Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2001, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2001
Fréttir X>V
Stórbruni í íslenskum matvælum í Hafnarfirði - allt ónýtt:
Myrkur um miðjan dag
- reykský lagðist yfir Hvaleyrarholtið -
verkamaður átti fótum fjör að launa
Mikil mildi var að ekki varð mann-
tjón þegar eldur gaus upp í húsi og
höfuðstöðvum íslenskra matvæla við
Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði um
hálfsexleytið í gær. Allt tiltækt
slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var
þegar sent á vettvang og barðist við
eldinn en húsið virtist í fyrstu loga
stafna á milli. Mikinn reykjarmökk
lagði yfir Hvaleyrarholtið og var víða
sem myrkur væri um miðjan dag.
„Það voru aðeins þrír starfs-
menn i húsinu þegar eldurinn kom
upp og það má teljast mildi í sjálfu
sér því yfirleitt eru starfsmennirn-
ir 30 talsins," sagði Snorri Finn-
laugsson, framkvæmdastjóri ís-
lenskra matvæla, sem stóð í gær og
fylgdist með fyrirtæki sínu brenna.
„Það verður ekki unnið meira í
þessu húsi eins og útlitið er nú.
Mér sýnist allt ónýtt.“
Hús Islenskra matvæla var 1100
fermetrar, á einni hæð, og sam-
byggð því er Vélsmiðja Péturs
Auðunssonar. Þar var Karl Jóns-
son verkamaður að störfum utan-
húss þegar eldurinn kom upp:
„Ég fann einhverja brælulykt en
því er ég reyndar vanur úr þessu
húsi og kippti mér því ekki upp við
það,“ sagði Karl sem líklega var sá
fyrsti sem varð eldsins var. „AUt í
einu var eins og reykgusa spryngi
upp úr þakinu og reykskýið lagðist
yfir mig eins og hula. Ég náði vart
andanum og átti fótum fjör að
launa,“ sagði Karl sem tók til fót-
anna úr úr reykjarmekkinum. Þeg-
ar hann náði áttum á ný sá hann
að hús íslenskra matvæla var al-
elda.
Snorri Finnlaugsson fram-
kvæmdastjóri telur að bilun í
reykofni hafi valdið eldsvoðanum.
Verið var að reykja lax eins og svo
oft áður og augljóst að eitthvað fór
úrskeiðis: „Ég var með ágætar
DV-MYND HARI
Frammi fyrir vandanum
Slökkviliðsmenn á vettvangi á Hvaleyrarholtinu - eldtungurnar stigu til himins
og reykurinn var óskaplegur.
tryggingar og ég vona bara að þær orðið fyrir. En ég sé nú að þarna
dugi fyrir því tjóni sem við höfum verður ekki unnið aftur." -EIR
Stolin málverk
og skorin
„Það var skelfdeg sjón hér í morg-
un,“ sagði Friðrik Stefánsson, eigandi
listagallerísins Svarthamars við
Skólavörðustíg, en hann varð fyrir
því óláni að brotist var inn til hans í
fyrrinótt og tuttugu og þremur lista-
verkum stolið.
Fyrir árvekni blaðburðardrengs
var lögreglu gert viðvart um dularfull-
ar mannaferðir í galleríinu á áttunda
timanum í gærmorgun. Lögreglu-
menn komu þegar á staðinn og stuttu
seinna handsömuðu þeir mann á
hlaupum við Hallveigarstíg. Maður-
inn reyndist vera með fimm málverk
undir hendinni.
Friðrik hefur rekið galleríið í einn
mánuð og taldi húsakynnin nokkuð
örugg. „Þjófurinn fór inn um lítinn
glugga baka til og hefur þurft að beita
vírklippum því rimlar voru fyrir
glugganum," segir Friðrik.
Meðal verkanna sem stolið var eru
meðal annars myndir eftir meistara á
borð við Jón Engilberts, Jóhannes
Kjarval, Svavar Guðnason, Gunnlaug
Scheving, Ásgrím Jónsson og Svavar
Guðnason.
Hjá lögreglu fengust þær upplýsing-
ar að meintur þjófur væri enn í haldi
og hefði verið úrskurðaður í sjö daga
gæsluvarðhald. -aþ
DVA1YND ÞÖK
Skemmdarverk í Svarthamri
Friðrik Stefánsson, eigandi Svarthamars, með málverk eftir Sigurbjörn Jónsson. Innbrotsþjófurinn hefur haft fyrir því
að stórskemma myndina með hnífi.
Mekkano reynir að forðast gjaldþrot
15.000 tonnum hent
Árni M.
Mathiesen sjávar-
útvegsráðherra
kynnti í dag niður-
stöður tveggja
kannana á brott-
kasti á bolfiski.
