Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2000, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2000, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000 29 DV Helgarblað Erlendir leikmenn í íslenskum körfubolta: Vanda þarf betur valið Torfi Magnússon „í seinni tíö hefur alls ekki veriö vandaö nógu vet til verka varöandi val á leik- mönnum og þaö er slæmt fyrir íþróttina. “ Fyrir keppnistímabilið í körfuknattleik 1975-76 var í fyrsta sinn leyfilegt að nota einn erlendan leikmann í hverju liði en eftir keppnistímabilið 1982-83 var ákveð- ið að banna erlendum leikmönnum að spila hér á landi. Það bann stóð til haustsins 1989 en þá var það aft- ur afnumið og við það situr enn í dag. Langflestir leikmennirnir hafa verið Bandaríkjamenn en þó hefur hingað slæðst einn og einn frá öðr- um löndum. Til að meta áhrif erlendra leik- manna á íslenskan körfuknattleik leitaði DV álits þeirra Gunnars Þor- varðarsonar, Jóns Sigurðssonar og Torfa Magnússonar sem allir eru margreyndir landsliðsmenn og eiga að baki gifturíkan feril bæði sem leikmenn og þjálfarar. Þá voru þeir einnig beðnir um að segja álit sitt á þvi hver væri besti erlendi leikmað- urinn sem hingað hefði komið. Gunnar Þorvarðarson: Á hærra plan „í upphafi höfðu þessir leikmenn miklu meiri áhrif á íþróttina en þeir hafa í dag enda voru þeir sem komu hingað fyrstu árin miklu betri en bestu íslensku leikmenn- irnir og höfðu þar af leiðandi afger- andi áhrif á hvemig liðunum vegn- aði. Þeir drógu að áhorfendur og áhorfendur fengu þá í fyrsta sinn að berja augum leikmenn sem gátu troðið með tilþrifum og voru geysi- lega ílinkir með boltann. Margir af þessum strákum, sem komu hingað, voru í augum okkar islensku leik- mannanna algjörir galdramenn, ég tala nú ekki um í augum áhorfend- anna. Fyrstu árin lyftu þessir leikmenn islenskum körfubolta á hærra plan og juku áhuga fyrir honum og margt annað jákvætt fylgdi i kjölfar- ið. í dag er staðan gjörólík þvi sem hún var fyrir aldarfjórðungi. Sem betur fer hefur getu íslenskra leik- manna fleygt mikið fram og þar spila margir þættir inn í, eins og til dæmis bætt aðstaða til æfinga og leikja, meiri og betri menntun þjálf- ara og ekki síst það að krakkar byrja að æfa miklu fyrr en áður var. Þetta hefur orðið til þess að bilið miUi íslenskra og erlendra leik- manna hefur minnkað. í dag er staðan þannig að erfitt er að fá hingað til lands leikmenn sem eru miklu betri en þeir íslensku nema fyrir fúlgur fjár en því miður er fjárhagsleg geta íslensku liðanna þannig að þau fá ekki hingað neina klassaleikmenn vegna þess að þau borga þeim lág laun miðað við önn- ur lönd en erlendir leikmenn kosta félögin núna í kringum tvær millj- ónir á keppnistímabili séu þau heppin. Ég er hreint ekki viss um að þeir leikmenn sem hingað fást dragi að fleiri áhorfendur eða bæti á einhvem hátt stöðu íþróttarinnar. Það væri því alveg sársaukalaust af minni hálfu þótt erlendum leik- mönnum yrði bannað að spila hér í tvö til þrjú ár og peningarnir yrðu í staðinn nýttir í eitthvað annað en það er harla ólíklegt að svo fari og er það vegna Bosmansmálsins svo- kallaða. íslensku liðin myndu senni- lega freistast til að fá hingað leik- menn af Evrópska efnahagssvæðinu í staðinn og ég veit ekki hvort það væri eitthvað betra. í mínum huga er Danny Shouse, Njarðvík, besti leikmaðurinn sem spilað hefur hér á landi en hann var afburðaleikmaður og gjörsamlega óstöðvandi. Þá nefhi ég Dirk Dunb- ar, ÍS, Petey Sessoms, Njarðvík, Darryll