Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2001, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2001, Page 22
26 ________________________________FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2001 íslendingaþættir_________________________________________________________________________________________________________x>V Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson Fólk í fréttum Jónína Bjartmarz formaöur heilbrigðis- og trygginganefndar Alþingis 85 ára__________________________ Daníel G. Guömundsson, Skjólvangi Hrafnistu, Hafnarfirði. Gréta S. Jónsdóttir, Viilingaholti 1, 801 Selfoss. Jón Benediktsson, Hringbraut 50, Reykjavík. Unnur Halldórsdóttir, Kambi 1, 380 Króksijarðarnesi. 80 ára__________________________ Guörún Árnadóttir, Hringbraut 50, Reykjavik. Margrét Valdimarsdóttir, Fífutjörn 3, Selfoss. 75 ára__________________________ Níels P. Björgvinsson, Brekkustíg 16, Sandgerði. 70 ára__________________________ Haukur Guömundsson, Hólavegi 30, Sauöárkróki. Siguröur Sívertsen, Þúfubaröi 19, Hafnarfirði. 60 ára__________________________ Bjarni Ólafsson, Þrastarlundi 17, Garðabæ. Kristinn Guömundsson, Grenigrund 11, Akranesi. Kristín Guömundsdóttir, Helgubraut 11, Kópavogi. Siguröur Sigurösson, Efstahjalla 23, Kópavogi. 50 ára__________________________ Eiríkur Stefánsson, Lækjarbakka, Akureyri. Hanna Lára Bjarnadóttir, Haukholti 1, Hrunamannahreppi. Ingvar Pálsson, Keilusíðu lld, Akureyri. Sesselja Arthúrsdóttir, Hlíðarvegi 16, Grundarfirði. Þuríður Snæbjörnsdóttir, Skútahrauni 13, Reykjahlíö. 40 ára__________________________ Bjarndís Hannesdóttir, Heiðmörk 10, Hveragerði. Björn Vigfús Jónsson, Hlíöartúni 26, Höfn. Guömundur Friögeirsson, Skógarási 17, Reykjavík. Guömundur Hansen, Dvergagili 2, Akureyri. Rafn Benediktsson, Laxalind 7, Kópavogi. Tomas Cajag Mayubay, Háholti 11, Hafnarfirði. Jónína Bjartmarz, alþingismaður og formaður heilbrigðis- og trygg- inganefndar Alþingis, gagnrýnir mjög eindregið þá skoðun aðstoðar- landlæknis að til greina komi að leyfa neyslu svo kallaðra veikari fíkniefna. Þetta kom fram í DV-frétt á miðvikudag. Starfsferill Jónína fæddist í Reykjavík 23.12. 1952. Hún lauk stúdentsprófi frá KHÍ 1974, embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1981 og öðlaðist hdl.-réttindi 1984. Jónína var skrifstofustjóri Lög- mannafélags íslands samhliða laga- námi 1978-81, fulltrúi hjá bæjarfó- getanum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Seltjarnarnesi og sýslumanninum í Kjósarsýslu 1981, fulltrúi hjá yfir- borgarfógetanum í Reykjavík 1982 og hjá bæjarfógetanum á ísafirði og sýslumanni ísafjarðarsýslu 1982-84, fulltrúi á lögfræðiskrifstofu Páls Amórs Pálssonar hrl. og Stefáns Pálssonar hrl. í Reykjavík 1984-85 og hefur, ásamt manni sínum, starf- rækt Lögfræðistofuna sf. í Reykja- vík frá 1985. Jónína er formaður Landsamtak- anna HeimOis og skóla frá 1996 og formaður Nordisk kommite sem er samstarfsvettvangur systursamtaka HeimUis og skóla á Norðurlöndun- um. Hún er einn af stofnendum og fyrrv. formaður FKA, Félags kvenna í atvinnurekstri, hefur verið þing- maður Reykvikinga fyrir Framsókn- arflokkinn frá ársbyrjun 2000 og er formaður heUbrigðisnefndar Alþing- is og varaformaður aUsherjamefnd- ar Alþingis, og hefur setið í ýmsum opinberum nefndum. Fjölskylda Jónína giftist 16.10.1976 Pétri Þór Sigurðssyni, f. 29.3. 