Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2000, Síða 28
Komiðifflfs
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000
Afgerandi úrslit:
Grétar mal-
aði Ara
Grétar Þorsteinsson hlaut yfir-
gnæfandi meirihluta atkvæða í
kosningum til forseta Alþýðusam-
bands íslands á þingi sambandsins í
Digranesi í Kópavogi í gær. Hann
var þar með kjörinn forseti til
næstu tveggja ára.
Alls kusu 484 þingfulltrúar. Grét-
ar hlaut 325 atkvæði eða 66,5 pró-
sent greiddra atkvæða. Ari Skúla-
son, framkvæmdastjóri ASÍ, sem
bauð sig fram á móti honum, hlaut
157 atkvæði en tveir fulltrúar skil-
uðu auðu.
Samkvæmt þessum úrslitum er
vægi greiddra atkvæða þannig að
Grétar hefur atkvæði 47.450 félags-
manna á bak við sig en Ari hefur at-
kvæði 23.925 félagsmanna.
Þessi mikli munur á atkvæða-
.^fjölda kom vissulega á óvart, þótt
meðbyr Grétars hafi farið vaxandi á
þinginu. En meirihluti kjörnefndar
studdi Ara og voru úrslitin talin
mikið áfall fyrir hana. -JSS
Jól á Miðnesi
_Fókus morgundagsins færir okkur
m.a. unga rappara sem gefa á næst-
unni út sína fyrstu skífu, rætt verður
* um skyndilegt brotthvarf hljómsveit-
arinnar Skítamórals af sveitaballa-
markaðnum og tekinn verður púlsinn
á einum heitasta skemmtistað bæjar-
ins. Fleygt verður fram hugmyndum
að auglýsingum sem við munum lík-
lega aldrei sjá og drengirnir frá Mið-
nesi ræða um heima og geima. Jólin
nálgast nú sem óð fluga og segja
nokkrir einstaklingar frá góðu og
slæmu stundunum í gegnum árin og
eru ofmálaðar frænkur sérstaklega
varaðar við þvi hvað passi í jólapakk-
ann og hvað ekki. Poppdómarar blaðs-
ins hakka í sig jólaplöturnar og svo er
Lífið eftir vinnu á sínum stað, sem
fyrr nákvæmur upplýsingapakki um
skemmtana- og menningarlífið.
9
Halldór Björnsson:
ASÍ veikara
Atli Helgason játar að hafa orðið Einari Erni að bana:
Umfangsmikil leit DV-MYND
Fjöldi björgunarmanna för vandlega yfir svæðiö frá Grindavík vestur á Reykjanesvita i gærdag í leit að Einari Erni Birg-
issyni sem hvarf fyrir rúmri viku. Lík hans fannst í nótt við Grindavíkurveginn, um 3 kílómetra frá Reykjanesbrautinni.
„Aþýðusamband íslands stendur
miklu veikara eftir þetta þing en
áður,“ sagði Halldór Björnsson, for-
maður Starfsgreinasambands íslands
og formaður kjömefndar ASl-þings í
morgun. Sex fulltrúar kjörnefndar af
niu báru upp tillögu um Ara Skúlason
sem forsetaefni ASÍ. Þrír bám upp til-
lögu um Grétar Þorsteinsson sem
sigraði með miklum mun atkvæða.
„Þetta samkomulag milli landssam-
bandsformannanna sem maður var að
vona að væri inni hélt ekki,“ sagði
Halldór. „Þeir sem hlupu út úr því
voru iðnaðarmennimir og verslunar-
mennirnir. Þar með splundraðist all-
ur hópurinn." Halldór sagði að
ágreiningur væri enn uppi um vænt-
anlega miðstjórnarmenn. Sjálfur
hefði hann verið ásakaður um að
draga taum höfuðborgarsvæðisins.
„Væntanlega endar það með því að ég
dreg mitt nafn út úr miðstjómarhug-
myndinni," sagði Halldór. „Ég er for-
maður landssambands og ég ætla ekk-
ert að fara að sundra því. Það voru
komnar ákveðnar hugmyndir um
skiptingu félaga í miðstjóm en mér
sýnist að það hafi allt riðlast núna. Ef
nógu margir höfuðborgarsvæðismenn
víkja þá er pláss fyrir landsbyggð-
ina.“
Halldór sagði að niðurstaða forseta-
kosninganna væri ekkert áfalí fyrir
sig sem slík. -JSS
Atli brotnaði
saman í nótt
- lík Einars Arnar í gjótu við Grindavíkurveg
Atli Helgason, lögfræðingur,
sem handtekinn var á þriðjudag-
inn vegna hvarfs Einars Arnar
Birgissonar, brotnaði saman í
nótt í fangaklefa sínum og óskaði
eftir að fá að gefa skýrslu. Við
skýrslutökuna játaði Atli að hafa
orðið Einari Erni að bana og vís-
aði lögreglu á hvar lík fyrrum fé-
laga síns væri að finna. Lögregl-
an fór þegar af stað og fann lík
Einars Arnar ofan í gjótu við af-
leggjara á Grindavíkurvegi,
skammt frá gatnamótum Reykja-
nesbrautar.
Leit hætt
Mikil leit hafði verið gerð að
Einari Erni og voru björgunar-
sveitarmenn tilbúnir til fram-
haldsleitar snemma í morgun
þegar hún var afturkölluð. Lík
Einars Arnar hafði þá fundist
eftir nákvæma tilvísun frá Atla
Helgasyni.
Ekki er ljóst hvernig dauða
Einars Arnar bar að en ljóst er
að til átaka hefur komiö á milli
Einars og Atla. Ekki fengust upp-
lýsingar um það í morgun hvort
og þá hvernig áverkar voru á líki
Einars Arnar þegar hann fannst
í gjótunni við Grindavíkurveg en
hallast rannsóknarmenn að því
að líkið hafi verið flutt suður
með sjó í bifreið Einars Arnar.
Játaði
Atli Helgason játaði i nótt að hafa
orðið Einari Erni aö bana.
Líkfundur **
REYKJAVÍK
GARÐABÆR
HAFNARFJÖRÐUR
\
Hinn látni
Lík Einars Arnar fannst í nótt viö
Grindavíkurveg.
Samkvæmt óstaðfestum heimild-
um DV var bifreið Einars djúp-
hreinsuð að innan þegar hún
fannst á bílastæði við Hótel Loft-
leiðir fyrir réttri viku.
Grunsemdir
Þótti það grunsamlegt svo og
hitt að leitarhundar fundu engin
spor frá bifreiðinni. Atli Helga-
son var meðal þeirra sem tóku
þátt í leitinni að Einari Erni í
Öskjuhlíðinni og við bílastæði
við Hótel Loftleiðir á fyrstu dög-
um leitarinnar og tóku menn til
þess hversu ruglaður og út á
þekju hann var.
Tekin verður ákvörðun um
gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Atla
Helgasyni í Héraðsdómi Reykja-
ness síðar í dag.
Sjá nánar „í klóm fíkni-
efna“ bls. 2.
-EIR
brother P-touch 1250
9 leturstillincjar
prentar (2 linur
boröi 6, 9 og 12 mm
4 geröir af römmum
Rafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport