Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 19 DV þar sem líkt er eftir flugi geimsku- tlu í öllum atriðum. Fjöldi fólks starfar við tilraunaflugið þar sem fullkomnar tölvur likja eftir öllu sem snýr að stjórn geimskutlu og ferð hennar út í geiminn og til baka til jarðar aftur. Tekið er á loft frá Kennedyhöfða og á tæpum fjórum mínútum síðar er skutlan komin út úr gufuhvolfi jarðar. I samlíkinum eru tveir menn sem þurfa að gera allt það sama og ef um raunverulegt flug væri að ræða. Einn hópur fólks í stjórnstöð matar tölvurnar á alls kyns uppákomum sem Bjarna og fé- laga hans er ætlað að leysa úr. Sérstakur viðbúnaður Þá daga sem DV dvaldi með Bjarna í Houston var sérstakur við- búnaður. Geimskutlan Discovery var í leiðangri með nýja áhöfn um borð í alþjóðlegu geimstöðina Alfa. Nýja áhöfnin leysti af þá þrjá menn sem dvalið höfðu í alþjóðlegu geim- stöðinni i rúma fjóra mánuði. Á meðan geimskutlan var á lofti þurftu Bjarni og aðrir starfsmenn sem annast tilraunaflugið að vera reiðubúnir að bregðast tafarlaust við. Komi upp bilun af einhverju tagi í Discovery eru tölvurnar um- svifalaust mataðar á þeim upplýs- ingum og leitin að ástæðu bilunar- innar hefst í samlíkinum og ná- kvæmlega er líkt eftir flugi Kelsey Grammer leikari Þetta er sá sem leikur sálfræðing- inn og útvarpsmanninn Frasier Crane í samnefndum þáttum. Frasier kemur aftur Sjónvarpsstjarnan Kelsey Grammer hefur notið mikilla vin- sælda sem sálfræðingurinn og út- varpsstjarnan Frasier Crane. Þeir bræður Frasier og Niles eru löngu orðnir heimilisvinir um land allt líkt og húshjálpin Dap- hne, faðir þeirra og hundurinn Eddie. Þættirnar hafa fengið fleiri Emmy-verðlaun en tölu verður á komið. Vafalaust eru íslenskir áhorf- endur enn í uppnámi eftir síðustu þáttaröð þar sem Niles og Daphen náðu loksins saman og stungu af úr brúðkaupi Daphne á Winnebago-húsbíl á vit ástar og ævintýra. Hvað verður um heim- ilishaldið og hvað gerist eiginlega næst? Frá Ameríku berast þær fréttir að NBC hafi skrifað undir nýjan samning við Kelsey Grammer og aðra leikara í þáttaröðinni um að leika í þáttunum næstu þrjú árin. Lengi var deilt um launalið samningsins eins og alsiða er en leikaraáhöfnin vildi samtals fá fimm milljónir dollara fyrir hvern þátt. Á endanum sættist hópurinn á að fá 3,5 milljónir dollara á þátt en ekki er vitað hvernig það skiptist milli ein- stakra stjarna. Líklegt verður að telja að Frasier fái stærstan hlut en Niles komi þar fast á eftir. Sennilega er hundurinn Eddie lægst launaður nema það sé íþróttafréttamaðurinn Bulldog sem bregður fyrir annað veifið. Discovery. Sem betur fór kom ekki upp nein slík bilun og ekki þurfti að koma til neyðaráætlunar. Að ýmsu þarf að huga þegar geimskutla er send út í geiminn. Meðal þess er að ekki er víst að veð- ur leyfi að skutlan svífi til jarðar í Bandaríkjunum. Því er áætlun til um að lenda i Evrópu. Á Spáni er flugvöllur sem reiknað er með að lent verði á undir slíkum kringum- stæðum. í einu tilraunaflugi Bjarna var honum gert að lenda á Spáni. Hann tók því með bros á vör og stýrði skutlunni örugglega til lend- ingar. Gangi allt eðlilega er geimskutlunni stjórnað með tölvum að öðru leyti en lendingunni þar sem flugmaður skutlunnar tekur við stjórninni. Eins gott er að ekk- ert fari úr skorðum þvi í lendingu svífur geimskutlan til jarðar en hef- ur ekkert vélarafl svo sem venjuleg- ar þotur og flugvélar. Því er ekki um það að ræða að taka á loft aftur fari eitthvað úr skorðum. Tvö ár á Mars! Bjami Tryggvason geimfari á að baki mörg hundruð ferðir í samlíki og honum brást ekki bogalistin í lendingunni og nam staðar á þeim punkti sem til var ætlast. Að óbreyttu mun hann halda út í geiminn að nýju innan örfárra ára en þangað tU heldur hann sér i þjálfun með því að fljúga tilrauna- flug þar sem öll hugsanlega vanda- mál mæta honum. Þá vinnur hann að vísindarannsóknum í Kanada auk þess að ferðast til Rússlands og Helgarblað annarra landa þar sem unnið er að smíði eininga til stækkunar á al- þjóðlegu geimstöðinni Alfa. „Þetta er spennandi starf en há- punkturinn er auðvitað sá að fara út í geiminn," segir Bjarni. Unnið er að áætlun innan NASA um að senda mannað geimfar til Mars. Óvíst er hvenær af þeirri ferð getur orðið þar sem fjöldi tilrauna þarf að fara fram áður og slíkt tek- ur mörg ár. Leiðangur til Mars mun taka tvö ár þegar þar að kemur. DV spurði Bjarna hvort hann væri til- búinn að leggja í slíka ferð ef til kæmi. „Ekki spurning. Ef slíkt tækifæri gefst fer ég,“ segir BjarniTryggva- son, eini íslendingurinn sem farið hefur út í geiminn. -rt Kawasaki fjórhjólin traust & lipur KLF 220 2WD. 530.000 m/vsk. KVF 300 4WD h/l drif. 695.000 m/vsk. KVF 400 4WD h/l drif. 799.000 m/vsk. Komið í vorgöngu innanhúss í dag! TJeírarqo Srafanl/ii os/ us niuaíis. Það er komið vor í Garðheimum og BLÓMSTRANDI TILBOÐ út um allt. ■ Blómstrandi krusi í eldhúsgluggann! Tilboðsverð 450,- ■ Stórir flottir kaktusar: Tilboðsverð 2.490,- ■ Formuð drekatré - öðruvísi, spennandi! Tilboðsverð 4.880,- ■ Hangandi bergfléttur: Tilboðsverð 590,- ■ 10 túlípanar 595,- Páskaskreytingar, páskaskraut OG ENDALAUST ÚRVAL af fræjum og laukum fyrir ræktunarfólkið! TILKOI) tiuAklippuii, (iIlLINAS.KiIll Einnig: Ilmandi kryddplöntur - þær hleypavorinu inn um eldhús- gluggann! Iðna Lísa - sem blómstrar og blómstrar! St. Pálíur - eins og amma átti! Alparósir - hvítar, frábærar á veisluborðið! Blómstrandi pottarósir - sem má setja út í garð eða svalir í sumar! Og fermingarskreytingar! I GARÐHEIMAR Heimur skemmtilegra hugmynda og hluta Stekkjarbakka 6 * Mjódd » Sími: 540 33 00 » Fax: 540 33 01 • Veffang: www.grodur.is Opid alta daga til Mukkan 21!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.