Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2001, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2001, Side 13
13 FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2001 I>V Efniviður nýrra norrænna bíómynda er brýnn samtímavandi: Getuleysi, nauðungar- hjónabönd og ofdrykkja Nýjasta sænska kassastykkið heitir Jalla Jalla - sera þýðir eigin- lega „Drífa sig!“ - og hefst á tilbrigði við vinsæla kaffiauglýsingu: Ungur maður ber að dyrum og þegar ung stúlka ansar biður hann hana að lána sér soldið kaffi af því hann hafi fengið óvænta gesti. Hún tekur vel í það og sækir kaífibaukinn sinn en meðan hann er að gá hvað sé mikið í honum segir stúlkan hversdagsleg- um rómi - eins og hún sé að tala um veðrið: Eigum við að koma upp í rúm að ríða? Já, já, svarar piltur- inn, í sama hlutlausa rómnum og labbar inn í íbúðina. Næst sjáum við þau þar sem ekk- ert gengur í bólinu og smám saman kemur í ljós að þetta með kaffið er erótískur leikur þeirra til að reyna að koma piltinum til. En leikurinn hefur ekki lengur nein áhrif og þau ásaka hvort annað um að hafa ekki leikið hann „rétt“. „Á ég þá að prófa að fá lánað kaffi?“ spyr stúlkan, samstarfsfús, en hann er leiður á öllu saman og gefst bara upp. Ungur snillingur Getuleysi Máns og náttúrulaust ástarsamband hans og Jennýar er annar aðalþráðurinn í Jalla Jalla og Sofi Ahlström Helleday og Torkel Petersson fara vel með hlutverk þeirra. Einkum er Torkel frábær leikari og alger sexbolti þrátt fyrir getuleysið. Hinn þráðurinn fjallar um vininn Roro (Fares Fares) sem elskar Lísu (Tuva Novotny) en fjöl- skyldan vill að hann giftist Yasmin (Laleh Pourkarim) sem er af líb- önskum innflytjendaættum eins og hann. Bróðir Yasmín hefur hótað að senda hana til baka til Líbanon ef hann losni ekki við hana inn í hjónaband og Roro fellst á að leika unnusta til að gefa henni gálgafrest. En bróðirinn þolir ekki neitt hangs... Handritshöfundur og leikstjóri Jalla Jalla er Josef Fares, sem einmitt er af líbönskum ætt- um, 23 ára gamall snillingur. Hann hafði áður gert um fimmtíu stuttmyndir og vakið athygli Lukas Moodyson (Fucking Ámál og Til- sammans) sem gaf góð ráð varðandi handrit og tók að sér að framleiða myndina. Helmingur hlutverka í Jalla Jalla er leikinn af fjölskyldu leikstjórans, m.a. pabba, bróður og ömmu, sem öll leika eins og útlært fólk - líka amman sem' ekki vissi einu sinni að hún væri að leika í kvikmynd! Þetta er þörf bíómynd um nýjan fjöl- þjóðlegan veruleika Norðurlanda (ekki fjar- skyld East is East) og hún er dásamlega bjart- sýn og falleg - auk þess að vera meinfyndin. FW96W9 MWHOi MUUS.ob Selvom alt gár gal ...kan det godt blive rígtígtI BOÐILJBftGENSEN CLAUSSTRANDBStG MíKKEL AAS fcWRTEKSEN . MSKRIBOÍ P*ÍS«|, IMA OVM ® tts IH3_. SMS Von er aö gömlu hjónunum bregöi viö aö fá stríösmálaðar smátelpur í sveitina en þetta þvæst af. Úr myndinni Send mere slik eftir Cæsiliu Holbek Trier. kvæðin sem gamla konan syngur fyrir þær á kvöldin. En börn eru seig, og smám saman verða stór- borgarstúlkurnar heillaðar af gömlu hjónunum (enda eru þau leikin af Per Oscarsson og Bodil Ud- sen) og bjarga þeim að lokum frá því aö lenda á elliheimili (sem eru örlög verri en dauðinn í þessari mynd). Leikstjóri er Cæcilia