Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 11 DV Skoðun Nýr Dagur aö koma úr prentvélinni í október 1997 Eyjólfur Sveinsson útgáfustjóri og Elías Snæland Jónsson ritstjóri skoöa árangurinn. Á góðum Degi Margir hafa orðið til þess síðustu dagana að harma örlög Dags. Sumir bera um það vitni opinberlega að þeir hafi alltaf lesið Dag fyrstan blaða á morgnana, gjarnan til að koma blóðinu á hreyfingu! Jafnvel keppinauturinn, Morgunblaðið, tek- ur undir það algenga viðhorf að það sé „eftirsjá að Degi, enda var hann að mörgu leyti vel skrifað og að- gengilegt blað“, eins og sagði í for- ystugrein Moggans í vikunni. Þessi umsögn kemur reyndar heim og saman við þau skilaboð sem rit- stjórn Dags fékk gjarnan frá lesend- um sínum. Sameining Dags og DV bar svo brátt að höndum að ekki gafst tæki- færi til að skýra lesendum Dags frá þeim atburði í blaðinu sjálfu. Því er ekki úr vegi að fara hér nokkrum orðum um þessa tilraun til að halda úti sjálfstæðu dagblaði sem átti einkum að höfða til landsbyggðar- innar og þess hluta þjóðarinnar sem enn aðhyllist viðhorf félagshyggju og hefur brennandi áhuga á frísk- legri og málefnalegri umræðu um stjórnmálin. Á gömlum grunni Þótt sá Dagur sem kaupendur fengu í hendumar fram að síðustu helgi hafi í reynd verið aðeins þriggja ára og fimm mánaða byggði hann á gömlum grunni. Þetta mátti sjá á forsíðu blaðsins þar sem fram kom að lesendur héldu á blaði sem átti sér 84-85 ára sögu. Það var sumarið 1996 að Frjáls fjölmiðlun, sem þá gaf út Tímann fyrir Framsóknarflokkinn, keypti ráðandi hlut í Dagsprenti og ákvað að sameina þessi tvö blöð í eitt - Dag-Tímann. Þessi tvö blöð höfðu verið helstu málgögn framsóknar- manna allt frá því síðla á öðrum áratug tuttugustu aldarinnar. Bæði blöðin höfðu fyrst og fremst kaup- endur úti á landsbyggðinni og á þeim grunni var nýja blaðið byggt - með aðalstöðvar á Akureyri. Rúmu ári síðar gerði Frjáls fjöl- miðlun tilraun til að færa grundvöll útgáfunnar út með samningum við A-flokkana svokölluðu, það er Al- þýðuflokkinn og Aiþýðubandalagið, sem nú heyra báðir sögunni til sem stjómmálahreyfingar. Blöð þessara flokka, Alþýðublaðið og Vikublaðið, hættu að koma út. Breytt blaö Mín afskipti af blaðinu hófust helgi eina í ágúst árið 1997. Ég var þá aðstoðarritstjóri á DV og í óða- önn að ganga frá blaði morgundags- ins seint að kvöldi þegar þeir Sveinn R. Eyjólfsson og Eyjólfur Sveinsson óskuðu óvænt eftir fundi sem hófst um miðnættið. Þar báðu þeir mig um að taka við ritstjóra- starfi á breyttu blaði sem væntan- lega myndi heita Dagur og ætti ekki aðeins að miðast við landsbyggðina heldur höfða líka til félagshyggju- fólks á höfuðborgarsvæðinu. Þetta var reyndar ekki í fyrsta sinn sem ég hafði fengið slíka beiðni en að þessu sinni var verk- efnið meira freistandi því fram und- an var stórefling ritstjórnar blaðins í Reykjavík, þar sem ég haföi aðset- ur, meðal annars með blaðamönn- um frá þeim blöðum sem lögð voru niður, það er Alþýðublaðinu og Vikublaðinu. Ég sló til - en af fullu raunsæi því ég gerði mér þá þegar ljósa grein fyrir þvi að óvissa væri um endan- legan árangur. Eða, eins og ég skráði í dagbók mína eftir fundinn: „Það virðist vera lag til að ná ár- angri, en auðvitað kunna vinstri- menn og miðjumenn í stjórnmálun- um að verða sjálfs sín versti óvinur enn einu sinni og svara breyttu blaði meö sinnuleysi. Fari svo þá