Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2001, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2001, Blaðsíða 40
r Tilvera LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2001 DV Krimmi á Kringlukránni Framlágur smákrimmi sat við . borð með grátandi stelpu og út- ^skýrði fyrir henni, að hann lemdi hana, af því að hún gerði hann svo æstan. Þetta var allur gestahópur- inn á víðáttumikilli og snyrtilegri Vínber Kringlukrá. Breytileg lofthæð, óreglulegir veggir og hlykkjótt af- greiðsluborð milda stærðina og gera salinn að notalegasta veitingarými Kringlunnar tO að drekkja sorgum undir þreytandi síbylju útvarps. Vínber vaxa á vínviði sem er talinn eiga uppruna sinn í Litlu-Asíu en hef- ur breiðst út sem nytjaplanta um allar álfur. Sú planta er ein elsta rækturn- arplanta mannkyns, hefur verið rækt- uð í 5000-6000 ár og er til í þúsundum afbrigða. Vínberin eru ýmist græn eða blá og vaxa í þéttum klösum. Þroskuð vínber eru auðug af sykri og eru eink- um notuð til víngerðar en einnig höfð til matar og unninn úr þeim ávaxta- safi. Reyndar er vín einnig notað til að bragðbæta mat og á vínræktarsvæðum eins og í Frakklandi og Ítalíu er matur stundum beinlínis soðinn í víni. Rús- ínur og kúrennur eru þurrkuð vínber. Vín- ber fara einstaklega vel með ostum og eru því ómissandi á ostabakka og einnig eru þau fersk í ábætisrétti. Þau eru fal- leg á borði og fara því vel sem skraut, bæði í matar-og kaffiveislum. Matseðlll með gloppum Ekki var búizt við mörgum mat- argestum, þvi að ýmislegt á mat- seðlinum var ekki fáanlegt. Ég fékk þó matarmikla og mikið rjómaða sjávarsúpu með rækjum og hörpu- fiski; seigan smokkfisk á sterkri tómatsósu; steiktan steinbit með mildri og fínni chili-sósu; svo og hversdagslegt hakkabuff með kapers, sem bjargaði réttinum. Staðlað meðlæti var eins með kjöti og fiski. Sem matstaður var kráin þolanleg, en ekki mikið meira. Rangali á Café Bleu Gestir Borgarleikhússins hafa ekki í góð hús að venda, ef þeir hyggjast fá sér að borða fyrir sýn- ingu. Matstaðir Kringlunnar eru eiginlega upphafnir skyndibitastað- ir, ekki sam- bærilegir við meðaltal mat- staða utan hins verndaða um- hverfis. Að hætti Kringlunnar eru þetta staðir ímyndar umfram innihald. Að Café Bleu frátöldu eru þeir mikið og sumpart vel hannaðir sem húsnæði, en matreiðslan er ekki gimileg, einna skást og sérkennilegust í Café Bleu, óvenjulega stíllausum rangala sibreytilegs útlits, þar sem lífleg og vökul þjónusta er bezti kosturinn. Hard Rock er að þreytast Elzti og háværasti staðurinn á svæðinu er Hard Rock, sem hefur slakað á matreiðslu og þjónustu, sem núna er meira elsku- leg en at- hafnasöm, enda þarf staðurinn ekki lengur að gera hosur sínar grænar fyrir bama- fólki og túrist- um, sem koma hvort sem er. Ég fékk engin hnífapör með lítt glæsi- legum rétti, hæfilega creole-grilluð- um og góðum steinbít með litlum og hörðum rækjum. Grænmetissalatið var líka fremur gott og lítt glæsi- legt. Færiband komið í Eldhúsið Ég á erfitt með að ræða Eldhúsið, því að ég hef komið þar fjórum sinn- um og alftaf fengið óvenju illa gerð- an mat. Nú sýnist mér hafa verið skipt um eigendur og matseðil, svo að ég þarf sjálfsagt að skipta um skoðun, en ég treysti mér varla til að reyna einu sinni enn. Takmörk hljóta að vera fyrir þvi, hvað maöur leggur á sig fyrir hugsjónina. Ég var samt nýlega kominn inn úr dyrun- um, en sá þá, að innan við anddyrið hafði veriö smíðaður risavaxinn matbar með réttum á færibandi, í bókstaflegum skilningi. Mér féllust hendur og ég lagði á flótta. Svlpað mllliverð Allir þessir staðir eru á svipuðu milliverði, á kvöldin að meðaltali þríréttað með kaffi á 3.200 krónur í Café Bleu, 3.400 krónur á Hard Rock, 3.600 krónur á Kringlukránni og eitthvað hærra í Eldhúsinu. Jónas Kristjánsson Prýðileg með fiski: Ostur og vínber mynda ferska fyllingu „Vínber henta vel, bæði með fiski og kjöti,“ segir Brynjar Bergþórs- son, matreiðslumaður á veitinga- staðnum Lauga-ási, og heldur áfram: „Með bragðsterkum mat eins og villibráð gefa þau þetta ferska, ei- lítið súra bragð sem er svo eftir- sóknarvert sem mótvægi við kjötbragðið og með osti passa þau prýðilega með fiski. Vín- ber eru líka afar góð í fersk salöt og eftirrétti.