1954, hrl. Hann er sonur Sigurðar Sigfússonar, f. 7.8.1918, húsasmíðameistara og fast- eignasala í Reykjavík,, og k.h., Báru Björnsdóttur, f. 19.2. 1930, húsmóð- ur. Sigurður er kjörfaðir Péturs. Synir Jónínu og Péturs Þórs eru Birnir Orri, f. 25.6. 1985, Ernir Skorri, f. 27.2. 1989. Bræður Jónínu: Óskar Bjartmarz, f. 14.3.1956, íögreglumaður í Reykja- vík og formaður Lögreglufélags Reykjavíkur; Jón Friðrik Bjart- marz, f. 27.8.1957, yfirlögregluþjónn Ríkislögreglustjóra; Björn Bjart- marz, f. 23.4.1962, knattspyrnuþjálf- ari hjá Víkingi. Foreldrar Jónínu eru Björn Stef- án Óskarsson Bjartmarz, f. 17.5. 1930, fyrrv. fulltrúi hjá íslenskri endurtryggingu hf. í Reykjavík, og k.h., Helga Elsa Jónsdóttir, f. 16.8. 1931, fyrrv. fulltrúi á skrifstofu lög- reglustjórans í Reykjavík. Ætt Björn Stefán er sonur Óskars Bjartmarz, forstöðumanns Löggild- ingarstofunnar í Reykjavík, bróður Guðlaugar, móður Ingólfs Jónsson- ar frá Prestbakka, rithöfundar og kennara, föður Ómars, fram- kvæmdastjóra hjá SKÝRR. Óskar var sonur Bjartmars, b. á Neðri- Brunná Kristjánssonar, og Ingi- bjargar Guðmunsdóttur. Móðir Björns Stefáns var Guðrún Bjartmarz, dóttir Björns, ritstjóra í Kaupmannahöfn, stofnanda hins þekkta danska tímarits Hjemmet, stofnanda Listasafns íslands og alþm. og sýslumanns í Dalasýslu Stefánssonar, sýslumanns á ísafirði og í Ámessýslu Björnssonar, b. á Ketilsstöðum í Jökulsárhlið Sig- urðssonar. Móðir Stefáns var Þor- björg Stefánsdóttir. Móðir Björns Alfreð Jónsson fyrrv. vegaverkstjóri, nú á Sauðárkróki DV 'OD (ö 550 5000 (5) vísir.is ”00 FAX 3 fC 550 5727 'Cö E 1 1 Þverholt 11, 105 Reykjavík c/> Alfreð Jónsson, fyrrv. vegaverk- stjóri, Fomós 9, Sauðárkróki, varð áttræður á sunnudaginn var. Starfsferill Alfreð fæddist á Stóru-Reykjum og var alinn upp í Fljótum. Hann hóf störf við vegavinnu 1930, var kúskur á hverju ári til fermingar- aldurs og síðan verkamaður í vega- vinnu til 1941 hjá ýmsum verkstjór- um. Síðast stundaði hann vegagerð í Siglufjarðarskarði 1941, hjá Frið- geiri Ámasyni. Frá 1941 stundaði Alfreð vörubif- reiðaakstur, m.a. hjá Magnúsi frá Björgum í Hörgárdal en hann var verkstjóri við lagningu vegarins yf- ir Lágheiði, milli Ólafsfjarðar og Fljóta. Þá ók Alfreð hjá Hrólfi Ás- mundssyni sem lengi var verkstjóri hjá vegagerðinni í Skagafirði. Al- freð var svo auk þess nokkum tíma á fiskibátum og togurum. Alfreð bjó á Reykjahóli í Austur- Fljótum 1942-73 en flutti þá á Sauð- árkrók og gerðist verkstjóri hjá Vegagerðinni þar. Hann var háseti á fragtskipum Sambandsins vet- urna 1982-86. Alfreð átti sæti í hreppsnefnd Holtshrepps í nokkur kjörtímabil. Fjölskylda Alfreð kvæntist 2.1.1944, Viktoríu Lilju Guðbjörnsdóttur, f. 20.10. 