Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2000, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2000, Blaðsíða 46
‘■54 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000 Helgarblað_____________________________________________________________________________________py Úrslitaleikur Coca-Cola bikarkeppni KSI á Laugardalsvelli á morgiin: Allt undir - hjá Skagamönnum og Eyjamönnum sem hafa tækifæri til aö bjarga sumrinu Hápunktur íslenskrar knatt- spymuvertíðar, sjálfur úrslitaleikur bikarkeppni KSÍ, bíður handan *• homsins. Þessi leikur hefur á und- anfömum árum verið síðasti leikur sumarsins og spennan ávallt mikil. í ár mætast tvö lið, ÍA og ÍBV, sem hafa bæði valdið vonbrigðum með leik sínum í sumar. ÍBVhafnaði fjórða sæti en Skagamenn lentu í sætinu fyrir neðan. Þessi árangur er langt fyrir neðan væntingar lið- anna beggja sem hafa verið óhemju sigursæl undanfarin ár. í leiknum á morgun er Evrópusæti í húfi og í ljósi þess hversu dýrt er orðið að reka knattspymudeildir í dag er ekkert launungarmál að bæði þessi lið kappkosta að komast þangað. Bitlaus sókn _ Það sem helst hefur háð Skaga- mönnum í sumar er hversu bitlaus sóknin hefur verið. Ólafur Þórðar- son, þjáifari liðsins, hefur ekki náð að laga VEmdamál undanfarinna ára, þ.e. markaleysið. Þeir fengu fær- eyska framherjann Uni Arge til sín fyrir keppnistímabilið og átti hann að vera maðurinn sem kæmi með mörkin upp á Skaga á ný. Því mið- ur fyrir Skagamenn meiddist Uni strax i fyrsta leik og það er ekki fyrr en nú, undir lok mótsins, sem hann er að ná sér á strik. Lið Skagamanna er mjög sterkt á pappímum. Miklu munar fyrir liðið að fá Sigurð Jónsson inn í það á ný og ljóst að vöm þeirra, sem hefur verið sterkasti hluti liðsins í sumar, er ekki árennileg með Sigurð og Gunnlaug Jónsson í fararbroddi. Miðjumennirnir Jóhannes, Alex- ander og Haraldur hafa ekki fundið taktinn frekar en framherjamir. Það er helst að hinn ungi Baldur Aðalsteinsson hafi verið sprækur. Ólafur Þórðarson er geysilega metnaðarfullur einstaklingur og sættir sig ekki við neitt annað en sigur. Hann tapaði úrslitaleiknum í fyrra og svíður það sjálfsagt enn sárt. Hann mun blása leikmönnum sínum baráttumóö í brjóst en lykil- atriði fyrir hann og lið hans er að það nái að skerpa sóknarleik sinn frá því sem verið hefur í sumar. Siæmt að missa Tómas Inga Vestmannaeyingar áttu mögu- leika á íslandsmeistaratitlinum langt fram eftir móti en það var samt eins og menn þar á bæ hefðu ekki trú á því að hann gæti unnist. Bikarmeistaratitill getur bjargað tímabilinu fyrir metnaðarfulla Eyja- menn og þeir munu eflaust selja sig dýrt. Nokkrir leikmanna Eyja- manna hafa verið að spila vel. Hinn síungi Hlynur Stefánsson hefur átt frábært tímabil í vöminni og við hlið hans hefur, ef hann er heill, Kjartan Antonsson staðið sig mjög vel. Júgóslavinn Momir Mileta er með baneitraðar sendingar af miðj- unni auk þess sem hann hefur skor- að nokkur glæsOeg mörk og dylst engum að þar er góður leikmaður á ferð. Vandamál Eyjamanna framan af móti var að skora mörk en Stein- grímur Jóhannesson hefur vaknað til lífsins upp á síðkastið og skorað grimmt. Þó er mjög slæmt fyrir ÍBV að Tómas Ingi Tómasson skuli ekki vera heill. Hann sýndi það gegn Fylki i undanúrslitunum að hann er liðinu mjög mikilvægur. Eyjamenn munu að öUum líkindum liggja tO baka 1 úrslitaleiknum, láta Skaga- menn koma framar á vöUinn og beita síðan skyndisóknum. Þannig færa þeir sér hæfileika Steingríms best í nyt og verður fróðlegt að fylgjast meö glímu hans við Sigurð Jónsson og Gunnlaug Jónsson, varnarmenn ÍA. -ÓHÞ Ólympíumolar Hinum hugprúöa keppanda Miðbaugs-Gíneu, Moussani, sem frægur hefur orðið fyrir þátttöku sína í 100 metra skrið- sundi, hefur verið likt við Eddie „the eagle“ sundsins. Það eru margir sem muna eftir þessum breska skíðastökkvara sem tók þátt í fleiri en einum vetrarólympiuleikum og var ávaUt með lakasta árangur keppenda. Moussani þessi mun víst aðeins hafa synt í 20 metra sundlaug í heimalandi sínu og ku vera mun sterkari í 50 metra skriðsundi. Það mun hann hafa reynt að sýna fram á í sýningar- sundi. Landi hans, hún Paula, vakti ekki síður lukku