er þó búið að gera þessa tilraun." I hönd fór spennandi tími þar sem hópur blaðamanna, sem komu úr ólíkum áttum, tók höndum sam- an við að móta breytt blaö sem sá fyrst dagsins ljós í október 1997. Sett voru tiltölulega hógvær markmið um útbreiðslu - stefnt að því að fimmtán prósent þjóðarinnar læsu Dag reglulega. Ánægjulegt er til þess að vita að á síðasta útgáfuári blaðsins fóru tekjur af sölu Dags víixandi. Dagur og stjórnmálin Eitt helsta markmiðið með breytt- um Degi var að reyna að gera blað- ið að ómissandi lesningu fyrir þá sem höfðu brennandi áhuga á stjórnmálabaráttunni í landinu. Þessi viðleitni setti mikinn svip á Dag sem fjaliaði um stjórnmálin í fréttum og fréttaskýringum, for- ystugreinum og pistlum, aðsendum greinum og helgarviðtölum við stjórnmálaforingja. Þessi mikla umfjöllun um pólitík- ina féll i góðan jarðveg hjá þeim sem lifa og hrærast í stjórnmálum. Það var til dæmis eftirsótt af stjórn- málamönnum að koma í helgarvið- töl hjá Degi og þeir notuðu oft tæki- færið til að senda skýr skilaboð út í samfélagið og það oft svo að ræki- lega var eftir tekið um allt land. Nægir þar að minna á eitt af síðustu helgarviötölum Dags þar sem Ingi- björg Sólrún Gísladóttir borgar- stjóri lagði upp í hvassa herferð gegn Sjálfstæðisflokknum sem hún sakaði um alvarlegt pólitískt einelti og nakinn valdhroka. En Dagur var sjálfstætt blað sem ekki var hægt að tengja beint við einn stjórnmálaflokk öðrum frem- ur. Framsóknarmenn sögðu mér stundum að við værum alltof höll undir sjónarmið Vinstri-grænna sem aftur sökuðu okkur um fram- sóknarmennsku eða þá að vera of hliðholl Samfylkingunni, en þar á bæ voru ýmsir á því að við værum alltof góð við Framsóknarflokkinn og Vinstrihreyfinguna! Enginn gagnrýndi þó blaðiö í min eyru fyr- ir að styðja Sjálfstæðisflokkinn, enda mátti oft lesa í ritstjómar- greinum Dags ákveðna, málefnalega gagnrýni á störf og stefnu sjálfstæð- ismanna. Þessi hringekja ólíkra skoðana á efni blaðsins sannfærði mig um að Degi hefði tekist bæri- lega að starfa sjálfstætt og óháð ein- stökum flokkum eins og til stóð frá upphafi. Sameining Dags og DV Það fer að vera nokkur hefð fyrir því að sameina dagblöð á einni nóttu. Þannig var það árið 1981, þeg- ar síðdegisblöðin tvö, Vísir og Dag- blaðið, runnu saman í eina sæng og breyttu um leið dagblaðamynstrinu í landinu. Sú sameining tókst vel og skilaði nýju blaði sem varð raun- verulegur keppinautur við Morgun- blaðið í útbreiðslu. Seint síöastliðinn mánudag ákvað Frjáls fjölmiðlun að sameina DV og Dag undir merkjum fyrrnefnda blaðsins. Nóttin var lögð undir og á þriðjudaginn birtust á síðum DV margar fréttir og pistlar sem blaða- menn Dags höfðu skrifað fyrir þriðjudagsblað Dags. Áfram hefur verið unnið að þessum samruna alla vikuna, eins og greinilega má sjá á þessu helgarblaði DV sem hef- ur að geyma ýmsa þá efnisþætti sem áður prýddu helgarblað Dags. Þetta samrunaferli er auðvitað rétt að byrja. Frjáls fjölmiðlun hefur boðið öllum starfsmönnum Dags ný störf og er þegar ljóst að margir blaðamanna Dags munu færa sig yflr á DV. Stjómendur DV munu leitast við að mæta óskum þeirra sem áður keyptu Dag og fundu þar áhugavert efni sem höfðaði tii þeirra. Við þaö verk mun ritstjórn DV njóta starfskrafta margra þeirra karla og kvenna sem skrifað hafa í Dag síðustu árin. Um leið og ég þakka dyggum kaupendum Dags ánægjulega sam- fylgd