Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2001, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2001, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2001 Helgarblað „Þetta er heimur sem við leikarar þekkjum mjög vel. Bassaleikarinn talar mikið um „fastráðning- arbrjálœðið“ og sú hug- mynd var aldrei langt undan þegar við vorum að æfa verkið. Leikarar sœkjast mikið eftir fast- ráðningu en þeir vilja líka listrœnt frelsi. Þannig má segja að ör- yggið og frelsið séu and- stœðir hlutir sem við vilj- um samt eiga báða óskerta. “ „Getur þú sagt mér hvers vegna hálffertugur maður, nefnilega ég, er i sambýli með hljóðfæri sem stendur honum stöðugt fyrir þrifum. Mann- lega, samfélagslega, umferðarlega, kynferðislega og músíkalskt. Stendur honum fyrir þrifum. Getur þú útskýrt það fyrir mér!? Fyrirgeíðu að ég skuli öskra en hér get ég öskrað eins mikið og ég vil. Það heyrir enginn. Það gerir hljóðeinangr- unin. Það heyrir ekki nokkur sála til mín... Ég drep hann. Einhvern daginn myrði ég hann... Þannig farast söguhetjunni i ein- leiknum Kontrabassanum orð um sitt þrekvaxna og fyrirferðarmikla hljóð- færi sem honum fmnst vera að kæfa sig. „Það lærir enginn á kontrabassa af fúsum og frjálsum vilja,“ segir hann meðal annars. Kontrabassinn er einleikur eftir Patrick Súskind sem er frægur þýsk- ur rithöfundur og hefur meðal annars skrifað Ilminn sem allir sem hafa ein- hverja nasasjón af bókmenntum hafa lesið. Elnn með bassanum Þessi einleikur fjallar um mann sem leikur á kontrabassa og býr í hljóðeinangruðu herbergi aleinn með bassanum sínum. Hann talar í einn og hálfan tíma við áhorfendur um bass- ann, hlutskipti bassaleikarans, ástina og einsemdina. Þetta leikrit var frumsýnt í Múnchen árið 1981 og hefur síðan far- ið sigurför um heiminn og notið tals- - Ellert stendur einn á sviðinu með kontrabassann Ellert A. Ingimundarson leikur ein- leik í Borgarleikhúsinu í Kontra- bassanum eftir Patrick Súskind. „Þetta er auövitað í rauninni um ein- semdina. Þessi maöur er einn og yf- irgefinn, beiskur og gengur illa aö ná sambandi viö fólk. “ verðra vinsælda. Það var sýnt í bak- húsi við Laugaveginn árið 1988 og þá var það Guðjón Pedersen sem leik- stýrði Árna Pétri Guðjónssyni i gegn- um þjáningar bassaleikarans. Nú er verið að sýna leikritið öðru sinni á íslandi og nú í Borgarleikhús- inu, þar sem Guðjón er leikhússtjóri. Hann hlýtur að hafa mikið dálæti á þessu verki. I þetta sinn er það Kjart- an Ragnarsson sem leikstýrir Ellert A. Ingimundarsyni og verkið er sýnt á litla sviðinu i Borgarleikhúsinu. í návígi við okkur Sýningin sem ég mætti á er sú fjórða í röðinni og það er komið sum- ar. Það má því greina gleðibragð yfir þeim 49 áhorfendum sem fara langt með að fylla þetta litla rými þar sem leikarinn er i seilingarfjarlægð við áhorfendur í miklu návígi. Ég sé út undan mér að minnsta kosti einn bassaleikara sem er Haraldur Þor- steinsson. Ég hef aldrei séð hann spila á kontrabassa en hann getur það áreiðanlega. Rétt áður en ljósin slokkna sest Stefán Baldursson þjóð- leikhússtjóri aftarlega og rýnir í leik- skrána. Sennilega er hann að athuga hvað samkeppnin er að fást við. Mér skilst að tónlistarfólk sæki mikið á þessa sýningu og hlæi stund- um á öðrum stöðum en aðrir áheyr- endur enda úir og grúir af fróð- leiksmolum um tónlist, tónlistarsögu og kontrabassaleik í verkinu. Bassa- leikarinn er stöðugt að leika fyrir okkur tóndæmi og segja okkur frá óþekktum tónskáldum milli þess sem hann lýsir ódauðlegri ást sinni á Söru, litlu dökkhærðu messósópran- söngkonunni sem er nýbúið að ráða til hljómsveitarinnar. Mér flnnst samt flestir hlæja á réttum stöðum á þess- ari sýningu. Kannski er tónlistar- þekking svona útbreidd í salnum. Hvaða Austmann? Morguninn eftir hitti ég Ellert A. Ingimundarson, sem heitir reyndar Ellert Austmann fullu nafni, sem leik- ur allt sem er leikið í þessari sérstæðu sýningu og við fáum okkur saman kaffi og kleinuhring. Um hvað er þetta leikrit í raun og veru, Ellert? „Þetta er auðvitað í rauninni um Kynlrf Píkur Um daginn var ég að tala við unga konu um kynlíf. Vegna orðspors míns og iðju kemst fólk oft í mikinn ham þegar ég er nærstödd og fer gjarnan að ræða fjálglega um kynhegðun sína. Þessi kona var að tala um munngæl- ur. Hún sagði að sér þætti svo óþægi- legt að láta sleikja á sér píkuna. Ég hváði við því oftar heyri ég nú gríðar- legar nautnasögur af vörum kvenna og kvartanir um að þær fái ekki nóg af gælum sem þessum í sínu kynlífi. Það kom reyndar í ljós að henni þóttu gælurnar í raun og veru afskaplega örvandi og góðar, í það minnsta lik- amlega. Óþægindin sem hún var að vísa til voru ekki líkamleg heldur andleg. Einhvern veginn var hún viss um að kærastanum þætti píkan henn- ar óaðlaðandi og lítt geðsleg en léti sig hafa það að sleikja hana af einskærri fómarlund og góðmennsku. Hún sagði líka að píkan hennar væri svo ljót því að innri barmarnir næðu út fyrir þá ytri. Nýverið hafði hún spurt kærast- ann að þessu og hann svarað því til að honum þætti píkan hennar bragðgóð og yndisleg. Hún var samt viss um að það væri bara hvít góðmennskulygi til að þóknast henni, eymingja stúlkunni með ljótu píkuna! Víst skera þeir barma, Jens! Þessi kona er sko ekki sú eina sem gengur um jörðina með hausinn full- an af píkuranghugmyndum. Það er ótrúlega algengt að konur þjáist af eft- irfarandi haldvillum: a) að þær séu með óeðlilega útlítandi og ljótar píkur og b) að það sé vond lykt af pikunum Núna er ægileg píkustemning í höfuöborglnni því á morgun veröa píkusög- urnar hennar Eve Ensler frumsýndar í Borgarleikhúsinu. þeirra. Hinn stóri og ljóti vestræni neysluheimur hefur nýtt sér þetta píkuóöryggi kvenna til hins ýtrasta, til dæmis með framleiðslu alls konar hreinsiefna fyrir leggöng, klósettpapp- írs með ilmefnum, dömubinda með ilmefnum, pikuilmvatns (þá með blómalykt sem á að kæfa píkulykt- ina), nærbuxnainnleggja sem eiga að halda henni „ferskri" allan daginn og í henni Ameriku er líka hægt að kom- ast undir hníf lýtalækna i þeim til- gangi að breyta útliti píkunnar svo að konan endurheimti sjálfsöryggi sitt og kvenleika, eins og segir í auglýsing- um frá klíníkkum sem bjóða upp á slíkt (þeir sem efast um sannleiksgildi þessara frétta geta heimsótt Dr. Gary