Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2001, Side 41

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2001, Side 41
49 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2001 DV Tilvera Grenjað í grill- veislunni - og kveikt á kertum til minningar um konuna sem sat á móti mér Það er Áki Pétursson, öðru nafni DJ Áki „Pain“, sem er matgæðingur vikunnar að þessu sinni. Áki er þekktastur fyrir að vera plötusnúður á vinsælustu stöðum bæjarins og í dag er hann að þeyta skífur á Skuggabar. Undanfarnar vikur hefur hann verið mjög upp- tekinn við að aðstoða Áslaugu konu sína við að opna þeirra annað fyrir- tæki sem er nýtt tölvufyrirtæki, Skaf.is, sem er fyrsti skafmiðaleik- urinn á Netinu. „Aðsóknin í leikinn fór fram úr björtustu vonum, frá opnun hafa að meðaltali eitt þúsund manns tekið þátt í leiknum á dag. Þessar tölur sýna ber- sýnilega hversu mikil vöntun var á vef af þessu tagi á íslenskum netmarkaði," segir Áki og bætir svo við: „Leikurinn virkar þannig byrjað er á því að skrá sig inn i leikinn, að því loknu er valið fyrirtæki sem maður vill eignast vinning hjá, þá kemur upp skafmiði. Maður skefur með músinni og ef fást þrjár eins myndir þá kemur upp gjafabréf sem maður einfaldlega prentar út og fer með í viðkomandi fyrirtæki." En hvernig er matargerðarlistin hjá þessum unga plötusnúði? Hrikalegur kokkur „Konan mín segir að ég sé hrika- legur kokkur og ég verð bara að kyngja því. Það er mjög sjaldan sem ég fæ að setja upp svuntuna á mínu heimili, það er ekki nema hún sé að vinna fram eftir og komist alls ekki heim. Þá er þaö nú ekki merkilegra en að ég fæ að hita upp mat fyrir mig og börnin sem hún hefur verið búin að taka til. Hún er auðvitað yndisleg kona hún Áslaug," segir Áki. „Mín eftirminnilegasta reynsla er ekki af matargerð hjá sjálfum mér, ég myndi segja að það væri hræði- legt matarboð sem ég fór í fyrir nokkrum árum. Tvíbókað kvöid Þannig var mál með vexti að viku eftir að ég kynntist Áslaugu þá hafði gamall vinur minn boðið mér til foreldra sinna í grillveislu. Það hitti svo leiðinlega á að þetta kvöld hafði ég einmitt verið búinn að bjóða Áslaugu út að borða. Ég hringdi því í vin minn og sagði hon- um frá þessari leiðinlegu tvíbókun minni, hann sagðist bara bíða spenntur eftir því að sjá hana og við skyldum bara bæði iáta sjá okkur. Það var auðvitað pínu þvingað andrúmsloft þegar ég sótti hana þar sem kynni okkar höfðu ekki varað lengi. Þegar við svo komum á stað- inn sáum við að öll fjölskyldan hans var í grillveislunni, þ.m.t. afi hans og amma. Kom svo í ljós að verið var að kveðja ömmu hans þar sem hún var að fara að heimsækja syst- ur sína til Noregs í sex mánuði. Áslaug var dregin inn í eldhús, en ég og vinur minn fórum út og stóðum við grillið eins og restin af karlmönnunum. Amman erlendis Allt í einu heyri ég eitthvert það Nýkaup Þarseni ferskleikinn Ijýr Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi þar sem allt hráefni í þær fæst. dramatískasta lag sem ég hef heyrt um ævina spilað í botn inni í stofu hjá dömunum. Ég fór strax að hafa áhyggjur af því að Áslaug væri ekki alveg að fíla sig og var að hugsa um að tygja mig inn til hennar. Viti menn. Kemur ekki nema mamma vinar míns út með bjór í hendinni og grenjaöi eins og hún ætti lífið að leysa. Ég sá að Áslaug stóð í dyragættinni, vægast sagt mjög hissa á látunum í konunni. Þetta virtist ekki koma neinum á óvart en ég var óvanur og stökk til hennar og spurði hana hvað væri að. Ég heyrði varla hvað hún sagði því dramatíska tónlistin úr stofunni var alveg að æra mig. Loks náði hún með herkjum að segja mér að hún væri svo sorgmædd því „amma Lóa“ væri að fara erléndis svo lengi og hún ætti eftir að sakna hennar svo