Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2001, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2001
Helgarblað_________________________________________________________________________________________________PV
skipta sér af stjórnmálum.
Barbra Streisand:
Skrifar um
stjórnmál
Sönggyðjan nefprúða, Barbra
Streisand, hefur hætt að syngja op-
inberlega og telur að ferli sinum á
því sviði sé lokið. Hún hefur fundið
sér nýtt áhugamál í stað söngsins
sem eru stjómmál. Barbra er eng-
inn sérstakur aðdáandi hins ný-
kjörna forseta Bandaríkjanna Georg
Bush. Henni finnst að demókratar
sofi á verðinum í sinni stjórnarand-
stöðu. Til þess að láta ekki sitja við
orðin tóm hefur Streisand ákveðið
að hvetja menn til dáða og hefur
skrifað mörgum helstu leiðtogum
demókrata harðort bréf. Þar segir
hún að nú sé ekki rétti tíminn til að
sitja með hendur í skauti og hafast
ekki að heldur verði menn að grípa
til vopna og berjast gegn því sem
Streisand kallar byltingu repúblik-
ana.
Streisand segir að Bush sé hættu-
legur maður sem muni valda miklu
tjóni í amerískum stjórnmálum ef
ekki verði brugðist við og hann
stöðvaður.
Fínullarfé til
framtíðar
- draumar um
slettuskjótt hross og
fágætt f é í Viðey
Ég stend við girðinguna og
virði fyrir mér hóp mæðra. Tvær
eru þegar orðnar mæður en fimm
vænta sín enn. Þær eru allar frá
sama bænum og með þeim í hópn-
um er faðir allra afkvæmanna,
stoltur en látlaus i framgöngu.
DV er ekki statt í sérstæðri
kommúnu heldur við sauðfjár-
girðinguna í Viðey með Ragnari
Sigurjónssyni og Oddnýju Stef-
ánsdóttur konu hans, ráðsmönn-
um í Viðey. Þau hjón hafa verið í
Viðey nær þrjú undanfarin ár og
í vetur breyttist stjórnskipan í
Viðey nokkuð þegar embætti stað-
arhaldara var lagt niður.
í Viðey hefur verið mikill bú-
skapur um aldir, allt frá klaustur-
tíð og má segja að hér hafi oft ver-
ið stunduð tilraunastarfsemi á
sviði landbúnaðar. Skúli Magnús-
son landfógeti, sem lét byggja Við-
eyjarstofu, lét rækta kúmen á ís-
landi og gerði árangurslausar til-
raunir til að rækta tóbak í eynni.
Hingað voru fluttir snæhérar á
19. öldinni sem átti að bæta í ís-
lenskt lífríki en voru drepnir þeg-
ar í ljós kom að þeir voru vondir
við æðarfuglinn, gullfugl fslands.
Leigumæöurnar góðu
Þessar sjö kindur sem Ragnar
og Oddný hafa fengið leyfi til þess
að halda i eynni eru þarna í alveg
sérstökum tilgangi. Þær eiga að
verða leigumæður fyrir ræktun á
Bændur í Viöey
Oddný Stefánsdóttir og Ragnar Sigurjónsson ráöa ríkjum í Viðey. Þau eiga sér mikla drauma um sauðfjárhald sem
þegar eru farnir að rætast. Hér halda þau á fyrstu lömbum sem fæddust á 21. öldinni í Viðey.
Hallgrímur Helgason
Meira! Meira!
Sem kunnugt er standa
nú yfir í Ríkissjónvarp-
inu sýningar á „öllum
verkum Samuels
Becketts". Sjónvarpsá-
horfendur hafa tekið
þessum stórgóðu mynd-
færslum á leikverkum
írska nóbelsskáldsins
með opnum huga og hafa
þær mælst vel fyrir.
Samuel Beckett fædd-
ist í Dublin árið 1906 og
lést í París þann 22. des-
ember árið 1989, eða öllu
heldur fannst hann þann
dag í leyniíbúð sinni í 16.
hverfi borgarinnar, en
talið er að hann hafi látist
nokkrum dögum eða jafn-
vel vikum fyrr. Beckett
var vinafár og lagði litla
stund á mannleg sam-
skipti. Skrifin voru hon-
um allt. Hann var ekki
maður fjölmiðla og yfir-
borðsmennsku. Seinustu
árin bjó hann einn og yf-
irgaf íbúð sína aðeins einu sinni á
ári, á afmælisdegi móður sinnar.
Sögur segja að þá hafi Beckett
gengiö niður í Les Invalides og
bölvað móður sinni við gröf
Napóleons. Ég tek þó fram að hér
er einungis um sögusagnir að
ræða.