á þeim vettvangi síðustu árin vona ég að samruni blaðanna takist nógu vel til þess að þeir fái áfram sinn bráðnauðsynlega „Dags- skammt“. ESK' Kosningar og spilling „Á sunnudag kvöddu kjósendur í París borgarstjórn sem sfjórnað var af mönnum sem hafa verið ákærðir eða geta átt von á að verða ákærðir fyrir spillingu og mis- notkun á almannafé. Það gerðist að- eins tveimur dögum áður en réttar- höld hófust í aðeins nokkur hundruð metra fjarlægð frá ráðhúsinu í París yfir fyrrum utanríkisráðherra, sem sat í embætti í ellefu ár, fjölda fyrrver- andi embættismanna og hirð þeirra af svindlurum fyrir að hafa auðgast á kostnað almennings og fyrir misbeit- ingu valds. Fljótt á litið er ekkert sam- band milli atburðanna í ráðhúsinu, réttarhaldanna í dómhúsinu við hlið- ina og dóms kjósenda í Paris. Og þó. Því meira að segja einn af leiðtogum borgaraflokkanna viðurkenndi í kosn- ingasjónvarpi að lítil kjörsókn í fyrri umferð og tap borgaraflokkanna í Par- ís væri til merkis um mótmæli borg- aranna gegn stjórnmálamönnum og stjórnmálalífinu, eins og það hefur þróast víða í lýðveldinu, ekki bara í París." Úr forystugrein Politiken 22. mars. Mir er öll „Lokakafli sögu Mir boðar vissu- lega ekki endalok geimferðaáætlun- ar Rússa sem fyrir tilstilli hennar hafa öðlast ómetanlega og ómiss- andi þekkingu fyrir áframhaldandi ævintýri í geimnum. Það verður þó að halda áfram, meðal annars með alþjóðlegu geimstöðinni Alpha. Þeir eru hins vegar margir sem telja að það sé ekki fyrirhafnarinnar virði. Hvaða gagn er í því að halda áfram að fara hringinn í kringum jörðina (og það ekki svo hátt á lofti í þokka- bót) þegar menn verða ekki tilbúnir í langan tíma enn til að reyna við ferðalag til jarðarúthverfisins Mars?“ Úr forystugrein Libération 23. mars. Viðbrögð seint um síðir „Endalok ofbeld- isins í Makedóníu eru ekki í augsýn. Átökin milli al- banskra skæruliða og öryggissveita Makedóníu halda áfram. Stjórnarer- indrekar óttast að teikna þurfi nýtt landakort yfir Balkanskaga. Sérfræð- ingar telja að það geti haft keðjuáhrif í fór með sér. Hætta sé á að kröfur Bosníuserba um sjálfstætt riki aukist. Vandamálið nú er þó ekki landamær- in á Balkanskaga. Það er hættan á stórstyrjöld í Makedóníu. Evrópusam- bandið er loksins farið að hafa af- skipti af átökunum. Bórís Trajkovski, forseta Makedóníu, er boðið til leið- togafundar sambandsins í Stokk- hólmi. Afskipti ESB eru nauðsynleg. Framtíð alls Balkanskaga skiptir máli fyrir Evrópusambandið. Það vekur hins vegar furðu hversu seint var brugðist við.“ Úr forystugrein DN 22. mars. Innflutningur bíði „Nýfundin tilfelli af gin- og klaufaveiki í Hollandi og írlandi sýna að útbreiðsla veikinnar heldur áfram. Hröð útbreiðsla í Bretlandi staöfestir þetta einnig. í öllum öðr- um V-Evrópulöndum er óttast að veikin berist þangað. Við slíkar að- stæður er rétt af Noregi að viðhalda banni sínu við innflutningi á lifandi dýrum, kjöt- og mjólkurafurðum frá öllum Evrópusambandsríkjunum. Útsendarar okkar í Brussel hafa orðið að verjast ásökunum frá Evr- ópusambandinu um að bann Noregs sé umfangsmeira en ástæða sé til. Sambandið heldur því fram að Nor- egir brjóti samninga meö bannin- um. í kjölfar þróunarinnar að und- anfömu getur Noregur ekki sætt sig við slíka túlkun." Úr foi-ystugrein Aftenposten 22. mars. Laugardagspistill
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.