Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2000, Síða 8
8
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000
Útlönd
DV
Poul Nyrup Rasmussen
Margir alþjóðlegir hagfræðingar telja
að nei við evrunni geti leitt til vaxta-
lækkunar og styrkt krónuna. Þaö er
þvert á það sem ríkisstjórn Rasmus-
sens hefur spáö.
A-Evrópa þreytt
á andstæöingum
evrunnar
Austur-Evrópubúar eru hræddir
um að segi Danir nei við evrunni
muni aðild þeirra að Evrópusam-
bandinu dragast á langinn. Þess
vegna eru þeir þreyttir á þeim and-
stæðingum evrunnar sem segja að
nei muni hjálpa þeim A-Evrópu-
löndum sem sækja um aðild. Starfs-._
menn a-evrópskra sendiráöa í Dan-
mörku segja það lygi að höfnun á
evrunni muni gagnast þeim. Þeir
segja Dani styðja stækkun Evrópu-
sambandsins í austur. Hafni þeir
evrunni muni staða þeirra í sam-
bandinu veikjast. Þar með verði
stækkun slegið á frest.
Danmörk:
Félagsráðgjafi
og lögmaður í
barnaklámhring
Félagsráðgjafi í Danmörku, sem
áður hafði verið ráðgjafi nefndar
gegn glæpum, er meðal þeirra sem
kærðir hafa verið vegna bamaklám-
hrings sem afhjúpaður var í síðustu
viku. Áður hafði komið fram að lög-
maður lögreglunnar væri meðal
hinna kærðu. Félagsráðgjafmn
hafði bamaklám undir höndum og
dreifði því úr einkatölvu sinni.
Hann vísar því hins vegar á bug að
hann sé bamaníðingur.
Dæmdur til dauða
Uppreisnarmaðurinn Juillani Guliang
var dæmdur til dauöa í gær
fyrir mannrán.
Stjórn Filippseyja:
Bandarískur gísl
á bandi ræningja
Gíslamálið á Filippseyjum tók
óvænta stefnu í gær þegar yílrvöld
sökuðu bandaríska gíslinn Jeffrey
Schilling um aö hafa snúist á band
þeirra sem rændu honum. Sonur
Gaddafis Líbýuleiðtoga gekk enn
lengra. Hann sagði Schilling vopna-
sala í viðskiptum við uppreisnar-
menn Abu Sayyaf-samtakanna.
Samtökin hafa hótað að hálshöggva
Schilling. Sjálfur sagði hann í sím-
tali við móöur sína í gær að stærsta
ógnunin við líf hans væm hemað-
araðgerðir yfirvalda gegn uppreisn-
armönnum.
Ottast ofbeldi
á kosninganótt
Stuðningsmaður júgóslavnesku
stjórnarinnar í Belgrad skaut á
fimmtudagskvöld til bana lögreglu-
mann í Svartfjallalandi sem var
ekki á vakt. Heimildarmaður innan
lögreglunnar í Svartfjallalandi
greindi frá þessu í gær. Mennimir
höfðu rifist um stjómmál á veit-
ingastað nálægt höfuðborginni
Podgorica.
Samkvæmt heimildarmanninum
er talið að byssumaðurinn sé liðs-
maður í sjöundu herdeild júgóslav-
neska hersins. Yfirvöld í Svartfjalla-
landi segja liösmenn í herdeildinni
hliðholla yfirvöldum i Belgrad og
Slobodan Milosevic Júgóslavíufor-
seta. Talið var líklegt í gær að
morðið myndi auka spennuna fyrir
kosningarnar á morgun.
Vojislav Kostunica, helsti fram-
bjóðandi stjómarandstöðunnar, seg-
ir þá ákvörðun Milosevic að sitja
fram á mitt næsta ár hver sem úr-
slitin verða ekkert hafa með stjóm-
arskrána né heilbrigða skynsemi að
gera. „Þetta sýnir að það ríkir ótti í
Kosningaauglýsing
Andstæðingar Milosevics
Júgóstaviuforseta i Svartfjallalandi
hafa krotað yfir kosningaauglýsingu
úr herbúðum hans.
herbúðum Milosevics," sagði Kost-
unica í gær.
Sitji Milosevic þar til kjörtímabil
hans rennur út næsta sumar verður
það hann sem velur næstu stjóm.
Ritstjóri stjómarandstöðublaðsins
Blic, Veselin Simonovic, er sann-
færður um að umfangsmikið kosn-
ingasvindl verði. Nú geti Milosevic
aðeins reiknað með 1,5 milljónúm at-
kvæða. Til að vinna þurfi hann að
stela 1 miiljón atkvæða.
Simonovic telur að stjórnarand-
staðan hvetji stuðningsmenn sína
til mótmæla annað kvöld lýsi menn
Milosevics yfir sigri með yfir
helmingi atkvæða. Þyrpist mótmæl-
endur út á götur og torg megi búast
við ofbeldi yfirvalda. Einnig sé
mögulegt að Milosevic lýsi yfir sigri
í fyrri umferð kosninganna og mæti
Kostunica i seinni umferðinni. Þá
megi búast við mikilli herferð gegn
stjórnarandstöðunni. Simonovic
segir Milosevic einnig munu velta
fyrir sér hvemig hann geti aflýst
seinni umferðinni.
