Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Qupperneq 26
26 LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 Helgarblað DV Sérkennilegar auglýsingar á sjónvarpsskjánum: Sigrar heiminn með spakmælum - Björgvin Ómar vill láta gott af sér leiða Búum til betri börn Björgvin Ómar Ólafsson semur spakmæli sem hann beinir sérstaklega til for- eldra þar sem hann telur aö gott barnauppeldi bæti heiminn. Bruce Willis Hann hefur oft bjargaö heiminum í kvikmyndum en á í mestu vandræö- um í einkalífi sínu. Bruce Willis á sjens með klám- myndastjörnu Leikarinn og bjargvætturinn Bruce Willis er meðal þeirra leikara sem hvað oftast hafa bjargað.heim- inum á hvíta tjaldinu. Hann hefur sprengt upp loftsteina, aftengt sprengjur og slátrað iilþýði fyrir okkur og er þess vegna hetja í aug- um vorum. Þetta er maður sem ekk- ert getur komið úr jafnvægi. Eins og verða vill er nokkurt bil milli ímyndar og raunveruleika á þessu sviöi og í sínu einkalífí tekst Bruce sjaldan að bjarga því sem björgunar er þurfi og sigldi til dæm- is vel heppnuðu hjónabandi sínu við Demi Moore í strand og hefur róiö einn á báti um nokkra hríð. Nú berast fréttir af því að kvennamál Bruce séu í uppsveiflu þó deila megi um val hans á fóru- naut. Hann mun hafa staðið í ástar- sambandi við þekkta klámmynda- stjörnu, Alishiu Klass að nafni. Þau hafa hist á laun um nokkurra vikna skeið. Þetta vildi Bruce víst ekki að færi hátt en fröken Klass úttalaði sig um málið í National Enquirer nýlega. Bruce mun hafa sýnt fröken Klass meiri rómantískan hlýhug og tillitssemi en hún á almennt að venjast og tekur hún sem dæmi að á Valentínusardegi sendi hann henni fimm tylftir hvltra rósa. Glöggir sjónvarpsáhorfenbdur hafa líklega rekið augun í sérkenni- legar skjáauglýsingar sem birst hafa af og til hjá ríkissjónvarpinu að undanfórnu. Skjáauglýsingar þessar innihalda spakmæli af ýms- um toga, spakmæli eins og: Hrós er besta næring ástarinnar og Lestrar- stundin er mörgum bömum ljúf minning. Spakmælin eru oftar en ekki tengd barnauppeldi en þau eiga það öll sameiginlegt að vera sérlega falleg og ástúðleg. Það er Reykvíkingurinn Björgvin Ómar Ólafsson sem stendur á bak við þessi spakmæli og segist hann hafa sett þau á sjónvarsskjáinn af hreinni hugsjón og vilja til að bæta heiminn. Að hans áliti á sjónvarpið stóran þátt í því hversu slæmur heimurinn er orðinn og með því einu að minnka glápið yrði margt mun betra. Hvaða vettvangur er betri en einmitt skjárinn til þess að ná til gláparanna? „Mér blöskrar hvað foreldrar eyða miklum tíma i sjónvarpsgláp í staðinn fyrir að gera eitthvað upp- byggjandi með bömum sínum,“ seg- ir Björgvin sem stendur einn að auglýsingunum og er ekki með neitt trúfélag á bak við sig. Hundraö heimalöguð spakmæií Það er nokkuð síðan Björgvin fór að safna og semja spakmæli og seg- ist hann hafa samið um hundrað spakmæli og orðatiltæki um dag- ana. Hugmyndin að því að koma spakmælunum út til landsmanna segir Björvin aö hafi kviknaö árið 1983 þegar hann las bók eftir Dale Camegie. Eftir þann lestur segist Björgvin hafa viljað láta eitthvað gott af sér leiða og fengið þessa hug- ljómun sem loks er orðin að veru- leika. „Mér finnst sjónvarpið ráða of mikið yfir fólki. Það sekkur sér ofan í einhverjar spennumyndir kvöld eftir kvöld og gleymir börnun- um,“ segir Björgvin sem sjálfur á fjögur böm. Við þau hefur hann reyndar ekki mikið samband vegna veikinda sem hann hefur átt við að stríða en hann hefur verið öryrki í sjö ár. Boðskapur til foreldra Til að koma boðskap sínum á framfæri á sjónvarpsskjánum taldi Björgvin það ekki eftir sér að taka lán fyrir skjáauglýsingunum því honum er greinilega mikið í mun að böm fái gott uppeldi enda beinir hann spakmælum sínum sérstak- lega til foreldra. Björgvin, sem bendir á að nafn sitt þýði bjargvætt- ur, dreymir um að koma boðskap sínum á framfæri víðar, jafnvel út fyrir landsteinana og þess vegna hefur hann, m.a. auglýst eftir fjár- framlögum á síðum Morgunblaðs- ins. „Af hverju fara foreldrar ekki frekar í Triival pursuit með bömum í staðinn fyrir að horfa á enn eina víd- eóspóluna?," spyr Björgvin uppgefinn en lofar að fleiri spakmæli séu vænt- anleg frá honum á skjánum. Skilaboð hans eru einföld; þeim mun meiri tíma og ástúð sem for- eldrar gefa börnum sínum þeim mun betri verður heimurinn. Nokkur spakmæli eftir Ómar: Skildu óvin þinn. Frá þeirri stundu sem þú skilur hann er hann ekki lengur óvinur þinn. Lestrarstundin er mörg- um börnum Ijúf minning. Viðurkenndu ávallt það sem vel er gert. Ef feður sýndu sömu þol- inmœði við börnin og þeg- ar þeir biða eftir að laxinn biti á breyttist