Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2000, Side 29
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000
29
DV
Helgarblað
Erlendir leikmenn í íslenskum körfubolta:
Vanda þarf betur valið
Torfi Magnússon
„í seinni tíö hefur alls ekki veriö vandaö nógu vet til verka varöandi val á leik-
mönnum og þaö er slæmt fyrir íþróttina. “
Fyrir keppnistímabilið í
körfuknattleik 1975-76 var í fyrsta
sinn leyfilegt að nota einn erlendan
leikmann í hverju liði en eftir
keppnistímabilið 1982-83 var ákveð-
ið að banna erlendum leikmönnum
að spila hér á landi. Það bann stóð
til haustsins 1989 en þá var það aft-
ur afnumið og við það situr enn í
dag. Langflestir leikmennirnir hafa
verið Bandaríkjamenn en þó hefur
hingað slæðst einn og einn frá öðr-
um löndum.
Til að meta áhrif erlendra leik-
manna á íslenskan körfuknattleik
leitaði DV álits þeirra Gunnars Þor-
varðarsonar, Jóns Sigurðssonar og
Torfa Magnússonar sem allir eru
margreyndir landsliðsmenn og eiga
að baki gifturíkan feril bæði sem
leikmenn og þjálfarar. Þá voru þeir
einnig beðnir um að segja álit sitt á
þvi hver væri besti erlendi leikmað-
urinn sem hingað hefði komið.
Gunnar Þorvarðarson:
Á hærra plan
„í upphafi höfðu þessir leikmenn
miklu meiri áhrif á íþróttina en
þeir hafa í dag enda voru þeir sem
komu hingað fyrstu árin miklu
betri en bestu íslensku leikmenn-
irnir og höfðu þar af leiðandi afger-
andi áhrif á hvemig liðunum vegn-
aði. Þeir drógu að áhorfendur og
áhorfendur fengu þá í fyrsta sinn að
berja augum leikmenn sem gátu
troðið með tilþrifum og voru geysi-
lega ílinkir með boltann. Margir af
þessum strákum, sem komu hingað,
voru í augum okkar islensku leik-
mannanna algjörir galdramenn, ég
tala nú ekki um í augum áhorfend-
anna.
Fyrstu árin lyftu þessir leikmenn
islenskum körfubolta á hærra plan
og juku áhuga fyrir honum og
margt annað jákvætt fylgdi i kjölfar-
ið. í dag er staðan gjörólík þvi sem
hún var fyrir aldarfjórðungi. Sem
betur fer hefur getu íslenskra leik-
manna fleygt mikið fram og þar
spila margir þættir inn í, eins og til
dæmis bætt aðstaða til æfinga og
leikja, meiri og betri menntun þjálf-
ara og ekki síst það að krakkar
byrja að æfa miklu fyrr en áður var.
Þetta hefur orðið til þess að bilið
miUi íslenskra og erlendra leik-
manna hefur minnkað.
í dag er staðan þannig að erfitt er
að fá hingað til lands leikmenn sem
eru miklu betri en þeir íslensku
nema fyrir fúlgur fjár en því miður
er fjárhagsleg geta íslensku liðanna
þannig að þau fá ekki hingað neina
klassaleikmenn vegna þess að þau
borga þeim lág laun miðað við önn-
ur lönd en erlendir leikmenn kosta
félögin núna í kringum tvær millj-
ónir á keppnistímabili séu þau
heppin. Ég er hreint ekki viss um
að þeir leikmenn sem hingað fást
dragi að fleiri áhorfendur eða bæti á
einhvem hátt stöðu íþróttarinnar.
Það væri því alveg sársaukalaust af
minni hálfu þótt erlendum leik-
mönnum yrði bannað að spila hér í
tvö til þrjú ár og peningarnir yrðu í
staðinn nýttir í eitthvað annað en
það er harla ólíklegt að svo fari og
er það vegna Bosmansmálsins svo-
kallaða. íslensku liðin myndu senni-
lega freistast til að fá hingað leik-
menn af Evrópska efnahagssvæðinu
í staðinn og ég veit ekki hvort það
væri eitthvað betra.
í mínum huga er Danny Shouse,
Njarðvík, besti leikmaðurinn sem
spilað hefur hér á landi en hann var
afburðaleikmaður og gjörsamlega
óstöðvandi. Þá nefhi ég Dirk Dunb-
ar, ÍS, Petey Sessoms, Njarðvík,
Darryll Wilson, Grindavík, Ronday
Robinson, Njarðvík, og ekki má
gleyma Damon Johnson, svo að ein-
hverjir fleiri séu nefndir."
