Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2000, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2000, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000 Fréttir DV Vojislav Kostunica skýtur stjórnvöldum í Belgrad skelk í bringu: Maðurinn sem þorir að horfa framan í þjóðina „Þetta eru ekkert venjulegar kosningar. Þetta er spurning um líf eða dauða.“ Vojislav Kostunica er ekki einn um að telja forsetakosningarnar i Júgóslavíu á sunnudag geta skipt sköpum um framtíð landsins. Mað- urinn sem óttast meira en nokkuð annað að þessi lágmælti fyrrum lagaprófessor og helsti frambjóð- andi stjórnarandstöðunnar velti honum úr sessi, sjálfur Slobodan Milosevic Júgóslavíuforseti, við- hafði svipuð orð á fundi með stuðn- ingsmönnum sínum í Svartfjalla- landi á miðvikudag. En ætli Milosevic hafi ekki frekar verið að hugsa þar um eigið skinn en velferð þjóðar sinnar? Hann verður jú að halda völdum, með öll- um tiltækum ráðum, ef hann vill tryggja að hann verði ekki látinn svara til saka fyrir stríðsglæpi Serba gegn albanska þjóðernis- meirihlutanum í Kosovo í fyrra. Féll á eigin bragði Milosevic boðaði til kosninganna ári fyrr en nauðsynlegt var, eftir að hann fékk samþykktar breytingar á stjórnarskránni þess efnis að forset- inn skyldi kjörinn af þjóðinni en ekki þinginu eins og hingað til. Með þessu sá Milosevic fram á að geta boðið sig fram til forseta tvisvar sinnum enn og sitja átta ár í viðbót á forsetastóli. Hann var handviss um að hann myndi fara með sigur af hólmi. Ekki er þó víst að honum verði kápan úr því klæðinu. Skilaboð júgóslavnesku þjóðar- innar eru jú skýr. Kostunica hefur leitt í skoðanakönnunum að undan- fornu og þegar mest var munaði tuttugu prósentustigum á fylgi hans og Milosevics. „Kostunica, bjargaðu okkur úr þessu vitfirringahæli," hrópuðu tugþúsundir stuðningsmanna Kost- unica í kór á fundi í borginni Novi Sad í síðustu viku. „Ég get talað við hann. Ég vil fá hann fyrir forseta," sagði Stanko nokkur Saric eftir að honum hafði tekist að troða sér í fremstu röð á fundinum í Novi Sad og fært uppá- haldsframbjóðandanum sínum krukku af úrvalshunangi sem hann framleiðir sjálfur. Ekki hrífandi, aö eigin sögn Það er einmitt þetta sem Kostun- ica stærir sig af. Hinn venjulegi maður getur náð sambandi við hann og honum er treystandi. Enda má sjá eftirfarandi áletrun á vegg- spjöldum hans: „Hver getur horft beint í augu ykkar? Kostunica.“ En velgengni Kostunica er engu að síður athyglisverð fyrir þær sak- ir að hann býr ekki yfir þeim eigin- Forseti í nauövörn Slobodan Milosevic Júgóslavíuforseti ð ekki sjö dagana sæla um þessar mundir. Allt bendir til að hann muni tapa forsetakosningunum á morgun, sunnudag, en þaö getur hann ekki hugsaö sér. Því búst flestir viö svindli. — Hafnaði boði Milosevics Snemma á níunda áratugnum, eftir að Tító marskálkur og leiðtogi Júgóslavíu var fallinn frá, var Kost- unica meðal höfunda fyrstu bókar- innar sem leyfð var og mælti bót fjölflokkakerfi. Sex árum síðar hafn- aði hann boði Slobodans Milosevics, sem þá var nýkominn til valda í Serbíu, um að taka aftur við pró- X- eJV- Stjórnarandstæðingar í ham Mikill hugur er í stjórnarandstæöingum í Júgóslavíu vegna forsetakosning- anna á morgun. Á kosningafundi í Nis í vikunni báru þeir meöat annars boröa þar sem sagt var aö Milosevic forseti væri búinn aö vera. -V Nú máttu fara aö vara þig, Slobodan Milosevic