1924. Foreldrar hennar voru Guðbjöm Guðni Jónsson, bóndi á Reykjahóli í Austur-Fljótum, og Jónanna Júlí- ana Stefánsdóttir húsfreyja. Alfreð og Viktoría eignuðust sex börn. Þau eru Heiðrún Guðbjörg, f. 10.9.1946, fyrrv. útibússtjóri Kaupfé- lagsins á Ketilási en maður hennar er Símon Ingi Gestsson landpóstur og eiga þau fjögur börn og ellefu bamabörn; Bryndís, f. 22.10. 1947, húsfreyja í Langhúsum en maður hennar er Sigurbjöm Þorleifsson, bóndi þar og eiga þau fögur böm og tíu bamabörn; Guðmundur, f. 17.6. 1950, d. 15.3. 1981 en kona hans var Sólveig Stefanía Benjamínsdóttir og eignuðust þau þrjú börn og eitt Jónína Bjartmarz, formaóur heilbrigöis- og trygginganefndar Alþingis. Jónína hefur verið mikið í sviðsljósi stjórnmálanna frá því hún settist á þing enda vel að sér i sinum málaflokkum, sketegg, rökföst og málefnaleg. ritstjóra var Karen Emilie Bjarnar- son, f. Jörgensen, óðalsb. á Fjóni og gósseiganda í Kaupmannahöfn. Móðir Guðrúnar Bjartmarz var Guðný, systir Klemensar, landrit- ara og ráðherra, og Finns prófess- ors. Guðný var dóttir Jóns Borgfirð- ings, bókbindara, lögregluþjóns og fræðimanns Jónssonar, og Önnu Guðrúnar Eiríksdóttur. Helga Elsa er systir Jóhannesar Helga rithöfundar. Helga Elsa er dóttir Jóns Friðriks, loftskeyta- manns í Reykjavík, bróður Ingólfs, stöðvarstjóra Fjarskiptastöðvarinn- ar í Gufunesi, fóður Matthisar, for- stöðumanns hafnarþjónustu Reykja- vikurhafnar. Jón Friðrik var sonur Matthíasar, útgerðarmanns og kaupmanns í Haukadal í Dýrafirði og síðar alþm. í Reykjavík, bróður Jóhannesar, alþm. og hreppstjóra á Þingeyri, langafa Einars Kárasonar rithöfundar. Matthías var sonur Ólafs, b. í Haukadal Jónssonar og Ingibjargar Jónsdóttur. Móðir Jóns Friðriks var Marsibil Ólafsdóttir, Péturssonar, og Þórdísar Ólafsdótt- ur. Móðir Helgu Elsu var Jónína Jó- hannesdóttir, trésmiðs í Reykjavík Jónssonar, og Helgu Vigfúsdóttur. bamabam; sveinbarn, f. 1.12. 1953, d. sama dag; Jón, f. 14.2. 1959, vél- virkjameistari í Hafnarfirði en kona hans er Guðlaug Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur og eiga þau tvö kjörböm; Hallgrímur Magnús, f. 21.2.1966, vélvirki á Sauðárkróki en kona hans er Guðrún Ósk Hrafns- dóttir og eiga þau tvö börn auk þess sem Hallgrímur Magnús á eitt barn frá því áður. Alfreð átti tólf systkini. Systkini hans: Guðmundur Halldór, f. 1.8. 1923, d. 22.11. 1999, fram- kvæmdastjóri Byko; Aðalbjörg Anna, f. 8.8. 1926, húsfreyja í Varmahlíð í Skagafirði; Ás- mundur, f. 20.1. 1928, d. 7.9. 1958, var fyrsti lögregluþjón- inn á Sauðárkróki; Sigríður, f. 9.3. 1930, fyrrv. kennari 1 Steinsstaðaskóla í Skagafirði; Svavar, f. 11.9. 1931, fyrrv. rekstrarstjóri hjá Vegagerð- inni á Húsavík; Kristinn, f. 12.12. 1932, strætisvagnbíl- stjóri í Reykjavík; Baldvin, f. 21.4.1934, fyrrv. verkamaður á Sauðárkróki; Halldóra Rann- veig Hrefna, f. 30.7.1935, fyrrv. kjötiðnaðarkona á Selfossi; Pálmi, f. 1.5. 