Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2001, Blaðsíða 27
27
LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2001_________________
DV___________________________________________________________________________________________________Helgarblað
einsemdina. Þessi maður er einn og
yfirgefinn, beiskur og gengur illa að
ná sambandi við fólk,“ segir Ellert og
upplýsir að við rannsóknir á hlut-
verkinu hafi verið leitað til sérfræð-
inga í kontrabassaleik, enda er þrem-
ur kontrabassaleikurum þakkað t
leikskránni.
„Þeir gáfu okkur mörg ómetanleg
ráð og Hávarður Tryggvason, sem er
fyrsti bassaleikari Sinfóníuhljóm-
sveitar tslands, kom á æfmgu til okk-
ar og gaf okkur góðar ábendingar.
Sýningarstjórinn okkar, Christopher
Astridge, er menntaður lágfiðluleikari
og hann var óþreytandi að tína í mig
lesefni varðandi tónlistarsögu, tón-
skáld og allt sem varðar tónlist sem
minnst er á í verkinu. Þetta kom sér
mjög vel.“
Ellert stendur einn
Ellert stendur einn á sviðinu í fárra
metra fjarlægð frá áhorfendum og
þarf að læra rúmlega 50 blaðsíður af
samfelldum texta. Er ekki erfitt að
muna þetta nákvæmlega?
„Þetta er með því mesta sem leikari
þarf að læra utanbókar. Við tókum þá
ákvörðun að hafa ekki hvíslara eða
aðstoð af neinu tagi svo ég verð að
reiða mig á sjálfan mig eingöngu. Það
hefur gengið ágætlega hingað til. Það
getur verið að það falli út ein og
ein setning en slíkt gerist alltaf,
Þetta er frábrugðið hefðbundnum
uppsetningum af því maðúr er einn
en venjulega getur maður reitt sig
á aðstoð meðleikara því i leikhús-
inu er maður aldrei einn.“
í leikritinu kemur glöggt fram
að bassaleikarinn er beiskur yfir
því hve hljóðfæri hans, sem hann
telur eðlilega eitt hið mikilvægasta
í allri hljómsveitinni, er lítils virt
og smáð. Hann er undirstaðan en
enginn heyrir í honum. Er eitthvað
líkt með starfi hans og starfi leikar-
ans?
„Það eru margir leikarar sem
lenda í því á ferli sínum að leika á
þriðja púlti og eru aldrei 1 aðalhlut-
verkum alla sína ævi. Það koma
svona tímabil og ég hef til dæmis
oft leikið á þriðja púlti. Þetta er
heimur sem við leikarar þekkjum
mjög vel. Bassaleikarinn talar mik-
ið um „fastráðningarbrjálæðið" og
sú hugmynd var aldrei langt undan
þegar við vorum að æfa verkið.
Leikarar sækjast mikið eftir fast-
ráðningu en þeir vilja líka listrænt
frelsi. Þannig má segja að öryggið
og frelsið séu andstæðir hlutir sem
við viljum samt eiga báða óskerta."
Ellert með bassann á sviðinu
„Bassaleikarinn talar mikiö um „fastráöning-
arbrjálæöiö “ og sú hugmynd var aldrei langt
undan þegar viö vorum aö æfa verkiö. Leik-
arar sækjast mikiö eftir fastráöningu en þeir
vilja líka listrænt freisi. Þannig má segja aö
öryggiö og frelsiö séu andstæöir hlutir sem
viö viljum samt eiga báöa óskerta. “
Að leika á þriðja púlti
- Er ekkert erfitt að leika á
þriðja púlti?
„Þeir sem eru að selja leikhús
’eggja mikið upp úr stjörnudýrkun
en það er ekki eins mikið gert með
hana inni í leikhúsinu. Þar ríkir
meira jafnræði og skilningur á því
eru jafnir. Það er misjafnt
á ferli sínum leikarar
toppa en þegar það gerist þá er
gaman að fá að standa í sviðsljós-
þar sem það er skærast."
