Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2000, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2000, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000 31 I>V Helgarblað Svanur Vilbergsson gítarleikari: Byrjaði ellefu ára sem trommuleikari - lýkur 8. stigi í gítarleik frá breskum tónlistarskóla aðeins 19 ára „Ég byrjaði ellefu ára sem trommuleikari i hljómsveitinni Coma á Stöðvarfirði. Hinir strák- amir voru 16 ára en ég var settur á trommur því enginn kunni að spOa á þær og ég reyndar ekki heldur. Við lékum á nokkrum dansleikjum í skólanum og að minnsta kosti einu sinni á opin- berum dansleik." Þannig rifjar Svanur Vilbergs- son upp fyrstu skrefin á tónlistar- ferli sínum. Svanur ólst upp á Stöðvarfirði þar sem tónlistarlíf var ekki sérlega fjölskrúðugt en lifandi áhugi á tónlist aldrei langt undan. „Systkini mín hafa öll mikinn áhuga á tónlist þótt þau spili ekki mikið, nema Björgvin fósturbróð- ir minn sem spilar á gítar.“ Tónlistin kom með útlendingum Á Stöövarfirði var komið á fót tónlistarkennslu skömmu eftir 1990, með innflutningi á kennur- um austan úr Evrópu og síðan hefur tónlistarlíf á staðnum tekið stakkaskiptum og ungir sem aldn- ir sitja við fótskör meistaranna og stauta sig áfram í stafrófi tónlist- arinnar. Svanur byrjaði á blokkflautu hjá Ferenc Utassy frá Ungverja- landi. Síðar kom Peter Maté frá Tékkóslóvakíu en nú síðast hef- ur Norðmaður- inn Torvald Gjerde staðið fyrir tónlistar- kennslu eystra. Svanur tók fljót- lega gítarinn í fangið og brátt kom i ljós að hann og gítarinn áttu sannarlega samleið. Eftir tveggja ára vist í Menntaskólan- um á Egilsstöð- um bauðst Svani ómetanlegt tæki- færi þegar Charles Ross, þá- verandi kennari hans, og eigin- kona hans, Suncana Slamnik, ákváðu að halda til Bretlands til frekara náms og buðu Svani með sér. Svanur stundaði nám við King Edwards College í Totnes í Devon siðasta vetur og lærði tón- smíðar, hljómfræði, gítarleik, tón- heym og „sequencing" sem er að- ferð við tölvuvinnslu á tónlist. Hann lýkur áttunda stigi í gítar- leik í vor og útskrifast þá af tón- listarbraut í King Edwards og er þegar byijaður að sækja um há- skólavist ytra. Fótalausl munnhörpu- leikarinn „Ég eyddi sumarfríinu í æfingar fyrir viðtal og áheymarpróf. Það eru nokkrir skólar sem ég hef áhuga á að komast inn í en helst vildi ég vera í London.“ Mikið og fjölbreytt tónlistarlíf er í Totnes og nágrannabænum Dartington og Svanur hefur fengið ótal tækifæri til þess að æfa sig og þroskast sem tónlistarmaður utan hefðbundins námstima. „Ég er meðlimur í dúói ásamt öðrum íslendingi sem er þarna við nám, Páli Pálssyni bassaleik- ara. Við spilum saman á veitinga- stöðum til þess að ná okkur í aukatekjur. Þar fyrir utan fer ég oft og spila úti á götu.“ Er það auðveld tekjuleið, er fólk viljugt að gefa? „Það er mikið af tónlistarnem- um þama og fólk er mjög skiln- ingsríkt og mér gengur oft vel. Ég á reyndar í harðri samkeppni við fótalausan munnhörpuleikara sem mætir stundum á sömu slóð- um. Það er mjög erfitt að keppa við hann.“ Kennarinn spilaði á sög Eins og þetta sé ekki nóg er Svanur lika meðlimur í Devon Youth Big Band sem á að spila í Millennium Dome byggingunni í London í haust og hann er einnig í 10 manna fonksveit sem er skip- uð ungum tónlistarnemum og heldur tónleika hér og hvar. Hann spilar einnig oft með kennara sín- um, Charles Ross, og þegar Ross kom í heimsókn til Stöövarfjarðar í sumar hélt Svanur tónleika þar sem þeir félagar léku saman á git- ar og sög en Ross er lipur sagar- leikari. Suncana, eiginkona Charles, lék undir á píanó. „Svo fer ég stundum og spila með Bernardo gítarkennara mín- um, t.d. á veitingastöðum. Bern- ardo er frá Portú- gal og við leikum mikið portúgalska og suðræna gítar- tónlist. Það er mikil gróska i tón- listarlífinu þama og stundum hef ég spilað átta sinn- um i viku opin- berlega." Svanur hefur tekið til hendinni í tónsmíðum í námi sínu og samdi meðal ann- ars verk fyrir stóra djasshljóm- sveit sem var flutt í háskólanum í Dartington við góðar undirtektir síðastliðinn vetur. En hvert stefnir hugur hans í tónlistinni? „Ég vil komast í góðan háskóla og halda áfram að læra næstu árin. Ég er ekki endilega ákveðinn í því hvað verður ofan á en vil auðvitað fyrst og fremst fá tæki- færi til að starfa sem tónlistar- maður og hljóðfæraleikari í fram- tíðinni.“ 14 ára vinur Dóra Svanur segist vera hrifinn af djassi og klassík en áhugi hans á rokktónlist fari stöðugt minnk- andi. Hann þótti afar efnilegur fljótlega eftir að hann axlaði gítar- inn og var farinn að spila með austfirskum djassgeggjurum og blúsurum innan við fermingu. „Ég hef spilað með Garðari Harðarsyni, sem býr á Stöðvar- firði og er þekktur blúsari, og Áma ísleifs sem hefur verið mjög virkur í djasslífinu fyrir austan. Gegnum kynnin við þá spilaði ég t.d með Vinum Dóra á djasshátíð á Egilsstöðum þegar ég var 14 ára og það var ógleymanleg reynsla og skemmtileg." -PÁÁ „Það er mikið af tón- listarnemum þama og fólk er mjög skiln- ingsrikt og mér geng- ur oft vel. Ég á reyndar í harðri samkeppni við fóta- lausan munnhörpu- leikara sem stundum mætir á sömu slóð- um. Það er mjög erfitt að keppa við hann.“ DV-MYND ÞÖK Svanur Viibergsson er í tónllstamámi í Bretlandi Svanur þykir sérlega efnilegur en hann hóf feril sinn 11 ára gamall sem trommuleikari. PERSTORP Greenline Master 375 Itr. safnkassi, sérstaklega einangraður, hentugur fyrir lífrænan eldhúsúrgang. Tilboðsverð 14.980 kr. PERSTORP Greenline Garden 325 Itr. safnkassi. Tilboðsverð 7.450 kr. PERSTORP flokkunarílát í eldhússkápinn. Verð sbr. mynd 1.980 kr. x\/ GARÐHEIMAR GRÆN VERSLUNARMIÐST'ÖÐ STEKKJARBAKKA 6 • REYKJAVÍK • SÍMI 540 3300 sssssBssssenxetssú ’ér Lífrænn úrgangur er settur í sérstaka safnkassa ásamt því sem fellur til í garðinum, svo sem laufi, grasi o.fl. og úr verður gjöful gróðurmold - MOLTA. Garðheimar bjóða nú allt til að auðvelda moltugerð heimilisins: LAUFSUGUR, KURLARA, FLOKKUNARÍLÁT og SAFNKASSA af ýmsum gerðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.