Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 9 I>V Fréttir Framkvæmdir viö lokaáfanga Fiskihafnarinnar á Akureyri eru í fullum gangi. DV-MYND BRINK ‘ 4L- i'ttfF, Fiskihöfnin á Akureyri: Lokaáfanginn er hafinn 1500 sýni vegna fjöl- ónæmu bakteríanna Búið er að opna aftur skurðdeild 12G á Landspítalanum við Hring- braut, en deildinni var lokað þ. 5/3 sl. þegar ljóst var að fjölónæmar bakteríur (MÓSAr) höfðu borist á milli fjögurra sjúklinga innan deild- arinnar. Þetta er í fyrsta skipti sem það hefur gerst á Landspítalanum. Afar umfangsmikil vinna og kostn- aðarsöm hefur síðan farið fram við þrif og sótthreinsun skurðdeildar- innar og sýnatökur frá sjúklingum og öllu því starfsfólki spítalans, sem komið hafði að umönnun MÓSA-já- kvæðra sjúklinga. Alls hafa verið tekin rúmlega 1500 sýni til MÓSA leitar en algengt er að tekin séu 2-3 sýni frá hverjum einstaklingi til að kanna nákvæm- lega útbreiðslu bakteríunnar meðal sjúklinga og starfsfólks. Við þá leit hafa fundist 4 MÓSA jákvæðir sjúk- lingar til viðbótar, en þeir höfðu all- ir verið útskrifaðir áður en upp komst um faraldurinn. Bakterían hefur ekki fundist hjá neinum starfsmanna spítalans. „Eftir þrif og sótthreinsun deildar 12G voru tekin þar umhverfissýni til MÓSAleitar og reyndust þau öll neikvæð, sem er mikill léttir fyrir alla. Það er gífurlega mikið mál að sótthreinsa heila deild,“ segir Hjör- dís Harðardóttir, sýklafræðingur á Landspítalanum. Bakterían veldur ekki usla úti í samfélaginu en inni á spítölum get- ur hún valdið alvarlegum sýkingum og í versta falli verið hanvæn þegar fólk er veikt fyrir. ísland er eitt fárra landa sem hefur verið laust við þennan vanda á spítölum og Hjördis segir til mikils að vinna að halda þeirri stöðu. Liður í þeirri viðleitni er að ís- lendingar hafa sett þá reglu að allir sjúklingar sem legið hafa á erlend- um sjúkrahúsum undanfarna sex mánuði, fara strax í einangrun við komu á sjúkrahús hér. Tekin er úr þeim stroksýni og einangrun sjúk- lings ekki aílétt fyrr en ljóst er að hann beri ekki bakteríuna. „Við erum því alls ekki ókunnug þessari bakteríu og höfum oft verið með fólk í einangrun vegna hennar en þetta er í fyrsta skipti sem bakterí- an smitast í annan sjúkling hérlend- is og þess vegna bregðumst við nú hart við,“ segir Hjördis. Kostnaður við aðgerðirnar liggur ekki enn fyrir en ljóst er að hann mun hlaupa ámilljónum. -BÞ DV, AKUREYRI: " Vinna við lokaáfanga Fiskihafn- arinnar á Akureyri er hafinn en um er að ræða lengingu vesturkantsins um 70 metra. Gamlar verbúðir og fleiri hús sem voru á uppfyllingu á svæðinu voru rifin og standa nú yfir flutningar á jarðvegi þar sem þau hús stóðu. Pétur Ólafsson hjá Akureyrar- höfn segir að vesturkanturinn verði 190 metra langur og þar verði við- legudýpi 9 metrar sem þýðir að stærstu fiskiskip Akureyringa geta lagst þar að bryggju en þau hafa orðið að athafna sig á öðrum stöö- um en í Fiskihöfninni til þessa. Við- legukanturinn við austurbakka hafnarinnar er 170 metra langur þannig að þegar frarfikvæmdum lýkur verða viðlegukantar alls 360 metrar að lengd. Nýi hluti hafnarinnar verður dýpkaður i vor, stálþil rekið niður í haust, og sumarið 2002 á að ganga frá þekju og öðru sem til þarf. Vest- an við höfnina upp að Hjalteyrar- götu er land sem auglýst verður til umsóknar á þessu ári en að sögn Péturs Ólafssonar er gert ráð fyrir að þar verði einhver hafnsækin