Það sem ekki hefur þó komið
fram í hérlendum blaðagreinum í
tilefni Beckett-vorsins á RÚV er
sú staðreynd að nýveriö fundust
13 ný örleikrit eftir Samuel
Beckett. Frá þessu sagði fyrst í
netútgáfu bandaríska bókmennta-
tímaritsins „The Infamous
Reader“ fyrir rúmum tveimur vik-
um.
Marcus Gailsworth, prófessor í
samtímabókmenntum við Uni-
versity of Texas 1 Austin, fann
verkin í skjölum sem fjarskyldir
ættingjar skáldsins færðu bóka-
safninu 1 Trinity College í Dublin
að gjöf skömmu eftir andlát þess.
Hér er um að ræða mjög stutt ör-
leikrit, jafnvel enn styttri en „sið-
ustu verk skáldsins", og þykir tal-
an 13 bera þess merki að Beckett
hafi ætlað þeim líf eftir sinn eigin
dauða því sjálfur fæddist
hann á föstudaginn langa
sem bar upp á 13. apríl.
Marcus telur ekki nema
eðlilegt að mönnum hafi
hingað til sést yfir verkin
vegna þess hve örsmá þau
eru að formi og gerð. „Hér
sjáum við meistara að
verki, mann sem hefur eytt
allri ævi sinni í að slípa
form sitt þar til það nær
þeirri fullkomnun sem birt-
ist í þessum verkum,“ segir
Gailsworth.
Aðdáendum skáldsins til
fróðleiks birti ég þær um-
sagnir sem fylgja verkunum
13 í frétt netmiðilsins.
Last Breath
Leikverk án orða. Deyj-
andi maður liggur í rúmi
sínu og deyr í lok verksins.
Lengd: 27 mínútur.
On Hold
Gömul og gráhærð kona, klædd
í svart sjal og svart pils, situr í
ruggustól og reynir að hringja í
dóttur sina en án árangurs. Þaö er
á tali. Lengd: 13mínútur.
Coming
Unglingspiltur situr á rúmi og
fróar sér. Að því loknu bölvar
hann móður sinni fyrir að hafa
fætt sig. Lengd: 3-7 mínútur.
Coming II
Gamall maður situr á rúmi og
fróar sér. Að lokinni fullnægingu
horfir hann fram í salinn og segir:
„Það hlaut að koma að því.“
Lengd: 20-30 mínútur.
Yawn
Feitlaginn leikari situr fremst á
sviðinu og geispar annað slagiö
þar til allir áhorfendur hafa yfir-
gefið salinn. Lengd: 2-3 klst.
Very Grave
Prestur liggur hempuklæddur í
opinni gröf og fer með blótsyrði.
Lengd: 23 mínútur.
Good Bye
Leikari liggur nakinn í lokaðri
kistu á sviðinu. Annað slagið seg-
ir hann svo heyra má í gegnum
kistulokið: „Good bye.“ Lengd: 47
mínútur.
Judy
Eldri maður situr á stól og seg-
ir með reglulegu millibili: „Ég er
að hugsa um Judy.“
Lengd: 33 mínútur.
No
Sviðsstjóri segir í gegnum kall-
kerfið: „Nei.“ Lengd: 3 sekúndur.
(Dr. Gailsworth telur að þetta
hljóti að vera stysta leikrit leik-
listarsögunnar.)
Time Is Up
Leikari situr á stól og lítur ann-
að slagið á úrið og segir að lokum:
„Tíminn er búinn.“ Lengd: 1 klst.
Curtain
Sviðsmaður dregur tjald fyrir
sviðið. Lengd: 1-2 mínútur.
Hallgrímur
Helgason
skrifar
God
Þjónn kemur inn á tómt sviðið
og segir nokkrum sinnum: „Yes
Sir, what can I do for you?“
Lengd: 4 mínútur.
Fuck Off
Skáld situr við skrifborð og
skrifar orð á blað. Annað slagið
lítur skáldið út í salinn og segir:
„Á hvað eruð þið að glápa? Þetta
kemur ykkur ekkert við! Fökk
off!“ Lengd: Að vild leikarans.
Fyrir þá sem fýsir að vita meira
er slóðin www.infa-
mous.reader.com. Beckett-aðdáend-
ur um heim allan hljóta að gleðjast
yfir þessum nýfundna fjársjóði og
við skulum vona að þessi verk
verði einnig kvikmynduð og þau
rati um síðir inn I dagskrá Ríkis-
sjónvarpsins. Viö fáum aldrei nóg
af Beckett. Meira! Meira!