Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2001, Blaðsíða 42
50
LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2001
I>V
Formúla 1
UMMÆU Oi
David Coulthard, McLaren Mercedes
„Ég hlakka til spœnska kappakstursins þar
sem ég vonast til að geta bœtt góðan ór-
angur minn það sem af er tímabilinu og
haldið stöðu minni ó stigatöflu ökumanna.
Við prófum reglulega ö þessari braut svo
við þekkjum hana vel."
Mika Hakkinen, McLaren Mercedes
„Árangurinn hefur ekki verið góður undan-
farnar keppnir en heimsmeistarakeppnin
er enn opin. Enginn er of langt I burtu og
það er enn fullt af stigum í pottinum. Ferill
minn ö Barcelona er að ég hef unnið þar
síðustu þrjör keppnir."
Heinz-Harald Frentzen, Jordan Honda
„Ég kann vel við Barcelona en þar sem við
prófum bílana svo rosalega oft þar þekki
ég brautina mjög vel og er keppnin því
minni óskorun. Hún er að vísu mjög krefj-
andi og maður þarf að vera í mjög góðu
formi til að aka vel. Þetta er ein af hraðari
brautunum með hröðum beygjum þar sem loftafl bílanna
leikur lykilhlutverk."
Ralf Schumacher, BMW-WilliamsFl
„Það er erfitt að spö hvar við stöndum,
okkur tókst vel upp við prófanir ó
Barcelona ó meðan öðrum gekk ekki eins
vel. Við eigum enn talsverða vinnu eftir til
að bœta gripstýringu bílsins svo við verð-
um bara að bíða og sjó hvað kemur til
með að gerast."
Eddie Irvine, Jaguar Racing
„Það sem skiptir mestu móli ó Barcelona
eru langar hraðar beygjur þar sem loftaflið
og hjólbarðar koma til með að skipta öllu
móii. Einnig getur vindurinn spilað stórt
hlutverk, sérstaklega þar sem hann skiptir
oft um ótt. Einnig er þetta fyrsta keppnin
þar sem við keppum með allt rafmagnsdótið í bílunum ó
ný."
Pedro de la Rosa, Jaguar Racing
„Ég trúi þvi varla að jómfrúakstur minn fyrir
Jagúar verði ó heimavelli mínum. Fólk ger-
ir róð fyrir að ég kunni brautina betur en
allir aðrir því ég kem fró Barcelona og ég
vildi bara að svo vceri. Ég þekki brautina
jafn vel og allir aðrir Fl-ökumenn. Við próf-
uðum þarna nýverið og ég geri ekki róð fyrir að verða ofar
í rósröðinni en undanfarið."
Í
MannabreytSngar hjá
Jaguar og Prost
1 PEDRO DE LA ROSA
Fæddur: 24. febrúar 1971
Fyrsta keppni: Ástralía 1999
Fjöldi keppna: 33
Besti Fl-árangur: 6. sæti
2000: Arrows
1999: Arrows
1998: Jordan, prufuökumaður
1997: Japan Nippon F3000 meistari
Hlutirnir gerast hratt í Formúlu
1 og það sannaðist í síðustu viku er
Jagúar- og Prost-liðin ákváðu bæði
að skipta út öðrum ökumanni sín-
um. Allt frá upphafi tímabilsins, er
Pedro de la Rosa hafði verið rænt
úr greipum Prost-liðsins af Jagúar,
voru vangaveltur um að Spánverj-
inn kæmi i stað annars ökumanns
Jagúar. Pedro er mikils metinn i
Formúlu 1 heiminum og var ráð-
inn til græna kattarins sem prufu-
ökumaöur með loforð um öku-
mannssæti fyrir 2002. Báðir öku-
menn Jagúar gátu misst sæti sitt
og ekki síst Eddie Irvine, sem af
mörgum er talinn yfirborgaður
peningagrís með þverrifuna á rétt-
um stað. Einnig var pressan á
Luciano Burti sem hafði aðeins
ekið eina keppni áður en tímabilið
hófst og var í vandræðum með að
heilla yfirmenn liðsins, þá Bobby
Rahal og Niki Lauda. En Burti var
sannfærður um að hann kæmi til
með að aka út árið en var sáttur
við að víkja fyrir reyndari öku-
manni þegar tímabilinu lyki.
Fljótt skipast veður í lofti
Það var þó rétt eftir Imola-
kappaksturinn að Niki Lauda kom
með undarlega yflrlýsingu er hann
tilkynnti að ökumannspar Jagúar-
liðsins fyrir næsta ár yrðu þeir
Eddie Irvine og Pedro de la Rosa.
Þetta setti Burti í uppnám og erf-
iða aðstöðu. Á fimmtudagsmorgun
í síðustu viku hóf Burti prófanir
fyrir Jagúar-liðið en seinna sama
dag var hann kominn um borð I
Prost-bil til aö máta sæti. Sjaldgæft
samkomulag milli Jagúar og Prost
um skipti á ökumönnum varð að
veruleika eftir að Alain Prost sá
sig tilneyddan að losa sig við Gast-
ón Mazzacane. Argentínumaður-
inn hafði sýnt fremur slaka til-
burði í þeim íjórum keppnum sem
liðnar eru og sóttist Alain stíft eft-
ir de la Rosa í hans stað en að lok-
um fékk hann Luciano Burti.
Aftur á ráslínuna
Spánverjinn Pedro de la Rosa
verður því við hlið Eddie Irvine í
Barcelona um helgina og hefur
jómfrúakstur sinn fyrir Jagúar á
heimavelli. „Það er ágætt en ég
hefði heldur viljað byrja annars
staðar en í Spánarkappakstrinum
því það verða gerðar til mín mikl-
ar væntingar. Ég held að það sé
betra að fara rólega af stað,“ sagði
kappinn eftir að hann hafði verið
færður í tign innan Jagúar. „Það
er mjög slæmt ef ökumaður ein-
blínir eingöngu á liðsfélaga sinn,“
segir hann um Irvine og saman-
burðinn á þeim tveim. „Ég held að
mín mesta áskorun snúi að mér
sjálfum. Maður þarft helst að vera
jafn fljótur eða fljótari en liðsfélag-
inn til að halda út i Formúlu 1“ og
bætir við að innbyrðiskeppni
komi liöinu alltaf til góða. „Ég
þekki Eddie vel og hann þekkir
mig. Ég er með góðan húmor og ég
veit að hann getur einnig átt góða
spretti svo það vérða eflaust engin
vandamál." Pedro hóf Formúlu 1
feril sinn hjá Jordan sem prufu-
ökumaður en færði sig síðan yflr
til Arrows þar sem hann vann sitt
fyrsta stig í sinni fyrstu keppni.
Hann var síðan rekinn þaðan rétt
fyrir yflrstandandi tímabil þegar
peningadrengurinn Enrique
Bernoldi var tekinn inn í hans
stað. Hann veit því nákvæmlega
hvernig Burti líður þessa dagana
en segist ekki hafa neinn móral
gagnvart honum. „Þetta kom fyrir
mig hjá Arrows, svo veit ég að
hann er sáttur. Þetta var best fyr-
ir alla.“
-ÓSG