Torfi Magnússon:
Vanda þarf
valið betur
„Þegar fyrstu útlendingarnir
komu hingað hafði verið ansi mikil
lægð í íslenskum körfuknattleik í
mörg ár þar sem ÍR og KR deildu
með sér titlunum. Koma þeirra lyfti
körfuboltanum á hærra plan og jók
í beinu framhaldi áhuga og umfjöll-
un um íþróttina. Þessir menn komu
með nýjar víddir, þeir voru aliir
mjög góðir og gátu miðlað okkur
miklu. Áhrif fyrstu útlendinganna á
leikmenn voru því mjög góð og mik-
il en sérstaklega mikil á þá sem
voru að þjálfa. Fram að þessu hafði
þjálfun ekki verið upp á marga fiska
hér, en margir sem nutu leiðsagnar
þessara erlendu manna urðu seinna
meir góðir þjálfarar. Aðalástæðan
fyrir því að áhrifln urðu svona góð
og mikil var sú að þessir leikmenn
voru mjög vel valdir - til dæmis
fóru þrír menn héðan til Bandaríkj-
anna áður en þeir fyrstu komu til að
skoða og velja leikmenn í æfinga-
búðum fyrir liðin hér.
í seinni tíð hefur alls ekki verið
vandað nógu vel til verka varðandi
val á leikmönnum og það er slæmt
fyrir íþróttina. Af einhverjum or-
sökum var bannað að nota erlenda
leikmenn árið 1983 og fannst mér
það vafasöm ákvörðun. Það hefur
oft verið um það talað að þessir pen-
ingar sem félögin safna til að borga
þessum leikmönnum eigi frekar að
fara í starf fyrir yngri flokka eða
eitthvað því um líkt. Staðreyndin er
hins vegcir sú að þótt erlendum leik-
mönnum sé bannað að leika hér þá
er þessum peningum ekkert safnað
til afnota fyrir starf í þágu yngri
flokka, það er bara misskilningur.
Miklu skiptir að leikmanninum
líði vel hér enda var það svo í gamla
daga, þegar þetta var að byrja, að
tekið var á móti þessum strákum
eins og einum úr fjölskyldunni og
samskipti við þá voru náin og per-
sónuleg. Margir af þeim sem spil-
uðu hér fyrir 20-25 árum eiga enn
góða vini hér á landi og það segir
meira en mörg orð. í dag er þetta
orðið miklu ópersónulegra og út-
lendingamir halda sig mikið saman
í hópum og hafa ekki eins mikil
samskipti við íslensku leikmennina
og áður. Þetta stafar af þvi að liðun-
um hefur fjölgað og þar af leiðandi
koma fleiri leikmenn hingað og
einnig vegna lélegs vals eins og
áður er vikið að. En til þess að ís-
lenskir leikmenn bæti sig verða
þeir að keppa og æfa með mönnum
sem eru betri en þeir.
Það er erfitt að velja einhvem
einn sem þann besta og ég lít helst
til leikmanna sem skilað hafa mestu
fyrir félögin, eins og Ronday Robin-
son hjá Njarðvík, sem átti stóran
þátt í mörgum titlum, og Jonathan
Bow sem hefur orðið íslandsmeist-
ari með tveimur liðum. Þá voru þeir
Danny Shouse, Njarðvík, og Tim
Dwyer, Val, frábærir. Þeir skiluðu
miklu fyrir heildina og það skiptir
mestu máli þegar upp er staðið."
Jón Sigurðsson:
Vítamín-
sprauta
„Koma erlendu leikmannanna
hafði mikil og góð áhrif á körfubolt-
ann í heild sinni og áhugi, aðsókn
og umfjöllun jukust til muna. Þetta
var í raun mikil vítamínsprauta fyr-
ir allt félagsstarf tengt körfunni og
sérstaklega gagnvart yngri flokka
starfi því að fleiri krakkar fóru að
æfa og öll uppbygging varð auðveld-
ari, enda er það svo að með auknum
áhuga kemur aukið fjármagn og
framfarir fylgja í kjölfarið. Að sjálf-
sögðu efldi þetta okkur leikmennina
í meistaraflokki þvi að þessir leik-
menn komu með margt nýtt og í
raun nýjar víddir inn í íþróttina. Ég
vil meina að þessi fyrstu ár hafi
körfuboltinn tekið sitt stærsta skref
upp á við frá byrjun en hápunkti
þess tímabils var sennilega náð 1979
þegar KR og Valur léku hreinan úr-
slitaleik um íslandsmeistaratitilinn
fyrir fullri Laugardalshöll og hafa
aldrei komið jafn margir áhorfend-
in- á körfuboltaleik. En þetta fór
fljótlega að dala enda fóru erlendu
leikmennimir að rotta sig saman
varðandi kaup og kjör og launa-
greiðslur fóru að mínu mati út í
tóma vitleysu. Síðan tók við bann
við erlendum leikmönnum í nokkur
ár og ákveðinn stöðugleiki náðist en
einnig fóru lið úti á landi að láta
meira að sér kveða og var það hið
besta mál. Eftir að ákveðið var að
leyfa erlendum leikmönnum að
spila að nýju hér á landi jukust vin-
sældir körfuboltans mikið en nú
hélst það í hendur við gífurlegar
vinsældir NBA-deildarinnar banda-
rísku.
