Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Blaðsíða 50
58
LAUGARDAGUR 24. MARS 2001
Ferðir
DV
HB
Oporto í Portúgal
Oporto, önn-
ur stærsta borg
Portúgals, hef-
ur lengi staöið
í skugga höfuð-
borgarinnar
Lissabon. Þetta
stendur þó til
bóta þar sem
borgin er með-
al menningar-
borga Evrópu í ár. Miklar fram-
kvæmdir hafa staðið yfir í borginni
undanfarið til að undirbúa hátíðar-
höldin. Því miður hafa framkvæmdir
ekki gengið sem skyldi og miklu var
ólokið við formlega opnun menningar-
borgarinnar.
Flórens
Þeir sem fara til Ítalíu í sumar ættu
að nota tækifærið og bregða sér í að
minnsta kosti dagsferð til Flórens.
Borgin býður upp á marga áhugaverða
staði tO að skoða eins og t.d. skímar-
kapellu Jóhannesar skírara og fallega
dómkirkju.
Bandaríkin
í Bandaríkjunum er allt stærst og
þar er nánast hægt að gera hvað sem
hugurinn gimist. Andstæður eru
miklar, hvort sem er milli fólksins,
menningarinnar eða náttúmnnar. Sí-
fellt færist í vöxt að fólk ferðist á eigin
vegum um landið i bílaleigubíl og
öðlist þannig innsýn í þá gríðarlegu
fiölbreytni sem landið hefur upp á að
bjóða.
Ég fer í fríið
Ferðskrifstofa stúdenta sendi nýlega
frá sér ferðabækling þar sem er að
finna upplýsingar um spennandi ferð-
ir til allra heimshoma. Þar er m.a. að
finna upplýsingar um safaríferðir í
Afríku, ævintýraferðir um Asíu og
tónieikaferðir til Evrópu.
Mílanó
Heimsferðir bjóða í sumar upp á
flug til Mílanó alla fóstudaga. Þar er
hægt að skoða listaverk Leonardo da
Vinci, fara á tónleika í Scala-óperunni
og fara i messu i Duomo-dómkirkjunni
sem gnæfir yfir Galeria Vittorio versl-
rmargötunni.
Draugahótel
Áhugamenn um draugagang ættu
að líta við á Langham Hilton hótelinu
við lc Portland Place, Regent Street
næst þegar þeir eiga leið um London.
Hótelið var opnað 1865 og þykir eitt
það glæsilegasta í borginni. Því er al-
mennt trúað að í húsinu séu fimm
draugar og mun sá magnaðasti búa í
herbergi númer 333 og vera afturgeng-
inn læknir sem lést fyrir eigin hendi.
Kaupmannahöfn
GÓ5 gisting,
á besta stað.
HOT^
Valberg
Sími +45 33252519
ísl. símabókanlr milli kl. 8 og 14.00.
Fax +45 33252583
www.valberg.dk
Net tilboö
H j altlandsey j ar:
Gamlar hefðir í heiðri
Hrafna-Flóki hafði vetrardvöl á
Hjaltlandseyjum á leið sinni til ís-
lands og á stærstu eyjunni er stöðu-
vatn sem heitir eftir dóttur hans
sem drukknaði í vatninu. Eyjamar
voru öldum saman undir stjórn
Dana- og Noregskonunga. Árið 1468
voru Orkneyjar og Hjaltland veðsett
Skotlandskonungi sem heiman-
mundur vegna væntanlegs brúð-
kaups dönsku prinsessunnar og
James III, rikiserfingja í Skotlandi.
Danakonungur leysti eyjarnar ekki
út og síðan hafa þær veriö hluti af
Skotlandi.
Hátt á annað hundrað eyjar
Hjaltlandseyjar eru klasi hátt á
annað hundrað eyja, fimmtán eyjar
eru í byggð og íbúar rúmlega 22.000.
Á eyjunum mætist gamli og nýi tím-
inn og andstæður eru miklar. Hjalt-
lendingar eru fyrst og fremst Skotar
og halda gamlar hefðir i heiðri.
Dýralíf er fjölbreytt á eyjunum,
sauðfé gengur sjálfala í grænum
hlíðunum og þar er að finna hinn
smávaxna Hjaltlandshest. Eyjamar
eru frægar fyrir fuglalíf og því
gósenland fugla-
skoðara. Þar er
einnig að finna
stærstu olíuhöfn
í Evrópu og á
kvöldin er hægt
að sjá logana frá
olíuborpöllunum
við sjóndeildar-
hring.
Vinstri umferð
Höfuðborg eyj-
anna heitir Leir-
vík og þar býr
tæpur þriðjungur
íbúanna, um 8000
manns. í byrjun
nitjándu aldar
var höfnin í Leir-
vík viðkomustað-
ur fiski- og hval-
veiðiskipa á leið
sinni á miðin um-
hverfis ísland.
Mikið var um
smygl frá höfn-
inni og lágu göng
sem varningur
var fluttur um til
og frá skipunum í
ólögleg vöruhús í
landi.
