Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2001, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2001, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2001 Fréttir DV Hætta á að skilvirkni dómstóla muni minnka, segir formaður dómarafélagsins: Heiti potturinn Málum fjölgar - dóm- urum fækkar um þrjá - skipulagsbreyting í kjölfar hæstaréttardóms 1994 dregur dilk á eftir sér Þriggja ára setning þriggja hér- aösdómara, tveggja í Reykjavík og eins á Reykjanesi, mun renna út í lok júní. „Álag hefur aukist á hér- aðsdómstóla síðastliðið ár. Þetta þýðir að óbreyttu meira álag á hér- aðsdómarana. Það er mjög slæm þróun þegar litið er til þess aö skil- virkni dómstóla hefur almennt ver- iö góð síðastliðin ár. Fyrir liggur að málastaða Hæstaréttar er nú mjög góð vegna þeirrar miklu vinnu sem þar hefur verið unnin á síðastliðn- um árum. Það getur því stefnt í það að flöskuhálsinn verði hjá héraös- dómstólunum," segir Helgi I. Jóns- son, formaður Dómarafélags ís- lands. Mikil aukning hefur verið á munnlega fluttum einkamálum í Héraðsdómi Reykjavikur á síðasta ári og sakamálum hefur einnig greinilega fjölgað. Svipaö má segja um næststærsta dómstólinn, Hér- aðsdóm Reykjaness. „Ef þrir dómarar hætta eykst álagið enn meira,“ segir Helgi. „Ef dómurum verður ekki fjölgað til að létta undir eru líkur á að mál fari að dragast. Ástandið hefur verið í góðu lagi síðustu misseri en nú eru blik- ur á lofti," segir Helgi. Ástæða þess að setning dómar- anna þriggja rennur út í lok júní á rætur að rekja aftur til ársins 1994 þegar Hæstiréttur komst aö þeirri niðurstöðu að fulltrúar héraðsdóm- ara mættu í raun ekki kveða upp dóma á sama hátt og dómarar. Var dómskerfið þá endurskipulagt með hliðsjón af því. Þeir þrír dómarar sem um er að ræða, og reyndar einn annar, sem nú hefur verið skipaður héraðsdóm- ari, voru síðan settir héraðsdómar- ar til 30. júní 2001. Var þannig um að ræða ákveðinn aðlögunartíma fyrir þá dómarafulltrúa sem lengst höfðu gegnt þeim störfum. Setning- artími þremenninganna sem settir héraðsdómarar er nú senn úti. „Það er alveg óljóst hvað gerist,“ segir Helgi. Umræddir dómarar eru Júlíus Georgsson hjá Héraðsdómi Reykja- ness og Þorgerður Erlendsdóttir og Ragnheiður Bragadóttir i Héraðs- dómi Reykjavíkur. -Ótt Samræmd próf: Unglingar til sóma Hvergi kom til vandræða og allir voru sjálfum sér og öðrum til sóma. Þetta er mat lögreglu, foreldra og annarra á því hvernig til tókst í Reykjavík á fimmtudag eftir lok samræmdra prófa. Síðasta prófinu, sem var í stærðfræði, lauk um há- degi og fljótlega eftir það lögðu skólanemar og kennarar þeirra upp í ferðalög. Haldið var til ævintýra úti á landi, þar sem áhersla var lögð á að allur skemmtu sér vel á heil- brigðan hátt. Sumir komu til baka að kveldi - en aðrir í gær. Það er mat lögreglu að með sam- hentu átaki hafi tekist að koma í veg fyrir ólæti og unglingadrykkju sem oft var áberandi eftir sam- ræmdu prófin. Nú séu hlutir komnir í réttan far- veg og að það hafi tekist sé mest réttu hugarfari að þakka. -sbs Vararaflsstöð í Smáralind: Ákveðið að taka tilboði Brimborg- ar og Genetech Stjóm Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar hefur lagt til við borgarráð að tilboði lægstbjóðanda, Genetech AB í umboði Brimborgar hf., verði tekið vegna kaupa Orku- veitu Reykjavíkur á vararafstöö fyr- ir Smáralind í Kópavogi. Tilboð Genetech AB hljóðar upp á 79.751.603 krónur en alls bárust 14 tilboð í verkið. Viðhaft var opið út- boö á EES-svæðinu og voru tilboð opnuð 4. apríl sl. Var fallist á að taka áðumefndu tilboði samkvæmt ráðlegginu Rafteikningar hf. sem var ráðgjafl Innkaupastofnunar við mat á tilboðum. -HKr. Ekki fundað milli Atlanta og Flugleiða Ekkert verður af fyrirhuguðum fundi Atlanta og Flugleiða nú í vik- unni en um síðustu helgi voru líkur á að forráðamenn félaganna myndu hittast með hugsanlegt samstarf í huga. Samkvæmt heimildum DV er hugsanlegt að aðilar hittist í næstu viku en ekkert er afráðið meö það. Litlar líkur eru aukinheldur sagöar á því að stórtíðinda yrði að vænta af slíkum fundi. -gk Sómafóik Nemendur sem luku samræmdum prófum á flmmtudag yoru landl og lýö til sóma í hvívetna. Þessar stúlkur í Öldu- túnsskóla útskrifast á næsta ári. Hér taka þær í spil í frímínútum og áhuginn er óskiptur. Þeirra bíöur á næsta ári óvissuferö með foreldrum og kennurum þar sem heilbrigö skemmtun veröur í öndvegi. Óvissa með rafmagns- öflun til Noröuráls