í 50 metra skriðsundi þar sem hún barðist hetjulega og náði landi á um helmingi lengri tíma en sú sem varð fyrst. Hún, eins og landi hennar, vann hug og hjörtu þeirra sem í sundhöU- inni voru og klöppuðu áhorfendur Paulu lof í lófa þeg- ar hún náði landi. Þátttaka þessara hugprúðu íbúa Mið- baugs-Gíneu hefur vakið mikla athygli í Ástraliu og þykir hún jákvæð. Hún þykir sanna að það sé ekki málið að vinna heldur að taka þátt. Það var svo sannarlega það sem þessir tveir Miðbaugs-Gíneumenn gerðu. Örn Arnarson og nokkrir fé- lagar hans í íslenska Ólympíu- hópnum ætla að bregða sér í hið fræga óperuhús i Sydney og sjá þar danssýningu. Aðspurð- ur hvort það væri menningar- vika hjá íslenska Ólympíuhópn- um sagði Öm að menn sem væru komnir aUa þessa leið og hefðu aðeins sé óperuhúsið á myndum og í sjónvarpi yrðu hreinlega að heimsækja þetta fræga hús, alveg sama hvað væri um að vera í því. Alfreö Karl Alfreðsson, Pet- er Pakk, þjálfari hans, og HaU- dór Axelsson flokkstjóri verða fyrstir úr íslenska Ólympíu- hópnum tU að yfirgefa Sydney en hann lýkur keppni í dag, laugardag. Þeir munu sitja mat- arboð íslensku Ólympíunefnd- arinnar í dag og sækja matar- boð ástralska skotsambandsins. Þeir félagar munu síðan yfir- gefa Sydney á morgun, sunnu- dag. Sundlandsliöiö hefur kom- ist í heimsfréttimar. Það mun- aði minnstu að Öm Amarsson kæmist í þær en svo varð þó ekki þó að hvað íslendinga varðar sé árangur Amar heims- frétt. Það sem varð hins vegar heimsfrétt var þegar íslenska sundlandsliðið, eða í það minnsta fimm úr sveitinni, lagðist tU svefns í sundhöUinni stóru I Sydney. Ljósmyndarar erlendra fréttastofa komu auga á þetta og þótti fréttnæmt að sundlandslið lægi sofandi á meðan á keppni stóð. Blaða- maður DV í Sydney komst að því áþreifanlega að þetta var heimsfrétt þegar honum varö á að segja að hann væri íslensk- ur. SkyndUega heyrði hann fyr- ir aftan sig: „Hver sagðist vera islenskur? Ert það þú? Ertu jafnsyfjaður og sundmennim- ir?“ íslenska sundlandsliöiö er nú komið í frí, enda hefur það gengið í gegnum langt og strangt undirbúningstímabU. Sundmennimir em staðráðnir í því að njóta frelsisins það sem eftir er Ölympíuleika og þegar blaðamaður DV heimsótti Ólympíuþorpið í gær var ljóst að leikjasalurinn átti hug þeirra margra. Þeir sögðu reyndar að þetta yrði þeirra helsta athvarf þar sem eftir lifir dvalarinnar í Ólympíuþorpinu í Sydney. -PS Magnús Aron Hallgrímsson: Formið er til staðar Magnús Aron HaUgrimsson, kringlukastari úr HSK, er að taka þátt í sínum fyrstu Ólympiuleikum, eins og svo margir aðrir i islenska ^Ólympíuhópnum, en það er aUs engan bUbug á honum að finna. Hann segist vera tUbúinn í slaginn og ætiar sér að verða meðal 12 efstu í kringlunni og komast þar með í úr- slitakeppnina. Magnús Aron hefur keppni á morgun, sunnudag, en úrslitakeppnin er daginn eftir. „Mér líst rosalega vel á þessa keppni og hef fundið mig vel á æfingum að undanfömu og gengið mjög vel, í raun aUt samkvæm áætlun. Síðustu daga hef ég bara verið að hlaða batteríin og nú er bara að kýla á það. Formið hefur aldrei verið betra og það gefur manni auka sjálfstraust en þetta er nú einmitt staðurinn þar sem formið á vera sem best. Hér á maður að toppa, eins ; og sagt er.“ Nú er öll umgjörö hin glœsilegasta og þú ert nú ekki reyndur viö aóstœó- _ ur sem þessar. Hefur þaö einhver áhrif? „Nei, það tel ég ekki. VöUurinn er náttúrlega glæsUegur og stór en ég er bú- ; inn að koma inn á hann tvívegis, annars vegar í opnunarathöfninni og síöan fór- um við og skoðuðum kasthringinn og mér líst gríðarlega vel á þetta. Ég held að mér komi bara tU með að líða vel á veUinum. Á góðum degi á ég góða möguleika á að komast í úrslit og að sjálfsögðu stefni ég á það. Ég tel mig hins vegar ekki vera að spenna bogann of hátt þegar ég segist ætia að komast í úrslitakeppnina. Þegar út í svona mót er komið er þetta kannski meiri spurning um andlega þáttinn. Líkamlega formið er til staðar en hitt er aUtaf meira spumingarmerki. Maður veröur bara að vera léttur á því og fila sig vel því þetta er ^hápunkturinn á ferlinum.“ -PS Magnús Aron Hallgrímsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.