“ Brynjar segir miklu skipta að velja vin- berin vel og klasarnir séu þétt- ir og fastir í sér. Uppskriftin sem Brynjar lætur í té er að ljúf- fengum fiskrétti fyrir fjóra, þar sem ostur og vínber mynda ferska fyll- ingu. Fyllt stórlúða með camem- bert, vínberjum og rauðvíns- vínberjasósu 4 stórlúðustykki, 180 g hvert. Vasi skorinn í hliðina á þeim fyrir fyllingu hveiti salt og hvítur pipar Fyllingin 1/2 camembertostur (skor- inn í Lúðan er lögð á ferskt salatið Bráöinn osturinn lekur aöeins út og hjúpurinn ofan á er stökkur og brak- andi. Sósan er svo punkt- urinn yfir iiö. þar til osta- hjúpurinn er orð- inn gullinbrúnn. Sósan 100 g rauð vínber, afhýdd og kjamhreinsuð (geymið hýðið) 2 stk. skallottulaukur (flnt saxað- ur) hýðið af vínberjunum 4 dl fisksoð (eða vatn og fiskten- ingur) 2 dl rauðvín 100 g kalt smjör salt og pipar Aðferð Laukurmn og vmberjahyð- ið hitað örlítið í smjöri. Rauðvíninu bætt út í og soð- l ið niður um helming. Þá Éi er fisksoðinu bætt DV-MYNDIR HARI Brynjar Bergþórsson mat- reiðslumaður Þetta ferska, eilítiö súra bragö er svo eftirsóknarvert“ Bakadir ávexir Vínber, plómur, nektarínur, ferskjur, perur, bananar og jarð- arber eða aðrir eðalávextir, sem orðnir eru vel þroskaðir, eru skolaðir og skornir niður til helminga. Kjarnar og steinar eru fjarlægðir. Ávextimir eru lagðir í grunnt eldfast mót og slatta af vanillusykri stráð yflr. Ef koníak er til á heimilinu er gott að setja nokkra dropa af því yfir ávextina. Ofn- inn er settur á hæsta hita, ávöxtunum stungið inn í hann og hafðir þar ca 5 mínút- ur þar til þeir eru orðnir mjúkir. Borið fram með þeytt- um rjóma, vanilluís eða mascarponeosti, W bættum með vanillu- sykri. Kældir ávextir 150 grömm af vínberjum, tveir bananar, flórðungur úr melónu, tvö epli, tvær appelsínur, tvær perur, hálfdós af blönduðum ávöxtum, 100 g af döðlum, 100 g súkkulaði og 100 g hnetur er skorið niður. Kjamar og steinar úr ávöxtunum flarlægðir. Öllu blandað saman ásamt safa úr 1- 2 sítrónum, 3/4 bolla af sykri og 1 bolla af ávaxtasafa. Sett í stóra skál og hún höfð í frysti í 2- 24 klukkutundir. Borðist með þeyttum rjóma. sneiðar) 100 g rauð vínber sem búið er aö af- hýða og kjam- hreinsa. Ostahjúpur 150 g ósaltað smjör (bráð- ið) 100 g brauðrasp 100 g rifinn mozzarellaostur Þessu er öllu blandað sam- an. Aðferð Fyllingunni er komið varlega fyr- ir í lúðustykkinu þannig að osti og vínberjum er raðað í vasann á víxl. Fiskinum er velt upp úr hveiti og brúnaður á pönnu í 2 mínútur á hvorri hlið og kryddað með salti og pipar. Loks er ostahjúpnum smurt ofan á fiskinn og hann bakaður við yfirhita á 170 í ca 8-10 mínútur eða með salti og pipar. Sósan er siðan sigtuð og afhýddu vín- berin sett út í í lokin. At- hugið að með því að nota vínberjahýðið nær maður góðum lit og bragði í sósuna. Gott er að bera þennan rétt fram með til dæmis fersku salati, hrísgrjónum eða bara ykkar uppáhalds- meðlæti. -Gun Lambagrýta með vínberjum Takið hálft kíló af vínberjum og skerið þau í tvennt og hreins- ið steinana úr. Steikið þau létt í ólífuolíu á pönnu og takið þau síðan af eldinum. Skerið niður eitt kíló af súpukjöti, hreinsið af því mestu fltuna og steikið. (Nett bein mega samt vera með). Kryddið með sítrónupipar og salti. Hitinn lækkaður og þrír dl af vatni settir á pönnuna. Soðið í um það bil klukkutíma. (Gæta þess að vatnið sjóði ekki upp). Vínberin sett út í þegar um 20 mínútur eru eftir. Góð rjómaskvetta er sett út í í lokin. Gott með ekta kartöflustöppu. út í Og soðið niður um 1/3. Loks er kalda smjörinu hrært út í, bragðbætt Næringargildi Vínberin eru bæði holl og góð og sætustu tegundirnar eru sælgæti af bestu gerð. Þau eru fitulaus, rik af C- vítamíni og steinefnum og þykja afar góður kostur fyrir barnshafandi konur. I einum bolla, ca 90 g, eru: Hitaeiningar 61 Kolvetni 15 g Prótín 0,6 g Járn 0,3 g
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.