Markaðsvél hennar teygði anga
sína út um allan heim og það komst
í tísku að spila körfubolta. Þetta
seinna tímabil byrjaði mjög
skemmtilega og mikill áhugi og
kraftur var samfara því en það var
líkt með þetta og fyrra timabilið að
senn tók að halla tók undan fæti og
held ég að aðalástæðan fyrir þvi
hafi verið slæmt val á leikmönnum.
Þegar lið þurfa að flytja inn marga
leikmenn á einu keppnistimabili
bitnar það á félaginu í heild, ekki
bara meistaraflokki, því að þessir
litlu peningar sem félögin hafa
handa á milli verða að nýtast vel.
Eins og staðan er í dag þurfa félög-
in að taka sig á og vanda val er-
lendra leikmanna betur því að góð-
ir og traustir erlendir leikmenn
með jákvæðan persónuleika hafa
góð og hvetjandi áhrif á íþróttina i
heild.
Ég hef lengi sagt það og segi enn
að Jimmy Rogers, sem spilaði með
Ármanni, sé besti erlendi leikmað-
urinn sem hingað hefur komið, frá-
bær leikmaður sem smitaði út frá
sér og skilaði miklu, en hann var
einnig fyrsti erlendi leikmaðurinn
sem hingað kom. Þá nefni ég einnig
tvo ágæta leikmenn sem báðir voru
með KR og unnu titla, þá John Hud-
son og Keith Vassell."
Texti: Svanur Már Snorrason
Jón Sigurösson
„Eins og staöan er í dag þurfa félögin aö taka sig á
og vanda val erlendra leikmanna þetur því að góöir og
traustir erlendir leikmenn meö jákvæöan persónuleika
hafa góö og hvetjandi áhrif á íþróttina í heild. “
Gunnar Þorvarðarson
„Margir af þessum strákum, sem komu hingaöþ voru í
augum okkar íslensku leikmannanna algjörir galdra-
menn, ég tala nú ekki um í augum áhorfendanna. “
1899 - 2000
Á íslandi frá 1925
ÁlutaiiiE j.
Opið um helgina 13-17 j. I |
?~W--------------------
Fiat Brava 1.6 SX 10/97
"Fyrstur kemur, fyrstur fær. Þessi fer fljótt
ek. 34 þús., 5d., 5 gíra, loftpúðar, ABS,
rafm.rúður, samlæsingar, þokuljós.
Tilboðsverð kr. 920 þús.
Fiat Bravo 1.6 SX 3/98
"Töff tæki með 103 ítölsk hestöfl",
ek.47 þús., 3 d., 5 g., ABS hemlar, loftpúðar,
þokuljós, hiti I sætum..
Tilboðsverð kr. 940 þús.
Nissan Primera 2.0 11/96
"2.0 lítra, 16 ventia, spoiler, álfelgur",
ek. 53 þús., 5 d., 5 g., samlæsingar,
þokuljós, rafmagnsrúður o.fl.
Tilboðsverð kr. 920 þús.
pSlÉÍIjIJWi'a:
Nissan Primera 1.6 7/97
"Svartur með spoiler og álfelgur,
ek. 38 þús., 5 d., 5 g., CD, samlæsingar,
Vetrardekk á felgum.
Tilboðsverð kr. 950 þús.
Peugeot 306 1.4 XN 3/96
"Ekta fínn í skólann",
ek. 61 þús., 3 d., 5 g., útvarp, geislaspilari,
spoiler, álfelgur, rafm.rúður.
Tilboðsverð kr. 690 þús.
Smiðsbúð 2 Garðabæ
Sími 5 400 800
www.istraktor.is
Opið laugard. og suunud. 13-17
Istraktor
Fiat Marea Weekend 4/98
"1.6 lítra, 16 ventla, 103 ha„ sjálfskiptur",
ek. 47 þús., 5 d., sj.sk., ABS hemlar,
loftpúðar, samlæsingar, rafmagnsrúður o.fl.
Tilboðsverð kr. 1.140 þús.