Ellert segir að uppsetning verks-
ms hafi verið ákaflega skemmtileg-
hann hefur á 19 ára ferli
sínum sem leikari unnið með
Kjartani Ragnarssyni tvisvar sinn-
um áður, fyrst í Evu Lúnu sem var
söngleikur og síðan í íslensku
mafíunni eftir Einar Kárason en
bæði verkin voru sýnd í Borgar-
leikhúsinu.
Ellert er ekki bara leikari því
hann hefur starfað talsvert að fé-
lagsmálum leikara, fyrr á árum i
Félagi íslenskra leikara en síðan
hann kom til starfa í Borgarleik-
húsinu fyrir 10 árum hefur hann
setið í stjóm Leikfélags Reykjavík-
ur og er nú varaformaður þess. Á
þessum vetri var gengið frá samn-
ingi við Reykjavikurborg um að
borgin yfirtæki eignarhluta LR í
Borgarleikhúsinu og tryggði félaginu
í staðinn fastar tekjur og vist í húsinu
næstu 12 ár. Þessi samningur var
gerður á 103 ára afmæli félagsins. Er
þetta góður samningur?
Hvaða draumur er þetta?
„Það sem okkur dreymdi alltaf um
var Borgarleikhús í þeim skilningi að
borgin sæi um rekstur hússins. Þetta
var alla tíð draumur Leikfélags
Reykjavíkur um nýtt leikhús og þótt
borgin styddi okkur við að byggja
húsið þá áttum við ekki sama draum.
Þetta er góður samningur þvi nú
reynir á hvort leikfélagið stendur sig
á eigin fótum og eigin forsendum við
þessar aðstæður sem samningurinn
skapar.
Sú hugmynd sem Leikfélag Reykja-
víkur byggir á, þar sem allir félags-
menn eiga tækifæri til að hafa áhrif á
það sem er skapað í leikhúsinu og
hverjir standa þar við stjórnvöl, er af-
skaplega falleg hugmynd, fallegt form
en er deyjandi, og leikhúsrekstur sem
hreinræktaður bisness er að taka við.
Þessi samningur er okkar tækifæri til
að sýna getu okkar á þeim forsend-
-PÁÁ
VILT ÞU
Rými og þægindi, öryggi og sparneytni? Fjórhjóladrif? Gott endursöluverð?
Ertu með bíl í skiptum eða viltu gera bein kaup?
Suzuki kemur á óvart. Þú færð enn meira fyrir peningana.
BALENO TEGUND: VERÐ: 1,6 GLX 4d 1.495.000 KR. 1,6 GLXWAGON 1.545.000 KR. 1,6 GLX WAGON 4x4 1.725.000 KR. IGNIS TEGUND: VERÐ: Beinskiptur 1.448.000 KR. Sjálfskiptur 1.548.000 KR. JIMNY TEGUND: VERÐ: Beinskiptur 1.490.000 KR. Sjálfskiptur 1.620.000 KR.
SWIFT TEGUND: VERÐ: GLS3d 1.050.000 KR. WAGON R+ TEGUND: VERÐ: WAGONR+GL 1.190.000 KR. WAGON R+ 4X4 1.299.000 KR.
GRAND VITARA
3-DYRA
TEGUND: VERÐ:
GR.VITARA1,6L 1.890.000 KR.
GRAND VITARA
5-DYRA
TEGUND: VERÐ:
GR. VITARA 2,0 L 2.280.000 KR.
GR. VTTARA 2,0 L 2.430.000 KR.
Sjálfskiptur
Suzuki bílar eru alltaf á medal
þeirra sparneytnustu
Suzuki - 20 ár
á íslandi
$ SUZUKI
...
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
www.suzukibilar.is
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, slmi 555 15 50. Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Borgarnes: Bllasala Vesturlands, sími 437 15 77. Isafjörður: Bflagarður ehf., Grænagarði, slmi 456 30 95.
Hvammstangi: Bíla- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 22 30. Sauðárkrókur: Bila- og búvélasalan, Borgarröst 5, simi 453 66 70. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Egilsstaðir: Bílasala Austurlands, Fagradalsbraut 21, sími 471 30 05.