Einangrunin rofin
Um áttatíu manna hópur lækna, ungra listamanna og íþróttamanna frá Frakklandi kom í ieiguflugvél til Bagdad i írak i
gær. Andstæöingar refsiaðgerða gegn írak tóku flugvélina á leigu og héldu til íraks þrátt fyrir andstöðu yfirvalda í
Bandarikjunum og Bretlandi.
Stuðningsmennirnir fengu
að sofa í Hvíta húsinu
Þegar bandarísku forsetahjónin
skáluðu við indverska ráðamenn í
Hvíta húsinu fyrir tæpri viku skál-
uðu þau einnig við tugi gesta sem
gefið höfðu fé til kosningabaráttu
Hiliary Clinton í New York. Um 700
gestir voru í kvöldverðarboðinu
sem haldið var til heiðurs Atal
Behari Vajpayee, forsætisráðherra
Indlands. Um 12 prósent gestanna
höföu gefið i kosningasjóð forseta-
frúarinnar.
Bandarísk yfirvöld hafa viður-
kennt að gefendur hafi gist i Hvíta
húsinu.
Hins vegar var lögö áhersla á að
þeir heföu ekki fengið gistingu að
launum fyrir framlög sín í sjóð Hill-
ary sem sækist eftir því að verða
Hillary Clinton
Leyfði stuðningsmönnum sínum að
sofa í Lincolnherberginu.
öldungadeildarþingmaður fyrir
New York.
Bill Clinton var harðlega gagn-
rýndur er í ljós kom í kosningabar-
áttu hans 1996 að hann hefði boðið
stuðningsmönnum að gista í
Lincolnherberginu í Hvíta húsinu.
Starfsmenn Hvíta hússins hafa
nú lofað að afhenda lista með nöfn-
um þeirra stuðningsmanna sem
fengið hafa aö gista i Lincolnher-
berginu í þakklætisskyni fyrir ör-
læti þeirra.
Lincolnherbergið var í raun ekki
svefnherbergi Abrahams Lincolns
forseta heldur skrifstofa. Hann átti
þar oft fund með vinum og stuðnings-
mönnum sem vildu fá góðar stöður í
staðinn fyrir veittan stuðning.
Stuttar fréttir
Mútuféð í banka í Sviss
Franska blaðið Le
Monde greindi frá
því í gær að Jean-
Claude Mery,
starfsmaður flokks
Chiracs forseta, sem
nú er látinn, hefði
greint frá því í við-
tali á myndbands-
upptöku að hann hefði lagt mútufé
inn á bankareikninga í Sviss. Féð
rann í kosningasjóð flokksins.
Síamstvíburar aðskildir
Áfrýjunardómstóll í Englandi úr-
skurðaði í gær að aðskilja ætti
síamstvíburana Jodie og Mary þótt
víst sé að önnur stúlknanna deyi.
Foreldrarnir munu nú áfrýja úr-
skurðinum til lávarðadeildarinnar.
Styrkja evruna
Seðlabankar Evrópu, Bandaríkj-
anna og Japans keyptu í gær evru
til að styrkja gjaldmiðilinn.
ETA lýsir yfir ábyrgð
Aðskilnaðarhreyfing Baska lýsti í
gær yfir ábyrgð á fjölda hryðju-
verka á Spáni, meðal annars morð-
inu á stjómmálamanni í síðasta
mánuði, misheppnuðu tilræði og
fimm sprengjuárásum.
Bannað að deyja
Gil Bemardi, borgarstjóri í Le
Lavandou á frönsku Rivierunni,
bannar fólki að deyja í bænum. Að
minnsta kosti þeim sem ekki eiga
frátekiö leiði í kirkjugarðinum.
Borgarstjórinn segir bannið ekki fá-
ránlegra en bann yfirvalda við gerð
nýs kirkjugarös. Svæðið þar sem
hann átti að vera er verndað sam-
kvæmt umhverfisvemdarlögum.
Læri af Frelsisflokknum
Jörg Haider, fyrr-
verandi leiðtogi
Frelsisflokksins í
Austurriki, sagði í
gær að Þjóðverjar
ættu að kynna sér
stefnu Frelsis-
flokksins í innflytj-
endamálum. Lærðu
þeir af henni þyrftu þeir ekki að
glíma við jafnmörg kynþáttavanda-
mál.
Rússneskt vopn gegn MI6
Rússneskur eldflaugapallur var
notaður við árásina á aðalstöðvar
bresku leyniþjónustunar MI6 á mið-
vikudaginn. Slikt vopn hefur ekki
áður fundist í Englandi. Það hefur
hins vegar fundist á N-írlandi.
Móðgaði prinsessuna
Tveir illvirkjar,
sem börðu ritstjóra
tímarits með ösku-
bakka fyrir að hafa
vanvirt Masako
prinsessu, voru í
gær dæmdir í 16
mánaða fangelsi.
Ritstjórinn hafði
ekki sett virðingartitil við nafn
prinsessunnar.
Fjórir hvítir bændur í Simbabve
hafa verið handteknir fyrir að hafa
ætlað að kynda undir ofbeldi og
hvetja vinnumenn sina til að hrekja
landtökumenn burt. Tólf vopnaðir
uppgjafahermenn réðust á hóp
bænda og vinnumenn þeirra.