Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2000, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2000, Síða 26
30 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2000 Ættfræði_____________________________________________________________________________________________________________________py Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson «. 80 ára Þórir Einarsson Þórir Einarsson ríkissáttasemjari. Þórir er ríkissáttasemjari frá 1995. Áöur sat hann í geröardómi, í Kjaradómi, Verölagsráöi, var sérstakur sáttasemjari í tilteknum kjaradeildum og formaö- ur nefnda er könnuöu kjarabreytingar lögreglumanna og tollvaröa. Ragnar Lúðvík Jónsson, Böðvarsgötu 7, Borgarnesi. 75ára__________________________ Þorteifur Björnsson, Safamýri 48, Reykjavík. 70 ára_________________________ Albert B. Guðmundsson, Stigahlíð 4, Reykjavík. Kristín Magnúsdóttir, Rjúpufelli 42, Reykjavík. Sigriður Jóhanna Lúðvíksdóttir, ^ Dunhaga 15, Reykjavík. 60 ára_________________________ Anna Jóna Hálfdánsdóttir, Hólsvegi 13, Bolungarvík. 50 ára_________________________ Björn Árnason, Stuðlabergi 60, Hafnarfirði. Sigríður Árný Árnadóttir, Sóleyjarhlíð 1, Hafnarfirði. Sigurlaug J. Friðriksdóttir, Eyjabakka 4, Reykjavík. Sæmundur Einar Valgarðsson, Hnotubergi 27, Hafnarfirði. Örlygur Arnljótsson, Hjarðarlundi 8, Akureyri. * 40 ára____________________________ Arnar Barðason, Túngötu 14, Suðureyri. Baidvin Einar Einarsson, Birkiteigi la, Mosfellsbæ. Guðrún Björg Erlingsdóttir, Einarsnesi 54, Reykjavík. Jóhanna Guðjónsdóttir, Baldursbrekku 12, Húsavík. Jón Ólafur Vilmundarson, Oddabraut 6, Þorlákshöfn. Lára Leifsdóttir, Seljalandsskóla, Hvolsvelli. Peter Schneider, Laugavegi 36, Reykjavík. jt, Þröstur Sævar Steinarsson, Frostafold 125, Reykjavík. SKILTI Á LEIÐI Plastkr.1990.-, Ál kr. 2600.- Pantið tímanlega fyrir jól Euro - Visa • sendum í póstkröfu ríkissáttasemj ari Þórir Einarsson ríkissáttasemjari telur að betra hljóð sé í samnings- aðilum kennaradeilunnar nú og telur stöðuna liðlegri en oftast áður. Þetta kom fram í DV-frétt á mánudaginn. Starfsferill Þórir fæddist í Reykjavík 2.10. 1933. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1953, viðskiptafræðiprófi frá HÍ 1957, stundaði framhaldsnám við Uni- versitát Hamburg og Institut fúr Industrie- und Gewerbepolitik 1957-60 og dvaldi við nám í Banda- ríkjunum 1979. Þá stundaði hann rannsóknir við Universitát Múnster 1977 við Colorado State University 1979 og við Universitát Túbingen 1990. Þórir var sérfræðingur við Iðnað- armálastofnun Islands 1961-73, lektor í viðskiptafræði við Hl 1972-73, dós- ent þar 1973-74 og prófessor frá 1974 og er ríkissáttasemjari frá 1995. Þórir var stundakennari við verk- fræðideild HÍ 1963-67, kennari við Verkstjómarfræðsluna 1963-83, for- stöðumaður þar 1971-83, stunda- kennari við Tækniskóla íslands 1967-71 og deildarforseti viðskipta- og hagfræðideildar HÍ 1976-83 og 1986-88. Hann hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa fyrir HÍ. Þórir var formaður kjaradeilu- nefndar lyfjafræðinga 1966-68, í gerðardómi 1985, í Kjaradómi 1974-78, í verðlagsráði 1979-92, sér- stakur sáttasemjari í kjaradeilu bankamanna 1992 og formaður nefnda er könnuðu kjarabreytingar lögreglumanna 1992 og tollvarða 1993. Þórir sat í Stúdentaráði HÍ 1956-57, í stjórn SUS 1961-67, í stjórn Neytendasamtakanna 1963-68, formaður BHM 1966-70, for- maður Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga 1971-72, formaður Nemendasambands MR 1979-87 og í stjóm Germaníu 1979-94. Þórir ritstýrði og þýddi ritið Nú- tímastjómun, útg. 1973, samdi Stjómun, útg. 1979, var meðhöfund- ur að Ensk-ísl. viðskiptaorðabók, útg. 1982 og 1990 íslensk-enskri við- skiptaorðabók 1989 og samdi ritið Samskiptastjómun, útg. 1993, auk tímaritsgreina. Hann er formaður DAAD-félagsins á íslandi sem er fé- lag fyrrv. námsstyrkþega frá þýska ríkinu. Fjölskylda Þórir kvæntist 14.6. 1963 Renötu Einarsson, f. 6.3. 1941, dómtúlk og löggiltum skjalaþýðanda. Hún er dóttir Martin Scholz, verkstjóra í Þýskalandi, og Mörthu Scholz hús- móður. Synir Þóris og Renötu eru Marteinn, f. 12.1. 1966, MFA í kvik- myndahandritagerð, búsettur á ír- landi en sambýliskona hans er Clodagh; Einar Gunnar, f. 7.2. 1969, viðskiptafræðingur og fram- kvæmdastjóri í Reykjavík, en sam- býliskona hans er Laufey Sigur- bergsdóttir og eiga þau eina dóttur. Systkini Þóris eru Þorsteinn Hörður Bjömsson, f. 2.6. 1926, d. 2000, vélstjóri í Reykjavík; Sigríður Erna Einarsdóttir, f. 25.3. 1937, myndlistarmaður og kennari í Reykjavík. Foreldrar Þóris: Einar Óskar Ást- ráður Þórðarson, f. 20.11. 1905, d. 13.7.1979, húsgagnasmiður í Reykja- vík, og k.h. G. Laufey Guðmunds- dóttir, f. 14.7. 1904, d. 7.2. 1993, hús- móðir. Ætt Óskar var sonur Þórðar, hrepp- stjóra á Suðureyri, Þórðarsonar, b. í Vatnadal, Þórðarsonar, bróður Guð- ríðar, langömmu Gils Guðmunds- sonar alþm., og langömmu Jónu Margrétar, ömmu Ólafs Þ. Þórðar- sonar alþm. og Kjartans Ólafssonar, fyrrv. alþm. og ritstjóra. Móðir Óskars var Sigríður Elín, systir Jóns, íshússtjóra á Suðureyri, föður Sturlu, hreppstjóra þar og Jó- hannesar Þórðar, fyrrv. kaupfélags- stjóra. Sigríður var dóttir Einars, b. á Meiribakka Jónssonar, bróður El- ínar, ömmu Guðmundu Elíasdóttur óperusöngkonu. Laufey var systir Eyrúnar, móður Guðmundar Jónssonar, fyrrv. hæsta- réttardómara. Laufey var dóttir Guð- mundar, kennara á Stokkseyri, bróð- ur Sigrúnar, ömmu Jóns, fram- kvæmdastjóra á Grundartanga og Páls ráðuneytisstjóra Sigurðssona. Guðmundur er sonur Sæmundar, b. á Vatnsenda Guðmundssonar og Guðrúnar Lénharðsdóttur frá Egils- staðakoti. Móðir Guðrúnar var Guð- rún Jónsdóttir, systir Árna, langafa Sigurðar Einarssonar, pr. og skálds í Holti. Móðir Laufeyjar var Eyrún Eiríks- dóttir, smiðs í Fellskoti, bróður Guð- mundar í Miðdal, langafa Errós og Vigdísar Finnbogadóttur. Eiríkur var sonur Einars, b. á Álfsstöðum Gíslasonar, b. þar, bróður Ingveldar, móður Ófeigs ríka á Fjalli og Sól- veigar. mm Simi: 565-1995 Fax: 565-1811 Dalshrauni 11, Hafnarfirði • marko-m8rki@isholf.is ■i 03 *XO © 550 5000 tr> @ m* mm mm visir.is ■OJO -3 n, 550 5727 03 '03 ■ E Þverholt 11, 1.05 Reykjavík co Andlát Sigurjón F. Jónsson, Otrateigi 38, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut föstud. 