Wilson, Grindavík, Ronday Robinson, Njarðvík, og ekki má gleyma Damon Johnson, svo að ein- hverjir fleiri séu nefndir." Torfi Magnússon: Vanda þarf valið betur „Þegar fyrstu útlendingarnir komu hingað hafði verið ansi mikil lægð í íslenskum körfuknattleik í mörg ár þar sem ÍR og KR deildu með sér titlunum. Koma þeirra lyfti körfuboltanum á hærra plan og jók í beinu framhaldi áhuga og umfjöll- un um íþróttina. Þessir menn komu með nýjar víddir, þeir voru aliir mjög góðir og gátu miðlað okkur miklu. Áhrif fyrstu útlendinganna á leikmenn voru því mjög góð og mik- il en sérstaklega mikil á þá sem voru að þjálfa. Fram að þessu hafði þjálfun ekki verið upp á marga fiska hér, en margir sem nutu leiðsagnar þessara erlendu manna urðu seinna meir góðir þjálfarar. Aðalástæðan fyrir því að áhrifln urðu svona góð og mikil var sú að þessir leikmenn voru mjög vel valdir - til dæmis fóru þrír menn héðan til Bandaríkj- anna áður en þeir fyrstu komu til að skoða og velja leikmenn í æfinga- búðum fyrir liðin hér. í seinni tíð hefur alls ekki verið vandað nógu vel til verka varðandi val á leikmönnum og það er slæmt fyrir íþróttina. Af einhverjum or- sökum var bannað að nota erlenda leikmenn árið 1983 og fannst mér það vafasöm ákvörðun. Það hefur oft verið um það talað að þessir pen- ingar sem félögin safna til að borga þessum leikmönnum eigi frekar að fara í starf fyrir yngri flokka eða eitthvað því um líkt. Staðreyndin er hins vegcir sú að þótt erlendum leik- mönnum sé bannað að leika hér þá er þessum peningum ekkert safnað til afnota fyrir starf í þágu yngri flokka, það er bara misskilningur. Miklu skiptir að leikmanninum líði vel hér enda var það svo í gamla daga, þegar þetta var að byrja, að tekið var á móti þessum strákum eins og einum úr fjölskyldunni og samskipti við þá voru náin og per- sónuleg. Margir af þeim sem spil- uðu hér fyrir 20-25 árum eiga enn góða vini hér á landi og það segir meira en mörg orð. í dag er þetta orðið miklu ópersónulegra og út- lendingamir halda sig mikið saman í hópum og hafa ekki eins mikil samskipti við íslensku leikmennina og áður. Þetta stafar af þvi að liðun- um hefur fjölgað og þar af leiðandi koma fleiri leikmenn hingað og einnig vegna lélegs vals eins og áður er vikið að. En til þess að ís- lenskir leikmenn bæti sig verða þeir að keppa og æfa með mönnum sem eru betri en þeir. Það er erfitt að velja einhvem einn sem þann besta og ég lít helst til leikmanna sem skilað hafa mestu fyrir félögin, eins og Ronday Robin- son hjá Njarðvík, sem átti stóran þátt í mörgum titlum, og Jonathan Bow sem hefur orðið íslandsmeist- ari með tveimur liðum. Þá voru þeir Danny Shouse, Njarðvík, og Tim Dwyer, Val, frábærir. Þeir skiluðu miklu fyrir heildina og það skiptir mestu máli þegar upp er staðið." Jón Sigurðsson: Vítamín- sprauta „Koma erlendu leikmannanna hafði mikil og góð áhrif á körfubolt- ann í heild sinni og áhugi, aðsókn og umfjöllun jukust til muna. Þetta var í raun mikil vítamínsprauta fyr- ir allt félagsstarf tengt körfunni og sérstaklega gagnvart yngri flokka starfi því að fleiri krakkar fóru að æfa og öll uppbygging varð auðveld- ari, enda er það svo að með auknum áhuga kemur aukið fjármagn og framfarir fylgja í kjölfarið. Að sjálf- sögðu efldi þetta okkur leikmennina í meistaraflokki þvi að þessir leik- menn komu með margt nýtt og í raun nýjar víddir inn í íþróttina. Ég vil meina að þessi fyrstu ár hafi körfuboltinn tekið sitt stærsta skref upp á við frá byrjun en hápunkti þess tímabils var sennilega