Alter á www.altermed.com). Auðvitað græðir neyslusamfélagið ekkert á konum sem eru ánægðar með lögun og lykt sinnar píku og stoltar af tjár- sjóðnum sem þær bera milli fótanna. Þess vegna er ekki skrýtið að skilaboð stórframleiðendanna snúist um að eitthvað sé athugavert og þurfi endi- lega að laga en innihaldi ekki jákvæð skilaboð til hverrar konu um að heiðra líkama sinn eins og hann er af Guði gerður, píkan innifalin. Það þýð- ir samt ekki að leggjast í eymd og væluskap yfir ljótu viðskiptakörlun- um sem eru allan daginn að reyna að eyðileggja sjálfsmynd kvenna, svoleið- is fórnarlembska er sist til bóta. Held- ur ætti hver kona að líta i eigin barm, eða öllu heldur skaut, og íhuga vel samband sitt við píkuna sina og bara líkamann í heild sinni. Er píka píka? Þær konur sem eru ekki ljósmæður eða lesbíur lenda afskaplega sjaldan í þeirri aðstöðu að geta skoðað vel og vandlega píku annarrar konu. Mynd- irnar sem eru okkur aðgengilegar eru annaðhvort teiknaðar líffærafræði- myndir sem sýna mjög samhverfar píkur með kringlótt gat fyrir leggöng og annað kringlótt gat fyrir þvagrás eða pornómyndir, teknar með mjúk- um filterum svo að ekki sést misfella í skauti. Svoleiðis fyrirsætupíkur eru líka alltaf mjög vel snyrtar og jafnvel farðaðar fyrir myndatökur (alveg satt!) og oft ansi ólíkar því sem við sæjum ef þverskurður kvenna, til að mynda frá Selfossi, mundi fletta upp skautbúningum sínum og sitja fyrir án undirbúnings. Þess vegna er allt of algengt að konur hafi ekki hugmynd um að hver einasta píka er sérstök í útliti, rétt eins og hvert eyra eða hvert nef er sérstakt í útliti. Hárin vaxa mislangt út og suður og krullast ekki öll á sama veg. Barmarnir eru mis- jafnir, sá hægri getur verið miklu stærri en sá vinstri og innri barmarn- ir geta náð lagt niður fyrir þá ytri eða verið nær ósýnilegir. Leggöngin eru ekki kringlótt op eins og á myndunum í skólabókum heldur falla mjúkir veggir þeirra saman en geta svo þan- ist út svo mikið að það er töfrum lik- ast. Þvagrásin sést varla hjá sumum konum en hjá öðrum er hún eins og lítil stjarna fyrir ofan leggangaopið. Snípurinn, þetta rammgöldrótta nautnalíffæri, er stundum alveg fal- inn undir snípshúfunni en oft er hægt að draga hana aftur svo að hann blas- ir við stinnur, sterkur og gljáandi. Hver einasta píka hefur líka sína sér- stöku lykt sem breytist eftir flæði hormónanna í tíðahringnum eða eftir því hvað við borðum. Stundum er hún dálítið súrsæt, stundum mjúk eins og púður og stundum lík hreinni jógúrt eða reykelsi. Umfram allt er píkulykt píkulykt og skyldi ekki reyna að breyta í blómalykt. Núna er ægileg píkustemning í höf- uðborginni því á morgun verða píku- sögurnar hennar Eve Ensler frum- sýndar í Borgarleikhúsinu. Ég vil hvetja allar konur til að nota tækifær- ið, taka við innblæstrinum og vera góðar við píkurnar sínar. Drífið ykk- ur í leikhúsið, stelpur, og dragið endi- lega eins marga karla með og þið get- ið - þeir hafa ekki síður gott af smá- uppfræðslu. Ragnheióur Eiríksdóttir er hjúkrun- arfrœóingur og kynlífsráögjafi. skrifar um

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.