starfsemi, annaðhvort á vegum fyr- irtækja sem stunda útgerð eða þjón- ustuaðila fyrir sjávarútveg. -gk Garðar BA fyrir utan Dalia-skipasmíðastööina í Kína. Þarna er hann á 11,3 sjómílna hraða í lokareynslusiglingu. Níu fiskiskip tilbúin til heimferðar í Kína: Allt nema smíðatím- inn gekk að óskum - kosta á bilinu 56-61 milljón króna Níu fiskiskip, sem hönnuð eru af Skipasýn, eru nú tilhúin til heim- ferðar í Dalia-skipasmíðastöðinni í Kína. Verða skipin, sem eru um 110 tonn að stærð, flutt með flutninga- skipi til íslands, en það er um tveggja mánaða sigling. Búist er við að fiskiskipin níu veröi komin til landsins fyrir lok maí. Sævar Birgisson skipahönnuður segir reynslusiglingar skipanna hafa gengið að óskum. Hann sagði að varðandi gæðin væri smíðin eins og búist hafi verið við í upphafi. Hann sagöist þó sjálfur ekki nógu ánægður með frágang á innrétting- um og röralögnum en rafmagnið og frágangur þess væri eins og best væri á kosið. Hann sagöist þó ekki vita annað en eigendur skipanna væru mjög ánægðir með smíðina. Sævar sagði að því væri samt ekki að leyna að smíðin hefði dregist hjá Kínverjunum um fimm mánuði en að öðru leyti hefði dæmið gengið upp. Hann segir alit annað og betra vinnulag hjá Dalia-skipasmíðastöð- inni í Norður-Kína en t.d. hjá Hu- angpu Shipyard í Suður-Kína, þar sem Ófeigur VE er smíðaður. Upphaflegt samningsverð á hverju skipanna níu var um 640 þúsund dollar eða á núvirði rúmar 56 milljónir króna. Búnaður skip- anna er þó mjög misjafn. T.d. eru tvö af þeim togskip og því dýrari. Togspil verða sett í skipin hér heima, auk sleppibúnaðar fyrir björgunarbáta. Sævar sagðist því gera ráð fyrir að verðið yrði að með- altali í kringum 700 þúsund dollara, eða um 61 milljón króna. -HKr. Sæljón RE Væntanlegt til landsins í maí. Loðnuveiðin: Um 100 þúsund tonn eftir Um 810 þúsund tonnum af loðnu hafði verið landað á loðnuvertíðinni i gærmorgun, samkvæmt upplýsing- um frá Samtökum fiskvinnslu- stöðva. Þar kom einnig fram að afl- inn frá áramótum var orðinn 684 þúsund tonn og eftirstöðvar kvóta námu 109 þúsund tonnum. Þar sem gera má ráð fyrir að einhverju af veiddri loðnu hafi þá verið landað, má gera ráð fyrir að í gær hafi ver- ið eftir að veiða um 100 þúsund tonn í gærmorgun. Vestmannaeyjar voru þá hæsti löndunarstaður með 88.673 tonn en síðan koma Eskifjörður með 78.090 tonn, Neskaupsstaður 65.564 tonn, Grindavík 53.985 tonn, Seyðisfjörð- ur 51.246 tonn, Akranes 48.312 tonn og Þórshöfn 41.951 tonn. -gk or. jjj mrn ouaa sk®unl Barnaúlpur frákr. 1.990 Skiðaúlpur fullorðins frákr. 3.900 Skíðagallar barna frákr. 1.990 Skiðagallar fullorðins frákr. 2.900 Topp skíðamerkin Carvingskíði fullorðins frákr. 9.990 Carving pakkar frákr. 24.560 Lange skíðaskór fullorðins með göngustillingu frákr. 9.520 Barnacarving pakki frákr. 13.760 Barnapakkar frákr.12.640 Snjóbretti Snjóbretti 107-137 cm frá kr. 9.520 Brettapakkar 107-137 cm frákr. 21.920 Snjóbretti 144-162 cm frákr. 11.920 Brettapakkar 144-162 cm frákr. 24.800 MM Skíði eldrí árgerdir Verð frákr. 3.000 allt að 90% afsláttur SALOMON SCOTT Skíðaskór barna st. 21-29 frákr. 1.980 Skíðastafir, barna frákr.700 Skíðastafir fullorðins frákr.900 Gönguskiði frákr. 5.280 Gönguskíðapakki frákr. 15.400 Skíðahjálmar frákr. 1.500 Odýrirskíðaltanskar og húfur -rarújöntist3) s'& slunin AMRKIÐ Ármúia 40 • Sími: 553 5320
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.