náð 1979 þegar KR og Valur léku hreinan úr- slitaleik um íslandsmeistaratitilinn fyrir fullri Laugardalshöll og hafa aldrei komið jafn margir áhorfend- in- á körfuboltaleik. En þetta fór fljótlega að dala enda fóru erlendu leikmennimir að rotta sig saman varðandi kaup og kjör og launa- greiðslur fóru að mínu mati út í tóma vitleysu. Síðan tók við bann við erlendum leikmönnum í nokkur ár og ákveðinn stöðugleiki náðist en einnig fóru lið úti á landi að láta meira að sér kveða og var það hið besta mál. Eftir að ákveðið var að leyfa erlendum leikmönnum að spila að nýju hér á landi jukust vin- sældir körfuboltans mikið en nú hélst það í hendur við gífurlegar vinsældir NBA-deildarinnar banda- rísku. Markaðsvél hennar teygði anga sína út um allan heim og það komst í tísku að spila körfubolta. Þetta seinna tímabil byrjaði mjög skemmtilega og mikill áhugi og kraftur var samfara því en það var líkt með þetta og fyrra timabilið að senn tók að halla tók undan fæti og held ég að aðalástæðan fyrir þvi hafi verið slæmt val á leikmönnum. Þegar lið þurfa að flytja inn marga leikmenn á einu keppnistimabili bitnar það á félaginu í heild, ekki bara meistaraflokki, því að þessir litlu peningar sem félögin hafa handa á milli verða að nýtast vel. Eins og staðan er í dag þurfa félög- in að taka sig á og vanda val er- lendra leikmanna betur því að góð- ir og traustir erlendir leikmenn með jákvæðan persónuleika hafa góð og hvetjandi áhrif á íþróttina i heild. Ég hef lengi sagt það og segi enn að Jimmy Rogers, sem spilaði með Ármanni, sé besti erlendi leikmað- urinn sem hingað hefur komið, frá- bær leikmaður sem smitaði út frá sér og skilaði miklu, en hann var einnig fyrsti erlendi leikmaðurinn sem hingað kom. Þá nefni ég einnig tvo ágæta leikmenn sem báðir voru með KR og unnu titla, þá John Hud- son og Keith Vassell." Texti: Svanur Már Snorrason Jón Sigurösson „Eins og staöan er í dag þurfa félögin aö taka sig á og vanda val erlendra leikmanna þetur því að góöir og traustir erlendir leikmenn meö jákvæöan persónuleika hafa góö og hvetjandi áhrif á íþróttina í heild. “ Gunnar Þorvarðarson „Margir af þessum strákum, sem komu hingaöþ voru í augum okkar íslensku leikmannanna algjörir galdra- menn, ég tala nú ekki um í augum áhorfendanna. “ 1899 - 2000 Á íslandi frá 1925 ÁlutaiiiE j. Opið um helgina 13-17 j. I | ?~W-------------------- Fiat Brava 1.6 SX 10/97 "Fyrstur kemur, fyrstur fær. Þessi fer fljótt ek. 34 þús., 5d., 5 gíra, loftpúðar, ABS, rafm.rúður, samlæsingar, þokuljós. Tilboðsverð kr. 920 þús. Fiat Bravo 1.6 SX 3/98 "Töff tæki með 103 ítölsk hestöfl", ek.47 þús., 3 d., 5 g., ABS hemlar, loftpúðar, þokuljós, hiti I sætum.. Tilboðsverð kr. 940 þús. Nissan Primera 2.0 11/96 "2.0 lítra, 16 ventia, spoiler, álfelgur", ek. 53 þús., 5 d., 5 g., samlæsingar, þokuljós, rafmagnsrúður o.fl. Tilboðsverð kr. 920 þús. pSlÉÍIjIJWi'a: Nissan Primera 1.6 7/97 "Svartur með spoiler og álfelgur, ek. 38 þús., 5 d., 5 g., CD, samlæsingar, Vetrardekk á felgum. Tilboðsverð kr. 950 þús. Peugeot 306 1.4 XN 3/96 "Ekta fínn í skólann", ek. 61 þús., 3 d., 5 g., útvarp, geislaspilari, spoiler, álfelgur, rafm.rúður. Tilboðsverð kr. 690 þús. Smiðsbúð 2 Garðabæ Sími 5 400 800 www.istraktor.is Opið laugard. og suunud. 13-17 Istraktor Fiat Marea Weekend 4/98 "1.6 lítra, 16 ventla, 103 ha„ sjálfskiptur", ek. 47 þús., 5 d., sj.sk., ABS hemlar, loftpúðar, samlæsingar, rafmagnsrúður o.fl. Tilboðsverð kr. 1.140 þús.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.