Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 24. MARS 2001
Helgarblað
33
DV
Robbie óður í rúminu
Robbie Williams er vinsæll popp-
ari sem hefur notið mikillar vel-
gengni bæði með hljómsveitinni
Take That en ekki síður eftir að
hann hóf eigin feril. Robbie er vin-
sæll hvar sem hann fer þótt hann
væri frekar viðskotaillur við ís-
lenska fjölmiðla þegar hann var hér
á ferð á síðasta ári.
í nýlegu eintaki af því vandaða
dagblaði News of the World skýrir
nýsjálenska fyrirsætan Robin
Reynolds frá nánum samskiptum
sínum við Robbie milli rekkjuvoð-
anna og er ekki laust við að venju-
legir karlmenn fari nokkuð- hjá sér
við lesturinn. Að sögn Robin, fláði
Robbie utan af henni leðurbuxumar
og þar með hófst þriggja sólar-
hringa kynlífsmaraþon þeirra
skötuhjúa. Á þessum þremur sóiar-
hringum sváfu þau skötuhjú aðeins
í þrjár klukkustundir og einu hléin
sem urðu á ástaratlotum þeirra var
þegar þau nærðust á ávöxtum til
þess að halda upp þreki sínu.
Þessir atburðir áttu sér stað á
hótelherbergi á Nýja-Sjálandi.
Tveimur sólarhringum seinna lýsti
Robin fundum þeirra í smáatriðum
fyrir þarlendum fjölmiðlum. Það
heföi kannski einhverjum sárnað en
Robbie erfði þetta ekki við hana því
þegar þau hittust nokkrum mánuð-
um siðar í Los Angeles endurtók
leikurinn sig en varði þá öllu skem-
ur eða aðeins eina nótt.
Robin segir að í það skipti hafi
Robbie verið sérlega hugmyndarík-
ur því leikur þeirra hafi farið fram
í átta ólíkum stellingum og sumar
þeirra hafði hún aldrei reynt áður.
Robbie Williams poppstjarna og íslandsvinur
Vinkona hans og ástkona lýsir honum sem orkubúnti í bólinu sem alltaf
sé til í tuskið.
Will Smith stelur lífverði
Will Smith, leikari og rappari, er
að búa sig undir merkilegt hlut-
verk þessa dagana en hann á að
leika ofurboxarann Muhammad
Ali í kvikmynd sem byggist á ævi-
ferli hins armlanga rotara. Smith
hefur verið í strangri líkamlegri
þjálfun og boxkennslu undanfarna
mánuði og mætti þess vegna halda
að hann væri fær um að verja
hendur sínar. Svo er þó ekki og
lagði Smith mikla áherslu á að
ráða sér lífvörð fyrir nokkru. Sá
heitir Ran Francke og var starfs-
maður öryggisgæslu fyrirtækis
sem sérhæfir sig í að gæta kvik-
myndastjarna. Þetta hefði getað
verið í besta lagi en Smith og eig-
inkona hans, Jada, hrifust svo af
starfi lífvarðarins að þau töldu
hann á að segja upp hjá fyrirtæk-
inu og starfa eingöngu fyrir þau.
Þetta gekk allt saman í gegn en
fyrrverandi vinnuveitendur
Franckes eru ævareiðir og telja
þetta þjófnað á starfsmanni og hafa
höföað mál gegn Smith og eigin-
konu hans. Fyrirtækið krefst
svimandi hárra skaðabóta og telur
að þau hjónin hafi misnotað trún-
að í viöskiptum og Francke hafi
einnig misnotað trúnaðarupplýs-
ingar sem hann hafði aðgang að í
starfi sínu.
Það getur því farið svo að hjónin
veröi allt annað en örugg í návist
hins nýja starfsmanns og hann
verði þeim dýr að lokum.
Will Smith leikari
Hann á að leika
Muhammad Ali í mynd um
ævi tröllsins.
iMac Dalmatíu
Komdu úr felum
iMacDVSE 600 MHz
Dalmatía
Örgjörvi: G3 600 MHz
Vinnsluminni: 128 Mb
Harður diskur: 40 Gb
CD-RW drif
56k v90 mótald
10/100 Ethernet
2 Firewire tengi
2 USB tengi
Mús
15” skjár
189.900 kr.
iMac DV 500 MHz
Flower Power
Örgjörvi: G3 500 MHz
Vinnsluminni: 64 Mb
Harður diskur: 20 Gb
CD-RW drif
56k v90 mótald
10/100 Ethernet
2 Firewire tengi
2 USB tengi
Mús
15” skjár
154.900 kr.
iMac 400 MHz
Indigo
Örgjörvi: G3 400 MHz
Vinnsluminni: 64 Mb
Harður diskur: 10 Gb
CD-ROM drif
56k v90 mótald
10/100 Ethernet
2 Firewire tengi
2 USB tengi
Mús
15” skjár
119.900 kr.
Frábær fermingargjöf
Hugbúnaður Leikir
Mac OS 9.1 á íslensku Bugdom
* iMovie 2 á íslensku Cro-Mag Rally
iTunes á íslensku Nanosaur
Mac Acrobat reader
FAXstf - Fax hugbúnaður QuickTime Palm dagbók
Netið AppleWorks
Internet Explorer Ritvinnsla
Outlook Express Töflureiknir
Netscape Communicator Gagnagrunnur
J
ttjrUSv
hugsaðu | skapaðu \ upplifðu
Skaftahlíð 24 • Sími 530 1800 • Fax 530 1801 • www.aco.is