Landsvirkj- un á ekki sæti í nefnd stjórn- valda sem nú situr á við- ræðustóli með forsvarsmönn- um Norðuráls um fyrirhug- aða stækkun álversins á Grundartanga. Þorsteinn Hilm- arsson, upplýsingafulltrúi Lands- virkjunar, segir að ákveðin vinna eigi sér þó staö hjá fyrirtækinu vegna óska Norðuráls um stækkun- ina. Tvöföldun afkastagetu kallar á gríðarlega orku og til að hún geti orðið að veruleika þarf að virkja og eru nokkrir kostir til skoðunar. „Eiginlegar samningaviðræður eru ekki hafnar, enda liggur ekki fyrir hvaða útfærsla verður ofan á,“ segir Þorsteinn, en neitar því þó að þeir sitji á hliðarlínunni í málinu. Vatnsfellsvirkjun mun þjóna stækkun verksmiðjunnar úr 60.000 tonnum í 90.000 í ár og Landsvirkj- un hefur fengið heimild frá ríkinu til virkjunar við Búðarháls sem er milli Hrauneyjafossvirkjunar og Sultartangavirkjunar. Miklu meiri orku þarf þó til ef áætlanir um 180.000 tonn árið 2004 eiga að ganga eftir. Veita við Norðlingaöldu er til skoðunar sem og 6. áfangi við Kvísl- arveitu en þessir möguleikar eru sýnd veiði en ekki gefin. „Þessir kostir eru viðkvæmir í umhverfislegu tilliti og ef þeim verður hafnaö getum við sem fyrir- tæki ekki afhent það rafmagn sem þarf fyrir Norðurál fyrr en árið 2006 auk þess sem kostnaöur yrði hærri,“ segir Þorsteinn. Á hinn bóginn telur Landsvirkj- un að Austfirðingar þurfi ekki að hafa neinar áhyggjur af þróun Norð- uráls, enda segir Þorsteinn að stór- iðja á Austurlandi og stækkun Norðuráls fari mjög vel saman. Tel- ur hann skynsamlegt að ráðstafa jafn mikilli raforku og þarf í þessi tvö fyrirtæki? „Já, já. Við erum að- eins að nýta um 17-19% af okkar möguleikum i dag og eigum marga virkjunarkosti.“ -BÞ Halldór svarar „Sóló“ Davíðs Odds- sonar forsætis- ráðherra um Evrópusam- bandsmálin í Evrópuferð hans á dögimum vakti mikla athygli, en þar blessaði hann EES-samninginn og samskipt- in við Evrópusambandið i hástert ásamt framkvæmdastjóra og for- seta Evrópuráðsins. Halldór Ás- grimsson utanríkisráðherra sat hljóður hjá enda álita framsóknar- menn að hlutirnir séu ekki bara svartir og hvítir og að ýmsu þurfi að huga varðandi þessi mál. Hall- dór svaraði svo fyrir sig þegar hann fékk Jagland starfsbróður sinn frá Noregi til að koma til ís- lands i síðustu viku og var sérstak- lega tekið fram að þeir og þeirra menn væru að fara yfir „þau vandamál" sem eru í samskiptum Islands og Noregs við Evrópusam- bandið en Davíð og hans menn segja þau vandamál ekki til. Ekki líkt Alla Páll Pét- ursson félags- i málaráðherra upplýsti á Al- þingi hvaða fyr- irtæki það eru í fiskvinnslu sem hafa sent starfs- fólk sitt heim launalaust og kom ýmsum á óvart að sjá þar á meðal fyrirtæki Samherjamanna á Dalvík og ekki síður Hraðfrystihús Eskifjarðar. Menn hafa talið að það myndi ek”ki ríða Samherja að fullu að greiða starfsfólkinu muninn á milli atvinnuleysisbóta og kaup- tryggingar, þessu öflugasta útgerð- ar- og vinnslufyrirtæki landsins. Þá eru menn á einu máli um að væri Aðalsteinn Jónsson, eða Alli ríki eins og hann er jafnan kallaður, enn við stjórnvölinn hjá Hraðfrystihúsi Eskifjarðar hefði annað verklag verið viðhaft i þessu máli, þetta væri ekki líkt Alla ríka. Enn er grátið Atli Eö- valdsson, landsliðsþjálfari í knattspymu, á ekki sjö dagana sæla með vælið í sumum af leik- mönnum sínum. Kunnugt er að Helgi Sigurðs- son og ekki síð- ur Tryggvi Guðmundsson hafa vælt mikið og lengi þegar þeir hafa ekki verið valdir í byrjunarlið ís- lands. Nú lét Atli undan þeim og setti þá báða í byrjunarliðið gegn Möltu og setti m.a. Þórð Guðjóns- son á varamannabekkinn. Þórður var ekki par ánægður með það og sagði eftir leikinn að hann hefði lagt sitt af mörkum með landslið- inu undanfarin ár (!) og því ætti hann ekki skilið að sitja á vara- mannabekknum. Vöfflubakstur Það hefur ekki verið mikil hreyfing í samningaviö- ræðum sjó- manna og út- vegsmanna að imdanfornu og þessir aðilar sem segjast verða að semja sjáifir sýna ekki snefil af tilraun- um í þá átt, heldur þumbast við eins og þeir hafa gert undanfarnar vikur, mánuði og misseri. I síðustu viku voru tveir samningafundir og eftir annan þeirra mátti sjá mynd af Helga Laxdal, formanni Vél- stjórafélags íslands, við vöfflubakst- ur í Karphúsinu. Þama er hugsan- lega komin ein skýringin á hversu hægt gengur að semja. Eru verka- lýðsforkólfarnir á matreiðslunám- skeiðum i Karphúsinu?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.