Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Side 2
LATJGARDAGUR 24. MARS 2001 Fréttir DV Flugdólgadeilan dregur dilk á eftir sér: Tannlæknir í flugbanni - í sumarfrí með Norrænu - meintur flugdólgur kemst ekki öðruvísi úr landi Ómar Konráðs- son tannlæknir, sem settur var í flugbann hjá Flug- leiðum vegna meintrar ölvunar og óláta í ævin- týralegri Mexíkó- ferð í vetur, kemst ekki úr landi nema sjóleiðina. Því hefur hann skipulagt sumar- leyfi sitt í ár með Norrænu og hygg- ur á ferð um _________________ Norðurlönd á Skoda Fabian bifreið sinni sem hann tekur með sér. í þetta sinn ætlar Ómar að ferðast einn og heimsækja dætur sínar tvær sem búsettar eru í Svíþjóð og Noregi. „Það er ekki um annað að ræða en fara með Norrænu því öðruvísi kemst ég ekki úr landi vegna flugbannsins sem Flugleiðir settu mig í. Ég komst að því þegar dóttir mín ætlaði að bjóða mér í páskaferð til Suður-Afr- íku. Þá var mér tilkynnt að ég fengi Omar Konráðsson Slæmt aö vera í flugbanni þegar maöur hefur gaman af því aö ferðast. einfaldlega ekki að fljúga með Flug- leiðum,“ segir Ómar sem ætlar að leggja í hann í byrjun júnimánaðar og taka Norrænu frá Seyðisfirði 7. júní. Hann ekur frá Reykjavík og gist- ir eina nótt á Höfn í Hornaflrði. Það- an heldur hann til Seyðisfjarðar og siglir með Norrænu til Hanstholm á norðvesturströnd Jótlands í Dan- mörku. „Þar sest ég undir stýri og ek til Lemvig en ég er kunnugur á þeim slóðum eftir að hafa starfað sem tann- læknir í Danmörku á árunum 1969-71. Ég kann vel við Danina enda tala ég reiprennandi dönsku og er eins og heima hjá mér þarna. Þaðan ek ég svo yfir nýju Eyrarsundsbrúna til Svíþjóðar með stefnuna á Husqvarna í Svíþjóð en þar hefur dóttir min verið búsett síðastliðin tólf ár og starfar sem tölvuverkfræðing- ur. Einnig ætla ég að heimsækja aðra dóttur mína sem starfar á sjúkrahúsi í Ósló og enda svo ferðina í Bergen þar sem ég tek Norrænu aftur og geri ráð fyrir að vera kominn til Seyðis- fjarðar 30. júní,“ segir Ómar sem ætl- ar að halda upp á afmælið sitt í ferð- inni en hann verður 66 ára 13. júni. Ómar Konráðsson segir það baga- legt að vera í flugbanni búandi á eyju og þá sérstaklega í ljósi þess hversu gaman hann hafi af því að ferðast. Hann er feginn því að sá kostur sé fyrir hendi að ferðast sjóleiðina með Norrænu því annars kæmist hann ekki neitt. Hann bindur góðar vonir við Skódann sinn sem dætur hans gáfu honum en Skódinn er sparneyt- inn og hentar því vel til lengri ferða- laga á meginlandi Evrópu. „Ég fékk bilinn í janúar og hef bara einu sinni þurft að fylla á tankinn síðan," segir Ómar Konráðsson sem er i miklum ferðahug þrátt fyrir flugbannið. -EIR Bandaríkin: Islensk hross velkomin - ekkert bendir til banns í Evrópu - hrossaútflytjendur halda þó að sér höndum „Ég er nýbúinn að ræða við útflytj- anda sem kvaðst hafa fengið skeyti frá Bandaríkjunum þess efnis að hest- ar frá íslandi væru velkomnir," sagði Kristinn Guðnason, formaður Félags hrossabænda, aðspurður hvort komið gæti til greina að draga myndi úr út- flutningi hrossa vegna innflutnings- banns erlendis til varnar gin- og klaufaveiki. Kristinn kvaðst ekki hafa heyrt neinn ávæning þess efnis Eldur í Ólafsvík: Snarráðir slökkviliðs- menn Að sögn lögreglunnar í Ólafsvík má þakka snarræði slökkviliðsins þar i bæ fyrir að ekki fór verr er kviknaði í Hjólbarðaverkstæði Siguijóns í Ólafs- i vík seint á fimmtudagskvöldið. Eldur- inn kviknaði í ruslatunnu á verkstæð- inu og náði hann að teygja sig upp timburvegg en logamir breiddust ekki j frekar út því slökkviliðsmenn voru komnir á staðinn örfáum mínútum eft- ir aö þeir voru vaktir vegna eldsins. I Engan sakaði í eldinum og rannsakar lögreglan í Ólafsvík nú upptök hans. -SMK | að dregið gæti úr útflutningi á ís- lenskum hrossum vegna innflutn- ingsbanns í Evrópulöndum. Kristinn sagði að Bandaríkin hefðu fækkað þeim löndum sem innflutn- ingur á hestum væri leyfður frá. ís- land væri ekki á þeim bannlista. Hins vegar væri ríkjandi farbann á dýr í nokkrum Evrópulöndum. Ef lenda þyrfti í einhverju landi sem farbann væri á, eða flytja hross í gegnum það, þá færu þau hross ekki lengra. Vitað væri um hross sem ekki hefðu komist heim frá Þýskalandi eftir Equitana- sýninguna þar sem flytja hefði þurft þau í gegnum Frakkland. Þar