú að því að endur-
skoða reglumar. Tillögur hennar
verða lagðar fyrir stórstúkuþing á
næstu vikum.
„Markmiðið er að ná til stærri
hóps og jafnframt að ná samstarfí
við aðra sem eru ekki langt frá okk-
ur í skoöunum," sagði Hilmar Jóns-
son, fyrrverandi stórtemplar, sem
sæti á í nefndinni er undirbýr breyt-
ingatillögumar. Þær eru að norskri
og þýskri fyrirmynd.
Núverandi siðakerfi byggir á því
að fólk þarf að fara á tiltekinn
„reynslutíma" til að komast inn í
hreyfmguna. Fara þarf í gegnum
nokkur stúkustig áður en fólk kemst
inn í sjálfa stórstúkuna.
Nokkrar seremoníur eru viðhafð-
ar við fundahöld í stórstúkunni.
Æðstitemplar er fundarstjóri. Hann,
ásamt kapellán, varatemplar og fyrr-
verandi æðsta templar, leika stærst
hlutverk í fundasetningu og
fundaslitum. Hópur embætismanna
starfar í stúkunni. Nöfn þeirra eru
lesin upp og merkt við hverjir séu
mættir. Að því loknu eru tiltekin at-
riði lesin upp úr stúkuhandbókinni.
í upphafi eru yfirleitt sungin tvö lög
upp úr templarabókinni og tvö önn-
ur í lok fundar. Bannað er að koma
inn við fundarsetningu, en menn
Temlarar breyta
/ húsi Stórstúku íslands viö Stangar-
hyl 4 fer starfsemi templara frarn.'
Nú ber hátt hugmyndir aö miklum
skipulagsbreytingum innan hreyfing-
arinnar sem miöa aö því .að breyta
henni úr reglu í félagsskap.
geta komið inn strax á eftir. Áður
þurftu menn að mæla fram „inn-
gangsorö" til að komast inn en það
hefur nú verið afnumið. Þá hefur
fyrir löngu verið lagður niður sá sið-
ur að „kæra“ stúkubróður eða -syst-
ur sem sést hefur undir áhrifum
milli funda.
Skiptar skoðanir eru meðal stúku-
fólks á þeim hugmyndum um breyt-
ingar sem fram hafa komið. Sumir
vilja halda í gamlar hefðir og halda
a.m.k. stúkufundi með núverandi
fyrirkomulagi tvisvar á ári, þannig
að hefðirnar gleymist ekki. Aðrir
tala um að þetta fyrirkomulag sé
þunglamalegt og gamaldags og fæli
fólk frá. Einn stúkubróðir komst
þannig að orði við DV að það tæki
allan fundartímann að setja fundinn
og slíta honum.
Snarfækkað hefur í góðtemplara-
reglunni á undanfömum árum. í
henni eru riflega talið um 700
manns, þar af í mesta lagi 200 full-
orðnir. -JSS
Gott að taka frí frá slátrun í Skotlandi
- segir Robert Moore, einn þrettán Hálandabúa sem koma og vinna við slátrun í Borgarnesi
DV, BORGARNESI:____________________
Þrettán Skotar úr Hálöndunum
eru meðal tuttugu erlendra starfs-
manna sem vinna þessa dagana við
slátrun hjá Sláturfélagi Vestur-
lands. Þeir fá góða einkunn fram-
kvæmdastjóra félagsins, Marteins
Valdimarssonar, eru harðduglegir
og fylgnir sér að hætti Skota, að
hans sögn.
DV rakst á Robert Moore frá
Hawick í Skotlandi sem er í forsvari
fyrir Skotana. Hann sagði að þetta
væri í annað sinn sem hann kæmi
að vinna hjá Sláturfélagi Vestur-
lands og honum líkaði vistin hér
Góöir starfskraftar
Nokkrir Skotar önnum kafnir viö sauöfjárslátrun. Þeir fá bestu einkunn hjá yf-
irmönnum sinum og þaö fær annarra þjóöa fólk sömuleiöis.
DV-MYNDIR DANÍEL V. ÓUFSSON
Góö tllbreyting
Robert Moore er hér viö sauðfjárslátrun en heilt knattspyrnuliö ásamt vara-
mönnum vinnur nú í Borgarnesi viö slátrunina. Útlendingar þar eru
20 af 70 manna starfsliöi.
vel. Hann kom í fyrra og segir að
launin séu betri i Skotlandi en á ís-
landi í slátruninni en það skiptir
ekki máli því að hann tekur sér frí
frá vinnu í slátrun í heimabæ sín-
um eingöngu til að komast annað til
að fá tilbreytingu og ísland sé gott
land í því skyni. Annars vinnur
hann allt árið í Hawick.
„Borgames er mjög vinalegur og
fallegur bær, fólkið er vinalegt og
tekur okkur mjög vel og vill allt fyr-
ir okkur gera, þess vegna kom ég aft-
ur í ár,“ sagði Robert við DV. -DVÓ
Til styrktar tryggingafélögum
Bifhjólaáhugamenn og -konur ætla
aö halda styrktartónleika á morgun
á Ingólfstorgi fyrir tryggingafélögin,
vegna bágborinnar stöðu þeirra.
Bifhjólafólk:
Styrktartón-
leikar fyrir
tryggingafélög
Á morgun, sunnudag, munu bif-
hjólaáhugamenn og -freyjur halda
styrktartónleika til styrktar trygg-
ingafélögum sem tryggja mótorhjól
og bíla.
