Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2001, Blaðsíða 20
20
LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2001
Helgarblað_________________________________________________________________________________________________X>V
Hamborgari í brauöi
Mikla fjölmiölaathygli vakti þegar Davíö Oddsson brá á leik fyrir Ijósmyndara
og boröaöi fyrsta hamborgara MacDonald's á íslandi. Á hinn veginn hafa
megrunarkúrar forsætisráöherrans einnig oröiö mjög umræddir meöal
þjóöarinnar og umtalaöir í kaffitímum á vinnustööum.
Aftur á móti er spurning hvort allt sé
þetta Davíð að þakka.
í viðtali við DV á fimmtugsafmæli
sínu þann 17. janúar 1998 var Davíð
Oddsson spurður hverju hann væri
stoltastur af að hafa náð fram á vett-
vangi stjómmálanna. Þar svaraði
hann því til að meginárangurinn væri
ósýnilegur. Búið væri að brjóta niður
vinnubrögð i stjómmálunum sem
áður hefðu tíðkast. „Ég hef tilhneig-
ingu til þess að benda frekar á þessa
„ósýnilegu" hluti vegna þess að þegar
fram í sækir munu þeir kannski
skipta mestu. - I sama viðtali sagði
Davíð að með vissum hætti mætti
segja að pólitísk völd borgarstjóra
væru meiri en forsætisráðherra. Síð-
amefnda embættið gæti sá sem því
gegndi í hvert sinn mótað svolítið í
hendi sér. „í samanburði við starf
borgarstjóra tekur það lengri tíma að
sjá árangur verka sinna sem forsætis-
ráðherra."
Listamaður í öllu
Halldór Blöndal, forseti Alþingis,
sem sat í ríkisstjórnum Davíðs frá
1991 til 1999, segir að hann hafi jafnt
og þétt verið að styrkja sig í sessi sem
forsætisráðherra og sé í sínum huga
einn af merkustu stjómmálamönnum
sem ísland hafi átt. Davíð hafi til að
mynda haft lag á að leiða ríkisstjóm-
ir sínár með öruggum hætti. „Auðvit-
að kemur alltaf öðru hverju upp
ágreiningur meðal flokka eða manna í
stjórnarsamstarfi, en þá reynir á að
leiðtogar nái saman og mér finnst
samstarf þeirra Halldórs Ásgrímsson-
ar hafa verið að styrkjast með árun-
um,“ segir Halldór. Um þann árangur
sem náðst hefur í forsætisráðherratíð
Davíðs segir Halldór Blöndal að efst á
blaði hljóti að verða öragg stjórn efna-
hagsmála. „Lífskjör hafa batnað
meira en áður í sögu lýðveldisins og
það þakka ég nýjum tökum í efna-
hagsmálum. Hér hefur verið byggð
upp stóriðja, frjálsræði í viðskiptum
og á fjármálasviði hefur aukist jafnt
og þétt og með einkavæðingu banka
og ríkisfyrirtækja hefur svigrúm at-
vinnulífsins vaxið, sem hefur skapað
skilyrði fyrir meiri grósku i efnahags-
lífinu en áður. Þess sjást merki á öll-
um sviðum þjóðlifsins," segir Halldór.
„Davíð Oddsson er listamaður í
öllu því sem hann gerir. Mér þykir
vænt um smásögurnar hans, sem falla
vel að upplestri, ef til vill vegna þess
að Davíð er snjall ræðumaður. Mér
fellur Davíð vel, bæði sem persóna og
stjórnmálamaður. Hann hefur skarpa
dómgreind og er gæddur raunsæi,"
segir Halldór Blöndal.
íhalds- og frjálshyggjumaður
Forsætisráðherra samfleytt í áratug:
Osýnilegur
listamaður
- elskaður og hataður. Orðheldinn en hömlulaus.
Fastur í sessi en á eftir að slá met Hermanns Jónassonar
nefnda þar. „Virðulegi forseti. Þetta
leikrit Sjálfstfl. hér i þingsalnum er
satt að segja orðið mjög ómerkilegt.
Og lengi skal manninn reyna, hæstv.
forsrh. Að hæstv. forsrh. skuli taka
þátt í þessu leikriti með svo ómerki-
legum hætti sem hann gerði hér. Ég
hélt satt að segja ekki, og vona að mér
fyrirgefist að ég segi það, að svona
skítlegt eðli væri inni í hæstv. forsrh.
en það kom greinilega hér fram,“ seg-
ir orðrétt í Alþingistíðindum þar sem
vitnað er til núverandi forseta ís-
lands.
Árgæska og ósýnilegir hlutir
En hvemig hefur Davíð Oddssyni
svo tekist til á sínum langa ferli sem
forsætisráðherra? Marga mælikvarða
er þar hægt að nota til að svara þeirri
spurningu en bestu svörin fást sjálf-
sagt með því að athuga hvernig til hef-
ur tekist með stjórn efnahagsmál-
anna. Árgæska og góðæri hefur ríkt
lengst af i valdatíð Daviðs og það hef-
ur létt róðurinn, meðal annars svo
tekist hefur að snúa rekstri ríkissjóðs
úr miklu tapi í góðan hagnað. Verð-
bólga hefur haldist í prósentustigum
sem telja má á fingram annarrar
handar og gott jafnvægi hefur ríkt á
flestum sviðum í þjóðarbúskapnum.
„Venjulegur maður
að mörgu leytl"
Það hefur heldur ekki vantað á að
stór orð hafi í áranna rás fallið um
Davíð Oddsson og það á báða vegu.
