Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2001, Side 54
62
LAUGARDAGUR 24. MARS 2001
Tilvera
I>V
Draugar og drauga-
gangur í Hollywood
4
Draugar og draugagangur hafa
veriö viðfangsefni bíómynda frá upp-
hafi kvikmyndageröar. Ein fyrsta
myndin sem fjallar um reimleika
nefnist The Haunted Man. í kjölfar
hennar hafa verið geröar nœstum
óteljandi draugamyndir, eins og
Phantom of the Opera, House on
Haunting Hill, 13 Ghosts, Beetlejuice,
Ghostbusters, The Blair Witch
Project og The Sixth Sense. Myndirn-
ar fjalla hver á sinn hátt um reim-
leika, sumar eru byggðar á frœgum
draugasögum, aórar á „sönnum" at-
buröum. Allar eiga myndirnar, sem
eru mismunandi aö gœðum, þaó sam-
eiginlegt aö reyna aó hrœöa líftóruna
úr áhorfandanum.
í Hollywood er einnig aöfinna „al-
vöru“drauga, frœgar kvikmynda-
stjörnur sem ganga aftur á heimil-
um sínum, hótelum og i kvikmynda-
verum. Á Roosevelt-hótelinu, sem
stendur viö 7000 Hollywood Bou-
levard, ganga til dœmis Montgomery
Clift og Marilyn Monroe aftur ásamt
fleirum. Gestir og starfsmenn hótels-
ins segjast oft veröa varir við stjörn-
urnar og þeir sem vinna á skiptiboröi
hótelsins fá ióulega innanhússhring-
ingar og pantanir á kampavíni og
kavíar frá látnum stórstjörnum og
stundum kemur fyrir aö gestir kvarta
vegna partíóláta í mannlausum her-
bergjum.
Marilyn Monroe í spegtinum
Sagt er að Montgomery Clift ráfi
um í herbergi númer 928, þar sem
hann bjó í þrjá mánuði árið 1953
meðan hann lék í myndinni „From
Here to Eternity". Þeir sem hafa séð
til hans segja að hann gangi
um spilandi á trompet eða
þylji upp rullur úr göml-
um myndum.
Starfsfólk og gestir
hótelsins hafa margoft
haldið þvi fram að
það hafi fundið fyrir
óþægilegum kulda og
séð spegilmynd Marilyn
Monroe í svítu númer
1200 þar sem leikkonan hélt
til þegar hún bjó á hótelinu. Svo
rammt kvað að þessu að mannhæð-
arhár spegillinn var fluttur út á
gang og virðist þokkagyðjan hafa
fylgt honum því hún hefur
nokkrum sinum sést þar. Dulfræð-
ingar sem rannsakað hafa málið
segja að svipur leikkonunnar búi i
speglinum og þeir finni fyrir dapur-
leika nálægt honum.
Árið 1989 þegar til stóð að gera
heimildarmynd um draugana á
Roosevelt-hótelinu gekk allt á aftur-
fótunum og hvert óhappið rak ann-
að. Þegar myndasmiðirnir settu upp
tæki sin og tól í herbergi 928 setti
Monty Clift allt á annan endann.
Fyrst fór rafmagnið, síðan bilaði
hljóðkerfið og þegar búið var að
gera við það fór rafmagnið aftur.
Filman flæktist hvað eftir annað í
tökuvélinni og slitnaði og þegar
mynda átti spegilinn hennar Mari-
lyn fór eldvarnakerfið í gang og
rýma þurfti bygginguna.
Þeir sem starfa og gista á hótel-
inu segjast oft sjá afturgengnar
kvikmyndastjörnur ráfa um ganga
og má þar m.a. nefna Errol Flynn,
Betty Grable, Gybsy Lee Rose og
Humphrey Bogart. Á hótelinu mun
einnig vera litil framliðin stúlka
sem annaðhvort sést grátandi eða
að leika sér. Miðillinn Peter James,
sem gist hefur á Roosevelt, segir að
hún heiti Caroline og að hún sé að
leita að móður sinni.
Superman gengur aftur
George Reeves, sem lék Super-
man í samnefndum sjónvarpsþátt-
Hollywood
Park-kirkju-
garðurinn
Meðal þeirra
stjarna sem lagðar
hafa verið til hinstu
hvílu í HoUywood Park-
kirkjugarðinum eru Rudolph
Valentino, Douglas Fairbanks og
Clifton Webb. í
gegnum tíðina
hafa margir talið
sig sjá svip Val-
entinos og annarra
stjarna í garðinum
en enginn hefur þó
birst eins oft og
Webb sem lést árið
1966. Draugur
hans ráfar um í
kringum grafhýsið
þar sem hann ligg-
ur og oftar en ekki
fylgir honum ein-
kennilegur ljósa-
gangur, kuldi og
hávær skarkali.
Webb hefur einnig
sést á fyrrverandi
heimili sínu
þannig að hann er
greinilega óákveð-
inn og órólegur
eða hefur gaman
af því að flakka á
miUi staða.
Phantom
of the Opera
Sagt er að andi
Lon Chaney, sem
lék aðalhlutverkiö
í Phantom of the
Opera, reiki um í
Universal-stúdíó-
inu þar sem mynd-
in var tekin.