8.12. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Oddur Ófeigsson lést á Droplaugarstöð- um föstud. 8.12. Jarðarförin hefur þeg- ar farið fram. Herdís Torfadóttir, Víkurgötu 4, Stykkis- hólmi, lést laugard. 16.12. á St. Fransiskusspítala í Stykkishólmi. Aöalheiöur Bjarnadóttir andaðist á Droplaugarstööum föstud. 15.12. Sigurður Finnsson, útgerðarmaður frá Siglufirði, lést á heimili sínu, Álftamýri 4, laugard. 16.12. Hannes Þór Traustason lést á gjör- gæsludeild Landspítalans í Fossvogi sunnud. 17.12. Ársól Klara Guðmundsdóttir andaöist á Hrafnistu sunnud. 17.12. Sjötugur Jón Sigurðsson vélstjóri á Hvammstanga Jón Sigurðsson, vélstjóri við frystihús Goða á Hvammstanga, til heimilis að Lækjargötu 4, Hvammstanga, er sjötugur í dag. Starfsferlll Jón er fæddur í Syðsta-Hvammi í Vestur-Húnavatnssýslu en ólst upp á Hvammstanga í foreldrahúsum. Hann stundaði ýmis störf á árum áður en starfaði lengst af hjá Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga á Hvammstanga, fyrst sem vöruflutningabílstjóri en síðan sem vélstjóri við frystihús fyrirtækisins. Hann hefur nú starfað við frystihúsið sl. þrjátíu og fimm ár, fyrst á meðan það var í eigu Kaupfélags Vestur-Húnvetninga á Hvammstanga en það er nú í eigu Goða. Fjölskylda Jón kvæntist 20.12. 1953 Ástbjörgu ögmundsdóttur, f. 5.5. 1932, lengi starfsmanni hjá Pósti og síma, nú hjá Landssímanum. Foreldrar Ástbjargar voru Ögmundur Kr. Sigurgeirsson, f. 3.6. 1901, d. 11. 4. 1969, og k.h., Anna Gunnlaugsdóttir, f. 31.7. 1900, nú látin. Jón og Ástbjörg eiga þrjú börn. Þau eru Sigurður Birgir Jónsson, f. 11.8.1953, búsettur á Hvammstanga, starfar hjá Meleyri hf., var kvæntur Ernu Ingibjörgu Helgadóttur og eiga þau þrjú börn en sambýliskona Birgis er Snjólaug Grétarsdóttir, f. 12.7. 1969, matráðskona við leikskóla á Hvammstanga; Anna Kristín Jónsdóttir, f. 5.3. 1956, sjúkraliði, búsett í Noregi en maður hennar er Arne Lahaug lagerstjóri og eiga þau þrjá syni; Ösk Jónsdóttir, f. 16.3. 1959, hárskerameistari í Reykjavík, en maður hennar er Magnús Kristinsson pípulagningameistari og eiga þau fjögur börn. Jón á sex systkini, einn albróður og fimm hálfsystkini, samfeðra. Albróðir Jóns er Bjöm Þórir, búsettur á Hvammstanga. Hálfsystkini Jóns samfeðra eru Davíð, sem er látinn, bilasali í Reykjavík; Anna, nú látin, húsmóðir i Kópavogi; Garðar, lengst af verslunarmaður, nú búsettur í Kópavogi; Guðmann, búsettur í Kópavogi; Gunnar Dal rithöfundur, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Jóns voru Sigurður Davíðsson, f. 13.9. 