Holbek Trier sem áður hefur gert vel heppnaöar barnamyndir. Mun áhrifameiri er danska bíó- myndin sem hlaut helstu Bodil- stytturnar fyrir einu og hálfu ári og er enn verið að sýna í Kaupmanna- höfn: Bænken (Bekkurinn), frumraun Pers Flys sem kvik- myndaleikstjóra. Þetta er há- dramatísk mynd um gamla fylli- byttu, Kaj (Jesper Christensen), sem neyðist til að horfast í augu við sjálfan sig í fortíð og nútíð þegar dóttirin, sem hann yfirgaf barn- unga fyrir 19 árum (Stine Holm Joensen), flyst í næsta nágrenni með litla drenginn sinn (Marius Sonne Janischefska). Hún er á flótta undan ofbeldisfullum eigin- manni og vandræði hennar eru svo mikil að hún biður gamla Kaj að líta eftir stráknum meðan hún er i vinmmni - án þess að vita um skyldleika þeirra. Þannig er sá gamli dreginn til ábyrgðar í lífinu á nýjan leik og þá er að sjá hvort hann stendur sig. Bænken er mögnuð kvikmynd, einkum vegna þess hvað hún er dæmalaust vel leikin. Bestur er Jesper Christensen í hlutverki Kajs og verða allar tilraunir til að orða snilld hans óttalega máttleysisleg- ar. Hann er bara þessi ógæfumaður. SMS og fyllibyttur á bekk Send mere slik (Sendið meira sælgæti) segir frá’ tveimur litlum systrum sem eru sendar til gamafla hjóna uppi í sveit og gæti verið samin eftir klassískri íslenskri barnasögu. Systrunum ofbýður margt f sveitinni, aðallega flóaða mjólk- in með skáninni ofan á og dapurlegu vöggu- Drífa sig! Nýjasta sænska kassastykkiö heitir Jalla Jalla sem þýðir eiginiega Drífa sigl. Hér má sjá Laieh Pourkarim, Fares Fares, Torkel Peterson og Tuvu Novotny i rómantiskri sænskri gamanmynd eftir Josef Fares, 23 ára líþanskættaðan Svía. Geta lamin í gaurinn Jenný, sem leikin er af Sofi Ahiström, beitir óheföbundnum aöferöum viö að fá getu í Máns sem leik- inn er af Torkel Peterson. Ekki trúi ég öðru en Bænken gæti gengið og gengið á íslandi, hér ekki síður en þar þekkjum við alkóhólisma, ofbeldi á heimflum, vanrækt börn'og tilfmningalega bælingu - og hér kunnum við líka að meta góða list. ítalska sem þerapía Italiensk for begyndere (ítalska fyrir byrjend- ur) eftir Lone Scherfig, sem fékk verðlaun á kvikmyndahátíðinni f Berlín í fyrra, fjallar um fólk sem leysir margvíslegan persónulegan vanda með því að fara að læra ítölsku. Þetta er elskuleg mynd, prýdd mörgum leikurum sem ís- lenskir sjónvarpsáhorfendur þekkja úr Taxa-ser- íunni, en ekki þótti mér hún jafnast á við Bæn- ken. Samt er engin ástæða til að halda henni frá íslenskum kvikmyndahúsagestum. Til að hljóma ekki eins og auglýsingapési fyr- ir Zentropa verð ég að taka fram að nýjasta dogmamyndin, Et rigtigt menneske eftir Áke Sandgren, er tilfinningaklám af næstverstu gerð. En nýjasta mynd Bille August, Sáng for Martin, um tónskáld og hljómsveitarstjóra sem fær alzheimer skömmu eftir að hann hefur byrjað nýtt lff með nýrri eiginkonu, sleppur vel fyrir horn. Grípið nú símann, ágætu kvikmyndahúsa- eigendur: Þetta eru myndir fyrir okkur. -SA ____________________Menning Umsjón: Sigtryggur Magnason E-541 Listhús Um næstu helgi tekur til starfa nýtt fjölnotalisthús, E-541 Listhús, en það er appelsínugult Rúg- brauð, árgerð 1978. Listhúsið er þeirrar náttúru að það ekur um en er þó allajafna búsett í vesturbæn- um í Reykjavík. Hugmyndin