Marilyn Monroe
Gestir Roosevelt-hótelsins sjá gyöjunni stundum
bregöa fyrir í spegli.
Howard Hughes
Hughes þótti mikill gleðimaður á yngri árum, eftir aö
hann lést hefur sést til hans í Pantes-leikhúsinu.
Stjörnubraut
Handan við Walk of Fame, þar
sem stjörnurnar hafa lagt hönd sína
í blautt sement og merkt sinn stað í
sögu kvikmyndanna, eigrar sál leik-
arans Viktors Kilians í endalausri
leit að morðingja sínum. Á svipuð-
um slóðum hefur sést til Lon Chan-
ey þar sem hann endurtekur í sí-
feUu atriði úr einni af myndum sín-
um þar sem hann er að bíða eftir
strætisvagni við Hollywood and
Wine.
Því er reyndar einnig haldið fram
að Chaney, sem var þekktur undir
nafninu „Maðurinn meö þúsund
andlitin", gangi ljósum logum í
kvikmyndaveri Universal-sam-
steypunnar þar sem hann lék aðal-
hlutverkið í Phantom of the Opera á
þriðja áratug tuttugustu aldarinnar.
Montgomery Clift
Monty Clift reikar um í herbergi núm-
er 928 á Roosevelt-hótelinu þar
sem hann bjó í þrjá mánuöi áriö
1953 meöan hann lék í myndinni
„From Here to Eternity“.
Howard Hughes
Árið 1949 keypti trilljónamæring-
urinn Howard Hughes RKO-kvik-
myndasamsteypuna og í kaupunum
fylgdi hið glæsilega Pantes-leikhús.
Eins og flestum er kunnugt sló Hug-
hes mikið um sig á yngri árum og
um, fannst látinn á heimili sínu
árið 1959, hann hafði verið skotinn.
Andi Reeves er ósáttur við dauðann
og honum bregður annað slagið fyr-
ir í gervi Supermans á heimili sínu
og í nágrenni þess.
Leikkonan Thelma Todd, sem
varð fræg fyrir leik sinn með Marx-
bræðrum og Buster Keaton, fannst
látin í bíl sínum 1935 og sagt er að
hún gangi aftur á kaffihúsi sem hún
rak. Þeir sem verða hennar varir
segjast flnna lykt af ilmvatninu sem
hún notaði.
Kvikmyndastjörnur ganga aftur
Margar frægar kvikmyndastjörnur eiga erfitt með aö yfirgefa þennan heim eftir dauöann og andi
þeirra ráfar um t kvikmyndaverum og á hótelum í Hollywood.
þótti mikill glaumgosi þrátt fyrir að
hann endaði ævi sína sem mannfæl-
inn sérvitringur í sjálfskapaðri ein-
angrun árið 1976.
Hughes lét innrétta glæsilega
skrifstofu á annarri hæð leikhúss-
ins og átti margar af sínum ánægju-
legustu stundum þar. Eftir að hann
lést tóku nýir eigendur við húsinu
og gerðu skrifstofuna upp og
breyttu henni i fundarsal. Skömmu
eftir að endurgerðinni lauk fór að
bera á að hlutir hyrfu og að kaldur
gustur léki um herbergið. Hlutir
féllu um koll, skrifborðsskúfur opn-
uðust af sjálfu sér og hurðarhúnar
glömruðu. Á skömmum tíma magn-
aðist draugagangurinn svo að
starfsfólk í húsinu var farið að sjá
Hughes daglega og fann sterka
vindlalykt af honum. Þeir sem hafa
séð Hughes segja að hann sé klædd-
ur í brún jakkafót og haldi sig i
næsta nágrenni við skrifstofuna.
í leikhúsinu er einnig að finna
afturgengna söngkonu sem enginn
veit deili á. Sagan segir að hún hafi
sungið nokkur aukahlutverk á sviði
leikhússins en átt sér stærri draum.
Talið er að söngkonan hafi komið i
húsið eftir að hún lést því ekki er
vitað til þess að hún hafi látist þar.
Þessi óþekkta söngkona hefur upp
rausn sína þegar hefðbundnum sýn-
ingum er lokið og búið er að
slökkva ljósin. Þeir sem hafa séð
hana á sviði segja að hún klæðist
fótum frá því um 1930, syngi eins og
engill og hneigi sig tignarlega i lok-
in en að hún sé auðsjáanlega von-
svikin þegar enginn klappar fyrir
henni.
Athyglissýki?
Kvikmyndastjömur ganga greini-
lega aftur eins og fólk úr öðrum
stéttum. Hér skal ósagt látið hvort
draugar eru algengari í þeirra hópi
en almennt gerist, frægð þeirra ger-
ir það aftur á móti að verkum að
margir þekkja til þeirra og geta þvi
nafngreint afturgönguna sem þeir
sjá.
í íslenskri þjóðtrú er sagt að aft-
urgöngur séu menn sem hafi notið
mikils heimsláns í jarðlifinu og eigi
erfitt með að segja skilið við lífið
vegna þess. Hugsanlegt er að stjörn-
urnar séu í svipaðri stöðu og vilji
njóta athygli eins lengi og hægt er.
-kip@ff.is