Talið er að brott-
kast á bolfiski
nemi 25-30.000 tonnum á ári.
Brottkastsnefnd telur brottkast
þorsks nema á bilinu 4000 til 16.600
tonn.
Rannsókn á matvöruverði
Samkeppnisstofnun áætlar að
skila eftir helgina niðurstöðum
rannsóknar á þvi hvers vegna mat-
vöruverð hækkaði á sama tíma og
hækkandi gengi krónunnar hefði
átt að leiða til verðlækkunar. Sam-
kvæmt heimildum fréttastofu Út-
varps er orsaka þessara verðhækk-
ana að leita hjá stórmörkuðunum.
Quarashi hótað
Samtök íslamskra rappara i
Bandaríkjunum, Nation of Islam,
hafa haft í hótunum við íslensku
hljómsveitina Quarashi. Ástæðan er
að á plötuumslagi óútkominnar
plötu hljómsveitarinnar, Jinx, er
mynd af trúartákni Islam, grænum
hálfmána..RÚV greindi frá.
Kröfu hafnað
Hæstiréttur hefur vísað frá kröfu
um nálgunarbann á Alsírbúa sem
grunaður er um að hafa stungið
annan mann með hnífi fyrir utan
veitingastaðinn Hróa Hött í byrjun
janúar.
Pétur A. Maack hættur
Pétur A. Maack,
framk væmdastj óri
V erslunarmanna-
félags Reykjavíkur,
hefur látið af störf-
um hjá félaginu og
við hann hefur ver-
ið gerður starfs-
lokasamningur um
í samtals 15 mán-
Léleg mæting
Starfandi forseti Alþingis kvart-
aði undan því við upphaf þingfund-
ar i morgun hversu illa þingmenn
mættu til funda og að dagskrá væri
ekki fylgt. Málið verður tekið fyrir í
forsætisnefnd eftir helgi.
greiðslu launa
uði.
Auglýsinga- og almannatengsla-
fyrirtækið Mekkano ehf. rambar nú
á barmi gjaldþrots. Að sögn Gunn-
ars Steins Pálssonar, forsvars-
manns félagsins, er nú róinn lífróð-
ur til að reyna að bjarga því sem
bjargað verður en starfseminni
verður hætt á mánudag.
Gunnar tilkynnti starfsmönnum
fyrirtækisins á fundi í gær að rekst-
urinn yrði stöðvaður frá og með
mánaðamótum. Sagði hann i sam-
tali við DV síðdegis í gær að haldið
Mekkano
Umtalsverðir fjárhagserfiöleikar
steðja nú að fyrirtækinu.
yrði áfram að innheimta viðskipta-
kröfur. „Við erum að vonast til þess
að okkur takist að innheimta nógu
mikið til að geta farið í frjálsa
nauðasamninga við birgja og
þannig komist hjá gjaldþroti."
Á fundinum með starfsfólkinu i
gær kom einnig fram að stórum
hluta þess býðst að ráða sig hjá aug-
lýsingastofunni XYZ og er ætlunin
að beina viðskiptavinum Mekkanos
þangað.
„Það hafa verið miklir erfiðleikar
í rekstri Mekkanos eftir sameiningu
við netlausnafyrirtæki á síðasta
ári,“ segir Gunnar Steinn Pálsson.
Þvi miður hafa erfiðleikar síðasta
árs gert okkur mjög erfitt fyrir á
þessu ári. Nú er unnið af miklum
krafti til að reyna að fmna leiðir út
úr þeim vanda, en hann er umtals-
verður."
Um 40 manns hafa að undanfómu
starfað hjá Mekkano sem er eitt af
stærstu fyrirtækjunum á sviði aug-
lýsinga og almannatengsla. -HKr.
Olíu fór í Sandgerðishöfn
Talið er að tugir lítra af svartolíu
hafl runnið í Sandgerðishöfn. Neyð-
arlínan fékk tilkynningu um oliuna
nú síðdegis og var lögreglan kölluð
til.
deCODE að hressast?
Gengi hlutabréfa í deCODE
Genetics hefur heldur stigið frá því
það fór lægst, niður fyrir sex fyrir
skömmu. Um miðjan dag í gær var
gengið í 7,18, en byrjunargengi við
opnun markaða erlendis var 6,88.
Halldór semur við Rússa
Halldór Ásgríms-
son og Alexander
Avdéev, vara-
utaníkisráðherra
Rússlands, undirrit-
uðu í gærmorgun
samkomulag um
rannsóknir og út-
gáfu á skjölum sem
varða opinber samskipti Rússlands
og íslands.
Fundurá sunnudag
Nýr fundur í sjómannadeilunni
hefur verið boðaður klukkan 13 á
sunnudaginn. Fimm tíma fundur á
fimmtudag bar lítinn árangur.
Blaðið í dag
:
-HKr.