Samgöngur eru
góðar á
Hjaltlandseyjum
Höfnin í Leirvík
Höfuöborgin á Hjaltlandseyjum heitir
Leirvík og er á stærstu eyjunni sem
heitir Meginlandiö.
en þeir sem vilja njóta frelsis til að
skoða eyjarnar að vild ættu að hafa
bílinn með eða leigja sér bíl þrátt
fyrir að þar sé vinstri umferð eins
og á Bretlandseyjum.
Scalloway-kastali
Áriö 1468 voru Orkneyjar og Hjaltland veösett Skotlandskonungi sem
heimanmundur vegna væntanlegs brúðkaups dönsku prinsessunnar og
James III, ríkiserfingja í Skotiandi.
Svartfugl
Á Hjaltlandseyjum er ein stærsta byggö svartfugls í
heiminum.
Matur og næturlífið
Lífið á kránum getur orðið ansi
líflegt um helgar, sérstaklega þegar
flotinn er í höfn. Á neðri hæð
kránna er oft bar þar sem menn
sitja og drekka bjór og snafs en á
efri hæðunum er hægt að fá sér
létta máltíð og vín með.
Þeir sem vilja fá góðan mat á
Hjaltlandi eiga að panta sér fisk eða
lamb. Á betri veitingahúsum er
hægt að fá gómsæta fiskrétti, lax og
skelfisk eða lambakjöt af heimaöldu
ásamt salati sem meðlæti.
Eyjaskeggjar eiga ríka tónlistar-
hefð sem þeir segja að sé komin frá
huldufólki sem býr í hverjum hól.
Tónlistin einkennist af líflegum
fiðluleik og í apríl á hverju ári er
haldin hátíð sem nefnist „Folk festi-
val“ sem hljóðfæraleikarar og
áhugamenn um tónlist víða að úr
heiminum sækja.
Ýmsir gistimöguleikar
Þeir sem heimsækja Hjaltland
koma yfirleitt að eyjunum siglandi.
Norræna ferðaskrifstofan býður
ferðir með Norrænu með viðkomu í
Leirvík á Hjaltlandi, t.d. er hægt er
að stoppa eina nótt eða viku. Boðið
er upp á ýmsa gistimöguleika, allt
frá fiögurra stjörnu hótelum til gist-
ingar í herragarði frá 15. öld. Þeir
sem vilja ferðast um eyjarnar geta
einnig fundið ódýr gistiheimili úti á
landsbyggðinni.
Verð á ferðum með Norrænu er
mismunandi eftir timabilum. Svefn-
pokapláss fyrir tvo fullorðna með
bíl er á bilinu 38.500 krónur tU
71.600 krónur. Þeir sem vUja meiri
þægindi geta fengið tveggja manna
klefa með salerni og sturtu á bUinu
53.300 krónur til 99.900 krónur.
-Kip
Rhodos:
Ástmey sólguðsins
Rhodos er stærst svonefndra
Tylftareyja sem eru eyjaklasi undan
suðvesturströnd Tyrklands. Eyjan,
sem er nýr áfangastaður Samvinnu-
ferða-Landsýnar, er sannkallaður
sælureitur sem sólguðinn elskar,
enda er Rhodos ástmey sólguðsins
Helíosar í grískum goðafræðum og
ástin er enn jafn heit og fyrrum því
sólin skín aUa daga.
Um tíma réð Alexander mikli
ríkjum á Rhodos. Tyrkir og ítalir
mörkuðu einnig djúp spor í sögu
eyjunnar og forngrísk menning
blómstraði þar um tima og víða um
eyjuna er að finna minjar um hana.
Um miðbik Rhodos er 1200 metra
há hæð og í dalverpum gömul þorp
og bændabýli. Þar er einnig að
finna dal fiðrildanna, Petaloudes,
sem ferðamenn ættu ekki að láta
fram hjá sér fara.
Glampandi sól
og ylvolgur sjór
Rhodos hefur upp á flest að bjóða
sem vænst af góðri sólarströnd -
glampandi sól og ylvolgan sjó. Eyj-
eru
og
Forvitnllegar fornminjar
Forngrísk menning biómstraöi á Rhodos og víða um eyj-
una er aö finna minjar um hana.
arskeggjar
gestrisnir
brosmildir,
strendurnar
frábærar, þorp-
in vinaleg og
skemmtanalífið
líflegt, að
ógleymdum
stórkostlegum
fornminjum og
listaverkum.
Þeir sem
vilja geta farið í
skoðunarferðir
til Tyrklands
eða í dagsferð
til þorpsins
Lindos, þar sem
arabískur bygg-
ingarstíll ræður
ríkjum, og þar
er líka að finna
rústir Akrópól-
is-hofsins.
Margir telja
Lindos falleg-
asta bæinn á
Rhodos.
Ekkert liggur á
Eyjarskeggjar eru rólegir í tíöinni og
þeir þykja bæöi vingjarnlegir og
brosmildir.
Beint flug
Samvinnuferðir-Landsýn bjóða
m.a. gistingu á Hotel Golden Beach
við Ialysos-ströndina. Fyrsta ferðin
í ár er 10- 21. apríl og því næst
vorferðin frá 21. apríl til 28. maí.
Frá 28. maí er flogið með leiguvél
Atlanta í beinu flugi á tveggja vikna
fresti til Rhodos og er flugtíminn
um fimm klukkustundir. -Kip