Góðvinur Davíðs, prófessorinn Hann-
es Hólmsteinn Gissurarson, var há-
Fornir fjendur
Davíö Oddsson og Ólafur Ragnar Grímsson ræöa saman í vinsemd en
margar lotur tóku þeir meöan sá síöarnefndi sat enn á þingi.
Ég vona að stjórnarmyndunarviðrœðurnar taki ekki
nema fjóra daga. Annars get ég ekki séð að neinar
hindranir verði á veginum. Við Jón Baldvin erum
búnir að hittast þrisvar sinnum og talast nokkrum
sinnum við í síma. í viðrœðum okkar höfum við lagt
drög að hinum formlegu viðrœðum.
Þannig komst Davíð Oddsson, þá
borgarstjóri, þingmaður og nýr for-
maður Sjálfstæðisflokksins, að orði í
samtali við DV þann 27. apríl 1991 eða
fyrir réttum tíu árum. Ný rikisstjórn
kennd við stjómarmyndunarviðræð-
urnar sem fram fóra í Viðey tók við
völdum 30. apríl og sat í fjögur ár. En
Davíð hefur verið þaulsætnari. Hann
hefur nú verið í forystu þriggja ríkis-
stjóma í heflan áratug, fyrst með Al-
þýðuflokki frá 1991 til 1995 og síðan þá
með Framsóknarflokki. Og virðist
fastur í sessi.
Elskaöur og hataður
Davið Oddsson er einn af umdeild-
ustu mönnum þjóðarinnar, ef ekki sá
umdeildasti. Hálfvelgja í viðhorfum
til mannsins er tæpast til. Þetta hefur
glögglega komið fram í könnunum DV
á vinsældum og óvinsældum ein-
stakra stjómmálamanna. í mars 1991
var Davíð vinsælastur stjórnmála-
manna meðal 17% þjóðarinnar, en
óvinsælastur meðal 7,5% hennar. í
könnunum sem DV hefur gert eftir
þetta er athyglisvert að sjá að tölurn-
ar í báðar áttir verða sífellt hærri og
eftir því sem Davíð er meira elskaður
þeim mun meira hataður er hann.
Þannig var Davíð vinsælastur meðal
45,5% landsmanna í september 1999 á
sama tíma og sá óvinsælasti meðal
fjórðungs þjóðarinnar. í könnun DV í
janúar sl. setti Davíð svo óvinsælda-
met, þá var hann óvinsælasti stjóm-
málamaðurinn meðal 45,1% lands-
manna.
stemmdur mjög í Morgunblaðsgrein
um Davíð iimmtugan 17. janúar 1998.
„Ein meginskýringin á vinsældum
Davíðs Oddssonar með þjóðinni kanrs
einmitt að vera, hversu venjulegur
maður hann er að mörgu leyti. Með
þvi er ekki aðeins átt við það, að hin-
ar einfóldu og skýra skoðanir Davíðs
á stjórnmálum fara saman við það,
sem þorri þjóðarinnar telur eðlilegt
og rétt, hvað sem líður skiptingu í
flokka. Hitt er rétt, að þjóðin skynjar
að hann á sér fleiri áhugamál en
valdabráttuna eina. Hann hefur ekki
sett sál sína að veði fyrir sigri í stjórn-
málabaráttunni."
Af umræðum á hinn veginn stend-
ur efalítiö upp úr hörð snerra Davíðs
Oddssonar og Ólafs Ragnars Gríms-
sonar á Alþingi 12. febrúar 1992 þar
sem deilt var um auglýsingakostnað
fjármálaráðuneytisins í tíð þess síðar-
Skáldið og bókln
Brosmildur forsætisráöherra heldur á smásagnasafninu Nokkrirgðöir dagar
án Guönýjar sem hann gaf út fyrir fáeinum árum. Smásögurnar þóttu góöar
og bókin rokseldist.
Yfírlit yfir forsætisráðherra íslands frá 1917 Nafn Stúd. Menntun hve lengi v/ð völd
Jón Magnússon MR lögfr. 7 ár 170 dagar
Slgurður Eggerz MR lögfr. 2 ár 15 dagar.
Jón Þorláksson MR verkfr 1 ár 50 dagar
Tryggvi Þórhallsson WJif MR guðfr. 4 ár 279 dagar
Ásgeir Ásgeirsson MR guðfr. 2 ár 55 dagar
Hermann Jónasson MR lögfr. yjp 10 ár 83 dagar
Ólafur Thors MR las lögfr. 9 ár 362 dagar
Björn Þórðarson MR lögfr. 1 ár 309 dagar
Steingrímur Steinþórsson búfræðlngur 3 ár 181 dagur
Emil Jónsson MR verkfr. 332 dagar
Bjarni Benediktsson MR logfr. 6 ár 238 dagar
Jóhann Hafstein MA lögfr. 1 ár 4 dagar
Ólafur Jóhannesson MA lögfr. 4 ár 90 dagar
Geir Hallgrímsson MR lögfr. 4 ár 3 dagar
Benedlkt Gröndal MR sagnfr. 116 dagar
Gunnar Thoroddsen MR lögfr. 3 ár 107 dagar
Steingrímur Hermannsson MR verkfr. 6 ár 258 dagar
Þorstelnn Pálsson Ví lögfr. 1 ár 82 dagar
Davíð Oddsson MR lögfr 30 apríl 2001 slétt 10 ár.