Vojislav Kostunica, helsti frambjóöandi stjórnarandstööunnar í Júgóslavíu í forsetakosningunum á sunnudag, segir aö staöa Slobodans Milosevics forseta hafi aldrei veriö veikari en einmitt nú. Skoöanakannanir benda til aö Kostunica muni sigra Mitosevic en flestir óttast aö Milosevic muni svindla. leikum sem taldir eru nauðsynlegir í kosningabaráttu nú til dags. „Ég er ekki óskammfeilinn mað- úr og mér finnst ég alls ekki vera hrífandi. Ég er heldur enginn lýð- skrumari," segir hann. Vojislav Kostunica er 56 ára gam- all, fyrrum prófessor í stjórnlaga- fræði við háskólann í Belgrad. Hann hefur verið andkommúnisti frá fyrstu tíð, hófsamur serbneskur þjóðemissinni og aðhyllist frjáls- lyndi í efnahagsmálum. Hann hefur einnig gagnrýnt Vesturlönd harð- lega fyrir loftárásirnar á Júgóslavíu í fyrravor og sakar bandarísk stjórnvöld um að púkka undir Milosevic og stjórn hans með stefnu sinni. Bjargvættur Serbíu Kostunica á ættir sinar að rekja til þorpsins Kostunici, lítils fjögur hundruð manna þorps í hlíðum Suvoborfjalls í miðhluta Serbíu. Héraðið gegnir veigamiklu hlut- verki í sögu serbneskrar þjóðernis- stefnu þar sem þar voru gerðar tvær uppreisnir gegn heimsveldi Ottómana. Framboð Kostunica hefur orðið tilefni til staðhæfinga um aö nú sé gamall spádómur að rætast, spá- dómur á þá leið að einhvern tíma muni koma Serbíu til bjargar mað- ur sem ber sama nafn og þorp for- feðra hans. Þorpsbúar eru þess fullvissir að nafn hans eitt sé til sannindamerk- is um að hann sé bjargvættur lands- ins. Kostunica vakti athygli snemma á ferli sínum í háskólanum í Belgrad þegar hann neitaði að lýsa yfir stuðningi við brottrekstur starfsbróður síns sem var sakaður um andóf við stjórnvöld. Sjálfur var Kostunica rekinn árið 1974, ásamt mörgum fleirum, vegna andstöðu sinnar við stjórnarskrárbreytingar sem færðu júgóslavnesku lýðveld- unum og Kosovohéraði í Serbíu um- talsverða sjálfstjórn. fessorsstöðu sinni. Þess í stað hóf hann að berjast gegn Milosevic og stofnaðí Lýðræð- isflokkinn ásamt nokkrum vinum sínum. Þeir voru kjörnir á sam- bandsþingið en leiðir þeirra skildu eftir þrjú ár vegna ágreinings um hvort flokkurinn ætti að starfa með Milosevic. Kostunica tók róttæku öflin úr flokknum með sér og stofn- aði Lýðræðisflokk Serbíu. „Hann var einhver besti ræðu- maðurinn á þingi. Hann er heiðar- legur og stendur við orð sín. Hann virðist ekki heltekinn af valdinu, eins og flestir serbneskir stjórn- málamenn,“ segir gamalreyndur júgóslavneskur blaðamaður við fréttamann breska blaðsins The Guardian. Staðföst trú hans á gildi laga og reglu og serbnesk ættjarðarást eru meðal þeirra eiginleika Kostunica sem falla kjósendum hvað best í geð. Stuldur aldarinnar „Hann höfðar til allra, þjóðemis- sinna sem eru lausir úr viðjum tál- vonanna, konungssinna, borgarbúa og bænda,“ segir Aleksandar Tijan- ic, stjórnmálaskýrandi í Belgrad. „í heiðarlegum kosningum myndi Kostunica án efa sigra.“ Það er einmitt mergurinn máls- ins. Flestir búast nefnilega við því að Milosevic og stuðningsmenn hans muni grípa til víðtæks kosn- ingasvindls til að tryggja sér áfram- haldandi völd. „Stjórn Milosevics hefur stolið ár- um af lífi okkar,“ sagði Kostunica undir lok kosningafundarins í Novi Sad. „Nú býr hún sig undir þjófnað aldarinnar." Byggt á The Guardian, The New York Times, The Washington Post o.fl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.