fjölskyldu- lífið í Paradís. Með mýkt, sanngirni og hlýju vinnast flest mál. Kynlff Dansinn dunar Ragnheiöur Eiríksdóttir skrifar um kynlíf Frá ómunatíð hefur dans skipað sess í samfélögum manna. Hella- myndir sem taldar eru frá 10000 til 30000 fyrir Krist hafa fundist í Evr- ópu og sýna figúrur sem eru óum- deilanlega í ágætis danssveiflu. Dans tengist samskiptum, trúar- brögðum en ekki síður frjósemi og þokka. Hin kristna kirkja hefur oft verið ægilega ósátt viö dans þegna sinna en hætti því að mestu eftir miðaldimar myrku. Á ósættistím- anum var dans álitinn lostafullt verkfæri Satans og afskaplega hættulegur. Þetta varð til þess að í Evrópu á miðöldum blómstruðu alls konar neðanjaröardansklúbbar, myrkir og lostugir, þar sem fólk sleppti sér í iðandi kös og þóttist oft komast nær guðlegri alsælu með því móti. í dansi hreyfast líkamar taktfast í samhljómi hvor við annan og tón- listina. Kynlíf er alveg eins; hreyf- ing líkama i samhljómi en tónlistin kannski andardráttur, orð og augnatillit. Það er líka hægt að dansa einn síns liðs rétt eins og hægt er stunda kynlíf i einrúmi. Já ég segi það enn og aftur að sjálfsfró- un er líka kynlífl Síld og Kramhús En aftur að dansinum. í Reykja- vík nútímans (afsakið mig en ég bý nú þar) er dans hluti af tilverunni. Litlu krakkamir eru keyrðir í ball- ett á laugardagsmorgnum, konurn- ar í hundraðogeinum fara i samba eða magadans í Kramhúsinu og um helgar hittist fólk hér og þar og sam- sjónvarpsins. Eflaust má deila um þokkafylli þeirra dansa en hitt er þó víst að talsvert er gert til að láta svo líta út sem kynólgan sé kraumandi í líkömum dansaranna, að minnsta kosti þeim sem kalla má bikiní- og glimmerdansa. Undirbúningur fyrir þá einkennast af langtímalegu í ljósabekkum og háarlit dansaranna sem er án undantekninga kolsvart- ur eða heiðgulur, L’oreal poison black númer 1,2 eða piercing yellow númer 6,0. Þegar litur líkama og lík- amshára er orðinn réttur smyrja stúlkurnar á sig búningunum sem eru um það bil alveg jafn efnismikl- ir og búningar listdansara á dimm- urri viskíknæpum skuggahverfanna. Þá má dansinn hefjast. Karlinn er eiginlega í hlutverki súlunnar í svona dansi, að vísu svolítið hreyf- anlegrar súlu með blýfast kolgeit- bros, en súlu engu að síður sem kvenpersónan hlykkjast utan um á alla lund. Ég vona að ástkærir lesendur mínir finni sér dans við hæfi til að stunda þessa helgi. Ragnheiður Eiríksdóttir er hjúkr- unarfræðingur og kynlifsráðgjafi á www.persona.is einast í miseggjandi dansi, stundum til aö liðka kroppinn en kannski oftar til að tengjast samborgurum sínum. Það er til dæm- is veruleg samkennd falin í því að dansa línudans í hópi 30 ann- arra sem allir eru líka í kúrekaskyrtum og jafnvel með hatta. All- ir hreyfast eins og síldartorfuáhrifin eru stórkostleg. Gömlu dansarnir eru krútt- lega nostalgískir, svona eins og að koma saman og skoða gaml- ar ljósmyndir og gleðj- ast yfir minningum liðins tíma. Sunnudag- ar með skottís og pönnukökum hafa ein- hvem sjarma... Slaghörpufólkið Venjulegir skemmtistaðadansar eru gjarnan drekk- hlaðnir kynferðisleg- um merkjasendingum því hvort sem okkur líkar betur eða verr eru skemmti- staðir borgarinnar afskaplega virk- ar og gjöfular veiðilendur fyrir fólk í leit að láréttum leikfélögum. Einn er sá skemmtistaður borgarinnar sem einkennist umfram aðra af kyn- legri rafhleðslu andrúmsloftsins og sérstakri líkamsnánd gestanna. Af tillitssemi við téða gesti mun ég ekki nefna barinn á nafn en get þó sagt að hann er kenndur við hljóð- færi sem byrjar á pé og endar á „íanó“. Á þessum bar er dansaður sér- stakur tímgunardans sem hefur ekki sést á fleiri öldurhúsum, alveg voðalega samfaralegur. Tónlistin er öll safarík og vaggandi og textarnir fialla um eitthvað pass- lega dónalegt sem ein- hver viU gera við ein- hvern annan og venju- lega stynur söngvarinn talsvert við að koma skUaboðunum áleiðis. Dansinn er þannig að karldýrið stendur upp á endann en beygir hné sín dulítið til að gera mjaðmagrindina alla hreyfanlegri. Kvendýrið tekur sér svipaða stöðu en bakkar svo hupp sín- um að . framanverðri miðju karldýrsins sem svo aftur grípur með hrömmunum um mjaðmir þess. Samfast- ar mjaðmagrindir eru útgangangspunkturinn en svo má nudda líköm- um saman á aUa lund þar fyrir ofan og neðan. Mér er sagt að þessi dans sé afskaplega áhrifaríkur og komi þátttakendum í virkileg- an tímgunarham sem fær svo jafnvel að blómstra á rómantískum stað þegar ballinu lýkur. Hermann og Heiðar Svo eru það samkvæmisdansam- ir sem við fáum stundum að njóta í hinum gríöartíðu íþróttatímum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.