hefði verið sett á farbann meðan á sýning- unni stóð þar sem gin- og klaufaveiki hafði verið staðfest í Frakklandi í millitíðinni. Sigurður Örn Hansson aðstoöaryf- irdýralæknir sagði við DV að engar fregnir hefðu borist til embættisins sem bentu til þess að útflutningur á hrossum væri í hættu vegna gin- og klaufaveikivama erlendis. „Svo lengi sem við höldum gin- og klaufaveik- inni utan íslands er engin hætta með útflutning á hrossum né afurðum," sagði Sigurður Örn. „En um leið og kominn er upp grunur um veikina hér þá fer allt í lás. Þess vegna ríður á að viö getum tryggt að landið sé hreint." - ite i Velkomin ístensk hross eru velkomin til Bandaríkjanna, aö sögn formanns Félags hrossabænda. Þar hafa reglur um innflutning dýra veriö hertar vegna gin- og klaufaveikifaraldursins í Evrópu. Helgi L. Sigmarsson hrossaútflytj- andi sagði í samtali við DV í morgun að hann hefði ákveðið að hætta við útflutn- ing til Sviss vegna ástandsins í Evrópu. Sagði Helgi að hann hefði þurft að fara með hrossin til Lúxemborgar, þaðan inn í Frakkland og síðan í gegnum Þýska- land rétt áður en komið er inn yfir landamærin til Sviss. „Ég var einfald- lega hræddur um að verða stoppaður á þessari leið og því hætti ég við þetta,“ sagði Helgi L. Sigmarsson. -JSS/HKr. Blaðiðídag Berlusconi fær blíðari meðferð Erlent fréttaljós Um borð í geimskutlu Bjarni Tryggvason Pistill um kynlíf: Dansinn dunar Ragnhelður Eiriksdóttir Fíflin eru ekki alltaf fífl Baldur T. Hreinsson Alltaf í boltanum Atli Hilmarsson og Arnór Leikkona og ljóðskáld | Julia Roberts Beðið eftir Óskari Allt um verðlaunin TOYOTA 40 Toyota Fl-bíllinn frumsýndur DV-bílar Marilyn í speglinum Afturgöngur í Hollywood Laxeldi í fimm fjörðum Laxeldisfyrirtækið Salar Islandica hyggst hefja stórfellt laxeldi í Fá- skrúðsfirði, en fyrirtækið hefur þegar fengið öll tilskilin leyfi til laxeldis í Berufirði. Samtals er nú ráðgert að framleiða um 36.000 tonn árlega í fimm fjörðum á Austurlandi. Mikil íkveikja Margt bendir til að þriðja hvert brunatjón á íslandi sé til komið vegna íkveikju. Þetta kom fram í máli Bene- dikts Sveinssonar, formanns stjómar Sjóvár-Almennra, í ræðu á aðalfundi félagsins. Ljós á Hellisheiði Ef allt gengur að óskum verður lýs- ingu vegarins um Hellisheiði og Kári karpar Þrengsli lokið fyrir næstu áramót, sagði Árni Johnsen, formaður sam- göngunefndar, á fundi Sambands sunnlenskra sveitarfélaga í gær. Vanskil á lífeyri 10.500 einstaklingar skiluðu ekki iðgjöldum til lífeyrissjóða árið 1999. Vegna skyldutryggingar lífeyrisrétt- inda hefur rikisskattstjóra verið falið að hafa eftirlit með því að lögbundnu lágmarksiðgjaidi sé skilað til lífeyris- sjóða bæði vegna launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga. íslenskir boxsigrar Islenskir hnefaleikamenn, sem em í keppnisferðalagi um Bandaríkin, komu á óvart á dögunum þegar þeim tókst að sigra í 6 viðureignum af 13. Keppnin var haldin í Duluth í Minnesota og andstæðingarnir flestir úr fylkinu. Kári Stefánsson, I forstjóri íslenskrar erfðagreiningar, og prófessor við þýskan háskóla karpa um það í erlendum fjöl- miðlum hvor hafi orðið fyrstur til að einangra gen sem veldur geðklofa. Laun kvenna hækka meira Laun kvenna hafa hækkað umtals- vert meira en laun karla á undanförn- um árum, samkvæmt mælingum Kjararannsóknarnefndar. Á síðustu fiórum árum hafa laun kvenna hækk- að um 3 prósentum meira en laun karla. Stoliö úr bíl bæjarstjórans Brotist var inn í tvo bila í fýrradag og j stolið úr þeim far- L simum og ýmsui verðmætum sem í þeim var að finna. Annar bílanna er í eigu Magnúsar Gunnarssonar, bæj- arstjóra í Hafnarfirði, en hann var ásamt eiganda hins bílsins við jarðar- fór þegar brotist var inn í bílana. Handteknir fyrir hasssmygl Þrír starfsmenn Flugleiða voru handteknir á laugardag fyrir smygl á I j einu og hálfu kílói af hassi. Böm úr 1 Reykjanesbæ fundu böggul með 850 grömmum af hassi sem mennirnir höfðu geymt á víðavangi skammt frá Keflavík og komu efninu til lögregl- unnar. Húsfreyja drap mink Húsfreyjan að Minna-Knarramesi ,á Vatnsleysuströnd drap mink á hlað- inu heima hjá sér i morgun. Hún not- aði stórt grjót við verkið og hæfði minkinn í fyrsta kasti. Húsfreyjan var að verja hænumar á bænum. -EIR 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.