Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2001, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2001, Side 25
29 FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2001 DV Tilvera-- Ástfanginn á ný Ólátabelgurinn og rokkarinn Tommy Lee ku hafa fallið fyrir ástarör Amor ekki alls fyrir löngu og gleymd er sorg og sút yfir plastdúkkunni og strandverðinum Pamelú Anderson. Sú sem nú hefur yfirtekið hug og hjarta kappans heitir Mayte Garcia. Hún hefur fyllt heil 27 ár á móti 35 útlifuðum árum Tommy. Þau tvö hittust á 20 ára afmæli sjónvarpsstöðvarinnar MTV nú fyrir stuttu. Að sögn vitna kolféllu þessar turtildúfur hvort fyrir öðru og gátu hreinlega ekki af hinu litið allt kvöldið. Garcia er dansari og kannski þekktust fyrir að veita manninum sem hét Prince lífsfyllingu til skamms tíma. Skilnaðarmál komin af stað Einhver umtalaðasti skilnaður síðari tíma er nú loks hafinn. Dómari í Los Angeles undirritaði leyfi svo að viðræður mættu fara af stað milli Toms Cruise og Nicole Kidman um skilmála endanlegs skilnaðar. Beðið er eftir því að alvöru sögusagnir fari af stað um hversu háar upphæðir verður um að ræða. Talið er víst að þetta sé einhver stærsti fjárhagslegi skilnaður sem átt hefur sér stað í Hollywood. Cruise er metinn á um 25 milljarða króna. Inn í þeirri tölu eru fimm hús, tvær flugvélar og skartgripir upp á um 100 miUjónir króna. Með einn í sigtinu Hún Liz sæta Hurley hefur ekki setið með hendur í skauti síðan hún og Hugh Grant slitu samvistum hér um árið. Slúðurblöð erlendis hafa verið dugleg við að segja frá hennar mýmörgu samböndum og nú er eitt nýtt komið upp á yfirborðið. Það mun vera enginn annar en eUismeUurinn síungi, Mick Jagger, sem gengið hefur í gildru, þokkagyðjunnar ef marka má erlend dægurblöð. Þau tvö sáust borða saman langan síðdegissverð og fór vel á með þeim. Jagger er nýhættur með fyrirsætunni Sophie Dahl. Kiss of the Dragon: Flæktur í banvænt samsæri Kínverski leikarinn Jet Li leikur aðal- hlutverkið í kvikmyndinni Kiss of the Dragon sem verður frumsýnd í kvöld í Sambíóunum og Nýja Bíói, Akureyri. Myndin segir frá Liu Jiuan sem er einn fremsti fulltrúi kínversku leyniþjónust- unnar. Hann er sendur í leynUegt verkefni til Parísar þar sem hann á að aðstoða sadíska lögreglumanninn Richard. Fljót- lega verður Liu hins vegar fyrir barðinu á sjúklegri bræði Richards sem endar með þvi að hann svíkur Liu. Það leiðir tU þess að Liu er orðinn flækt- ur í víðáttumikið og banvænt samsæri, sakaður um morð sem hann framdi ekki og er á flótta í borg sem hann þekkir ekk- ert tU. Á flóttanum kynnist hann hinni am- erísku Jessicu sem einnig hefur lent í klóm Richards með þeim afleiðingum að hann rændi dóttur hennar og gerði hana háða heróníi. Þau ákveða að sameina krafta sína gegn hinum illræmda Richard og leggja á ráðin til að það takist. Jet Li, sem leikur Liu, er talinn einn fremsti kvikmyndaleikari Kína í dag og hefur hann hlotið fjölda verðlauna í bar- dagalistum. Hann hefur einnig starfað sem kennari í bardagalist en lék í fyrstu kvik- mynd sinni um tvítugt. Meðal annarra leikara má nefna Bridget Fonda, Tcheky Karyo og Laurence Ashley. -MA Áflótta Leyniþjónustumaöurinn Liu er á flótta í borg sem hann þekkir ekki til. fimmta umferð fimmta umferð Laugardaginn 11. ágúst fer fram 5. umferð DY torfæru á Blönduósi keppnin hefst klukkan 14.00. Aðgangseyrir er 1000 kr. fyrir fullorðna en ókeypis er fyrir börn yngrí en 12 ára.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.