Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Síða 34
34 LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 Helgarblað DV Handboltafeðgar í höfuðstað Norðurlands rætt við Atla Hilmarsson og Arnór son hans sem lætur nú að sér kveða í meistaraflokki KA undir stjórn pabba Nú í vetur hefur ungur hand- knattleiksleikmaður, Arnór Atla- son, látið æ meira að sér kveða með meistaraflokksliði KA og skoraði meðal annars eitt mark í leik liðs- ins í deildarkeppninni gegn Hauk- um sl. fimmtudagskvöld. Lyktir þess leiks urðu 33-32 fyrir norðan- liðið. í nokkrum öðrum leikjum KA í vetur hefur Amór sýnt að það eru töggur í honum og er ljóst að hann er ein af vonarstjörnum íslensks handknattleiks. Sambærilega sögu mætti sjálfsagt segja um marga aðra unga handknattleiksmenn en það sem markar Arnóri sérstöðu er að hann er sonur Atla Hilmarsson- ar, þjálfara KA-liðsins og eins fræknasta handknattleiksmanns þjóðarinnar fyrr og síðar. Það er því ljóst að Arnór hefur erft hand- boltagenin frá föður sínum - og ætl- ar ekki að verða neinn eftirbátur hans. Fékk eldskírn sextán ára „Líklega var ég sautján ára þegar ég lék minn fyrsta meistaflokksleik en Amór er árinu yngri þegar hann fær þá eldskírn,“ sagði Atli Hilm- arsson þegar þeir feðgar settust nið- ur með blaðamanni DV að lokinni æfingu sl. fimmtudagskvöld. Atli, sem byrjaði handknattleiksferil sinn tíu ára gamall, lék fyrst með Fram en síðar með ýmsum öðrum liðum, bæði heima og erlendis. „Eg man enn fyrsta leikinn minn með meistaraflokki, þó úrslitin séu mér gleymd. Þetta var árið 1976 og leik- urinn var á móti FH. í stórsókn lenti boltinn í höndunum á mér og svo tók við rosalegt hraðaupphlaup. Ég var dauðhræddur um að klúðra málunum en allt fór vel að lokum og mér tókst að koma boltanum í markið,“ segir Atli - og ekki er. laust við að bliki bregði á auga þeg- ar hann rifjar upp þessa sælutíð. „Sumir krakkar leika sér með dót en Arnór lék sér alltaf með bolta,“ heldur Atli áfram og segir soninn hafa verið aðeins tveggja ára þegar hann fór fyrst að koma með sér á æfingar. Handbolti og íþróttir almennt hafi alla tíð verið allt umlykjandi í lífi fjölskyldunnar og það að Arnór heillaðist af hand- bolta sé í sjálfu sér ekkert öðruvísi en þegar strákar velja sér sama starfsvettvang og feður þeirra. Verða iðnaðarmenn, sjómenn, bændur - eða hvert sem starfið kann að vera. „Fjölskyldan flutti heim frá Spáni árið 1991 og þá var ég á sjö- unda ári. Þá fór ég strax að æfa með Fram og hélt svo áfram með KA í unglingaflokkunum þegar við flutt- um hingað norður 1997. Og nú er ég kominn i meistaraflokkinn til pabba," segir Arnór. Dúfnaskoðun Arnór kannar heiminn - hér meö pabba aö skoöa dúfurnar í Barcelona. Endur fyrir löngu AtH og Arnór saman á góðri stundu. Sá yngri fór aö sækja æfingar meö pabba aöeins tveggja ára gamall - og síöan varö ekki aftur snúiö. „Arnór er fjölhæfur leikmaöur" Fyrsti meistaraflokksleikurinn sem Arnór kom inn á var í haust. Það var leikur gegn Breiðabliki sem háður var í Smáranum í Kópavogi. Síðan þá hefur hinn ungi og knái leikmaður fengið að spreyta sig í nokkrum leikjum og sanna hvað í honum býr. „Arnór er fjölhæfur leikmaður og ræður til dæmis vel við skyttustöðurnar þrjár. Menn þurfa að hafa talsvert mikla hæfi- leika til að geta slíkt,“ segir Atli. Næsti leikur