Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2001, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2001, Page 12
12 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2001 Helgarblað Fyrrverandi forseti Filippseyja gortar af öllum ástkonunum: Færari en Clinton í kvennamálunum Slétt og fellt yfirborö Estrada hefur átt börn meö nokkrum ástkonum fram hjá eiginkonu sinni, lækninum Luisu. Sonurinn Jinggoy, sem sést á milli þeirra, situr í fangeisi eins og faðirinn. Hann er einnig ákærður fyrir spillingu. Það er ekki fjallað um einkalíf Josephs Estrada, fyrrverandi for- seta Filippseyja, i ákærunni á hend- ur honum vegna gífurlegrar Ijár- málaspillingar. Engu að síður kann einkalífið að skipta verulegu máli. Umfram allt vilja margir fá útskýr- ingu forsetans á því hvernig hann hafi, með þeim lágu launum sem hann segist hafa haft, getað séð fyr- ir eiginkonu og keypt lúxusvillur fyrir að minnsta kosti þrjár ástkon- ur. Forsetinn hefur aldrei reynt að leyna hliðarsporum sínum eins og Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, gerði. Hann hefur þvert á móti gortað af þeim og borið sig saman við Clinton. „Við Bill Clinton höfum báðir lent í hneyksl- ismálum vegna kynlífs," á Estrada að hafa sagt um samband Clintons við lærlinginn i Hvita húsinu, Mon- icu Lewinsky. „En Clinton uppskar bara hneykslismál. Ég uppsker kyn- lif,“ mun hann hafa bætt við. Tilbúinn að veita afnot af ástkonunum Skoðun Estrada á konum þykir einfold. Eftir að Edgardo Angara landbúnaðarráðherra gerði honum greiða í desember síðastliðnum kvaðst forsetinn vilja gefa honum hvað sem væri nema eiginkonuna. Hann gæti hins vegar valið á milli ástkvennanna. Þegar forsetanum var tjáð að sumir hefðu áhyggjur af fjölda ást- kvenna hans, sem margar eru enn í þjónustu, svaraði hann að svo virt- ist sem þeir hefðu meiri áhyggjur af því en konumar sjálfar. José Marcelo Ejercito, eins og Estrada heitir í raun, fæddist 19. apríl 1937. En þegar hann fékk kvik- myndabakteríuna á unga aldri og ákvað að verða leikari bönnuðu for- eldrar hans honum að nota eftir- nafn þeirra. Faðir hans var verk- fræðingur og þótti starfsval sonar- ins ekki nógu fint. José Ejercito tók sér síðar listamannsnafnið Joseph Estrada. Flest bamanna hans 11, sem fædd eru bæði í hjónabandinu og utan þess, bera eftirnafnið Ejercito. Það gerir einnig eiginkona hans, læknir- inn Luisa Pimental, sem er sjö ár- um eldri hann. Þau gengu í hjóna- band 1959. Þá hafði hann þegar eign- ast son og dóttur með Peachy Osorio, dóttur kvikmyndaleikstjóra. Eiginkonan flutti út með bórnin Þremur árum eftir brúðkaupið kynntist Estrada leikkonunni Guia Gomez við kvikmyndatökur og tók upp ástarsamband við hana. Þegar eiginkonan frétti af því 1968 hélt hún með börn þeirra þrjú til Banda- ríkjanna. Síðar sama ár, með þriggja mánaða millibili, eignuðust eiginkonan og ástkonan báðar syni. Árið 1969 var Estrada kjörinn borgarstjóri í San Juan sem er hverfi i ManHa. Því embætti gegndi hann í 17 ár. Mestan hluta þessa tímabils kom ástkonan Guia Gomez fram sem eiginkona hans. Það kom þó ekki í veg fyrir að hann tæki upp stutt samband við gengilbeinu á bar, Rose Dungka, sem hann eignað- ist dóttur með, að því er fram hefur komið í fjölmiölum á FHippseyjum. Sú dóttir er eina barn Estrada sem hann hefur ekki gengist viö. Við kvikmyndatökur árið 1983 kynntist Estrada 23 ára gamalli leikkonu, Laami Enriquez. Þau eignuðust dóttur 1985, son 1990 og annan son 1996. í millitíðinni hafði eiginkonan tekið hann í sátt. Hún flutti aftur til Estrada 1987 vegna tilmæla móður hans. Sama ár var Estrada kjörinn á þing. Fimm árum síðar varð hann varaforseti undir stjóm Fidels Ramos. í stöðugri ieit að nýjum, ungum konum Estrada hélt ekki bara áfram sambandi sínu við Laami Enriques heldur einnig við Guia Gomez. Og varaforsetinn hóf samtímis enn eitt ástarsambandið. í þetta sinn var hin útvalda stúdent, Joy Melendrez, sem hann hitti á karaokebar. Hann eignaðist son með henni 1993. Orðrómur var á kreiki í ManUa í vetur um að Estrada ætti von á barni með flugfreyjunni Rowena Gomeri sem hann hitti á ferðalagi tU Bandaríkjanna. Estrada vísaði þeim orðrómi á bug. Auk eiginkonunnar og „opin- berra“ ástkvenna á Estrada að hafa átt í stuttum samböndum við svo- kallaöar „vinkonur" sínar. Hann er í stöðugri leit að nýjum, ungum konum, að sögn svallbróður hans, Luis Singson, sem er landstjóri í Ilocos Sur-héraðinu. Það var einmitt Singson sem kom ákærunni til embættismissis af stað fyrr í vetur þegar hann fuUyrti op- inberlega að hann hefði afhent Estrada upphæð sem samsvarar 1 milljarði