mikið. Óvæntur giaðningur Ég fór með hana inn í stofu en þar tók ekki betra við. Konurnar héldu allar utan um „ömmu Lóu“ og grétu. Ég skammaðist mín svo mikið að ég hélt ég yrði ekki eldri. Ég tók Áslaugu með mér út og ég sá að henni þótti þetta hálfbroslegt svo ég róaðist aðeins. Ég skildi bara ekki alveg þetta uppistand vegna gömlu konunnar og ferðarinnar, mér fannst þetta hálfmóðgandi fyrir hana, eins og hún væri orðin of gömui til að komast aftur til íslands. Þegar kjötið var tilbúið og inn var komið sá ég að stemningin var ögn skárri, sem betur fer. Við settumst við borðið og ég sat á móti Áslaugu og við gátum auðvit- að lítið talað saman þar sem kon- urnar voru eins og fuglahrúga talandi um hvað þær ættu eftir að sakna gömlu konunnar. Þegar allir höfðu klárað matinn stóð „amma Lóa“ upp og sagðist vera með algjör- lega óvæntan glaðning fyrir okkur. Ég persónulega sá fyrir mér ís en al- deilis ekki. Þögn í eina Hún kom til baka að borðinu með 15 handmáluð kerti. Hún lét hvern og einn fá sitt kerti og svo áttum við að kveikja á kertinu hjá næsta manni. Ég hélt ég yrði ekki eldri, þetta kvöld var algjör martröð. Þetta hélt ég að ekkert gæti toppað en ég hafði ekki heldur rétt fyrir mér í það skiptið. Þarna stóð gamla konan við borðið og sagði okkur að við ættum að haldast í hendur, hafa þögn í eina minútu og hugsa um hana. Aumingja Áslaug þurfti að halda í höndina á ókunnugum göml- um manni og dóttur hans og hugsa um gamla konu sem hún þekkti ekki neitt. Ég verð bara að segja að þetta er langskrýtnasta matarboð sem ég hef farið í. Svo til að kóróna kvöldið þá stóð fjölskyldan í röð við útidyrnar til að taka utan um okkur þegar við fórum,“ segir Áki og hlær þegar hann rifjar þetta upp. „Áslaug elskar að tala við mig um þetta matarboð enn þann dag í dag. Þetta er hennar uppáhaldssaga." -klj Nautakjöt með spergilkáli fyrir 2-3 Undirbúningur er 25 mín, mat- reiðsla 4 mín. 450 g nautakjöt, betra er að sneiða kjötið hálffrosið Matgæöingur Áki Pain: „Ég tók Áslaugu meö mér út og ég sá aö henni þótti þetta hálfbroslegt svo ég róaöist aöeins. Ég skildi bara ekki alveg þetta upþistand vegna gömlu konunnar og feröarinn- ar, mér fannst þetta hálfmóögandi fyrir hana, eins og hún væri oröin of gömul til aö komast aftur til ísiands. “ 4 msk. dökk sojasósa 1 msk. komsterkja 1 msk. þurrt sérrí (má sleppa) 1 tsk. sykur 225 g ferskt spergilkál 2,5 cm bútur rifín engiferrót 6 msk. olía salt og pipar Skerið sem mest af fitunni af kjöt- inu og skerið það síðan í þunnar ræmur þvert á vöðvaþræðina. Blandið saman kjötinu, sojasósu, kornsterkju, sérrí, og sykri. Hrærið vel saman þangað til kjötið er alveg þitt. Skerið greinarnar af stilkum spergilkálsins og skerið þær í ten- inga. Skerið síðan stilkana á ská í þykkar sneiðar. Hitið kinapönnu (wok) og setjið spergOkál á pönnuna og kryddið með salti og pipar eftir smekk. Steikið spergilkálið þangað til það verður dökkgrænt að lit en þó ekki lengur en 2 mín. Takið kálið af pönnunni og setið til hliðar. Setjið það sem eftir er af olíunni á pönnuna ásamt kjötinu og engifer. Steikið í 2 mín. og hrærið stöðugt í á meðan. Setjið spergilkálið á pönn- una og hrærið í. Hitið vel í gegn í 1/2 mín. og berið strax fram. Útsala IGNIS frystikistur frá 20.930 IGNIS frystiskápar frá 33.837 IGNIS veggofnar frá 18.165 IGNIS eldavél, 34.230 S@% srífeílo ©@% srffsl. @9% mtfsQn m% am7= Hitakútar frá 10.430 White-Westinghouse þvottavél, 84.063 White-Westinghouse kæliskápar frá70.149, m% Perur • rör • dósir • snúrur kaplar • raflagnaefni • verkfæri " °® mar9*> ® 9 margt fleira RAFVORUR Armúla 5 • S. 568 6411 Fax 568 6961 • rafvorur@rafvorur.is Js ' w bR ' | 'ám L

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.