1896, d. 27.3. 1978, kaupmaður á Hvammstanga, og s.k.h., Ósk Jónsdóttir, f. 10.7.1893, d. 21.2. 1984. Fyrri kona Sigurðar var Margrét Halldórsdóttir, f. 3.10. 1895, d. 22.4. 1983, frá Fáskrúðsfirði, húsmóðir. Ætt Sigurður var sonur Davíðs i Kirkjuhvammi, bróður Jóns í Hrísakoti, afa Jóns Jóhannessonar prófessors. Annar bróðir Davíðs var Stefán, b. og málara á Kagaðarhóli, afi Stefáns Ásbergs Jónssonar, b. á Kagaðarhóli. Davíð var sonur Jóns, b. í Syðsta-Hvammi á Vatnsnesi Arnbjarnarsonar, stúdents á Stóra- Ósi Árnasonar, pr. á Bægisá Tómassonar. Móðir Ambjarnar var Helga Jónsdóttir, systir Þorgríms, langafa Gríms Thomsens. Móðir Sigurðar var Ingibjörg Sigurðardóttir, b. og fræðimanns í Kirkjuhvammi Ámasonar. Jón og Ástbjörg eru i útlöndum um þessar mundir. Merkir Islendingar Jón Baldvinsson, fyrsti formaður Alþýðu- ilokksins og forseti ASÍ, fæddist á Strandseljum í Ögurhreppi við Djúp 20. desember 1882. Hann var sonur Baldvins Jónssonar, bónda þar, og Halldóru Sig- urðardóttur. Langafi Jóns í föðurætt, Auöunn, var bróðir Amórs, prófasts í Vatnsflrði, langafa Hannibals Valdi- marssonar, föður Jóns Baldvins. Sig- urður, móðurafi Jóns, var bróðir Rós- inkrans, langafa Sólveigar, móður Jóns Baldvins Hannibalssonar. Jón lærði prentiðn á ísafirði hjá Skúla Thoroddsen, ritstjóra Þjóðviljans. Hann var formaður Hins íslenska prent- arafélags 1913-1914, og forseti Alþýðusam- bands íslands frá fyrsta sambandsþingi þess 1916 og til dauöadags 1938. Þá var sambandið hvoru tveggja, stéttarsamband og stjórn- málaafl. Á þessum róstutímum klofnaði Alþýðuflokkurinn tvisvar, 1930 við stofn- un Kommúnistaflokks íslands, og 1938, við stofnun Sameiningarflokks alþýðu, Sósíalistaflokks. Jón þótti traustur leiðtogi, yfirveg- aður og öfgalaus og naut virðingar andstæðinga sinna, annarra en komm- únista. í sinni síðustu ræðu á Dags- brúnarfundi, skömmu fyrir andlát sitt, sagði hann m.a.: „Það er hið hættuleg- asta ævintýri fyrir íslenska alþýðu, að taka sér merki mannanna frá Moskvu í hönd og ganga með það út í baráttuna. Undir því merki mun hún bíða ósigur og falla.” Jón Baldvinsson Jaröarfarir Guðrún Bjarnadóttir, Lækjargötu 34e, Hafnarfirði, verðurjarðsungin frá Hafnar- fjarðarkirkju miðvikud. 20.12. kl. 15. Jón Elís Guðmundsson, Jón Massi, Suð- urhólum 20, Reykjavík, verður jarðsung- inn frá Fossvogskirkju fimmtud. 21.12. kl. 10.30. Jóna Sigríður Steingrímsdóttir, áður að Krummahólum 4, Reykjavík, verður jarð- sungin frá Grafarvogskirkju miðvikud. 20.12. kl. 13.30. Kristján Guðbjartsson frá Hólakoti, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju fimmtud. 21.12. kl. 14. Útför Huldu Njálsdóttur, fyrrv. húsfreyju á Skúfsstööum, Hjaltadal, fer fram frá Hóladómkirkju 21.12. kl. 13.30. Emelía Sigurgeirsdóttir, Auðbrekku, Húsavík, verður jarðsungin frá Húsavík- urkirkju fimmtud. 21.12. kl. 14.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.