liðsins verður svo næstkomandi þriðjudagskvöld en þá etja KA-menn kappi við ÍR. Að- spurður hvort Arnór sé í liði þess leiks svarar Atli því til, og brosir út í annað um leið, að vissulega komi Arnór til greina. í byrjunarliöinu sé hann þó ekki. „Ég viðurkenni fús- lega að það er ekki auðvelt fyrir mig að velja son minn í liðiö. Slík ákvörðun getur alltaf orkað tvímæl- is og verið gagnrýniverð. Því hef ég alltaf haft Erling Kristjánsson, að- stoðarþjálfara minn, með i ráðum þessu viðvíkjandi og að Arnór sé í liðinu er ævinlega sameiginleg ákvörðun okkar beggja þótt ég ákveði hvort og hvenær hann fer inn á.“ vrfww.sha.ií, mhkmm G SfJixLf Barist um boltann dvmyndir brink Feögarnir Atli Hilmarsson og Arnór berjast um boltann. Að sjálfsögðu eru þeir í KA-treyjunum - og eru gulir og glaöir. 1» Fjögur fræknu Atli meö börnum sínum þremur, Arnóri, Þorgeröi Önnu og Davíð Erni, en öll hafa þau brennandi áhuga á handbolta - og íþróttum almennt. Þau létu sig ekki vanta á æfingu KA-liðsins í fyrrakvöld. r 7 ■> i * *’ 'Q/ j H fj*» | •, j "< A „Taugaspennan getur veriö mikil“ „Það er alltaf taugastrekkjandi að fara inn á leikvöllinn í fram- lengingu eins og ég lenti í á mið- vikudagskvöldið. Taugaspennan getur verið mikil en ef menn ein- beita sér að verkefninu tekst þetta allt. Spennan hér í KA- heimilinu getur líka verið æðis- gengin og ég er fullviss um að þetta er magnaðasti leikvöllur landsins. Sú er mín reynsla og sjálfsagt allra annarra,“ segir Arnór. Undir þetta tekur Atli og bætir við að handboltastrákar í dag séu talsvert öðruvísi en sín kynslóð. Tæknin er til dæmis mun meiri en var þegar ég var að byrja," bætti Atli við. Eins og staðan er núna eru lið KA og Fram efst og jöfn að stig- um í deildarkeppninni en siðar- nefnda liðið hefur hins vegar um- talsvert betra markahlutfall. Lik- urnar á því að KA nái deildar- meistaratitli eru því ekki miklar en þá er hins vegar eftir að bíta úr nálinni með íslandsmeistatitil og þar á norðanliðið góða mögu- leika. Þar hjálpar mikið hve góð- ur andi ríkir í liðinu, segja þeir feðgar. „Óskaplega sár ef ég tapa leik“ Arnór, sem er nemandi í fyrsta bekk Menntaskólans á Akureyri, segir að mikill tími fari i lærdóm- inn - og svo þurfi að sinna æfing- um og kærustu. Hann segir þá feðga vera nána og íþróttaáhug- ann öðru fremur binda þá saman. Oft sitji þeir saman fyrir framan sjónvarpið og fylgist með ensku knattspyrnunni. Þar er Arsenal þeirra eftirlætislið og Barcelona í spænska boltanum. Þá er Arnór aðeins farinn að fikra sig áfram í golfinu og telur ekki útilokað að sér takist að draga karl föður sinn með sér á völlinn fyrr en síð- ar. Vöffluveisla Saman í vöffluveislu og rjómaspraut- an fyrir miöri mynd. Aðspurðir hvor um annan í handboltanum segir Arnór að fað- ir sinn sé sanngjarn þjálfari. Vilji þó halda mönnum vel við efnið og geti stundum snöggreiðst ef menn standi ekki í stykkinu. „Það sem Arnór hefur erft frá mér er að vera tapsár. Ég er óskaplega sár ef ég tapa leik og finnst heimur- inn hrynja ef slíkt gerist. Arnór lendir stundum í þessu og við slíkar kringumstæður verð ég stundum að tala kjarkinn aftur í minn mann. Lífið er ekki bara handbolti og við verðum að horfa á björtu hliðarnar þótt leikur tap- ist stöku sinnum." -sbs

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.