að baki list- húsinu er fremur að hýsa listræn augna- blik en langar og leiðinlegar, kyrrstæðar sýningar. Yfirferð, snerpa og sveigjan- leiki eru þess helstu kostir og sem slíkt er það áskorun til listamanna um að sleppa fram af sér beislinu. Hreinn Frið- fmnsson myndlistarmaður ríður á vaðið þegar listhúsið mætir á opnun sýningar hans í Ljósaklifi í Hafnarflrði um kl. 16.30 á íaugardaginn. „Skidegod film“ Kvikmynda- þættir dönsku sjónvarpsstöðvar- innar DR2 eru kallaðir Bogart og gefa hatta í stað stjarna. í fyrsta Bogartþættinum eftir sumarfrí núna á mánudagskvöldið var meðal annars fjallað um Úngfrúna góðu og húsið eftir Guðnýju Halldórs- dóttur sem verður frumsýnd í Kaup- mannahöfn núna í vikunni, og gladdi umsögnin íslendingshjörtu í borginni við Sundið. Þáttarstjóri var Soren Hoy en með honum var leikarinn góðkunni Pet- er Gantzler sem hafði meira að segja séð Úngfrúna tvisvar til að njóta hennar enn þá betur. Þeir voru báðir ánægðir með myndina, einkum þó Peter Gantzler sem sagði að þetta væri „skidegod film“. Það er mikið hrós á máli innfæddra. Kostur- inn við myndina fannst honum hvað hún tæki efni sitt alvarlega og hvað leikar- arnir lékju vel. Þar þótti honum Ragn- hildur Gísladóttir bera af í hlutverki Rannveigar. Verður gaman að vita hvort dönsku dagblöðin verða sama sinnis... Þeir félagar gáfu Úngfrúnni þrjá hatta af sex mögulegum og nýjasta danska myndin, Anja og Victor, hlaut sömu ein- kunn. Jurassic Park III varð að láta sér nægja tvo hatta. „Heilagar Mandöl- ur“ í Ketilhúsinu Rannveig Helgadóttir opnar myndlistarsýn- ingu í Ketilhúsinu, neðri hæð, laugardag- inn 11. ágúst kl. 16.00 og mun sýningin standa til 26. ágúst. Rannveig Helgadóttir er fædd árið 1971 og stundaði nám á Myndlistabraut Mennta- skólans á Akureyri þaðan sem hún út- skrifaðist 1992. Síðan lauk hún námi í Fagurlistadeild Myndlistaskólans á Ak- ureyri 1995 og námi í Listhönnunardeild sama skóla árið 1998. Frá 1999 til 2000 stundaði hún nám i kennslufræðum til kennsluréttinda við Háskólann á Akur- eyri. Síðasta einkasýning hennar var í Turku Academy í Finnlandi síðasta vet- ur. Á sýningunni verða ný verk unnin með blandaðri tækni. Viðfangsefnið er Mandala sem er reglubundin formgerð unnin út frá möndli og myndar munstur. Orðið Mandala kemur úr sanskrít og merkir „heilagur hringur" eða hringur eilífðarinnar. Heimstónlistardjass á Jómfrúnni Á elleftu tónleikum sumartónleikarað- ar veitingahússins Jómfrúrinnar við Lækjargötu, laugardaginn 11. ágúst, kem- ur fram íslensk-austurríska hljómsveitin Heavy Metal Bee Folk. Hljómsveitin leik- ur fjölbreytta efnisskrá sem inniheldur mikið af þjóðlagatónlist, m.a. frá Austur- Evrópu, gjarnan með djassívafi. I farar- broddi hljómsveitarinnar er íslenski básúnuleikarinn Helgi Hrafn Jónsson en aðrir meðlimir eru skólafélagar hans frá tónlistarháskólanum í Graz: Jörg Haberl: trommur og slagverk, Christian Wendt: bassi, Christian Bakanic: harmoníka, Klemens Bittmann: fiðla og Georg Gratz- er: saxófónar, flauta og bassaklarínett. Tónleikarnir hefjast kl. 16 og standa til kl. 18. Leikið er utandyra á Jómfrúrtorg- inu ef veður leyfir en annars inni á Jóm- frúnni. Aðgangur er ókeypis.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.