„Vegna mikils barlóms og bág-
borinnar stöðu tryggingafélaga að
undanfómu og mikillar hækkunar
á iðgjöldum á tryggingum á mótor-
hjólum hefur mótorhjólafólk tekið
höndum saman og hyggjumst við
safna fé til handa tryggingafélögun-
um svo þau eigi auðveldara með að
tryggja mótorhjól,“ segir í fréttatil-
kynningu tónleikanna en að þeim
standa Bifhjólasamtök Lýðveldisins,
Sniglar, Vélhjólafélag Gamlingja,
MC Fafner, Vélhjólaíþróttaklúbbur-
inn VÍK og Óskabörn Óðins.
Tónleikamir eru öllum opnir og
eru fulltrúar tryggingafélaganna
sérstaklega boðnir velkomnir.
Meðal þeirra hljómsveita sem
koma fram eru KFUM and the and-
skotans, Bjami Tryggva, Stimpil-
hringirnir, Hundslappadrifa og
Chemobyl.
Einnig verða til sýnis hjól bif-
hjólamanna á Ingólfstorgi á meðan
tónleikarnir vara. „Ætti að vera
hægt að sjá hinar ýmsu útgáfur af
hjólum, allt frá sófasettum til
drullumallara," segir í tilkynning-
unni. -SMK
Borgin kaupir tvo
sumarbústaði
- og trjágróður
Borgarráð Reykjavíkur hefur
samþykkt kaup á tveimur sumarbú-
stöðum sem standa á framtíðar-
byggingaflandi.
Annar bústaðurinn stendur við
Reynisvatn og tilheyrir honum
hálfs hektara landspilda með tals-
verðum trjágróöri. Kaupverö eign-
arinnar er 13,3 milljónir króna og
þar af er trjágróðurinn metinn á
10,9 milljónir.
Hinn bústaðurinn er við Rauða-
vatn og er kaupverð hans 2.750 þús-
und krónur.
Veðrið í kvöld
^ ts>~‘
^ vV;-
W' % w
^ 'JH
Víða léttskýjað
Fremur hæg breytileg átt og stöku skúrir
sunnan til en annars léttskýjaö, hiti 8 til 12
stig á morgun.
Einstakir haustdagar
Þeir eru einstakir haustdagarnir þegar
sólin skín og vindarnir hafa hægt um
sig. Þá er um aö gera aö vera úti og
njóta veöursins og þá er líka upplagt aö
skoöa haustlitina sem eru að taka
völdin. Svo er líka hægt aö fela sig í
þeim ef maöur vill ekki finnast.
Sólargangur og sjávarföli
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólariag i kvöld 19.24 19.09
Sólarupprás á morgun 07.17 07.02
Síódeglsflóó 14.40 19.13
Árdegisflóð á morgun 03.25 07.59
Skýringar á veðurtáknum
^♦--VINDÁTT 10V-HITI 10° *
'JI\VINDS'n'RKUR i metrum á sekúmtu "Nfrost HEIÐSKÍRT
■£> o
IÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKYJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAD
W/ W-í >v° ö
RIGNiNG SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA
Q Q
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEOUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
immmmBsi
Milt veöur sunnan til
Norðaustan 10 til 15 m/s og fer aö rigna suðaustanlands en annars
fremur hæg austlæg átt og víöa léttskýjað. Hiti veröur 6 til 11 stig,
mildast sunnan til.
Manudagur
Vindur:^^
5—10 m/»
Hiti 9° til 13°
Þriðjudagur
Vindun 'V
5-8 m/% >
Kiti 9° til 13°
Austiæg átt, strekklngur
og rigning um landló
sunnanvert en hægarl og
skýjaö noröan til, hltl 9 tii
13 stig.
Suöaustanátt og skúrir
sunnan- og vestan til en
skýjaö meö köflum á
Noröurlandl. Mllt i veörl.
Fremur hæg breytlleg átt,
stöku skúrir og milt.
Veðrið kl. 6
AKUREYRI skýjaö 9
BERGSSTAÐIR léttskýjaö 12
BOLUNGARVÍK léttskýjaö 11
EGILSSTAÐIR
kirkjubæjarkl. alskýjaö 11
KEFLAVÍK úrkoma 10
RAUFARHÖFN rigning 10
REYKJAVÍK skúr 10
STÓRHÖFÐI úrkoma 10
BERGEN skýjaö 15
HELSINKI léttskýjaö 15
KAUPMANNAHÖFN skýjaö 16
ÓSLÓ skýjað 12
STOKKHÓLMUR 14
ÞÓRSHÖFN rigning 12
ÞRÁNDHEIMUR hálfskýjaö 18
ALGARVE léttskýjaö 26
AMSTERDAM skýjaö 19
BARCELONA heiöskírt 24
BERLÍN hálfskýjaö 18
CHICAGO hálfskýjaö 12
DUBLIN skúrir 15
HALIFAX léttskýjaö 14
FRANKFURT léttskýjaö 16
HAMBORG léttskýjað 16
JAN MAYEN þoka 7
LONDON skýjaö 21
LÚXEMBORG skýjaö 16
MALLORCA heiöskírt 28
MONTREAL heiöskírt 8
NARSSARSSUAQ þoka 2
NEW YORK léttskýjaö 15
ORLANDO alskýjaö 26
PARÍS skýjaö 22
VÍN súld 13
WASHINGTON léttskýjaö 9
WINNIPEG þoka 5