1937, lagerstjóri við kertaverksmiðju í Danmörku; Hermann, f. 13.11.1938, fyrrv. hrepp- stjóri í Fljótum; Lúðvik Rikarð, f. 29.10. 1940, starfsmaður á fjölbýli fatlaðra á Akureyri; Svala, f. 22.2. 1945, framkvæmdastjóri á Sauðár- króki. Foreldrar Alfreðs voru Jón Guð- mundsson, f. 3.9. 1900, d. 30.1. 1988, hreppstjóri, og Helga Guðrún Jós- efsdóttir, f. 12.7. 1901, d. 22.5. 1971, húsfreyja. Þau bjuggu lengst af á Molastöðum. Andlát Ari Magnús Krístjánsson, Hrafnistu, Hafnarfiröi, lést á Landspítala í Fossvogi þriðjud. 7.8. Ása Ólafsdóttir Hnsen, dvalarheimilinu Höföa, Akranesi, lést þriöjud. 7.8. Þorgerður Þorkelsdóttir frá Geröum, Grænumörk 3, Selfossi, lést á Sjúkrahúsi Suöurlands þriöjud. 7.8. Ásta Wendel Benjamínsdóttir Murray lyfjafræöingur lést á heimili sínu Barneveld I New York-ríki. Jaröarförin hefur fariö fram. Sigríöur Stefánsdóttir, Borgarbraut 65a, Borgarnesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness þriöjud. 24.7. Útförin hefurfariö fram í kyrrþey aö ósk hinnar látnu. Sigurjón Guðmundsson Sigurjón var starfsmaður Kaupfélags Ey- firðinga 1928-1930, var fyrsti erindreki Framsóknarflokksins 1930-1934, var skrif- stofustjóri Sælgætis- og efnagerðarinnar Freyju hf. í Reykjavík 1934-1962, var framkvæmdastjóri Rörsteypunnar hf. frá 1962 og framkvæmdastjóri Tímans 1951-1958. Sigurjón stofnaði fyrsta framsóknar- félag ungra manna hér á landi en það var á Akureyri 1929 og var hann for- maður þess ims hann flutti til Reykja- víkur 1930. Hann sat í stjórn Framsókn- arfélags Reykjavíkur í tólf ár og var for- maður þess í fimm ár. Þá sat hann í blaðstjórn Tímans og miðstjórn Framsókn- arflokksins. Hann lést 16. september 1975. Sigurjón Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Timans, fæddist að Hróarsstöðum í öxarfirði í Norður-Þingeyjarsýslu 10. ágúst 1903. Hann var sonur Guðmundar Jónassonar, bónda að Hróarsstöðum, og Sigmundu Katrínar Jónsdóttur hús- freyju. Bróðir Sigurjóns var Þorleifur Guðmundsson kaupsýslumaður, faðir Þórhildar, fyrrv. alþingiskonu og leik- hússtjóra, og Eggerts, leikara og tón- listarmanns. Föðurmóðir Sigurjóns var Sigríður, systir Kristínar, ömmu Ásgeirs Ásgeirssonar forseta. Sigurjón ólst upp á Þverá í Öxarfirð Hann stundaði nám við Alþýðuskólann a Eiðum 1925-1927 og lauk utanskólaprófi frá Samvinnuskólanum í Reykjavík 1928. Ólafur Ólafsson, Gauksstööum á Skaga, fyrrum bóndi Kambakoti, Skagaströnd, sem lést á Sjúkrahúsi Sauðárkróks aö- faranótt laugard. 4.8., veröur jarösung- inn frá Hólaneskirkju, Skagaströnd, laugard. 11.8. kl. 14. Sigríöur Halldórsdóttir frá Orrahóli, síö- ast til heimilis á elliheimilinu Grund, sem lést fimmtud. 2,8. veröur jarösung- in frá Staðarfelli laugard. 11.8. kl. 13. Sætaferðir veröa frá Umferöarmiöstöö- inni kl. 9.30. Kristín Pétursdóttir, Innri-Skeljabrekku, Borgarfirði, veröur jarösungin frá Hvann- eyrarkirkju laugard. 11.8. kl. 14.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.