íslenskra króna. Um var að ræða bæði tekjur af ólöglegu fjár- hættuspili og hlut af tóbaksskatti héraðsins. Estrada neitar að hafa tekið við þessari upphæð. Samkvæmt frásögn Singsons var oft ástkona eða vinkona viðstödd þegar Estrada hélt svaUveislur með ýmsum félögum sfnum að nætur- lagi. Stundum bað forsetinn hann um að „gefa henni 1 miUjón" sem samsvarar tæpum 2 mUljónum ís- lenskra króna. Singson kvaðst hafa afrit af ávísununum sem hann skrif- aði handa vinkonum forsetans. Skuggalegir gestir í næsturveislum Veislumar voru oft kallaðar „miðnæturráðherrafundir" forset- ans. Gestirnir, sem voru oft skuggalegir kaupsýslumenn, höfðu ágætt tækifæri tU að hafa áhrif á forsetann og þeir kváðust hafa nýtt sér tækifærin oft og vel. Það var vel veitt af áfengi. Eftir að læknir forsetans ráðlagði honum að hætta að drekka brennivín skipti hann yfir f rauðvín af góðum ár- gangi. Flaskan kostar að minnsta kosti tæpar 100 þúsund íslenskra króna. Ámeðan drukkið var spU- uðu gestimir kínverskt teningaspil og lögðu oft miUjónir króna undir. Sagt er að spilað hafi verið alla nóttina eða að minnsta kosti þar til forsetinn var farinn að græða. Hann þoldi ekki að tapa. í eitt skiptið mun hann hafa unnið um 80 miUjónir króna. Hafði engan áhuga á að stjórna landinu Filippseyingar veltu því fyrir sér hvemig í ósköpunum forsetinn gæti sinn embætti sínu með slíkum lifn- aðarháttum og komust auðvitað að þeirri niðurstöðu að hann gæti það ekki. Samkvæmt frásögnum margra, meðal annars fyrrverandi samstarfsmanna sem sögðu vonsviknir af sér, sýndi hann ekki minnsta áhuga á því hvernig ætti að stjóma landinu. Enn hetjan af hvíta tjaldinu í augum sumra fátæklinga er Estrada enn hetjan sem berst fyrir þá. Estrada las hvorki dagblöð, bæk- ur né málsskjöl. Hann hélt aldrei reglulega ríkisstjórnarfundi. Ritur- um hans skildist smám saman að ekki þýddi að skipuleggja fundi eða aðrar athafnir fyrir hádegi. Það mátti einnig oft lesa á opinberri dagskrá forsetans að hann „myndi gera sitt besta“ til að mæta. Ráðherrar hans urðu að vera við- búnir því að hlaupa í skarðið fyrir hann með stuttum fyrirvara. Fyrr- verandi húsnæðismálaráðherra FU- ippseyja, Karina Davis, gat þess í viðtali við dagblaðið The International Herald Tribune að henni hefði stundum verið fyrir- skipað kvöldinu áður að halda ræðu í stað forsetans. Þegar hún bað um að fá ræðuna senda var henni svar- að: „Þetta er kvennamál. Segðu bara það sem þú vUt.“ Þrátt fyrir aUt hélt Estrada lengi vinsældum sínum. Hann kom fram sem talsmaður hinna fátæku. Hann notfærði sér það að margir tengdu hann við þær persónur sem hann lék á hvíta tjaldinu. Hann lék oft vemdara hinna fátæku sem sigraði andstæðinginn. Þessi mynd af forsetanum er nú í molum. Rannsóknarblaðamennsku- stofnun FUippseyja birti í vetur skýrslu þar sem það kemur fram að Estrada, fjölskylda hans og aðrir í kringum hann hafa undanfarin þrjú ár tryggt sér 17 fasteignir í Manila. Andvirði 14 þeirra er yfir 3 miUjarð- ar króna. Forsetinn hefur einnig komið eiginkonu sinni og ástkonum fyrir í stórum glæsiviUum. í einni viUunni eru þrjú eldhús og 255 fermetra svefnherbergi með baði og fataher- bergi. Við aðra viUu er sundlaug með hvítum sandi umhverfis og ölduvél. Þingmaðurinn Joker Ar- royo sýndi fyrr í vetur ávísun upp á 300 miUjónir íslenskra króna sem hann fuUyrti að forsetinn hefði und- irritað með fölsku nafni. Féð fór í gegnum skúffufyrirtæki til að kaupa lúxusviUu handa Laarni En- riquez, einni ástkvennanna. Forset- inn, fjölskylda hans og ástkonur eiga auk þess hlutabréf í um 50 fyr- irtækjum. Ekki á færi bestu endurskoðenda í skýrslunni kemur fram að Estrada geti ekki útskýrt hvernig hann hafi ráð á þessu öUu. Sam- kvæmt bandaríska dagblaðinu Was- hington Post eru opinberar tekjur hans um 100 þúsund íslenskra króna á mánuði. Að vísu þénaði hann vel þegar hann var kvik- myndastjarna. En samkvæmt skýrslunni kvaðst hann 1999 eiga eignir að andvirði um 60 miUjónir króna. Tekjur sínar sagði hann nema um 4 miUjónum króna. Það er mat skýrsluhöfunda að jafnvel færustu endurskoðendur gætu ekki útskýrt muninn á þessum tölum og lífsstU forsetans og hans nánustu. Estrada gekk loks fram af mörgum fátæklinga á Filippseyjum. Kaupsýslumenn, menntamenn, kirkjunnar menn, vinstri menn, herinn og lögreglan sneru einnig baki við honum. Estrada hefur nú verið ákærður fyrir að hafa tekið um 7 miUjarða ís- lenskra króna úr ríkiskassanum þau tæp þrjú ár sem hann sat á for- setastóli. Hann segist ekki trúa þvi að hann sé í fangelsi. Byggt á Reuter, Aftenposten o.fl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.